RuthBodil skrifaði:
En Sann Favorit Till! jag vet i vilket garn jag önskar mej göra den: CLOUD-
18.06.2014 - 01:15
Violette B. skrifaði:
Ce châle est très joli et original.
09.06.2014 - 17:08
Véronique skrifaði:
Formes différentes et seyantes . Merci pour l'originalité .
05.06.2014 - 21:41
Maria Pia skrifaði:
Diverso dai soliti, delizioso
04.06.2014 - 21:19
Bertina. skrifaði:
Mooi!
04.06.2014 - 11:56Lauren McRoberts skrifaði:
Very different style. Please include this year. Love it!
03.06.2014 - 14:05
Simone skrifaði:
SWEET!!!
03.06.2014 - 07:47Jyotsna skrifaði:
I LOVE THIS.
02.06.2014 - 18:11
Raquel#raquelset |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónað eyrnaband og axlarskjól úr DROPS Snow.
DROPS 156-30 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1- A.4. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu (1. umf = rétta) KANTLYKKJUR: UMFERÐ 1 (byrjun á umf): 1 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 1 l sl, 2 l br, UMFERÐ 1 (lok á umf): 2 l br, 1 l sl, 1 l garðaprjón. UMFERÐ 2: Garðaprjón yfir garðaprjón, sl yfir sl og br yfir br. ÚTAUKNING: Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir göt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman í lokin. EYRNABAND: Fitjið upp 9 l á prjóna nr 8 með Snow. Prjónið frá réttu þannig: Prjónið 4 KANTLYKKJUR – sjá útskýringu að ofan, 1 l slétt, 4 kantlykkjur. Þegar stykkið mælist 8 cm er prjónað áfram frá réttu þannig: 4 kantlykkjur, A.1, 4 kantlykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 21 l á prjóni. Síðan eru síðustu 2 umf í A.1 endurteknar með 4 kantlykkjum í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 33-35-37 cm er prjónað frá réttu þannig: 4 kantlykkjur, A.2, 4 kantlykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 9 l á prjóni. Prjónið nú frá réttu þannig: 4 kantlykkjur, 1 l sléttprjón, 4 kantlykkjur. Þegar stykkið mælist 49-51-53 cm er fellt af með sl yfir sl og br yfir br. Klippið frá – skiljið eftir enda ca 20 cm langan, hann er notaður við frágang. FRÁGANGUR: Saumið saman affellingarkantinn og uppfitjunarkantinn yst í lykkjubogann svo að saumurinn verði ekki of þykkur. ------------------------------------------------------- AXLARSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til að fá pláss fyrir allar lykkjur. AXLARSKJÓL: Fitjið upp 6 l á hringprjóna nr 8 með Snow. Prjónið 1. umf (= rétta) þannig: * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir, 1 l sl = 11 l. Prjónið 1 umf br þar sem 1., 3. og 5. uppslátturinn er prjónaður br (svo að það myndist gat til að festa kögur í), meðan 2. og 4. uppslátturinn er prjónaður snúinn br (svo að ekki myndist gat). Prjónið 1 umf sl þar sem aukið er út 6-7-8 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING! = 17-18-19 l. Prjónið 1 umf br. Prjónið 1 umf sl þar sem aukið er út um 6-7-8 l jafnt yfir = 23-25-27 l. Prjónið 5 umf stroff (= 1 l sl, 1 l br), endið á 1 l sl, með 3 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið á stykki. Prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið 3 l garðaprjón, A.3 (alls 8-9-10 sinnum), endið á fyrstu l í A.3 (án uppsláttar á milli 2 l) og 3 l garðaprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 55-61-67 l á prjóni. Endurtakið síðustu 2 umf þar til stykkið mælist 83-93-103 cm. Prjónið nú frá réttu þannig: 3 l garðaprjón, A.4 (alls 8-9-10 sinnum), endið á fyrstu l í A.4 og 3 l garðaprjón. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 23-25-27 l á prjóni. Prjónið 5 umf stroff (= 1 l sl, 1 l br), endið á 1 l sl, með 3 l garðaprjón í hvorri hlið á stykki. Prjónið 1 umf br þar sem fækkað er um 6-7-8 l jafnt yfir með því að prjóna 2 l br saman = 17-18-19 l. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið 1 umf br þar sem fækkað er um 6-7-8 l jafnt yfir = 11 l. Prjónið næstu umf þannig: * 3 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 2 l slétt saman = 7 l. Prjónið 1 umf br þar sem uppslátturinn er prjónaður br (svo það myndist gat til að setja kögur í), fellið af. Stykkið mælist ca 100-110-120 cm. KÖGUR: 1 kögur: Klippið 3 þræði ca 2 metra, skiptið þeim við miðju (= 6 þræðir), þræðið endann í gegnum eitt gat á enda stykkis (án þess að hnýta). Gerið 2 kögur til viðbótar alveg eins og þræðið í gegnum hin 2 götin. Gerið 1 LAUSA fléttu úr þessum 3 kögrum, setjið síðan 1 lausan hnút á endann (látið hanga ca 8 cm þráðarenda í lokin). Endurtakið alveg eins í hinni hliðinni á axlarskjólinu. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #raquelset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 156-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.