DROPS Cotton Viscose
DROPS Cotton Viscose
54% Bómull, 46% Viscose
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Lady Ascot

Heklaður toppur úr DROPS Cotton Viscose með sólfjaðramynstri og hringlaga berustykki, heklaður ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 162-26
DROPS Design: Mynstur nr n-171
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON VISCOSE frá Garnstudio
400-450-500-550-600-650 gr litur nr 29, ljós blágrænn

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 st og 12 umf verði 10 x 10 cm, og 3 mynstureiningar af umf 3 og 4 í A.1 verði cm á breidd.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Viscose
DROPS Cotton Viscose
54% Bómull, 46% Viscose
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.2.

HEKLLEIÐBEININGAR-1:
Í hverri umf með st er fyrsti st skipt út fyrir 3 ll, umf endar á 1 kl í 3. ll.

HEKLLEIÐBEININGAR-2:
Hver umf byrjar á 3 ll, umf endar á 1 kl í 3. ll.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 st með því að hekla 2 st í 1 st.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður frá miðju að aftan.

TOPPUR:
Heklið 133-137-142-147-152-157 ll með heklunál nr 3,5 með Cotton Viscose og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. Heklið næstu umf þannig: 3 ll (= 1 st), 1 st í fyrstu ll frá ll-hring, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 5 ll *, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 0-4-3-2-1-0 ll, 1 st í hverja af síðustu 0-4-3-2-1-0 ll = 112-116-120-124-128-132 st. Heklið síðan stykkið fram og til baka. Hver umf er hekluð saman í lok umf með 1 kl í fyrstu ll í umf – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR-1! Snúið við. Heklið 1 umf með 1 st í hvern st JAFNFRAMT er aukið út um 28 st jafnt yfir (þ.e.a.s. aukið út um 1 st eftir ca 4. hvern st) – LESIÐ ÚTAUKNING = 140-144-148-152-156-160 st. Setjið 12 prjónamerki í stykkið þannig: Heklið 17-18-19-20-21-22 st (= hálft bakstykki) JAFNFRAMT er aukið út um 1-0-0-2-2-1 st jafnt yfir, setjið fyrsta prjónamerki, * heklið 4 st, setjið næsta prjónamerki *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, heklið 20 st, setjið næsta prjónamerki, * heklið 4 st, setjið næsta prjónamerki *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, heklið 34-36-38-40-42-44 st (= framstykki) JAFNFRAMT er aukið út um 2-0-0-4-4-2 st jafnt yfir, setjið næsta prjónamerki, * heklið 4 st, setjið næsta prjónamerki *, endurtakið frá *-* 1 sinnum til viðbótar, heklið 20 st, setjið næsta prjónamerki, * heklið 4 st, setjið næsta prjónamerki *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, heklið 20 st, setjið næsta prjónamerki, * heklið 4 st, setjið næsta prjónamerki *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 17-18-19-20-21-22 st (= hálft bakstykki) JAFNFRAMT er aukið út um 1-0-0-2-2-1 st jafnt yfir = 144-144-148-160-164-164 st.

ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Í næstu umf frá réttu er aukið út þannig: Aukið út um 1 st hvoru megin við hvert prjónamerki (= 24 st fleiri, endurtakið útaukningu í hverri umf frá réttu alls 1-4-5-7-8-10 sinnum, aukið síðan út á undan hverju prjónamerki (= 12 st fleiri, endurtakið útaukningu í hverri umf frá réttu alls 9-6-6-4-4-3 sinnum = 276-312-340-376-404-440 st. Stykkið mælist nú ca 18-18-20-20-22-23 cm. Næsta umf er hekluð þannig: 36-43-48-54-59-66 st (= hálft bakstykki), heklið 12 ll (setjið prjónamerki mitt á milli þessa nýju l = undir ermi), hoppið yfir 66-70-74-80-84-88 st frá fyrri umf (= ermi), heklið 72-86-96-108-118-132 st (= framstykki), heklið 12 ll (setjið eitt prjónamerki mitt á milli þessa nýju l = undir ermi), hoppið yfir 66-70-74-80-84-88 st frá fyrri umf og heklið 36-43-48-54-59-66 st (= hálft bakstykki) = 168-196-216-240-260-288 st/ll (= 84-98-108-120-130-144 st/ll á bakstykki og framstykki). Setjið 1 prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Heklið 1 umf með 1 st í hvern st og 1 st í hverja ll undir ermi – JAFNFRAMT er aukið út um 18-8-6-0-10-6 st jafnt yfir = 186-204-222-240-270-294 st. Heklið 1 umf með st í hvern st. Stykkið er nú heklað í hring án þess að snúa við.

