Britt Lundborg skrifaði:
Jättesnygg, men vet inte om jag klarar av att göra den.
15.02.2015 - 15:57EvaLena Hällgren skrifaði:
Det verkar vara nåt knas med mönster diagram A6C A6B A6A ...har stickat den 3 ggr och det har blivit fel ?
12.02.2015 - 19:08
Lingonne skrifaði:
Encore un de modèle magnifique qu'il faut que je réalise....
08.02.2015 - 16:53
Hermans Monique skrifaði:
Mooi en nu aan de slag
07.02.2015 - 16:54Cory skrifaði:
Absolutely would like this pattern in crochet! Possible?
04.02.2015 - 02:04Sac Main Givenchy Pas Cher skrifaði:
Parfait celine sac à main - SOOO Happy - Merci - grand vendeur EB sac main givenchy pas cher
02.02.2015 - 12:54Teal Short Dresses skrifaði:
Hi! Would you mind if I share your blog with my facebook group?There's a lot of people that I thjnk would really enjoy your content. Please let me know. Thank you
01.02.2015 - 06:10
Gunilla Fors skrifaði:
Mönster A1 slutar på ett varv från räta och nästa mönster börjar på ett varv från räta. Var är varvet från aviga? Detsamma gäller för mönster A9 som också slutar med ett räta varv och nästa mönster börjar med ett varv från räta. På mönster A9 så stämmer det inte om man gör intagningar på varv 39 rakt över vridningen i mitten. Det ska väl vara en vridning där också förmodar jag.
23.01.2015 - 07:56DROPS Design svaraði:
Hej Gunilla, Nu ligger det ett nytt diagram på beskrivningen. Sista varvet i A1 slutar nu från avigsidan. Tack för info!
04.02.2015 - 13:07
Andersson skrifaði:
Mycket fräck...
22.01.2015 - 21:16
Debora MacDonald skrifaði:
Hello. There are no diagrams included with this pattern. Thank You!
22.01.2015 - 20:40
Riviera Maya#rivieramayaponcho |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónað poncho úr DROPS Cotton Light eða DROPS Belle með gatamynstri og kögri. Stærð S - XXXL.
DROPS 159-1 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.9. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. KANTLYKKJUR: Prjónið garðaprjón yfir síðustu 4 l í hvorri hlið, en í 5. hverri umf (alltaf frá réttu) eru prjónuð göt þannig: Í byrjun umf: Prjónið 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í lok umf: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í tveimur stykkjum sem saumuð eru saman í lokin. FRAMSTYKKI: Vegna lykkjufjölda er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 139-147-155 l á hringprjóna nr 3 með Cotton Light eða Belle. Fyrsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 4 KANTLYKKJUR – sjá útskýringu að ofan, prjónið mynstur eftir A.1 þar til 5 l eru eftir á prjóni, prjónið 1. l í A.1 og endið á 4 kantlykkjum. Haldið svona áfram með mynstur – ATH: Í umf 7 í A.1 er síðasta l prjónuð slétt á undan kantlykkjum (frá réttu). Þegar A.1 hefur verið prjónað er skipt yfir á hringprjóna nr 3,5. Setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu 47-51-55 l í umf og 1 prjónamerki eftir næstu 45 l (= 47-51-55 l eftir síðasta prjónamerki í lok umf). ALLAR STÆRÐIR: Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur eins og áður, prjónið A.2 yfir næstu 12-16-20 l, prjónið A.4 (= 31 l), 1. prjónamerki, A.6A (= 4 l), prjónið mynstur eftir A.6B þar til 5 l eru eftir á undan 2. prjónamerki, A.6C (= 5 l), A.5 (= 31 l), prjónið A.3 yfir næstu 12-16-20 l og endið á 4 kantlykkjum eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur. Nú verða línur með gatamynstri sem ganga upp hvoru megin við prjónamerkin og á milli tveggja prjónamerkja eru prjónaðir borðar með gatamynstri. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA. Stærð S/M og L/XL: Farið í ALLAR stærðir. Stærð XXL/XXXL: Þegar A.6 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina eru prjónaðar 6 umf garðaprjón á milli prjónamerkja (aðrar l eru prjónaðar eins og áður), prjónið síðan A.6 einu sinni til viðbótar á milli prjónamerkja (aðrar l eru prjónaðar eins og áður). ALLAR stærðir: Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka er prjónað eftir mynstri A.1 á milli 2 prjónamerkja við miðju að framan (aðrar l halda áfram eins og áður) JAFNFRAMT í næst síðustu umf í mynstri (= rétta) eru felldar af 4 l jafnt yfir = 41 l á milli prjónamerkja og 135-143-151 l á prjóni). Eftir A.1 er prjónað A.7 á milli 2 prjónamerkja þannig (aðrar l halda áfram eins og áður): Prjónið A.7A (= 5 l), prjónið A.7B þar til 6 l eru eftir á undan prjónamerki og endið á A.7C (= 6 l). Þegar A.7 hefur verið prjónað til loka er prjónað mynstur eftir A.8 á milli 2 prjónamerkja (aðrar l halda áfram eins og áður). JAFNFRAMT í næst síðustu umf í mynstri (= rétta) er aukið út um 3 l jafnt yfir (= 44 l á milli prjónamerkja og alls 138-146-154 l á prjóni). Eftir A.8 er prjónað mynstur eftir A.9 á milli 2 prjónamerkja. Þegar allt A.9 hefur verið prjónað til loka (stykkið mælist ca 39-39-43 cm), eru 45 l á milli prjónamerkja. Síðan er mynstrið prjónað eftir A.1 á milli prjónamerkja (aðrar l halda áfram eins og áður). Eftir A.1 er prjónað A.6 á milli prjónamerkja þannig: A.6A (= 4 l), prjónið A.6B þar til 5 l eru eftir á prjóni á undan prjónamerki og endið á A.6C (= 5 l). Stærð S/M: Farið í ALLAR stærðir. STÆRÐ L/XL + XXL/XXXL: Þegar A.6 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina eru prjónaðar 6 umf með garðaprjóni á milli prjónamerkja (aðrar l eru prjónaðar eins og áður), prjónið nú A.6 einu sinni til viðbótar á milli prjónamerkja (aðrar l halda áfram eins og áður). ALLAR STÆRÐIR: Eftir A.6 eru prjónaðar 6 umf garðaprjón á milli prjónamerkja (aðrar l eru prjónaðar eins og áður), fellið síðan af 45 l á milli prjónamerkja fyrir hálsmáli og hvor hluti er prjónaður til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður yfir 47-51-55 l á öxl – ATH: Síðustu 2 l við hálsmál halda áfram í garðaprjóni. Þegar 4 cm eru eftir þar til stykkið mælist 60-64-68 cm – stillið af að næsta umf sé prjónuð frá réttu, skiptið yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið síðan mynstur eftir A.1 áður en fellt er laust af. Endurtakið í hinni hliðinni. BAKSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og framstykki. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Stykkið á að vera opið í hvorri hlið. KÖGUR: Festið kögur meðfram neðri kanti á poncho bæði að framan og að aftan. Kögrið er fest í gegnum gatið á A.1. 1 kögur = klippið 6 þræði 35 cm. Þræðið í gegnum gatið. Festið hvert kögur með ca 3 cm millibili. Skiptið nú kögrinu í tvennt og hnýtið saman við næsta kögur. Haldið svona áfram með allt kögrið. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rivieramayaponcho eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 159-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.