DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4400.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Extra 0-1099
DROPS Design: Mynstur nr ee-527
Garnflokkur E eða C + C
----------------------------------------------------------

Mál: Ummál botn: ca 55-55 cm. Hæð: ca 30-35 cm.
Passar utan um vínkassa: 2- 3 lítra.

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
300 gr litur nr 24, gulur
100 gr litur nr 08 rauður

DROPS HEKLUNÁL NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 13 fl og 14 umf verði 10 x 10 cm.
DROPS TALA: KÓKOSHNETUA, NR 515: 2-3 stk.
DROPS TALA: NR 525: 2-2 stk.
FYLGIHLUTIR: Vatt til fyllingar

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4400.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR-1:
Í byrjun á hverri umf með fl, er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll. Umf endar á 1 kl í ll frá byrjun umf.

HEKLLEIÐBEININGAR-2 (á við um vængi):
Í byrjun hverrar umf með fl er hekluð 1 ll (ll ekki talin með í fjölda fl).

ÚTAUKNING:
Aukið út með því að hekla 2 fl í sömu fl.

ÚRTAKA-1:
2 fl eru heklaðar saman í 1 fl þannig: * Stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni.

ÚRTAKA-2 (á við um gogg):
3 fl eru heklaðar saman í 1 fl þannig: * Stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 4 l á heklunálinni.

HEKLIÐ FL Í HRING (á við um fætur):
Eftir síðustu fl í 1. umf, heklið 1 fl í næstu fl (= 1. fl frá byrjun 1. umf), haldið áfram að hekla í hring með 1 fl í hverja fl.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VÍNKASSI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka frá höfði og niður.

VÍNKASSI:
Heklið 6 ll með heklunál nr 5,5 með litnum gulur.
UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni (= 2 fl), 1 fl í hverja af næstu 4 ll = 6 fl. Snúið við.
UMFERÐ 2: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR-1! Heklið 1 fl í fyrstu fl, 2 fl í hverja af næstu 5 fl = 11 fl, snúið við.
UMFERÐ 3: Heklið 2 fl í hverja fl = 22 fl. Snúið við.
UMFERÐ 4: Heklið 1 fl í hverja fl. Snúið við.
Endurtakið umf 4 10 sinnum til viðbótar.
Heklið nú búkinn þannig:
UMFERÐ 1: LESIÐ ÚTAUKNING! Heklið 1 fl í hverja fl JAFNFRAMT er aukið út um 6 fl jafnt yfir = 28 fl. Snúið við.
UMFERÐ 2 (og síðan jafnar umf): Heklið 1 fl í hverja fl. Snúið við.
UMFERÐ 3: 1 fl í hverja fl JAFNFRAMT er aukið út um 6 fl jafnt yfir = 34 fl. Snúið við.
UMFERÐ 5: 1 fl í hverja fl JAFNFRAMT er aukið út um 6 fl jafnt yfir = 40 fl. Snúið við.
Haldið áfram að auka út um 6 fl jafnt yfir í annarri hverri umf þar til 52 fl eru eftir í umf. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
UMFERÐ 11: * 1 fl í hverja af næstu 12 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* út umf = 56 fl. Snúið við.
UMFERÐ 13: * 1 fl í hverja af næstu 13 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* út umf = 60 fl. Snúið við.
UMFERÐ 15: * 1 fl í hverja af næstu 14 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* út umf = 64 fl. Snúið við.
Haldið áfram að heklað 1 fl fleiri á milli útaukning í annarri hverri umf þar til 72 fl eru í umf. Snúið við.
UMFERÐ 20: Heklið 1 fl í hverja fl.
Haldið áfram að hekla 1 fl í hverja fl þar til stykkið mælist ca 30-35 cm frá toppi. Klippið frá og festið enda.