SÓLFJAÐRAMYNSTUR:
Heklið umf 1-3 í A.1 alls 31-34-37-40-45-49 sinnum – LESIÐ LEIÐBEININGAR-2. Endurtakið síðan umf 3 þar til stykkið mælist ca 29-31-31-33-31-31 cm. Heklið nú umf 4 þar til stykkið mælist ca 40-42-43-45-45-45 cm. Klippið frá og festið enda.

KANTUR Á ERMUM:
Byrjið að hekla fyrir miðju undir ermi þannig: Heklið 1 fl í 6. ll við þær 12 ll sem heklaðar voru í handveg frá fram- og bakstykki. Heklið 3 ll (= 1 st), Heklið síðan 1 st í hvern og einn af næstu 6 ll, heklið 1 st í st-umf þar sem ll fyrir ermi var hekluð, 1 st í næstu 66-70-74-80-84-88 st (= yfir ermi) JAFNFRAMT er aukið út um 0-4-0-2-6-2 st jafnt yfir, heklið 1 st í st-umf þar sem ll fyrir ermi var heklað, heklið 1 st í hverja og eina af 5 ll sem eftir eru undir ermi = 80-88-88-96-104-104 st. Heklið síðan A.2 alls 10-11-11-12-13-13 sinnum. Klippið frá og festið enda þegar A.2 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina. Heklið hinn kantinn á sama hátt.

Mynstur

symbols = ll
symbols = fl
symbols = st í l
symbols = tbst í l
symbols = byrjið hér
symbols = 3 st um ll-boga
symbols = 3 tbst um ll-boga
symbols = 4 st um ll-boga
symbols = st um ll-boga
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 162-26

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (108)

country flag Trine wrote:

Jeg hækler toppen i en str. small, men var forvirret over, at man skulle gentage rækken med 24 udtagninger 1 gang og samtidig ende med 276 masker (altså hækle 2 rækker m. 24 udtagninger). Kan så se på en tidligere kommentar, at man ikke skal GENTAGE den 1 gang, men kun lave den 1 gang TOTALT... Nu kan jeg så trævle 19 rækker op, fordi jeg er endt med 300 masker. Lidt forkert formulering :(

23.07.2023 - 22:43

country flag Melissa wrote:

Hello. I'm following the 2nd set of digits, so starting with 137 ch, decrease to 116 dc, inc to 144 dc. After putting in the stitch markers, I followed the increases of 24 dc as per pattern & had 312 st, BUT I hadn't yet done the rows of 12dc increases. The pattern says I should have 312 stitches after all of those but the maths don't work. What should the stitch count be after adding the rows of 12 dc increases?

13.06.2023 - 17:59

DROPS Design answered:

Dear Melissa, you have inserted a total of 12 markers, and you will first increase 4 times 1 dc on each side of each marker (= you increase 2 sts x 12 markers = 24 sts on every increase round) a total of 4 times (= 144+ (24 sts increased x 4 times) = 240 sts; then you will increase only 1 st before each marker (1 stitch at 12 markers = 12 sts increased ) a total of 6 times = 240 + (12 sts increased x 6 times) = 312 sts. Happy crocheting!

14.06.2023 - 07:32

country flag Pavla Matoušková wrote:

Začínám vějířovity vzor A1 a není jednoznačné jak háçkovat 1. řadu. Krátký sloupek jasný, 4 řetízková oka jasná. Nechápu kam se krátký sloupek dává. Do každéko třetího dlouhého sloupku? Nebo nejak jinak? Předem děkuji za vysvětlení Pavla Matoušková

02.02.2023 - 14:01

country flag Birgitte Skov Iversen wrote:

Ups kom til at skrive, at det var en kommentar, men det er et spørgsmål. I starten af opskriften står fl.g "DROPS HÆKLENÅL NR 3,5 – eller den nål du skal bruge for at få 22 st x 12 rækker på 10 x 10 cm, og 3 rapporter af 3. og 4.omg i A.1 på 9 cm i bredden2 Hvad betyder 3 rapporter af 3. og 4. omg. i A.1 på 9 cm. i bredden.

