Lena Persson skrifaði:
Hittar inte garnet fabel 674 någonstans att köpa Vill ju gärna ha mössan o halsduken i precis dessa färger. Hälsningar Lena
29.11.2023 - 00:32DROPS Design svaraði:
Hej Lena. Färg 674 har dessvärre utgått ur sortimentet, men du kan välja en annan färg från DROPS Fabel färgkarta att använda. Mvh DROPS Design
29.11.2023 - 07:58
Mona Tuftedal skrifaði:
Hei, hva er strikkefastheten på luen? Finner ikke helt noe sted dette står skrevet! Vennlig hilsen Mona
29.08.2015 - 11:03DROPS Design svaraði:
Hei Mona. Det staar överst: DROPS SETTP OG RUNDP (40 cm) NR 3 – eller det p.nr du må bruke for å få 24 m x 48 p rillestrikk på 10 x 10 cm.
01.09.2015 - 17:11
Ingrid skrifaði:
Een prachtige set, maar wordt de sjaal met een dubbele draad gebreid ? Dit vraag ik omdat de muts met nld. 3 en de sjaal met nld. 5 wordt gebreid. Ik wil de set graag maken vandaar mijn vraag
16.08.2015 - 09:34DROPS Design svaraði:
Hoi Ingrid. De sjaal wordt ook met een enkele draad gebreid, maar dan losser. De stekenverhouding moet 19 st x 38 nld in ribbelsteken = 10 x 10 cm.
18.08.2015 - 17:03
Beryl Drake skrifaði:
Lovely use of colours and good design.
29.05.2015 - 03:14
Henriette skrifaði:
Een prachtige lange sjaal,bescheiden en toch apart.
27.05.2015 - 19:26
Flutter#flutterscarf |
|
![]() |
![]() |
Settið samanstendur af: Prjónaðri húfu í garðaprjóni og hálsklút prjónaður frá hlið í garðaprjóni og blúndukanti úr DROPS Fabel.
DROPS 165-25 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. RENDUR (húfa): * 4 umf garðaprjón með litnum bleikvínrauður, 2 umf garðaprjón með litnum fjólublár *, endurtakið frá *-* til loka. ÚRTAKA (húfa): Fækkið lykkjum alltaf í sléttri umferð. Fækkið um 1 l með því að prjóna 2 l slétt saman. SÓLFJÖÐUR (hálsklútur): UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 32 l sl, snúið við. UMFERÐ 2 (= rétta): Takið fyrstu l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, herðið á þræði og prjónið 31 l sl, snúið við. UMFERÐ 3 (= ranga) : Prjónið 30 l sl, snúið við. UMFERÐ 4: (= rétta): Takið fyrstu l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, herðið á þræði og prjónið 29 l sl, snúið við. UMFERÐ 5 (= ranga): Prjónið 28 l sl, snúið við. UMFERÐ 6 (= rétta): Takið fyrstu l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, herðið á þræði og prjónið 27 l sl, snúið við. Haldið áfram fram og til baka með því að snúa við þegar 2 l eru færri í hvert skipti sem prjónað er fram og til baka yfir 2 síðustu l. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 112-116-120 l á hringprjóna nr 3 með litnum fjólublár og prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í 5 cm. Prjónið síðan RENDUR – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 14-16-18 cm er fækkað um 10-10-12 l jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA = 102-106-108 l. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 18-20-22 cm = 92-96-96 l. Þegar stykkið mælist 20-22-24 cm fækkið um 16-18-18 l jafnt yfir = 76-78-78 l. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 21-23-25 og 22-24-26 cm = 44-42-42 l. Þegar stykkið mælist 23-25-27 cm prjónið allar lykkjur slétt saman 2 og 2. Prjónið 2 umf garðaprjón. Í næstu umf eru allar l prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 11 l eftir í umf í öllum stærðum. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. ------------------------------------------------------- HÁLSKLÚTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. HÁLSKLÚTUR: Stykkið er prjónað frá hlið. Vegna lykkjufjöldans er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 300 l á hringprjóna nr 5 með litnum bleikvínrauður. Setjið 1 prjónamerki í 32 l inn frá hvorri hlið og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta – prjónið með litnum bleikvínrauður): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið 3 l sl, prjónið br þar til 3 l eru eftir á prjóni og endið á 3 l sl. UMFERÐ 7 (= rétta): Skiptið yfir í litinn fjólublár og prjónið sl út umf. UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið SÓLFJÖÐUR – sjá útskýringu að ofan, fram og til baka yfir l á undan prjónamerki. Þegar sólfjöðrin hefur verið prjónuð (eftir alls 32 umf) prjónið sl til baka yfir allar l – ATH: Til þess að koma í veg fyrir göt í skiptingunum á milli snúninga á sólfjöður, setjið þráðinn á milli snúninga snúinn til baka á prjóninn og prjónið slétt saman með l á vinstri prjóni. Snúið við og prjónið sólfjöður fram og til baka yfir allar l á undan prjónamerki í annarri hliðinni. Nú er 1 sólfjöður í hvorri hlið á hálsklút. Sólfjöðrin hefur nú verið prjónuð til loka og haldið áfram þannig: ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! UMFERÐ 9 (= rétta): Skiptið yfir í litinn bleikvínrauður og prjónið sl út umf. UMFERÐ 10 (= ranga): Prjónið 3 l sl, prjónið br þar til 3 l eru eftir á prjóni og endið á 3 l sl. UMFERÐ 11 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 12 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 13 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 14 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 15 (= rétta): Skiptið yfir í litinn fjólublár og prjónið sl út umf. UMFERÐ 16 (= ranga): Prjónið slétt. Endurtakið umf 1-16 þar til stykkið mælist ca 30 cm – ATH: Endið eftir 13. umf í mynstri til þess að hálsklúturinn byrji og endi eins í hvorri hlið. Fellið síðan laust af með sl frá röngu – ATH: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur er slegið uppá prjóninn eftir ca 5. hverja l JAFNFRAMT er fellt af (uppslátturinn er felldur af eins og 1 l). |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #flutterscarf eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 165-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.