Let\'s Relax#letsrelaxpuff |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónaðir púðar úr 4 þráðum DROPS Snow í garðaprjóni og köðlum eða brugðnum lykkjum. Einnig hægt að prjóna þá úr 2 þráðum DROPS Polaris.
DROPS 163-6 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- TVEIR ÞRÆÐIR: Notið þráð innan úr dokkunni og utan með. Þegar skipt er um dokku er gott að skipta ekki um báða þræðina í einu – þá verður skiptingin ekki eins þykk. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaðar snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir göt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PÚÐI MEÐ KÖÐLUM - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna – LESIÐ TVEIR ÞRÆÐIR! PÚÐI: Fitjið upp 6 l á hringprjóna nr 15 með 4 þráðum Snow eða 2 þráðum Polaris. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar, prjónið 2 l sl í síðustu l = 12 l. UMFERÐ 2: Prjónið sl yfir allar l. ATH: Uppslátturinn er alltaf prjónaður snúinn slétt í næstu umf (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað fyrir framan) svo ekki myndist gat! Setjið eitt prjónamerki í 2., 4., 6., 8., 10. og 12. l. Haldið síðan áfram í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT er aukið út um 1 l á undan hverri l með prjónamerki (= 6 l fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í hverri umf frá réttu 7 sinnum til viðbótar = 60 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í næstu umf frá réttu er aukið út um 12 l jafnt yfir = 72 l. Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið A.1 (= 6 l) 12 sinnum á breiddina (ATH: Ekki er prjónuð kantlykkja þar sem l eru svo þykkar). Þegar allt A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið fyrstu 5 umf í A.1 (síðasta umf frá réttu). Prjónið nú 1 umf br frá röngu. Haldið nú áfram í garðaprjóni til loka. Í næstu umf frá réttu er fækkað um 12 l jafnt yfir með því að prjóna 2 l slétt saman = 60 l. Setjið nú 6 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna: Setjið eitt prjónamerki í 1. l, síðan eru sett 5 prjónamerki til viðbótar með 9 l millibili. Nú eru eftir 9 l eftir síðasta prjónamerki. Í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l á eftir hverju prjónamerki. Endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu 7 sinnum til viðbótar = 12 l. Prjónið nú l 2 og 2 slétt saman = 6 l. Klippið frá, skiljið eftir nægilega langan enda til þess að sauma púðann saman í lokin. FRÁGANGUR: Þræðið þræðina í gegnum þær l sem eftir eru og herðið vel að, hnýtið hnút og festið þráðinn vel án þess að klippa frá (= botn á púðaveri). Saumið opið, saumið yst í lykkjubogana með 2 þráðum Snow eða 1 þræði Polaris. Púðaverið er fyllt (það getur verið kostur að vera tveir í þessu verki til þess að þetta gangi betur): Leggið 1 kodda (ca 1400 gr) eða 2 kodda (ca 700 gr ofan á hvorn annan) og dragið koddaver yfir. Troðið koddunum í púðaverið. Dragið saman toppinn á púðaverinu / púða. Festið vel. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PÚÐI MEÐ BRUGÐNUM LYKKJUM SEM FÆRAST TIL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna – LESIÐ TVEIR ÞRÆÐIR! PÚÐI MEÐ BRUGÐNUM LYKKJUM SEM FÆRAST TIL: Fitjið upp 6 l á hringprjóna nr 15 með 4 þráðum Snow eða 2 þráðum Polaris. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar, prjónið 2 l sl í síðustu l = 12 l. UMFERÐ 2: Prjónið sl yfir allar l. ATH: Uppslátturinn er alltaf prjónaður snúinn slétt í næstu umf (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) svo ekki myndist gat! Setjið eitt prjónamerki í 2., 4., 6., 8., 10. og 12 l. Haldið síðan áfram í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT er aukið út um 1 l á undan hverri l með prjónamerki í (= 6 l fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í hverri umf frá réttu 7 sinnum til viðbótar = 60 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í næstu umf frá réttu er aukið út um 10 l jafnt yfir = 70 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Setjið eitt prjónamerki hér – stykkið er nú mælt héðan! Prjónið síðan mynstur þannig: Prjónið 2 l garðaprjón, prjónið síðan A.2 (= 6 l) 11 sinnum á breiddina, 2 l garðaprjón. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka 1 sinni á hæðina er haldið áfram með br í mynstri svo að það færist til um 1 l til vinstri (séð frá réttu) í hverri umf. Þegar stykkið mælist 16 cm frá prjónamerki er haldið áfram þannig: Prjónið síðan garðaprjón til loka, JAFNFRAMT í fyrstu umf frá réttu er fækkað um 10 l jafnt yfir = 60 l. Setjið nú 6 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna: Setjið eitt prjónamerki í 1. l, síðan eru sett 5 prjónamerki til viðbótar með 9 l millibili. Nú eru 9 l eftir síðasta prjónamerki. Í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l á eftir hverju prjónamerki. Endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu 7 sinnum til viðbótar = 12 l. Prjónið nú l 2 og 2 slétt saman = 6 l. Klippið frá og látið vera nægilega langan enda til þess að sauma púðann saman í lokin. FRÁGANGUR: Þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og herðið vel að, hnýtið hnút og festið þráðinn vel án þess að klippa frá (= botn á púðaveri). Saumið opið, saumið yst í lykkjubogana með 2 þráðum Snow eða 1 þræði Polaris. Púðaverið er fyllt þannig (það getur verið kostur að vera tveir í þessu verki til þess að þetta gangi betur): Leggið 1 kodda (ca 1400 gr) eða 2 kodda (ca 700 gr ofan á hvorn annan) og dragið koddaver yfir. Troðið koddunum í púðaverið. Dragið saman toppinn á púðaverinu / púða. Festið vel. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #letsrelaxpuff eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 163-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.