DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12298.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Graceful Mermaid

Heklað poncho úr DROPS Cotton Merino með gatamynstri, heklað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 168-29
DROPS Design: Mynstur nr cm-048
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL /XXXL

Efni:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio
650-750-800 g nr 09, ísblár

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 st x 10 umf verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Merino
DROPS Cotton Merino
50% Ull, 50% Bómull
frá 946.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12298.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.16.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umf með st, er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll.
Í byrjun á hverri umf með tbst, er fyrsta tbst skipt út fyrir 4 ll.
Í byrjun á hverri umf með fl, er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er alveg eins að framan og að aftan með op í hliðum. Heklað er fram og til baka ofan frá og niður.

HÆGRI ÖXL – FRAMSTYKKI:
Heklið 80-98-117 ll með heklunál nr 3,5 með Cotton Merion. Snúið við og heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st), 1 st í hverja og eina af næstu 1-4-3 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 4 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 63-78-93 st (meðtaldar 2 kantlykkjur í hlið).
Næsta umf (= frá réttu) er hekluð þannig: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! 1 st í hvern og einn af fyrstu 2 st (= kantlykkja), A.1 yfir næstu 7 st, A.2 yfir næstu 45-60-75 st (= 3-4-5 sinnum), endið á A.4 yfir næstu 9 st. Heklið til og með umf 6. Geymið stykkið og heklið vinstri öxl.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!

VINSTRI ÖXL – FRAMSTYKKI:
Heklið fyrstu umf eins og hægri öxl – framstykki = 63-78-93 st.
Næsta umf (= frá réttu) er hekluð þannig: A.5 yfir fyrstu 7 st, A.2 yfir næstu 45-60-75 st (= 3-4-5 sinnum), A.3 yfir næstu 9 st, endið með 1 st í hvorn af næstu 2 st (= kantlykkjur). Heklið til og með umf 6 – ATH: kl í lok A.5 er hekluð í hægri öxl svo að axlirnar hangi saman. Klippið frá og byrjið að hekla frá réttu yfir báðar axlir.

FRAMSTYKKI:
Haldið síðan áfram með mynstur (= umf 7), þ.e.a.s. næsta umf (= frá réttu) er hekluð þannig: 1 st í hvorn af næstu 2 st (= kantlykkja), A.1 yfir næstu 7 st, A.2 yfir næstu 135-165-195 st/ll (= 9-11-13 sinnum) – ATH: Síðasta umf í A.4/A.5 sýnir hvernig umf 7 í A.2 er hekluð yfir miðju (= A.4, 15 ll, A.5), A.3 yfir næstu 9 st, endið á 1 st í hvorn af næstu 2 st (= kantlykkja). Heklið mynstur A.1/A.2/A.3 alls 1 sinni á hæðina = 155-185-215 st í síðustu umf.

Næsta umf (= frá röngu) er hekluð þannig: 1 st í hvorn af fyrstu 2 st, A.10 yfir næstu 51-66-69 st (= 17-22-23 sinnum), A.9 yfir næstu 13 st, A.8 yfir næstu 24-24-48 st (= 1-1-2 sinnum), A.7 yfir næstu 12 st, A.6 yfir næstu 51-66-69 st (= 17-22-23 sinnum), endið á 1 st í hvorn af næstu 2 st. Heklið til og með umf 3. Heklið síðan A.X alls 2-2-3 sinnum á hæðina. Heklið síðan A.Y alls 1-1-0 sinnum á hæðina.

Næsta umf (= frá réttu) er hekluð þannig: Heklið 1 st í hvern st/fl, 1 st um hverja ll, 2 st um hvern ll-boga með 2 ll, 3 st um hvern ll-boga með 3 ll og 4 st um hvern ll-boga með 5 ll = 155-185-215 st.

Næsta umf (= frá röngu) er hekluð þannig: Heklið 1 st í hvorn af fyrstu 2 st, A.3 yfir næstu 9 st, A.2 yfir næstu 135-165-195 st (= 9-11-13 sinnum), A.1 yfir næstu 7 st, endið á 1 st í hvorn af næstu 2 st.
Heklið A.3/A.2/A.1 alls 1 sinni á hæðina = 155-185-215 st í síðustu umf.

Næsta umf (= frá réttu) er hekluð þannig: Heklið 1 st í hvorn af fyrstu 2 st, A.11 yfir næstu 7 st, A.12 yfir næstu 135-165-195 st (= 9-11-13 sinnum), A.13 yfir næstu 9 st, endið á 1 st í hvorn af næstu 2 st.
Heklið A.11/A.12/A.13 alls 1 sinni á hæðina.

Næsta umf (= frá röngu) er hekluð þannig: Heklið 1 st í hvorn af fyrstu 2 st, A.16 yfir A.13, A.15yfir A.12 og A.14 yfir A.11.
Heklið síðan umf 4 og 5 í A.1/A.2/A.3, þ.e.a.s. næsta umf (= frá réttu) er hekluð þannig: Heklið 1 st í hvorn af fyrstu 2 st, A.1 yfir A.14, A.2 yfir A.15, A.3 yfir A.16, endið á 1 st í hvorn af næstu 2 st. Klippið frá og festið enda.

