Yvonne Øjenholt skrifaði:
Når i skriver i højden er det så antal riller eller cm.
27.02.2017 - 11:42DROPS Design svaraði:
Hej Yvonne. F.eks: Strik A.1 7 gange i højden, fortsæt med natur i 2½ cm. A.1 er diagrammet som du ser nederst, og som har 2 p i höjden. Saa du skal gentage A.1 7 gange i højden, saa har du strikket 14 p i alt.
27.02.2017 - 14:30
Martin-torres skrifaði:
Bonjour, je ne comprends pas les explications des rayures , merci de m'aider, je trouve ce modéle magnifique
08.11.2016 - 11:31DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Martin-Torres, les rayures sont expliquées au tout début, on tricote 7 x A.1 (= *1 côte mousse en lagon bleu, 1 côte mousse en naturel*, 7 x au total de *-*), puis on continue en naturel pendant 2,5 cm. On tricote ensuite 6x A.1 en hauteur (= *1 côte mousse en lagon bleu, 1 côte mousse en naturel*, 6 x de *-* au total), puis 4 x A.2 (= *1 côte mousse en turquoise/bleu, 1 côte mousse en naturel*, 6 x de *-* au total), puis 2 cm en naturel et ainsi de suite. Bon tricot!
08.11.2016 - 15:43
Anne-Beate Dokken skrifaði:
Jeg kan ikke finne et teppe som strikkes fra hjørne til hjørne som er større. Kan du hjelpe meg. Takk for hjelpen.
16.09.2015 - 20:11DROPS Design svaraði:
Hej Anne-Beate, Hvis du kigger på 144-2 så har du et som er 125 x 125 Spørg også gerne i din lokale butik, God fornøjelse!
17.09.2015 - 09:22
Anne-Beate Dokken skrifaði:
Fint teppe. Har lyst til og strikke det litt større. Ca 150x 100 cm. Hvordan får jeg det til. Hvor mye garn trenger jeg da.Takk for nydelig garn og fine nettsider.
15.09.2015 - 16:03DROPS Design svaraði:
Hej Anne-Beate, Vi har desværre ikke mulighed for at regne vore opskriter om efter ønskemål. Vi har mange større tæpper også strikket fra hjørne til hjørne på denne måde, så du må bruge et af dem. God fornøjelse!
16.09.2015 - 15:11Anne Grethe Waage-Pettersen skrifaði:
Is it possible to make the blanket smaller? I want to make a baby blanket and think the original size will be too large
09.05.2015 - 22:10DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Waage-Pettersen, you can get help from pattern BabyDROPS 25-1 adjusting the stripes and colours. Happy knitting!
11.05.2015 - 10:28
Marie skrifaði:
V jednoduchosti je krása.
03.01.2015 - 21:15
Kathleen skrifaði:
This looks like a knitted afghan on the diagonal the way the colours graduate into each other to do the stripping is beautiful I look forward to making this afghan.
14.12.2014 - 19:33
Helena skrifaði:
A pretty choose of colours, simple, elegant and useful modell, thanks for this idea
13.12.2014 - 16:32
Under The Sea#underthesea |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónað teppi í garðaprjóni með röndum úr DROPS Fabel.
DROPS 161-16 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.5. Allt stykkið er prjónað í garðaprjóni. RENDUR: Prjónið A.1 7 sinnum á hæðina, haldið áfram með litnum natur í 2½ cm. Prjónið A.1 6 sinnum á hæðina, A.2 4 sinnum á hæðina, haldið síðan áfram með litnum natur í 2 cm. Prjónið A.1 8 sinnum á hæðina, prjónið 2 umf garðaprjón með litnum bláa lónið, prjónið nú A.3 4 sinnum á hæðina. Prjónið A.1 7 sinnum á hæðina, prjónið 2 umf garðaprjón með litnum bláa lónið, haldið síðan áfram með A.3 í 31 cm. Prjónið A.4 4 sinnum á hæðina, síðan er A.3 prjónað 4 sinnum á hæðina. Prjónið A.5 4 sinnum á hæðina, haldið síðan áfram með litnum blár í 4 cm. Prjónið A.2 8 sinnum á hæðina, haldið áfram með A.5 í 10 cm, prjónið nú með litnum blár í 4 cm. Prjónið A.5 í 5 cm. Prjónið síðan með litnum blár til loka. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Allt stykkið er prjónað í garðaprjóni, horn í horn. TEPPI: Fitjið upp 3 l á hringprjóna nr 4,5 með litnum natur og prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT er aukið út um 1 l í byrjun á verri umf (bæði frá réttu og frá röngu) með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt. Endurtakið útaukningu í byrjun á hverri umf þar til stykkið mælist 35 cm meðfram báðum hliðum (ATH: Alltaf er mælt meðfram hliðum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Nú er prjónað áfram með MYNSTUR og RENDUR – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 85 cm er fækkað um 1 l í byrjun umf frá réttu með því að prjóna 2 síðustu l innan við 1 kantlykkju snúnar slétt saman. JAFNFRAMT í lok sömu umf (þ.e.a.s. í lok umf frá réttu) er aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju, snúið við og prjónið sl til baka án úrtöku/útaukninga (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt). Endurtakið úrtöku í byrjun umf og útaukningu í lok umf í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu – fjöldi l kemur til með að vera stöðugur), þar til stykkið mælist 135 cm meðfram lengri hlið á teppinu. Fækkið nú um 1 l í byrjun á hverri umf með því að prjóna 2 l slétt saman innan við 1 kantlykkju. Endurtakið úrtöku í byrjun á hverri umf (bæði frá réttu og frá röngu) þar til 5 l eru eftir á prjóni. Næsta umf frá réttu er prjónuð þannig: 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 1 l sl. Snúið við, prjónið sl til baka og fellið síðan af síðustu 3 l. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #underthesea eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 14 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 161-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.