DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Snow yarn
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3300.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425
DROPS 158-13

#cozycrimsonset

DROPS Design: Mynstur nr ee-502
Garnflokkur E eða C + C
-----------------------------------------------------------

HÚFA:
Stærð: S/M – M/L – L/XL
Höfuðmál: 54/56 – 56/58 – 58/60 cm.

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
150-150-200 gr litur nr 50, dökk bleikur

DROPS HEKLUNÁL NR 7 – eða þá stærð sem þarf til að 10 fl og 11 umf verði 10 x 10 cm.
DROPS PRJÓNAR NR 20 – fyrir mynstur.

HÁLSSKJÓL:
Stærð: S/M - L
Ummál þar sem er breiðast: 72-81 cm
Hæð: 26-26 cm

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
150-150 gr litur nr 50, dökk bleikur

DROPS HEKLUNÁL NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 9 st og 5 umf verði 10 x 10 cm.
DROPS PRJÓNAR NR 20 – fyrir mynstur.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3300.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umf með fl, skiptið út fyrstu fl með 1 ll. Umferðin endar á 1 kl í ll frá byrjun umf.

KÚSTSKAFTSMYNSTUR:
UMFERÐ 1 (= ranga):
Setjið fyrstu ll á prjóna nr 20, * takið upp 1 l með heklunál í gegnum fremri lykkjubogann í næstu l og setjið lykkjuna laust upp á prjón nr 20 *, endurtakið frá *-* alla umf. Allar l í umf eru nú lausar á prjóni nr 20.
UMFERÐ 2 (= rétta):
* Stingið heklunálinni í gegnum 3 fyrstu l á prjóni, heklið 1 kl (þessi bindur 3 l saman), takið l af prjóni og heklið 1 ll, 3 fl í gegnum þær 3 l, heklið 1 ll *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir á prjóni, stingið heklunálinni í gegnum 3 síðustu l á prjóni, heklið 1 kl (þessi bindur 3 l saman), heklið 1 ll, takið l af prjóni og heklið 3 fl í gegnum þessar 3 l.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður að mynstri, þaðan er heklað fram og til baka og saumað er sama í lokin.

HÚFA:
Heklið 4 ll með heklunál nr 7 og Snow og tengið í hring með 1 kl í 1. ll.
UMFERÐ: Heklið 6 fl um hringinn. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR!
UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í aftari lykkjubogann í hverri umf = 12 fl.
UMFERÐ 3: Heklið * 1 fl í aftari í lykkjubogann í næstu fl, 2 fl í aftari lykkjubogann í næstu fl *, endurtakið frá *-*
UMFERÐ 4: Heklið * 1 fl í aftari lykkjubogann í hvora af næstu 2 fl, 2 fl í aftari lykkjubogann í næstu fl, * endurtakið frá *-* = 24 fl. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
UMFERÐ 5: Heklið * 1 fl í aftari lykkjubogann í hverja af næstu 3 fl, 2 fl í aftari lykkjubogann í næstu fl, * endurtakið frá *-* = 30 fl.
UMFERÐ 6: Heklið * 1 fl í aftari lykkjubogann í hverja af næstu 4 fl, 2 fl í aftari lykkjubogann í næstu fl, * endurtakið frá *-* = 36 fl.
UMFERÐ 7: Heklið * 1 fl í aftari lykkjubogann í hverja af næstu 5 fl, 2 fl í aftari lykkjubogann í næstu fl, * endurtakið frá *-* = 42 fl.
UMFERÐ 8: Heklið * 1 fl í aftari lykkjubogann í hverja af næstu 6 fl, 2 fl í aftari lykkjubogann í næstu fl, * endurtakið frá *-* = 48 fl.
Nú er útaukningu lokið í S/M og M/L.
Stærð L/XL:
UMFERÐ 9: Heklið * 1 fl í aftari lykkjubogann í hverja af næstu 7 fl, 2 fl í aftari lykkjubogann í næstu fl *, endurtakið frá *-* = 54 fl.