VINSTRI ÖXL – BAKSTYKKI:
Heklið í vinstri öxl á framstykki, nema í gangstæða átt með byrjun frá röngu. Í stað þess að hekla ll og fyrstu st-umferðina er heklað þannig: Heklið 1 fl í hvern af 78-93-108 st. Heklið síðan eins og hægri öxl – framstykki.

HÆGRI ÖXL – BAKSTYKKI:
Heklið í hægri öxl á framstykki, nema í gagnstæða átt með byrjun frá röngu. Í stað þess að hekla ll og fyrstu st-umferðina er heklað þannig: Heklið 1 fl í hvern af 78-93-108 st. Heklið síðan eins og vinstri öxl – framstykki.

BAKSTYKKI:
Heklið síðan eins og framstykki.

HÁLSMÁL:
Byrjið á annarri öxlinni, heklið meðfram öllu hálsmálinu frá réttu þannig: 2 fl um hverja st-umf, 1 ll, 3 fl um hvern tbst-umf/ll-boga, 1 ll o.s.frv. Endið á 1 kl í fyrstu fl. Klippið frá og festið enda.

TVINNUÐ SNÚRA:
Klippið 2 þræði Cotton Merino ca 6 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda og þræðið í gegnum eitt gat í hlið á fram- og bakstykki, ca 26-27-28 cm niður frá öxl og hnýtið slaufu. Gerið aðra snúru til viðbótar og festið í hina hliðina á poncho.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 31.08.2016
Margar leiðréttingar hafa verið gerðar á HÆGRI ÖXL - FRAMSTYKKI og VINSTRI ÖXL - FRAMSTYKKI. Nýr texti undir FRAMSTYKKI.
Yfirfarið á vefsvæði: 08.06.2017
FRAMSTYKKI...Heklið síðan A.X alls 2-2-3 sinnum á hæðina. Heklið síðan A.Y alls 1-1-0 sinnum á hæðina.
Næsta umf (= frá réttu) er hekluð þannig: Heklið 1 st í hvern st/fl, 1 st um hverja ll, 2 st um hvern ll-boga með 2 ll, 3 st um hvern ll-boga með 3 ll og 4 st um hvern ll-boga með 5 ll = 155-185-215 st.
Yfirfarið á vefsvæði: 19.03.2019
Leiðrétting - FRAMSTYKKI - búið er að leiðrétta hvort prjónað sé frá réttu og frá röngu á nokkrum stöðum í framstykki

Mynstur

symbols = ll
symbols = fl í l
symbols = fl um ll
symbols = 2 ll
symbols = 3 ll
symbols = 4 ll
symbols = 5 ll
symbols = 6 ll
symbols = 7 ll
symbols = 8 ll
symbols = st í l
symbols = st um ll/ll-boga
symbols = 2 st saman: Heklið 1 st í l, en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið næsta st í næsta st, en þegar draga á bandið í gegn í lokin er það dregið í gegnum allar 3 l á heklunálinni
symbols = 2 st saman um ll-bogann
symbols = 2 st saman í sama st
symbols = tbst í st
symbols = tbst um ll/ll-boga
symbols = þbst um ll/ll-boga
symbols = síðasta umf frá fyrra mynstri/uppskrift, umferðin hefur nú þegar verið hekluð
symbols = sýnir hvernig næsta umf í A.2 er hekluð yfir þessar ll
symbols = kl í 4. ll
symbols = heklstefna
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 168-29

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (83)

country flag Lucette wrote:

Bonjour, Le schéma A13 ne devrait-il pas se faire sur 7 brides au lieu des 9 indiquées ? Je suis allée voir dans le modèle original et là ils écrivent bien sur 7 brides je crois. Neste rad (= fra retten) hekles slik: Hekle 1 st i hver av de første 2 st, A.11 over de neste 7 st, A.12 over de neste 135-165-195 st (= 9-11-13 ganger), A.13 over de neste 7 st, avslutt med 1 st i hver av de neste 2 st. Hekle A.11/A.12/A.13 totalt 1 gang i høyden.

04.09.2020 - 17:57

DROPS Design answered:

Bonjour Lucette, effectivement, mais l'erreur vient probablement de la correction lorsqu'elle a été faite en norvégien, car A.13 se crochète bien sur 9 brides comme le montre le schéma: 2 brides, A.11 (= 7 m) A.12 (= 135-165-195 m), A.13 (= 9 m), 2 b= 2+7+135-165-195+9+2=155-185-215 m. Merci pour votre retour, la correction va être faite. Bon crochet!

07.09.2020 - 08:11

country flag RaeGina wrote:

Hello, I have completed the front and I am about to start the back. I am confused as how to start. Do I chain and continue, then sew the shoulder seams? Or do I crochet into the beginning chain of the front? Thanks!

