Karin skrifaði:
Je vous remercie ! C'est plus clair. Je ne comprenais pas que les 2 se faisaient en même temps. Je ne vois pas encore très bien comment les pièces vont s'assembler mais je vais avancer et ça s'éclaircira peut-être !
03.05.2022 - 14:31
Karin skrifaði:
Bonjour, Il manque des explications à ce modèle. On parle de 2 carrés domino mais il semble qu'on nous fasse tricoter un triangle et non un carré. On ne sait pas où s'arrête le domino. Les explications des dominos des autres modèles ne correspondent pas du tout à ce modèle. Pouvezs-vous revoir ces explications ?
02.05.2022 - 16:23DROPS Design svaraði:
Bonjour Karin, les chaussons se tricotent à partir de l'arrière du talon jusqu'à la pointe, vous commencez par les 2 dominos du talon (cette vidéo montre comment on crée un domino en augmentant, ici, vous en ferez 2 en même temps = 2 marqueurs); arrêtez le domino à la hauteur indiquée pour la taille (9 à 12,5 cm) et rabattez les mailles de chaque côté pour terminer par le pied. Bon tricot!
03.05.2022 - 08:56Gloria skrifaði:
Sin foto del esquema no se entiende
09.04.2016 - 02:32DROPS Design svaraði:
Hola Gloria. Esta zapatilla se trabaja en dos partes. Primero se trabajan dos cuadrados domino por separado y después de terminar se cosen dos de los lados (una costura forma la parte posterior de la zapatilla = el talón y la segunda costura forma la parte de la planta del pie hasta la mitad de este aprox), la parte de la punta de la zapatilla se trabaja en redondo comenzando en los lados de los cuadrados opuestos a la costura del talón. Los lados superiores de los cuadrados quedan abiertos para meter el pie.
10.04.2016 - 17:49
Dorota skrifaði:
Eleganskie papcie
08.06.2014 - 23:25Janneke skrifaði:
Nice and warm :-).
03.06.2014 - 18:13
Closing In#closinginslippers |
|
|
|
Prjónaðar tátiljur með dominohæl úr 1 þræði DROPS Big Fabel eða 2 þráðum DROPS Fabel. Stærð 32-46.
DROPS 158-52 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á sokkaprjóna): * 1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING: (1 uppsláttur = 1 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan), svo að ekki myndist gat. DOMINO (= 2 ferningar): UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið sl að fyrsta prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl (= l með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl að næsta prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= l með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl út umf. Endurtakið umf 1 og 2, þ.e.a.s. aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki í annarri hverri umf (= 4 l fleiri). Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umf (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir göt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka frá hæl, síðan er prjónað í hring fyrir tá. Öll tátiljan er prjónuð í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. TÁTILJA: Fitjið upp 6 l á prjóna nr 5 með 1 þræði af Big Fabel eða 2 þráðum af Fabel (látið endann vera ca 20 cm langan, hann er notaður í frágang). Prjónið 1. umf þannig: * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 2 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar – LESIÐ ÚTAUKNING = 10 l. Prjónið nú DOMINO – sjá útskýringu að ofan – JAFNFRAMT í fyrstu umf eru sett 2 prjónamerki þannig: 1 prjónamerki í 3. l og 1 prjónamerki í 8. l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 9-9½-10½-11½-12½ cm á hæðina er næsta umf prjónuð frá réttu þannig: Fækkið um allar l á undan fyrra prjónamerki + fækkið um l með prjónamerki og 1 l á eftir prjónamerki, í næstu umf er öllum lykkjum fækkað á undan seinna prjónamerki + fækkið lykkju með prjónamerki og 1 lykkju á eftir prjónamerki = ca 34-36-38-42-46 l eftir á prjóni fyrir fót. Héðan er prjónað GARÐAPRJÓN á sokkaprjóna – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður til 28-30-32-36-40 l í 1. umf. Þegar stykkið mælist 16-18-19½-22½-25½ cm, stillið af að næsta umf sé prjónuð slétt, fækkið um 2 l jafnt yfir = 26-28-30-34-38 l. Prjónið 1 umf br. Fækkið um 4 l jafnt yfir í næstu umf = 22-24-26-30-34 l. Prjónið 1 umf br. Fækkið um 4-6-4-5-6 l jafnt yfir í næstu umf = 18-18-22-25-28 l. Prjónið 1 umf br. Fækkið um 6-6-5-5-6 l jafnt yfir í næstu umf = 12-12-17-20-22 l. Prjónið 1 umf br. Prjónið nú eftir stærðum þannig: Stærð 32/34-35/37: Prjónið allar l 2 og 2 slétt saman = 6 l. Stærð 38/40-41/43-44/46: Fækkið um 5-6-8 l jafnt yfir í næstu umf = 12-14-14 l. Prjónið 1 umf br. Prjónið allar l 2 og 2 slétt saman = 6-7-7 l. Stykkið mælist ca 19-21-23-26-29 cm. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og festið vel. Prjónið aðra tátilju á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið saman hliðarnar á domino-ferningnum og saumið saman við miðju að aftan yst í lykkjubogann svo að saumurinn verði flatur. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #closinginslippers eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 14 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 158-52
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.