Heklið nú næstu umf þannig: Heklið 1 fl í aftari lykkjubogann í hverri fl en aukið út um 0-3-0 fl jafnt yfir = 48-54-54 fl. Haldið áfram að hekla 1 fl í aftari lykkjubogann í hverja fl þar til stykkið mælist 15-16-17 cm. Stykkið er nú heklað fram og til baka. Heklið nú þannig:

HEKLIÐ KÚSTSKAFTSMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan = 16-17-18 mynstureiningar á breiddina.
UMFERÐ 3 (= ranga):
Heklið 1 fl í fremri lykkjubogann í hverja fl frá fyrri umf = 48-51-54 fl.
UMFERÐ 4 (= rétta):
Heklið 1 fl í aftari lykkjubogann í hverja fl.
Endurtakið þessar 4 umf alls 3 sinnum á hæðina. Klippið frá

FRÁGANGUR:
Saumið saman í hlið við kústskaftsmynstrið í hverri fl-umferð.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka, ofan frá og niður og saumað saman í lokin.

HÁLSSKJÓL:
Heklið 65-75 LAUSAR ll (meðtaldar 3 ll til að snúa við með) á heklunál nr 8 með Snow. Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni, síðan 1 st í hverja ll = 63-72 st (3 fyrstu ll = 1 st). Heklið síðan KÚSTSKAFTSMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan = 21-24 mynstureiningar á breiddina.
Endurtakið umf 1-2 í mynstri til loka. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 18 cm, stillið af að næsta umf er umf 2 í mynstri, heklið eins og áður yfir næstu 9-12 l (= 3-4 mynstureiningar af mynstri), * heklið síðan 4 fl í þær 3 l á prjóni *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar (= 3 mynstureiningar af mynstri), heklið eins og áður yfir næstu 24-27 l (= 8-9 mynstureiningar af mynstri), * heklið nú 4 fl í þær 3 l á prjóni *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar (= 3 mynstureiningar af mynstri), heklið eins og áður yfir síðustu 12-15 l (= 4-5 mynstureiningar af mynstri) = 69-78 fl í umf. Haldið síðan áfram með mynstur eins og áður, heklið nú 23-26 mynstureiningar af mynstri á breiddina. Þegar stykkið mælist 26 cm, stillið af að síðasta umf sé umf 2 í mynstri, klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Saumið hálsskjólið saman í hlið í hverja fl-umf og st-umf.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cozycrimsonset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 158-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (41)

country flag Barbara skrifaði:

Lavorare ora il giro successivo come segue: Lavorare 1 m.b nel filo posteriore di ogni m.b, ma aumentare 0-3-0 m.b in modo uniforme = 48-51-54 m.b. Proseguire a lavorare 1 m.b nel filo posteriore di ogni m.b finché il lavoro non misura 15-16-17 cm. Questo significa che ogni giro bisogna aumentare di 3 mb fino ad arrivare a 15 cm? grazie

08.12.2018 - 09:57

DROPS Design svaraði:

Buonasera Barbara. Nella taglia M/L, aumenta 3 mb una volta sola, al giro indicato come giro successivo. Nelle altre taglie non ci sono aumenti. Finito questo giro deve avere 48-51-54 m.b a seconda della taglia. Continua poi con 1 m.b in ogni m.b, lavorando però nel filo dietro della maglia, fino alla misura indicata. Il numero delle maglie non cambia. Buon lavoro!

08.12.2018 - 21:15

country flag Asia skrifaði:

For the hat, after round 7, it says "work 1 sc in back loop of every sc but inc 0-3-0 sc evenly". Can you explain the 0-3-0 part. Also when the piece measures 15-16-17 cm are you measuring the radius (middle to outside) or the circumference of the hat?

22.09.2017 - 23:28

DROPS Design svaraði:

Dear Asia, the numbers with the dashes between refer to the three sizes the pattern comes in. So with the "0-3-0" you ask, there are no increase in the S/M and the L/XL sizes, but there is 3 stitches should be increased in the M/L size. I hope this helps. Happy crafting!

25.09.2017 - 00:32

country flag Heather skrifaði:

I am lost. Your pattern reads ROW 3 (=WS): Work 1 sc in front loop of every sc on previous row = 48- 51-54sc. Should I try to sc in front loop while sts are on my knitting needles? Or am I supposed to sc first and then start broomstick lace ? Is the pattern writer right?

27.01.2016 - 00:28

DROPS Design svaraði:

Dear Heather, when piece measures 15-17 cm (see size), work the 2 rows in broomstick lace then work the row 3 with 1 sc in front loop of each of the 48-51-54 sc on row 2 from bromstick lace you have just done. Happy crocheting!

