WITTMANN skrifaði:
Bonjour ! je ne comprends pas du tout la phrase du CARRE N°2 : Monter 11 m à la fin de rang du carré 1, sur une nouvelle aiguille double pointe Ce n'est pas clair : nouvelle aiguille ou à la suite du carré 1 sur la même aiguille ? Merci, Gen
22.11.2016 - 17:01DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Wittmann, à la fin du carré 1 on garde les mailles sur l'aiguille double pointe, mais on va monter les mailles du carré 2 avec une nouvelle aiguille, c'est-à-dire séparément des mailles du carré 1. Vous pouvez également mettre les mailles en attente sur un fil/arrêt de mailles (cf astuce tricot). Bon tricot!
23.11.2016 - 09:15
Astrid skrifaði:
Sehr schön... sicher auch für hochwertige Reste geeignet in allen Farben. Ich warte auf die Anleitung:)
25.06.2014 - 16:18
Sissi skrifaði:
Väldigt fina färger.
19.06.2014 - 10:01
Annie skrifaði:
J'aime beaucoup ce snood aux couleurs de l'automne tout simple mais élégant dans sa simplicité
19.06.2014 - 09:31
Autumn Grace#autumngraceneckwarmer |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Prjónað hálsskjól úr DROPS Big Delight með entrelac mynstri.
DROPS 156-32 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 fyrir röð, ferninga og prjónstefnu. Mynsturteikning sýnir 1.-4. röð af ferningum og 5 ferninga á hæðina. LEIÐBEININGAR: Í stað þess að láta l vera áfram á prjóninum þegar næsti ferningur er prjónaður er hægt að setja l á þráð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í garðaprjóni fram og til baka – lesið GARÐAPRJÓN í útskýringu að ofan - og saumað saman í lokin. Byrjið neðst í horninu á FERNINGUR-1 – sjá mynsturteikningu A.1. FERNINGUR 1: Fitjið upp 11 l á sokkaprjóna nr 6 með Big Delight. Prjónið fram og til baka þar til stykkið mælist ca 7 cm (síðasta umf er prjónuð frá réttu). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Látið l vera eftir á prjóni. FERNINGUR 2: Fitjið upp 11 nýjar l í lok umf frá FERNINGUR 1 á 1 nýjan prjón. Prjónið fram og til baka yfir þessar 11 l – JAFNFRAMT í lok hverrar umf frá röngu er prjónuð 1 l frá fyrri ferningi til baka á prjóninn og byrjun á hverri umf frá réttu eru 2 fyrstu l prjónaðar slétt saman. Haldið áfram þar til allar l frá FERNINGUR 1 hafa verið prjónaðar – ATH! Síðustu 2 l eru prjónaðar slétt saman = 11 l á prjóni (síðasta umf er prjónuð frá röngu). Látið l vera eftir á prjóni. FERNINGUR 3: Prjónið 11 l á 1 nýjan prjón meðfram kanti á FERNINGUR 1 frá réttu. Prjónið fram og til baka yfir þessar l í ca 7 cm (síðasta umf er prjónuð frá röngu). Látið l vera eftir á prjóni. FERNINGUR 4: Fitjið upp 11 nýjar l í lok umf frá FERNINGUR 3. Prjónið fram og til baka yfir þessar 11 l – JAFNFRAMT í lok hverrar umf frá réttu er prjónuð 1 l frá FERNINGUR 3 til baka á prjóni og í byrjun á hverri umf frá röngu eru 2 fyrstu l prjónaðar slétt saman. Haldið síðan áfram þar til allar l frá FERNINGUR 3 hafa verið prjónaðar - ATH! Síðustu 2 l af FERNINGUR 3 eru prjónaðar slétt saman = 11 l á prjóni (síðasta umf er prjónuð frá réttu). Látið l vera eftir á prjóni. FERNINGUR 5: Prjónið upp 11 l meðfram kanti á FERNINGUR 3 frá réttu, prjónið fram og til baka yfir þessar 11 l – JAFNFRAMT í lok hverrar umf frá réttu er prjónuð 1 l frá FERNINGUR 2 til baka á prjóni og í byrjun á hverri umf frá röngu eru 2 fyrstu l prjónaðar slétt saman. Haldið síðan áfram þar til allar l frá FERNINGUR 2 hafa verið prjónaðar - ATH! Síðustu 2 l af FERNINGUR 2 eru prjónaðar slétt saman = 11 l á prjóni (síðasta umf er prjónuð frá réttu). Láið l vera eftir á prjóni. FERNINGUR 6: Prjónið upp 11 l meðfram kanti á FERNINGUR 2 frá réttu. Prjónið fram og til baka yfir þessar 11 l í ca 7 cm (síðasta umf er prjónuð frá röngu). Látið l vera eftir á prjóni. FERNINGUR 7: Prjónið eins og FERNINGUR 2 (fitjið upp l í lok umf frá FERNINGUR 6, prjónið með 1 og 1 l frá FERNINGUR 6) FERNINGUR 8: Prjónið upp 11 l meðfram kanti á FERNINGUR 6 frá röngu. Prjónið fram og til baka yfir þessar 11 l – JAFNFRAMT í lok hverrar umf frá röngu er prjónuð 1 l frá FERNINGUR 5 til baka á prjóni og í byrjun á hverri umf frá réttu eru 2 fyrstu l prjónaðar slétt saman. Haldið síðan áfram þar til allar l frá FERNINGUR 5 hafa verið prjónaðar - ATH! Síðustu 2 l af FERNINGUR 5 eru prjónaðar slétt saman = 11 l á prjóni (síðasta umf er prjónuð frá röngu). Láið l vera eftir á prjóni. FERNINGUR 9: Prjónið eins og FERNINGUR 8 (prjónið upp l frá FERNINGUR 5, prjónið með 1 og 1 l frá FERNINGUR 4). LESIÐ LEIÐBEININGAR! FERNINGUR 10: Prjónið eins og FERNINGUR 3 (prjónið upp l frá FERNINGUR 4), en fellið af l í síðustu umf frá röngu og haldið áfram með FERNINGUR 11. FERNINGUR 11: Prjónið eins og FERNINGUR 5 (Fitjið upp l í lok umf frá FERNINGUR 10, prjónið með 1 og 1 l frá FERNINGUR 9). FERNINGUR 12: Prjónið eins og FERNINGUR 5 (prjónið upp l frá FERNINGUR 9, prjónið með 1 og 1 l frá FERNINGUR 8). FERNINGUR 13: Prjónið eins og FERNINGUR 5 (prjónið upp l frá FERNINGUR 8, prjónið með 1 og 1 l frá FERNINGUR 7). FERNINGUR 14: Prjónið eins og FERNINGUR 6 (prjónið upp 11 l frá FERNINGUR 7). Haldið áfram með þetta mynstur með 4 ferninga á breidd – fellið af 11 l í síðasta ferningi á breiddina í stað þess að fitja upp nýjar l og haldið áfram með mynstur eins og áður. Þegar prjónaðar hafa verið 10 ferningar á hæðina eru felldar af fyrstu 11 l frá röngu í stað þess að láta l vera eftir á prjóni. Prjónið áfram þar til hálsskjólið hefur 4 x 10 ferninga. FRÁGANGUR: Saumið saman skammhliðarnar yst í lykkjubogann svo að saumurinn verði flatur. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #autumngraceneckwarmer eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 156-32
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.