Nevin Karadirek skrifaði:
Ik wil een opmerking plaatsen bij TOER 8 Nog net voor herhaling gaat het om 20 stokjes in plaats va 10, voor de 3 rijen die daarna komen. Ik wilde toch even vermelden. Ik dank u vriendelijk. Mw. N. Karadirek
26.02.2025 - 17:06
Marie The skrifaði:
Si je comprends bien, le carré fleur n'est pas doublé ! Pourquoi ?
12.06.2024 - 13:00DROPS Design svaraði:
Bonjour Marie-The, choix de la styliste sans doute, mais vous pouvez tout à fait le doubler si vous le souhaitez. Bon crochet!
12.06.2024 - 16:32
Katarzyna skrifaði:
Zrobiłam już kwadrat z kwiatkiem. Mam problem jak robić dalej tj rząd. Pierwszy. Czy jest jakiś schemat graficzny do dalszej części wzoru?
07.08.2019 - 00:27DROPS Design svaraði:
Witaj Kasiu! Niestety jest tylko opis, przerabiaj dokładnie zgodnie z opisem do rzędu 1. Przerabiasz w tę i z powrotem ponad 2 przylegającymi do siebie bokami kwadratu, zaczynając od 1-szego słupka za łukiem – patrz gwiazdka w schemacie. Na środku między 2 bokami kwadratu (czyli w łuk) są dodawane słupki. Poradzisz sobie z pewnością. Pozdrawiamy!
07.08.2019 - 20:49
Bonne skrifaði:
I love this pattern. When will it be available?
13.02.2015 - 03:27
Yuvonne Sloan skrifaði:
When can we get the pattern?
11.02.2015 - 20:33Claire skrifaði:
Bellisimo y delicado
25.12.2014 - 03:21
Favar skrifaði:
J 'adore ! les maniques !
12.12.2014 - 16:18
Granny's Favorites#grannysfavoritespotholders |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklað handklæði úr DROPS Cotton Light með blómaferningum.
DROPS 162-36 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Allar umf með st byrja á 3 ll. Þessar 3 ll koma í stað fyrsta st í umf. PICOT: Heklið 2 ll, 1 fl í 2. ll frá heklunálinni. LITASKIPTI: Til þess að fá fallega litaskiptinum við litaskipti er síðasta kl í umf hekluð með nýja litnum þannig: Stingið heklunálinni í síðustu ll frá byrjun umf, sækið þráðinn með nýja litnum, bregðið þræðinum um heklunálina með nýja litnum og dragið í gegnum l á heklunálinni. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Eftir 1. umferð er A.1 endurtekið alls 4 sinnum á breidd. ÚRTAKA: Fækkið um 1 st með því að hekla næstu 2 st saman þannig: Heklið 1 st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið næsta st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HANDKLÆÐI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst er heklaður einn blómaferningur, síðan er heklað fram og til baka í tveimur hliðum á ferningi. Heklið eitt handklæði með litunum blár og hvítur eins og útskýrt er frá að neðan og eitt handklæði með litnum hvítur. BLÓMAFERNINGUR: Heklið 7 ll með heklunál nr 4 með litnum ísblár og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll – sjá mynsturteikningu A.1. UMFERÐ 1: Heklið 1 ll, * 1 fl í hringinn, 13 ll *, endurtakið frá *-* alls 8 sinnum, endið á 1 kl í fyrstu ll = 8 ll-bogar. Klippið frá og festið enda. Skiptið yfir í litinn blár. UMFERÐ 2: Heklið 1 kl í fyrsta ll-boga, 6 ll, * 1 kl í næsta ll-boga, 6 ll *, endurtakið frá *-* alls 7 sinnum, endið á 1 kl í fyrstu kl = 8 ll-bogar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 3: Heklið 3 ll, * heklið 2 st um næsta ll-boga, 3 ll, 2 st um sama ll-boga, 1 ll *, endurtakið frá *-* alls 8 sinnum, endið á 1 kl í 3. ll = 32 st. UMFERÐ 4: Heklið 1 ll, * 1 fl í fyrsta/næsta st, hoppið yfir 1 st, í næsta ll-boga er heklað þannig: 2 st, 2 tbst, 1 PICOT – sjá útskýringu að ofan, 2 tbst, 2 st, hoppið yfir 1 st, 1 fl í næsta st, 1 kl í næstu ll *, endurtakið frá *-* alls 8 sinnum, endið á 1 kl í fyrstu ll = 8 blöð. Skiptið yfir í litinn hvítur – LESIÐ LITASKIPTI. UMFERÐ 5: Heklið 2 ll, * 8 ll, 1 hst um ll í umf 3 *, endurtakið frá *-* alls 8 sinnum, endið á 1 kl í 2. ll = 8 ll-bogar. Borgarnir liggja aftan við blöð í umf 4. UMFERÐ 6: Heklið 2 ll, * 4 ll, 1 hst um ll-boga, 4 ll, 1 tbst í næsta hst, 4 ll, 1 tbst í sama hst, 4 ll, 1 hst um næsta ll-boga, 4 ll, 2 hst í næsta hst *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, endið á 1 kl í 2. ll. UMFERÐ 7: Heklið 3 ll, * 4 st um ll-boga, hoppið yfir 1 hst, heklið 