27.01.2016 - 10:23

country flag Tina skrifaði:

Hej. Jeg kan ud fra videoen ikke se, hvordan jeg kosteskaft-hækler, når der er tale om en fortsættelse af en cirkel. I nævner i en tidligere besvarelse noget med to pinde. Kan I demonstrere i en ny video? Vh. Tina

21.01.2016 - 22:13

DROPS Design svaraði:

Hej Tina, Når du kommer til kosteskaftmønsteret fortsætter du frem og tilbage på arbejdet (ikke rundt). God fornøjelse!

10.03.2016 - 10:38

country flag Miss Crochet skrifaði:

Je suis débutante au crochet. Et je ne comprends vraiment pas ce que je dois faire dans le patron tour de cou après ceci: À environ 18 cm de hauteur totale, ajuster pour que le rang suivant soit le rang 2 du point fantaisie... Pourriez-vous m'expliquer? Je comprends le 18 cm de hauteur... mais ensuite...

11.01.2016 - 00:04

DROPS Design svaraði:

Bonjour Miss Crochet, le rang d'augmentations doit se faire sur un rang 2 du point fantaisie, à 18 cm environ, crochetez 1 rang en moins ou en plus si nécessaire pour bien augmenter au rang 2 du motif. Bon crochet!

11.01.2016 - 11:17

country flag G3nyk skrifaði:

Je suis assez débutante au crochet... et je suis un peu melée pour le point Broomstick! RANG 1 (= sur l'envers): je ne suis pas certaine de comment le faire! sur l'envers: dans quelle sens doit être l'ouvrage? Merci

29.12.2015 - 21:50

DROPS Design svaraði:

Bonjour G3nyk, la vidéo ci-dessous montre comment réaliser le broomstick lace - le 1er rang du modèle = sur l'endroit (rang de brides pour le tour de cou), le 2ème rang du tour de cou se fera donc sur l'envers et correspond au 1er rang du broomstick. Bon crochet!

02.01.2016 - 15:26

country flag Alexia skrifaði:

Hola necesito pedir mas lana num 50 rosa oscuro eskimo pero en la web crochet10 solo aparece color borgoña. Es el mismo color?? Rosa oscuro no aparece

24.10.2015 - 18:51

DROPS Design svaraði:

Hola Alexia. En primer lugar, tienes que mirar el número del color de la lana y no el nombre (que puede cambiar dependiendo de la traducción). Tambíen es importante la tintada (DYELOT) si es para una labor ya comenzada porque lana del mismo color puede tener ligeras variaciones de tono en diferentes tintadas.

25.10.2015 - 12:55

country flag Alexia skrifaði:

Hola solo queria saber que medidas tiene el cuello que lleva la modelo en la foto. Es talla S/M o M/L?? Muchas gracias :)

12.10.2015 - 19:06

DROPS Design svaraði:

Hola Alexia. El modelo lleva la talla S/M.

20.10.2015 - 15:56

country flag Melanie Juma skrifaði:

Was bedeutet "gleichzeitig 0-3- fm gleichmässig verteilt zunehmen"? Soll man am Ende der Runde 54 Maschen haben oder jede 3. Masche trippeln? Ich danke im Voraus für die Antwort. Beste Grüsse Melanie

01.09.2015 - 07:22

DROPS Design svaraði:

Sie nehmen nur 3 fM ingesamt zu, sodass Sie von 48 fM auf 51 M kommen. Die Zunahme gilt ja nur bei der mittleren Größe. Sie haben 48 M und nehmen dann 3 fM gleichmäßig verteilt zu. In der kleinsten Größe bleibt es bei 48 M und in der größten Größe haben Sie schon 54 M.

01.09.2015 - 16:23

country flag Sophie K skrifaði:

Bonjour, quand on place pour la deuxième fois les mailles sur l aiguille 20 on y place bien toutes les ms (comme expliqué avec la vidéo) et pas toutes les mailles ? Il me semble que ce n est pas très clair dans l explication. m Merci !

30.08.2015 - 00:51

DROPS Design svaraði:

Bonjour Sophie K, quand vous répétez le rang 1, vous relevez 1 m dans chaque ms avec le crochet et vous placez cette nouvelle maille sur l'aiguille 20, comme dans la vidéo, vous devez avoir sur l'aiguille 1 m pour chaque ms du rang précédent. Bon crochet!

31.08.2015 - 10:29