Jill Middleton skrifaði:
Hi. I have started to knit pattern no. Vs-022 but I am not clear what tel means as it seems to duplicate the instruction before it. Please could you help me
20.05.2016 - 19:38DROPS Design svaraði:
Chère Mme Middleton, there shouldn't be any "tel" in this pattern, it may come from the settings of your browser. Happy knitting!
23.05.2016 - 08:20
BERGUER skrifaði:
Bonjour,est ce que c'est normal que le nombre de mailles pour les manches soit différent, une manche a 16 mailles, et l'autre manche 14 mailles ? Merci de votre réponse
02.02.2016 - 15:36DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Berguer, tout à fait, c'est bien exact ainsi. Bon tricot!
03.02.2016 - 09:05
Jennifer Douglas skrifaði:
Looks very good. Interesting design and pattern
12.01.2016 - 16:02
El Jo skrifaði:
Genau das richtige für den Sommer-Jeans-Look! Ich freue mich schon darauf! Danke schön!
11.01.2016 - 13:42
Andrea skrifaði:
Ich habe ein ähnliches Modell zu Hause, dass ich schon immer nachstricken wollte. Mir fehlt nur eine Anleitung...
04.01.2016 - 06:10
Künzel Gabi skrifaði:
Schlicht und edel, sehr schön mit den Knöpfen, bitte bitte veröffentlichen!!!!!
15.12.2015 - 09:26
Daniela skrifaði:
Delizioso...
14.12.2015 - 15:15
Monika skrifaði:
So ein schöner, schlichter Pulli - den würde ich gerne nach arbeiten!
13.12.2015 - 12:18
Jestas skrifaði:
Vackert enkel och stilren!
12.12.2015 - 05:48
Natalie skrifaði:
A very comfortable looking sweater
10.12.2015 - 16:46
Morning at Home#morningathomesweater |
|
|
|
Prjónuð peysa úr DROPS Belle í tvöföldu perluprjóni og með laskalínu. Prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 168-28 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. TVÖFALT PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: sl yfir sl og br yfir br. UMFERÐ 3: br yfir sl og sl yfir br. UMFERÐ 4: eins og umf 2. Endurtakið umf 1 til 4. ÚTAUKNING (á við um laskalínu): Aukið út um 16 l þannig: Aukið út 2 l á eftir fyrsta prjónamerki, 2 l hvoru megin við annað, þriðja og fjórða prjónamerki og 2 l á undan fimmta prjónamerki. AUKIÐ ÚT Á UNDAN PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Byrjið 2 l á undan prjónamerki: Prjónið 2 l í fyrstu l, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, prjónamerki. AUKIÐ ÚT Á EFTIR PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Prjónamerki, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l í næstu l. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður brugðið svo ekki myndist gat. Aukið út um 8 l þannig: Aukið út um 1 l á eftir fyrsta prjónamerki, 1 l sl hvoru megin við annað, þriðja og fjórða prjónamerki og 1 l á undan fimmta prjónamerki. AUKIÐ ÚT Á UNDAN PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Byrjið einni l á undan prjónamerki: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, prjónamerki. AUKIÐ ÚT Á EFTIR PRJÓNAMERKI ÞANNIG: Prjónamerki, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður brugðið svo ekki myndist gat. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti. 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist (mælt frá uppfitjunarkanti): STÆRÐ S: 2, 6, 10 og 13 cm. STÆRÐ M: 2, 6, 10 og 14 cm. STÆRÐ L: 2, 6, 10 og 15 cm. STÆRÐ XL: 2, 6, 10 og 16 cm. STÆRÐ XXL: 2, 7, 12 og 17 cm. STÆRÐ XXXL: 2, 7, 12 og 18 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 104-108-116-120-124-132 l (meðtaldar 4 l í hvorri hlið fyrir kanti með tölum/hnappagötum) á hringprjóna nr 4 með Belle. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umf slétt frá réttu þar sem aukið er út um 8-12-16-24-36-44 l jafnt yfir – ATH: Þær 4 síðustu l í hvorri hlið við miðju að framan eru prjónaðar slétt og ekki er aukið út yfir þessar l (= kantlykkjur) = 112-120-132-144-160-176 l á prjóni. Stykkið byrjar í vinstri hlið, á milli erma og framstykkis. Setjið 5 prjónamerki í stykkið þannig (frá röngu): Prjónið 4 l sl (= kantlykkjur), setjið 1 prjónamerki, prjónið 36-40-46-52-60-68 l br (= framstykki), setjið 1 prjónamerki, prjónið 16 l br (= ermi), setjið 1 prjónamerki, prjónið 38-42-48-54-62-70 l br (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki, prjónið 14 l br (= ermi), setjið 1 prjónamerki og endið á 4 l sl (= kantlykkjur). Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan TVÖFALT PERLUPRJÓN yfir l á framstykki og á bakstykki, l á ermum eru prjónaðar í sléttprjóni. Kantur fyrir hnappagöt/tölur heldur áfram í garðaprjóni, JAFNFRAMT er aukið út fyrir LASKALÍNA – LESIÐ ÚTAUKNING! Aukið út í annarri hverri umf (= í hverri umf frá réttu) þannig: Aukið út um 16 l 2-2-3-4-4-5 sinnum, síðan er aukið út um 8 l 19-21-21-21-23-23 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir alla útaukningu fyrir laskalínu eru 296-320-348-376-408-440 l á prjóni og stykkið mælist ca 15-16-17-18-19-20 cm frá uppfitjunarkanti. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Fellið af 2 fyrstu l í umf, prjónið 84-92-102-112-124-136 l (= framstykki), setjið næstu 62-66-70-74-78-82 l á þráð (= ermi), setjið næstu 84-92-102-112-124-136 l á þráð (= bakstykki), setjið næstu 62-66-70-74-78-82 l á þráð (= ermi), fellið af 2 síðustu l. FRAMSTYKKI: Framstykki er prjónað fram og til baka. = 84-92-102-112-124-136 l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram með tvöfalt perluprjón, í 2 fyrstu umf eru fitjaðar upp 4 nýjar l í hvorri hlið = 92-100-110-120-132-144 l. Haldið áfram með tvöfalt perluprjón með 4 l garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l, fellið síðan af. BAKSTYKKI: Setjið til baka 84-92-102-112-124-136 l af þræði á hringprjóna nr 4, prjónið á sama hátt og framstykki. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna. Setjið til baka 62-66-70-74-78-82 l á sokkaprjóna nr 4 og fitjið upp 8 l mitt undir ermi = 70-74-78-82-86-90 l. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8 nýjar l sem fitjaðar voru upp. Haldið áfram í sléttprjóni. HÉÐAN ER NÚ MÆLT. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki, endurtakið úrtöku með 2½-2½-2-2-2-2 cm millibili 14-15-16-17-18-19 sinnum til viðbótar = 40-42-44-46-48-50 l. Þegar stykkið mælist 49-49-48-48-47-47 cm prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Leggið 4 l í kanti fyrir tölur/hnappagat frá ermi undir 4 l frá framstykki og saumið niður. Saumið hliðarsauma í ysta lykkjubogann, en skiljið eftir 16 cm neðst niðri = klauf. Saumið tölur í kant að framan frá vinstri ermi. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #morningathomesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 168-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.