DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Cotton Viscose yarn
DROPS Cotton Viscose
54% Bómull, 46% Viscose
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale

Lady Ascot Cardigan

Hekluð peysa úr DROPS Cotton Viscose með sólfjaðramynstri og hringlaga berustykki, hekluð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 162-25

#ladyascotcardigan

DROPS Design: Mynstur nr n-172
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON VISCOSE frá Garnstudio
400-450-500-550-600-650 gr litur nr 29, ljós blágrænn

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 st og 12 umf verði 10 x 10 cm, og 3 mynstureiningar af umf 3 og 4 í A.1 verði cm á breidd.
DROPS PERLUTALA: Bogalaga (hvít), NR 521: 4 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Cotton Viscose
DROPS Cotton Viscose
54% Bómull, 46% Viscose
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.2.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í hverri umf með st er fyrsti st skipt út fyrir 3 ll, umf endar á 1 kl í 3. ll í byrjun fyrri umf.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 st með því að hekla 2 st í 1 st.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Heklið fram og til baka frá miðju að framan 136-140-145-150-155-160 ll (meðtaldar 3 ll til að snúa við með) með heklunál nr 3,5 með Cotton Viscose. Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni (= 2 st), * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 5 ll *, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 0-4-3-2-1-0 ll, 1 st í hverja af síðustu 0-4-3-2-1-0 ll = 112-116-120-124-128-132 st – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 1 umf með 1 st í hvern st JAFNFRAMT er aukið út um 28 st jafnt yfir (þ.e.a.s. aukið út um1 st eftir ca 4. hvern st) – LESIÐ ÚTAUKNING = 140-144-148-152-156-160 st. Setjið 12 prjónamerki í stykkið þannig: Heklið 17-18-19-20-21-22 st JAFNFRAMT er aukið út um 1-0-0-2-2-1 st jafnt yfir, setjið fyrsta prjónamerki, * heklið 4 st, setjið næsta prjónamerki *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, heklið 20 st, setjið næsta prjónamerki, * heklið 4 st, setjið næsta prjónamerki *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, heklið 34-36-38-40-42-44 st JAFNFRAMT er aukið út um 2-0-0-4-4-2 st jafnt yfir, setjið næsta prjónamerki, * heklið 4 st, setjið næsta prjónamerki *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, heklið 20 st, setjið næsta prjónamerki, * heklið 4 st, setið næsta prjónamerki *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 17-18-19-20-21-22 st JAFNFRAMT er aukið út um 1-0-0-2-2-1 st jafnt yfir = 144-144-148-160-164-164 st. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Í næstu umf frá réttu er aukið út þannig: Aukið út um 1 st hvoru megin við hvert prjónamerki (= 24 st fleiri), endurtakið útaukningu í hverri umf frá réttu alls 1-4-5-7-8-10 sinnum, síðan er aukið út á undan hverju prjónamerki (= 12 st fleiri), endurtakið útaukningu í hverri umf frá réttu alls 9-6-6-4-4-3 sinnum = 276-312-340-376-404-440 st. Stykkið mælist nú ca 18-18-20-20-22-23 cm. Næsta umf er hekluð þannig: 36-43-48-54-59-66 st (= framstykki), heklið 12 ll (setjið prjónamerki mitt á milli þessa nýju l = undir ermi), hoppið yfir 66-70-74-80-84-88 st frá fyrri umf (= ermi), heklið 72-86-96-108-118-132 st (= bakstykki), heklið 12 ll (setjið prjónamerki mitt á milli þessa nýju l = undir ermi), hoppið yfir 66-70-74-80-84-88 st frá fyrri umf og heklið 36-43-48-54-59-66 st (= framstykki) = 168-196-216-240-260-288 st/ll (= 84-98-108-120-130-144 st/ll á bakstykki og 42-49-54-60-65-72 st/ll í hvoru framstykki). Setjið 1 prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

Heklið 1 umf með 1 st í hvern st og 1 stí hverja ll undir ermi – JAFNFRAMT er aukið út um 18-8-6-0-10-6 st jafnt yfir = 186-204-222-240-270-294 st. Heklið 1 umf með 1 st í hvern st. Heklið nú sólfjaðramynstur.

