Kari Lisbeth Sørensen skrifaði:
Denne ser kosekos ut :)
05.01.2015 - 08:20
Anker Diana skrifaði:
Genialer Pulli, freue mich auf die Anleitung! DANKE
27.12.2014 - 21:00
Wia skrifaði:
Een trui om in te "wonen"
19.12.2014 - 16:17
VAN RYSEGHEM skrifaði:
Un bon "basic", indémodable.
19.12.2014 - 09:24
Chantal Janssens skrifaði:
Een gezellige trui voor een frisse zomeravond.
16.12.2014 - 11:39
Marita skrifaði:
Et nydelig garn som egner seg godt til patentstrikking. Dette blir en herlig sommergenser for litt kjölige sommerkvelder og en herlig vintergenser for dem som bor i varmere strök.
14.12.2014 - 21:50
Dorothea#dorotheasweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa í klukkuprjóni með klauf og laskalínu úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stærð S-XXXL.
DROPS 160-27 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (prjónað fram og til baka): UMFERÐ 1 (= rétta): 3 l garðaprjón, * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 4 l eru eftir, 1 l sl, 3 l garðaprjón. UMFERÐ 2 (= ranga): 3 l garðaprjón, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman *, endurtakið frá *-* þar til 4 l eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, 3 l garðaprjón. UMFERÐ 3 (= rétta): 3 l garðaprjón, * prjónið uppsláttinn og óprjónuðu slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 4 l eru eftir, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman, 3 l garðaprjón. Endurtakið umf 2 og 3. KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (prjónað í hring á hringprjóna): UMFERÐ 1: * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l br saman *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 3: * Prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-*. Endurtakið umf 2 og 3. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Endurtakið umf 2 og 3. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að taka upp þráðinn á milli 2 l frá fyrri umf – prjónið þessa l snúna slétt í næstu umf (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) til þess að sleppa við göt. Lykkjurnar prjónast jafnóðum inn í klukkuprjón. LASKALÍNA: Fækkið lykkjum hvoru megin við A.1 (= 8 l færri). Fækkið um 1 l með því að prjóna 2 l br saman. ATH: Uppslátturinn í klukkuprjóni er ekki talinn með sem stök lykkja. Í næstu umf eru l prjónaðar hvoru megin við A.1 brugðið! ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjón þar til klaufin hefur verið prjónuð. Síðan er prjónað í hring. Bakstykkið er lengra en framstykkið. BAKSTYKKI: Fitjið LAUST upp 66-72-78-86-95-104 l á hringprjón nr 6 með 1 þræði af litnum ljós bleikur og 1 þræði af í litnum millibleikur (= 2 þræðir). Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í síðustu umf frá réttu er fækkað um 9-11-11-13-14-15 l jafnt yfir = 57-61-67-73-81-89 l. Prjónið nú KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI prjónað fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 25 cm – stillið af að síðasta umf sé 2. umf í klukkuprjóni – geymið stykkið. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki. Þegar stykkið mælist 15 cm – stillið af að síðasta umf sé 2. umf í klukkuprjóni – prjónið fram og bakstykki áfram í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið nú fram- og bakstykki saman þannig: Byrjið á framstykki, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, 1 l sl, prjónið umf 3 í KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI prjónað í hring á hringprjóna – sjá útskýringu að ofan, þar til 4 l eru eftir á framstykki, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, 2 l slétt saman (= hægri hlið), sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, 1 l sl, haldið áfram í klukkuprjóni yfir bakstykki þar til 4 l eru eftir, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, 2 l slétt saman (= vinstri hlið) = 112-120-132-144-160-176 l. Haldið síðan áfram í klukkuprjóni frá 2. umf. Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm (mælt frá bakstykki) fellið af 7 l í hvorri hlið fyrir handveg = 49-53-59-65-73-81 l bæði á fram- og bakstykki. Prjónið 25-27-30-33-37-44 l klukkuprjón. Umf byrjar nú héðan (= miðja að aftan). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á hringprjón/sokkaprjóna. Fitjið upp 38-40-41-41-44-44 l á sokkaprjóna nr 6 með 1 þræði í litnum ljós bleikur og 1 þræði í litnum millibleikur(= 2 þræðir). Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN prjónað í hring – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í síðustu umf með sl er fækkað um 6-6-5-5-6-6 l jafnt yfir = 32-34-36-36-38-38 l. Prjónið nú klukkuprjón yfir allar l. ATH: Setjið prjónamerki í fyrstu l í umf = miðja undir ermi. Þegar stykkið mælist 15-15-15-15-10-10 cm aukið út um 1 l hvoru megin við l með prjónamerki í – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 4-3-3-2-2-1½ cm millibili 6-7-8-11-13-17 sinnum til viðbótar = 46-50-54-60-66-74 l. Þegar stykkið mælist 39-39-39-39-38-38 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og breiðari axla), fellið af 7 l við miðju undir ermi = 39-43-47-53-59-67 l. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 176-192-212-236-264-296 l. Haldið nú áfram í klukkuprjóni eins og áður á bakstykki, framstykki og ermum með byrjun frá miðju að aftan, prjónið nú MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan yfir allar skiptingar þannig: Prjónið 20-22-25-28-32-36 l, A.1 (= 7 l) 33-37-41-47-53-61 l (= ermi), A.1, 41-45-51-57-65-73 l (= framstykki), A.1, 33-37-41-47-53-61 l (= ermi), A.1, prjónið næstu 21-23-26-29-34-37 l. Í næstu umf byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Fellið af í hverri umf 0-0-0-0-3-9 sinnum, í annarri hverri umf 6-10-14-21-22-20 sinnum og í 3. hverri umf 9-7-5-1-0-0 sinnum = 56-56-60-60-64-64 l. Prjónið 1 umf slétt, JAFNFRAMT er aukið út um 11-11-12-12-12-12 l jafnt yfir = 67-67-72-72-76-76 l. Prjónnið 4 umf garðaprjón og fellið laust af. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dorotheasweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 160-27
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.