4 st um næsta ll-boga, hoppið yfir 1 tbst, 2 st um næsta ll-boga, 4 ll, 2 st um sama ll-boga, hoppið yfir 1 tbst, 4 st um næsta ll-boga, hoppið yfir 1 hst, 4 st um næsta ll-boga, hoppið yfir 2 hst *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, endið á 1 kl í 3. ll = 80 st. UMFERÐ 8: Heklið 3 ll, * 1 st í hvern af næstu 10 st, 2 st um ll-boga, 4 ll, 2 st um sama ll-boga, 1 st í hvern af næstu 10 st *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, endið á 1 kl í 3. ll = 96 st. UMFERÐ 9: Skiptið yfir í litinn ísblár. Heklið 3 ll, ** * 1 st í fyrsta/næsta st, 1 ll, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum, 1 st um ll-boga, 6 ll, 1 st um sama ll-boga, 1 ll, * 1 st í næsta st, 1 ll, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum **, endurtakið frá **-** alls 4 sinnum, endið á 1 kl í 3. ll = 56 st. UMFERÐ 10: Skiptið yfir í litinn hvítur. Heklið 3 ll, ** heklið 1 st í fyrsta/næsta st, 1 st í næstu ll, * endurtakið frá *-* alls 6 sinnum, 1 st í næsta st, 2 st um næsta ll-boga (= horn), 4 ll, 2 st um sama ll-boga, * 1 st í næsta st, 1 st um næstu ll *, endurtakið frá *-* alls 7 sinnum **, endurtakið frá **-** alls 4 sinnum. = 124 st og 4 ll-bogar (= horn). UMFERÐ 11: Heklið 3 ll, */ 1 st í hvern af fyrstu 15 st, 2 st um ll-boga (= horn), 4 ll, 2 st um sama ll-boga, 1 st í hvern af næstu 16 st *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, síðan er heklað þannig: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 15 st, 2 st um ll-boga (= horn), 11 ll (= horn með lykkju / hanka), 2 st um sama ll-boga, 1 st í hvern af næstu 16 st = 140 st og 4 ll-bogar (= horn). Klippið frá og festið enda. Heklið nú fram og til baka með byrjun frá 1. horni með heklunál nr 4 með litnum hvítur þannig: UMFERÐ 1: - LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, 1 st í fyrsta st (byrjað er í fyrsta st eftir ll-boga – sjá stjörnu í mynsturteikningu), hoppið yfir 2 st, 1 ll, 1 st í næsta st, 1 ll, hoppið yfir 2 st, * 1 st í næsta st, 1 ll, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* þar til 1 st er eftir á undan fyrsta horni (= alls 16 st), 1 st í næsta st, 2 st um ll-boga, 4 ll, 2 st um sama ll-boga, 1 st í næsta st * 1 ll, hoppið yfir 1 st, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* þar til 6 st eru eftir á undan næsta horni, * 1 ll, hoppið yfir 2 st, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum = alls 38 st í umf. UMFERÐ 2: Heklið 1 st í fyrsta st, * heklið 1 st um næstu ll, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan 1 st í næsta st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar (= 2 st færri), heklið 1 st í hvern st og um hverja ll að næsta horni, heklið 2 st um ll-boga, 4 ll, 2 st um sama ll-boga, 1 st í hvern st og um hverja ll þar til 3 st eru eftir og 2 ll, * heklið 1 st í næsta st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan 1 st um næstu ll, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar (= 2 st færri), endið á 1 st í síðasta st = 70 st og 1 ll-bogi. UMFERÐ 3-4: Heklið 1 st í fyrsta st, heklið síðan í næstu 2 st þannig – LESIÐ ÚRTAKA, endurtakið úrtöku 1 sinni til viðbótar, heklið 1 st í hvern st að næsta horni, heklið 2 st um ll-boga, 4 ll, 2 st um sama ll-boga, 1 st í hvern st þar til 5 st eru eftir á undan næsta horni, heklið 2 næstu st saman, endurtakið úrtöku 1 sinni til viðbótar, 1 st í síðasta st = 70 st og 1 ll-bogi. Endurtakið umf 1-4 alls 4 sinnum, stykkið mælist ca 50 cm mælt frá horni að horni þar sem er lengst. Klippið frá og festið enda. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið kant í kringum handklæðið með heklunál nr 4 með litnum hvítur þannig: 1 fl, * 3 ll, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fl *, endurtakið frá *-* í kringum allt stykkið, um lykkjuna / hanka eru heklaðar 11 fl, endið á 1 kl í 1. fl í umf. Klippið frá og festið enda. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #grannysfavoritespotholders eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 162-36
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.