SÓLFJAÐRAMYNSTUR:
Heklið umf 1-4 í mynstri A.1 þannig: A.1A, A.1B alls 29-32-35-38-43-47 sinnum, endið á A.1C. Endurtakið síðan umf 3 og 4 þar til stykkið mælist ca 29-31-31-33-31-31 cm – stillið af að síðasta umf er umf 4. Heklið nú umf 5 og 6 í mynstri A.1. Endurtakið umf 5 og 6 þar til stykkið mælist ca 40-42-43-45-45-45 cm. Klippið frá og festið enda.

KANTUR Á ERMUM:
Byrjið að hekla fyrir miðju undir ermi þannig: Heklið 1 fl í 6. ll við þær 12 ll sem heklaðar voru í handveg frá fram- og bakstykki. Heklið 3 ll (= 1 st), Heklið síðan 1 st í hvern og einn af næstu 6 ll, heklið 1 st í st-umf þar sem ll fyrir ermi var hekluð, 1 st í næstu 66-70-74-80-84-88 st (= yfir ermi) JAFNFRAMT er aukið út um 0-4-0-2-6-2 st jafnt yfir, heklið 1 st í st-umf þar sem ll fyrir ermi var heklað, heklið 1 st í hverja og eina af 5 ll sem eftir eru undir ermi = 80-88-88-96-104-104 st. Heklið síðan A.2 alls 10-11-11-12-13-13 sinnum. Klippið frá og festið enda þegar A.2 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina. Heklið hinn kantinn á sama hátt.

Mynstur

ll = ll
fl = fl
st í l = st í l
tbst í l = tbst í l
byrjið hér = byrjið hér
3 st um ll-boga = 3 st um ll-boga
3 tbst um ll-boga = 3 tbst um ll-boga
4 st um ll-boga = 4 st um ll-boga
st um ll-boga = st um ll-boga
Diagram for DROPS 162-25
Diagram for DROPS 162-25
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #ladyascotcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 162-25

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (34)

Menawatie Hardath skrifaði:

Is it possible to separate the rows by actually stating "Row 1, 2,"etc? Also typing each new row on a new line?

08.10.2018 - 23:12

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Hardath, there is only diagrams to this pattern, when working diagrams, work each row in each diagram as follows: row 1 in A.1A, A.1B and A.1C (= read from the right towards the left), then row 2 in A.1C, A.1B, A.1A (= read from the left towards the right) and continue reading/working diagrams like this. Happy crocheting!

09.10.2018 - 09:43

country flag Paula skrifaði:

I am.having trouble figuring out the first part of the instructions for the fan pattern: A. 1A A.1B does that mean 5dc (A) and then 4ch 1sc(1A) 4dc (A) 4ch 1sc 4ch 1sc (1B)? I also tried just doing the chain SC row but it doesn\'t look right if I have to do that for rows 1-4. I\'m obviously fairly new to crocheting and I don\'t know anyone else who crochets.

16.06.2018 - 03:38

DROPS Design svaraði:

Dear Paula, when working diagrams start at the bottom corner on the right side from RS and read towards the left: work A.1A over the first 5 sts (= row 1 = 1 turning ch, 4 ch, skip 3 sts, 1 sc in next st), then repeat A.1B over the next sts until 7 sts remain and work A.1C over these last sts. From WS read from the left towards the right: work A.1C, repeat A.1B and finish with A.1A. Happy crocheting!

18.06.2018 - 09:44

country flag Frida skrifaði:

Jag gillar verkligen cotton/viscose-blandningen men hittar inget lilvärdigt alternativ bland de garner man får upp som ersättning. Tycker att det är helt fel att ull-blandningar alls visas som alternativ! Kommer ni komma ut med ett nytt bomull/viskos-garn inom överskådlig tid eller måste jag leta efter andra än Drops garner?

