Lise Eriksen skrifaði:
Hei! Siden jeg er vant til å bruke amerikansk terminologi så valgte jeg den amerikanske oppskriften og der står det DC og det er vel egentlig SC det skal stå der? Da det er fastmaske og ikke stavmaske?
03.12.2024 - 22:25DROPS Design svaraði:
Hej Lise, tak for info, opskriften er opdateret :)
06.12.2024 - 14:49
Monica Stuxberg skrifaði:
Hej! Förstår inte hur man börjar med den vita kanten/volangen, från avigsidan? / Monica
08.10.2019 - 20:02DROPS Design svaraði:
Hej Monica, Den vita kanten är den vi kallar FROSTING och den skall virkas från rätsidan. Lycka till :)
09.10.2019 - 14:32
Kay Hewitt skrifaði:
Thank you for this fantastic pattern, It is absolutely perfect for my Mother!!! I can't wait to start crocheting this right away even though Christmas is many months off.
29.05.2016 - 02:52
Gloria skrifaði:
I have lived your patterns for years now My daughter loves gingerbread anything this I will add to her collection for Christmas gift God. Bless all of you
14.03.2015 - 22:13
E. Van Swieten skrifaði:
Ich wollte gerade schreiben dass dies die ideale kalorienfreie Alternative zum Lebkuchenhaus ist.... und dann sah ich, dass es als Deko für einen Weinkarton gedacht ist. Also wir streichen das 'kalorienfrei'. Und die Kinder dürfen nur gucken (-: Witig finde ich's trotzdem. (-:
11.12.2014 - 12:54
A Toast to Christmas!#dropsatoasttochristmas |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Heklað piparkökuhús / vínkassi úr DROPS Paris. Þema: Jól
DROPS Extra 0-1046 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MÆLING: Uppskriftin gengur út frá að vínkassinn sé með ummál 52 cm. Ef vínkassinn þinn hefur annað mál eru bættar við/dregnar frá 3 l fyrir annan hvern cm ef vínkassinn er stærri/minni en 52 cm að ummáli. Mælið breiddina á skammhlið á vínkassanum og margfaldið cm málið með 1,6. Deilið lykkjufjöldanum með 2 og byrjið svo margar l á undan prjónamerki. HEKLLEIÐBEININGAR: Hver umf með fl byrjar á 1 ll. GALDRAHRINGUR: Til þess að koma í veg fyrir göt í miðju er heklað með þessari aðferð (í stað þess að gera ll-hring): Haldið í endann og gerið lykkju utan um vinstri vísifingur. Haldið í lykkjuna með vinstri þumli og löngutöng, þráðurinn liggur yfir vinstri vísifingur. Stingið heklunálinni í gegnum lykkjuna, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum lykkjuna, heklið 1 ll, heklið síðan 5 fl í kringum lykkjuna. Þegar óskaður fjöldi fl er kominn, dragið í þráðinn þannig að þú dragir lykkjuna saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PIPARKÖKUHÚS / VÍNKASSI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka. PIPARKÖKUHÚS / VÍNKASSI: Fitjið upp 84 ll með heklunál nr 4,5 með litnum brúnn – LESIÐ MÆLING. Heklið 1 ll – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, 1 fl í hverri ll (= 84 fl). Heklið 2 umf til viðbótar með 1 fl í hverja fl (síðasta umf er frá réttu). Heklið nú þannig: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 74 fl þar til stykkið mælist 6 cm, stillið af að næsta umf sé frá röngu. Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 74 fl, heklið 10 ll JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki á milli 5. og 6. ll. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið nú 1 fl í hverja l (= 84 fl). Haldið áfram með 1 fl í hverja fl þar til stykkið mælist 14 cm. Skiptið yfir í litinn natur. Heklið 1 umf þannig: * 1 fl, 1 ll, hoppið yfir 1 fl *, endurtakið frá *-* og endið á 1 fl í síðustu fl í umf. Skiptið yfir í litinn brúnn og heklið 1 fl í hverja fl og 1 fl um hverja ll í umf. Heklið 1 fl í hverja fl þar til stykkið mælist 21 cm. ATH: Stillið hæðina eftir vínkassanum. Skiptið yfir í litinn natur. Heklið 1 umf þannig: * 1 fl, 1 ll, hoppið yfir 1 fl *, endurtakið frá *-* og endið á 1 fl í síðustu fl í umf. Klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Saumið saman hliðar yst í lykkjubogann með litnum brúnn. EFRI PARTUR: Heklið nú efri part á vínkassanum fram og til baka með heklunál nr 4,5 og litnum brúnn. Byrjið 9 l á undan prjónamerki og heklið 1 fl í hverja af næstu 18 l. Snúið við og heklið 1 fl í hverja af 18 fl. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 15 cm (ATH: Stillið af eftir lengd á vínkassanum þínum). Klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Saumið efri partinn við hliðarnar yst í lykkjubogann. KANTUR: Heklið kant þar sem heklað var með einni umferð í litnum natur mitt í húsinu þannig: Heklið frá röngu, þ.e.a.s. heklið að vinstri hlið með heklunál nr 4,5 með litnum natur þannig: * 1 fl, 3 ll, hoppið yfir 1 fl *, endurtakið frá *-* í kringum allt húsið, endið á einni kl í fyrstu fl. Heklið nú 3 ll, heklið 5 st og 1 kl um hvern ll-boga í umf, endið á 1 kl í 3. ll. Klippið frá og festið enda. Endurtakið kant neðst niðri á húsinu (í fyrstu fl-umf). ÞAK: Sjá mynsturteikningu. Deilið þakinu í tvennt á hæðina, frá kanti og upp að síðustu umf með litnum natur. Saumið síðan út með leggsaum frá kanti, yfir þakið og yfir á hina hliðina. Endurtakið þar til allt þakið er skipt upp í rúður/ferninga. Saumið út með leggsaum niður meðfram hverri hlið. SKRAUT: Heklið GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan, með heklunál nr 4,5 með litnum appelsínugulur/skær rauður/dökk turkos/grænn/skær gulur Paris. Klippið frá. Heklið skraut í hverja rúðu/ferning á þakinu. HURÐ + GLUGGI: Á langhlið er saumuð út hurð með leggsaum með litnum natur, ca 10 cm upp frá uppfitjunarkanti og 5 cm á breidd. Heklið ískant efst uppi á hurðinni með litnum natur með byrjun frá réttu þannig: Heklið 1 fl í fyrstu fl, * 2 ll, hoppið yfir 2 fl, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum. Snúið við og heklið til baka: 1 hst, 1 st, 1 hst, 1 kl um hvern ll-boga. Saumið út glugga með leggsaum með litnum natur við hliðina á hurðinni, ca 5 cm upp, heklið síðan ískant alveg eins og á hurðinni. Gerið galdrahring með heklunál nr 4,5 fyrir hurðarhún með litnum natur. Festið á hurðina. SNJÓKÚLUR: Gerið galdrahring með heklunál nr 4,5 með litnum natur. Heklið alls 3 snjókúlur. Festið við aðra langhliðina. ÍSING: Í kringum opið er heklaður ískantur efst með heklunál nr 4,5 með litnum natur þannig: Byrjið frá réttu, heklið 1 fl í fyrstu fl, * 2 ll, hoppið yfir 2 fl, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum. Snúið við og heklið til baka: 1 hst, 1 st, 1 hst, 1 kl um hvern ll-boga. Klippið frá og festið enda. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropsatoasttochristmas eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1046
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.