BOTN:
Stykkið er heklað í hring. Heklið 4 ll með heklunál nr 5,5 með litnum gulur og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll.
UMFERÐ 1: MUNIÐ EFTIR HEKLLEIÐBEININGAR-1! Heklið 6 fl um hringinn.
UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 12 fl.
UMFERÐ 3: * 2 fl í fyrstu fl, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl.
UMFERÐ 4: * 2 fl í fyrstu fl, 1 fl í hvora af næstu 2 fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl.
UMFERÐ 5: * 2 fl í fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 3 fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 fl.
UMFERÐ 6: * 2 fl í fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 4 fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 fl. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
UMFERÐ 7: * 2 fl í fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 5 fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 42 fl.
UMFERÐ 8: * 2 fl í fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 6 fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 48 fl.
UMFERÐ 9-12: Haldið áfram að hekla 1 fl fleiri á milli útaukninga = 72 fl í síðustu umf. Botninn mælist ca 17 cm að þvermáli. Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Leggið síðustu umf frá búk kant í kant við síðustu umf á botni (= 72 fl) með réttu út og heklið með litnum gulur þannig: Heklið 1 fl í hverja fl í gegnum bæði stykkin, endið á 1 kl í fyrstu fl = 72 fl. Klippið frá og festið enda.

FÓTUR:
Stykkið er heklað í hring. Heklið 6 ll með heklunál nr 5,5 með litnum rauður og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. Heklið 1 fl í hverja ll = 6 fl. Heklið síðan FL Í HRING – sjá útskýringu að ofan – í ca 20 cm. Heklið síðan 1 umf þar sem aukið er út um 4 fl jafnt yfir = 10 fl. Heklið 1 umf án útaukninga, 1 umf þar sem aukið er út um 4 fl jafnt yfir = 14 fl. Heklið 1 umf án útaukninga. Klippið frá – brjótið síðustu umf í tvennt og saumið þannig að saumurinn verði flatur.
Heklið annan fót á sama hátt.

VÆNGUR:
Stykkið er heklað fram og til baka. Heklið 4 ll (meðtalin 1 ll til að snúa við með) með heklunál nr 5,5 með gulur.
UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, 1 fl í hvora af næstu 2 fl = 3 fl. Snúið við.
UMFERÐ 2: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 1 fl í hverja fl. Snúið við.
UMFERÐ 3: 2 fl í fyrstu fl, 1 fl í næstu fl, 2 fl í næstu fl = 5 fl. Snúið við.
UMFERÐ 4: 1 fl í hverja fl. Snúið við.
UMFERÐ 5: 2 fl í fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 3 fl, 2 fl í næstu fl = 7 fl. Snúið við.
Heklið nú 1 fl í hverja fl þar til stykkið mælist ca 15-18 cm. Heklið nú áfram með úrtöku þannig:
UMFERÐ 1: LESIÐ ÚRTAKA-1! Heklið 2 fl saman, 1 fl í hverja af næstu 3 fl, 2 fl saman = 5 fl. Snúið við.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fl í hverja fl. Snúið við.
UMFERÐ 3: Heklið 2 fl saman, 1 fl í næstu fl, 2 fl saman = 3 fl. Snúið við.
UMFERÐ 4: Heklið 1 fl í hverja fl. Klippið frá og festið enda.
Heklið annan væng á sama hátt.

GOGGUR:
Heklið 3 ll með heklunál nr 5,5 með litnum rauður.
UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni (= 2 fl), heklið 2 fl í sömu fl, 1 fl í næstu fl = 5 fl. Snúið við.
UMFERÐ 2: MUNIÐ EFTIR HEKLLEIÐBEININGAR-1! Heklið 1 fl í hverja fl. Snúið við.
UMFERÐ 3: Heklið 1 fl í fyrstu fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í næstu fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í næstu fl = 7 fl. Snúið við.
UMFERÐ 4-8: Heklið 1 fl í hverja fl. Snúið við.
UMFERÐ 9: Heklið 1 fl í fyrstu fl, * 2 fl saman, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 5 fl. Snúið við.
UMFERÐ 10: Heklið 1 fl í hverja fl. Snúið við.
UMFERÐ 11: Heklið 1 fl, 3 fl eru heklaðar saman – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR-2, 1 fl í næstu fl = 3 fl. Snúið við.
UMFERÐ 12: Heklið 3 fl saman. Klippið frá og festið enda.

KANTUR FYRIR TÖLUR:
Vinstri kantur að framan:
UMFERÐ 1: Heklið upp frá réttu 23-29 fl jafnt yfir meðfram kanti með litnum gulur og upp þar til ca 10 cm eru eftir frá toppi. Klippið frá.
UMFERÐ 2: Heklið lykkju með byrjun frá réttu þannig: Hoppið yfir fyrstu 7 fl (= héðan byrjar op fyrir stút), heklið 1 fl í næstu fl, * 3 ll, hoppið yfir 2 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í næstu fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* 0-1 sinni til viðbótar, 3 ll, hoppið yfir 2 fl, 1 fl í hverja af næstu 7 fl. Klippið frá og festið enda.
Hægri kantur að framan:
UMFERÐ 1: Heklið upp frá röngu 23-29 fl jafnt yfir meðfram kanti upp þar til ca 10 cm eru eftir að ofan – stillið af eftir vinstri kanti. Klippið frá og festið enda.