30.04.2018 - 12:42

DROPS Design svaraði:

Hej Frida, mange vil gerne strikke/hækle i modsvarende strikkefasthed i uld eller bomuld, så derfor har vi de alternativer med som kan erstatte strikkefastheden. Vi har ikke noget nyt Cotton Viscose på vej hjem desværre. God fornøjelse!

07.05.2018 - 16:47

Lisa skrifaði:

I recently made this. It turned out much larger. It worked out beautifully but just a large instead of medium. Has anyone else had this problem? Is this consistent across drops , as I would like to make more but am reluctant to .

25.06.2017 - 01:24

DROPS Design svaraði:

Dear Lisa, sorry to hear that your piece ended up in a different size than expected. Every piece is different, the sizing depends a lot on the style of the garnment, the xarn and the pattern it is knittet with. You should ALWAYS make a gauge swatch and wash it and check the stitch count, and also check teh shematincs and compare your peiece to the given sizes there, often. Happy knitting.

25.06.2017 - 19:51

country flag Yvonne skrifaði:

Hi, are the rows under the sleeve included in the 22 rows for the yoke? Thanks

07.04.2016 - 12:12

DROPS Design svaraði:

Dear Yvonne, all rows are written out separately, just follow the pattern! Happy crocheting!

07.04.2016 - 12:34

country flag Gerdien skrifaði:

Goedenavond, Ik ben bezig met het waaierpatroon en haak maat L, de eerste toer met de stokjes snap ik maar dan de toer met de 4 lossen en een vaste er tussen,hoe moet ik dan het getal 35 keer zien?? is dat het aantal dat je 1B herhaald, dat is bij mij 71 en A en C aan het begin en eind van de toer, ik hoop dat u mij kunt helpen! Vriendelijke groet Gerdien

04.04.2016 - 18:34

DROPS Design svaraði:

Hoi Gerdien. Je haakt eerst A.1A (= 5 st), dan herhaal je A.1B (= 6 st) 35 keer = je herhaalt dus het patroon over 6 x 35 stokjes = 210 en eindigt met A.1C (= 7 st)

05.04.2016 - 12:42

country flag Yvonne skrifaði:

Hi, I am having trouble with the measurements of the piece. I'm making the cardigan using the 'Small' pattern. I have 26 rows of treble crochet in the section before the pattern fan. This makes the piece about 27cm rather than the 18cm mentioned in the pattern. Have I made a mistake with my counting? How many rows should there be in total before starting the pattern fan when using the 'Small' pattern? Many thanks

26.03.2016 - 12:49

DROPS Design svaraði:

Dear Yvonne, you have to work a total of 22 rows for yoke in size S: 1 row (=112 tr) + 1 row (=140 tr) + 1 row (inserting markers+ inc evenly) + 1 row (+24 tr) + 18 rows (inc a total of 9 time every row from RS= 276 tr) = 22 rows and approx. 18 cm. Happy crocheting!

29.03.2016 - 09:20

country flag Eva skrifaði:

Thank you for your help. I have now finished the increases on each side of the markers. It now says "then inc before every marker (=12tr inc)". Could you please confirm whether this first row of 12tr increases is worked from the RS or the WS? Thank you.

08.03.2016 - 23:01

DROPS Design svaraði:

Dear Eva, you inc before each marker (= 12 tr inc) every row from RS, ie every other row (as before), the first of these inc row will be worked from RS. Happy crocheting!

09.03.2016 - 08:57

country flag Eva skrifaði:

When it says "repeat increase on every row from RS" does this mean alternate rows? i.e. repeat increase on every second row?

07.03.2016 - 22:17

DROPS Design svaraði:

Dear Eva, that's right, you work RS row with inc, and work next row from WS withouth inc. Happy crocheting!

08.03.2016 - 08:16

country flag Ikbenpietje Niet skrifaði:

Bedankt voor het antwoord! Ik had het patroon niet goed gelezen. Er staat a.1a, a.1b. Had de komma over geslagen, vandaar dat ik het niet snapte. Dank je wel hoor!

27.09.2015 - 10:10