Silvia skrifaði:
Hi there just wanted to give you a quick heads up and let you know a few of the pictures aren't loading properly. I'm not sure why but I think its a linking issue. I've tried it in two different browsers and both show the same outcome.
16.06.2015 - 21:05
Shelby skrifaði:
This site was... how do you say it? Relevant!! Finally I've found something which helped me. Many thanks!
16.06.2015 - 09:31Ekogroszek Opinie skrifaði:
Znakomity artyku_. Przeczyta_em go jednym tchem. Pozdrawiam
15.06.2015 - 07:23
Sophie DROMARD skrifaði:
J'aime beaucoup ce modèle de chausson qui ont l'air bien chauds.
13.06.2015 - 08:39
Martha skrifaði:
Wunderschön, ich möchte am liebsten gleich anfangen zu stricken ;)
10.06.2015 - 23:45Archer skrifaði:
Seriously.
10.06.2015 - 18:08
Bente Kristensen skrifaði:
De er bare flotte og sikkert varme
08.06.2015 - 21:30
Removals To France skrifaði:
Why viewers still use to read news papers when in this technological globe everything is available on net?
06.06.2015 - 17:38
_________ skrifaði:
Saved as a favorite, I like your site!
05.06.2015 - 08:43
Personalize Tshirts skrifaði:
No matter if some one searches for his required thing, so he/she needs to be available that in detail, therefore that thing is maintained over here.
05.06.2015 - 08:39
Forest Steps#foreststepsslippers |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónaðar tátiljur með köðlum og stroffprjóni úr DROPS Snow. Stærð 35-42.
DROPS 164-36 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.3. Mynsturteikning sýnir allar umf séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. Í lokin er prjónað stroff sem saumað er á táiljuna. TÁTILJA: Fitjið upp 36-38-40 l á sokkaprjóna nr 6 með Snow. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umf, prjónið stroffprjón 1 l sl, 1 l br yfir fyrstu 13-14-15 l, prjónið A.1 yfir 11 l, prjónið stroffprjón 1 l sl, 1 l br yfir næstu 12-13-14 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðan á sama hátt þar til stykkið mælist ca 10 cm. Prjónið fram þar til A.1 byrjar. Setjið nú allar l nema lykkjur í A.1 á þráð. Prjónið síðan eftir A.1 og fitjið samtímis upp 1 nýja kantlykkju hvoru megin við 11 l = 13 l (= efri partur). Þegar efri parturinn mælist ca 7-8,5-10 cm fellið af 1 kantlykkju í hvorri hlið frá réttu = 11 l. Prjónið síðan upp 12-14-16 l innan við 1 kantlykkju meðfram hlið á efri parti, setjið til baka l af þræði á sokkaprjóna og prjónið yfir þessar l, prjónið síðan upp 12-14-16 l innan við 1 kantlykkju meðfram hinni hliðinni á efri parti = 60-66-72 á prjóni. Setjið 1 prjónamerki fyrir miðju framan á tá og 1 prjónamerki fyrir miðju aftan á hæl, mælið nú héðan. Haldið áfram hringinn í stroffprjóni yfir allar l þar til stykkið mælist ca 4-5-5 cm frá prjónamerki. Prjónið síðan sléttprjón og fækkið um 2 l hvoru megin við prjónamerkin í annarri hverri umf (= 4 l færri í hverri úrtökuumferð), haldið áfram með úrtöku þar til stykkið mælist 7-8-9 cm frá prjónamerki. Fellið af. Brjótið stykkið saman og saumið saman við affellingarkant. Saumið yst í lykkjubogann svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Prjónið aðra tátilju á sama hátt. STROFF: Prjónuð eru 2 laus stroff sem saumuð eru niður efst á tátiljuna í lokin. Stroff 1: Fitjið upp 14 l á prjóna nr 6 með Snow. Prjónið 2 umf sl. Í næstu umf er prjónað frá röngu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 1 l br, 1 l sl, 1 l br, 1 l sl, 1 l br, 1 l sl, * 1 l br, sláið uppá prjóninn, 1 l br, sláið uppá prjóninn, 1 l sl, endurtakið frá *-* 1 sinni, 1 l sl og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 18 l. Næsta umf er prjónuð eftir mynstri A.2 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (1. umf = rétta), uppslátturinn frá fyrri umf er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist göt. Haldið áfram að prjóna eftir A.2 þar til stykkið mælist ca 31-33-35 cm. Prjónið 2 umf slétt og fellið af með sl. Saumið saman affellingarkantinn og uppfitjunarkantinn með smáu spori. Stroff 2: Fitjið upp 14 l á prjóna nr 6 með Snow. Prjónið 2 umf sl. Í næstu umf er prjónað frá röngu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 1 l sl, * 1 l br, sláið uppá prjóninn, 1 l br, sláið uppá prjóninn *, 1 l sl, endurtakið frá *-* 1 sinni, 1 l sl, 1 br, 1 l sl, 1 l br, 1 l sl, 1 l br og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 18 l. Næsta umf er prjónuð eftir mynstri A.3 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (1. umf = rétta), uppslátturinn frá fyrri umf er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist göt. Haldið áfram að prjóna eftir A.3 þar til stykkið mælist ca 31-33-35 cm. Prjónið 2 umf slétt og fellið af með sl. Saumið saman affellingarkantinn og uppfitjunarkantinn með smáu spori. FRÁGANGUR: Saumið niður lausu stroffin á tátiljurnar, dragið stroffið ca 1 cm niður að utanverðu á tátilju og saumið með smáu spori. Passið uppá að saumurinn verið fyrir miðju að aftan og að hliðin með kaðli sitji efst á tátiljunni. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #foreststepsslippers eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 164-36
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.