KAMBUR:
Heklið 15 ll með heklunál nr 5,5 með litnum rauður. Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni (= 2 fl), heklið 1 fl í hverja ll = 15 fl. Haldið stykkinu flötu í hendinni á meðan heklaðir eru ll-bogar til baka í fl og ll þannig: Heklið 12 ll, festið með 1 fl í fyrstu fl (= 1 bogi), heklið 12 ll, festið með 1 fl í fyrstu ll (= 1 bogi), * heklið 12 ll, festið með 1 fl í næstu ll (= 1 bogi), heklið 12 ll, festið með 1 fl í næstu fl (= 1 bogi) *, endurtakið frá *-* 12 sinnum til viðbótar = 28 ll-bogar.

FRÁGANGUR:
Leggið stykkið kant í kant frá höfði og niður að kanti að framan og saumið saman með litnum gulur. Leggið vinstri kant að framan yfir hægri kant að framan og saumið saman efst, klippið frá og festið enda. Saumið kókoshnetutölu í hægri hlið rétt innan við kant að framan.
Saumið kambinn á þannig: Byrjið ca 5 cm neðan á topp á höfði við miðju að framan og saumið niður kambinn yfir höfuðið og niður ca 5 cm aftur á bak.
Saumið 2 tölur fyrir augu ca 3 cm frá byrjun á kamb með ca 1,5 cm á milli augna.
Brjótið gogginn í tvo hluta og saumið niður ca 2,5 cm neðan við augun.
Saumið niður annan vænginn með því að leggja úrtökuna samsíða með umf á búk, mælið ca 12-15 cm rétt ofan á höfði og ca 5 cm út frá hlið (ATH! Saumið einungis í kringum toppinn þannig að vængirnir hanga laust að neðan). Saumið hinn vænginn alveg eins, en í gagnstæða hlið – þ.e.a.s. það verða ca 10 cm á milli vængja á bakhlið.
Saumið niður báða fæturna neðan á kant með ca 8 cm á milli fóta. Fyllið höfuðið með vatti.

KÖGUR:
1 KÖGUR = Klippið 2 þræði ca 20 cm langa. Leggið þá saman tvöfalda og dragið í gegnum 1 fl á botni, þræðið þá síðan í gegnum bogann. Festið 1 kögur í ca 3. hverja fl meðfram botni á umgjörðinni en ekki yfir fæturna. Klippið kögrið til þannig að það verði ca 6 cm að lengd.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1099

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (4)

country flag Birthe Nielsen wrote:

Jeg er ved at lave denne, men synes ikke, den er stor nok til at nå omkring en papvin. Skal posen tages ud af pappen for at den kan være der? mvh Birthe

03.02.2019 - 12:34

DROPS Design answered:

Hej Birthe, ja du tager posen ud inden du stopper den i hønen. Se også vores video hvordan vi gør

How to fill the hen wine cover in DROPS Extra 0-1099 from Garnstudio Drops design on Vimeo.

06.02.2019 - 10:20

country flag Carol Baker wrote:

I would love to make this in a water cooler cover. Could you please tell me how much of each colour of Eskimo yarn I would need ( it is not stated in the pattern :0( ) Thank you.

26.03.2018 - 20:50

DROPS Design answered:

Dear Mrs Baker, you will find the amount of yarn required under the header, ie 300 g Eskimo in yellow and 100 g Eskimo in red. Happy crocheting!

28.03.2018 - 14:56

Jeanette Brodie wrote:

I would love to knit this but I don't crochet. Can it be adapted

21.03.2015 - 12:12

DROPS Design answered:

Dear Mrs Brodie, it probably can - you will also find all videos to start crochet and crochet this successfully in our video library - for any further individual assistance you are welcome to contact your DROPS store. Happy knitting!

23.03.2015 - 10:41

country flag Sissi wrote:

You guys have more humor than you seem :)

20.03.2015 - 10:42