28.07.2020 - 17:57

DROPS Design answered:

Dear RaeGina, the shoulders on back piece are worked in the chain stitches of shoulders on front piece, ie instead of starting with the foundation chain, crochet 1 single crochet in each of the given double crochets of the shoulder, front piece. Happy crocheting!

29.07.2020 - 11:31

country flag Laurie wrote:

Pour moi le rang 7 est sur l'envers et non sur l'endroit ? faut il joindre en fin de 6ème rang par une mc ou au milieu du 7ème rang ? et comment ? je suis complètement perdue impossible de comprendre le diagramme

10.06.2020 - 09:35

DROPS Design answered:

Bonjour Laurie, le 1er rang des diagrammes a été crocheté sur l'endroit, tous les rang impairs sont donc sur l'endroit, y compris le 7ème rang. Les 2 épaules sont assemblées entre elles à la fin du 6ème rang de l'épaule gauche (= 1 mc dans l'épaule droite). Bon crochet!

10.06.2020 - 12:33

country flag Paige wrote:

Merci pour votre réponse! Pour moi le 1er "endroit" était juste, c'est le suivant et tout ce qui suit qui est inversé. Du moins il me semble en tous les cas c'est comme ça que j'ai fait^^ merci encore!

13.03.2019 - 16:28

DROPS Design answered:

Bonjour Paige, il semble effectivement que les rangs envers/endroit ont été inversés, nos stylistes vont vérifier pour que la correction soit faite, merci. Bon crochet!

14.03.2019 - 09:40

country flag Paige wrote:

Bonjour Merci pour ce modèle que je me régale à crocheter! Il me semble qu'il y a une erreur sur l'indication endroit/envers car pour le devant il est écrit: "Crocheter le rang suivant (= sur l'ENDROIT) ainsi: (...) Crocheter le rang suivant (= sur l'ENDROIT)" 2 rangs de suite à l'endroit? c'est impossible non?merci beaucoup

13.03.2019 - 13:12

DROPS Design answered:

Bonjour Paige et merci, effectivement, après A.X et A.Y (devant), le rang suivant se crochète sur l'envers = 155-185-215 B, puis on crochète le rang suivant sur l'endroit. La correction a été faite, merci. Bon crochet!

13.03.2019 - 15:04

country flag Debby wrote:

Ik loop vast! Ik ben bij de rechterschouder en ben begonnen met 98 steken ben nu in de rij waar ik in A1 7 steken 3 lossen en dan een vaste moet doen en ze zeggen dan de volgende 60 steken als A2 dan hebben ze het over A4 nog 9 steken. Valt A3 nu weg ? En ga ik over in A4 of komt A4 gewoon na A3 alleen 78 min min 7 A1 en min 60 A2 dan hou ik er nog 11 over. Heb ik iets fout gedaan.

08.03.2019 - 10:48

DROPS Design answered:

Dag Debby,

Voor de rechter schouder hoef je A.3 inderdaad niet te haken en haak je inderdaad A.4.

11.04.2019 - 15:30

country flag Mourdon wrote:

Bonjour, J'aimerais faire ce modèle mais je ne sais pas quelle quantité de laine commander

09.01.2019 - 21:18

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Mourdon, vous trouverez la quantité nécessaire pour chaque taille indiquée au poids sous l'en-tête, par ex, en taille S/M il faut 650 g DROPS Cotton Merino / 50 g la pelote = 13 pelotes en taille S/M. Bon crochet!

10.01.2019 - 09:27

country flag Willa wrote:

The very first row of this pattern says \\\"skip ch 1\\\"? What exactly does this mean?

22.09.2018 - 21:44

DROPS Design answered:

Dear Willa, this means skip 1 chain stitch from the beginning chain row - so you will crochet not into this chain stitch, but into the next one. Happy crocheting!

22.09.2018 - 22:41

country flag Sharon wrote:

Hi there, I'm slightly confused - it says you work the pattern back and forth from top down. Do you also read the pattern graphic back and forth or only from the right? Or do you need to work rows 3 - 6 in one direction only in order to get increases in A.4? Many thanks Sharon

14.07.2018 - 19:11

DROPS Design answered:

Hi Sharon, You read the diagram starting at the bottom, from right to left when working from the right side and from left to right on the wrong side. Happy crocheting!

15.07.2018 - 14:36

country flag Marie wrote:

Sur l’epaule Gauche on doute faire a5 a2 et a3 Doit on faire a5 de droite vers la gauche et a2 et a3 aussi de droite vers gauche et ensuite le contraire

25.06.2018 - 06:07

DROPS Design answered:

Bonjour Marie, pour l'épaule gauche, on crochète les diagrammes comme indiqué dans la réponse précédente, soit sur l'endroit: A.5, A.2, A.3 et sur l'envers: A.3, A.2, A.5. Bon crochet!

25.06.2018 - 09:23