09.12.2022 - 12:16

DROPS Design answered:

Hei Birgitte. Da skal du hekle 3. og 4. omg av diagram A.1 3 ganger og få det til å bli 9 cm i bredden. Altså A.1 omgang (3+4)+(3+4)+(3+4) = 9 cm i bredden. mvh DROPS Design

12.12.2022 - 13:59

country flag Birgitte Skov Iversen wrote:

I starten af opskriften står flg. "DROPS HÆKLENÅL NR 3,5 – eller den nål du skal bruge for at få 22 st x 12 rækker på 10 x 10 cm, og 3 rapporter af 3. og 4.omg i A.1 på 9 cm i bredden." Hvad betyder 3 rapporter af 3. og 4. omg. i A.1. på 9 cm. i bredden Hilsen Birgitte

09.12.2022 - 12:12

country flag Geetha wrote:

For round 3 , we put a DC in the previous stitch , " 3dc,2 chain,3dc" in the chain space 1 and again "3dc,2chain,3dc" in chain space 2 , then put a DC in each of the below DC stitch ( total 7) before we reach the next 2 chains and put the "3dc,2chain,3dc" in each chain space and continue ?

01.08.2022 - 10:56

DROPS Design answered:

Dear Geetha, on round 3 work: *1 dc in the dc from previous round, skip 3 dc, 3 dc + 2 ch + 3 dc around the 2-chain-space, skip the next 3 dc*, repeat from *-*. So that you will work 3 dc+2ch+3 dc around the 2 chains from previous round. Happy crocheting!

01.08.2022 - 12:09

country flag Geetha wrote:

So as per A1 diagram , for round 2 , we put a DC in chain space 1 , " 3dc,2chain,2dc" in chain space 2 , then dc in chain space 3 , "3dc,2chain,3dc" in chain space 4 , skip the single crochet stitch below and continue as above in the next 4 chain space?

01.08.2022 - 10:53

DROPS Design answered:

Dear Geetha, A.1 will be worked as follows on 2nd row: *1 dc in first chain space, (3 dc+2ch+3 dc) in next ch-space*, and repeat from *-* all the round. Happy crocheting!

01.08.2022 - 12:08

country flag Geetha wrote:

Can you please explain the A1 diagram please ? The first round is a single crochet , 4 chains ,single crochet ( skipping 2 double crochet below ). The second round which chain space do we start the double crochet ? And the 3 DC ,chain 2 ,3 DC do all go into a single chain space ? Which chain space do we place them ? Similarly for round 3 which chain space do we need to place the stitches ?

30.07.2022 - 19:46

DROPS Design answered:

Dear Geetha, you work 1 double crochet in the first chain space and then, in the second one, work 3dc, chain 2, 3 dc in the next chain space (all in a single one). In round 3 and all the next ones you work double crochet groups inside each of the chain-2 spaces of the previous row. Happy crocheting!

31.07.2022 - 17:44

country flag Daniela wrote:

Buongiorno, chiedo scusa ma avevo inserito il messaggio precedente nella categoria sbagliata. Per questo motivo lo riscrivo di seguito:\r\nBuongiorno e grazie per questo modello così carino! Mi piacerebbe realizzarlo, ma con le maniche a 3/4, potreste darmi delle indicazioni su come fare le maniche più lunghe? Grazie

12.06.2022 - 11:18

DROPS Design answered:

Buonasera Daniela, per un'assistenza così personalizzata, può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro! Per inserire il commento come domanda deve selezionare la categoria dal menù a tendina.

15.06.2022 - 19:44

country flag Daniela wrote:

Buongiorno e grazie per questo modello così carino! Mi piacerebbe realizzarlo, ma con le maniche a 3/4, potreste darmi delle indicazioni su come fare le maniche più lunghe? Grazie

10.06.2022 - 18:04

DROPS Design answered:

Buonasera Daniela, per un'assistenza così personalizzata, può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!

15.06.2022 - 19:43