Randy Komitor skrifaði:
Darcy baby garter stitch jacket. Thanks for response but still not enough for me as new knitter. Can you write exactly what I’m supposed to do starting with P1 from WS. Don’t even understand if I’m still supposed to do that. Or is now RS. Need directions laid out for left as you have done for right. Love pattern. Grandson due in august and as can see I’m slow!
25.06.2023 - 17:11DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Komitor, work the same way, ie purl 1 row from WS just as you done for first front piece, work the rib starting from the side (from RS) with P2 after the edge stitch so that you end with K2 before the edge stitch towards mid front. Happy knitting!
26.06.2023 - 08:59
Randy K skrifaði:
Little Darcy knitted baby jacket in garter stitch. 1) For Left Front Piece says work in reverse. Help! On Right Front Piece after casting on it says P1 row from WS. for Left Front Piece do you knit 1row on the RS? Purl 1 row on RS? Do that row exactly same as Right Front piece, P1 row on the WS , because reverse starts with rib? 2) For the ribbing. On Right front piece first row rib I K1 at beginning (edge?), repeated k2p2, k1 at end(edge?) so now I P1( repeat p2k2) and P1 at end of row?
24.06.2023 - 21:16DROPS Design svaraði:
Dear Randy, to work in reverse means that the sleeve will be on the opposite side of the left front piece, compared to the right front piece. For example, in the right front piece you cast on for the sleeve at the end of the right side rows, while on the left front piece you will cast on stitches at the end of wrong side rows. This is also applied to the neck shaping. So you don't need to reverse the actual rows in principle. For the rib, you will always knit the edge stitches but you can work p2k2 instead so that the rib is symmetrical in the middle of the front piece. Happy knitting!
25.06.2023 - 16:13
Anne-Beate Dokken skrifaði:
Hvordan er det best og sy denne sammen som er strikket i to farger. Takk for fine nettsider.
27.10.2022 - 10:55DROPS Design svaraði:
Hej Anne-Beate, se videoerne nederst i opskriften, vi har en som hedder "Hvordan sy sammen i rille"
27.10.2022 - 13:25
Kerryn skrifaði:
Hello, I’m confused about where to place the marker “mid shoulder” and if I then knit from the marker to the end of the sleeve or the other direction to the neck line for 1 cm. This is for the right hand front piece. I’m fairly new to knitting and would appreciate your help as I don’t want to mess it up. Thank you so much, Kerryn
11.01.2022 - 21:52DROPS Design svaraði:
Dear Kerryn, insert this marker in the middle of the row (maybe somewhat more towards shoulder than towards sleeve edge), this marker will be the top of shoulder and will be used to measure back piece matching front piece. Hope it will help, happy knitting!
12.01.2022 - 07:25
Rose-Marie Ohlson skrifaði:
Little Darcy, randig stickad babykofta Fram och bakstycken på koftan är lika breda innan man stickar till 2,5 cm framkanter. Det blir inte bra när koftan ska knäppas.
26.08.2021 - 17:08
Solvej Larsen skrifaði:
Jeg vil gerne strikke denne lille trøje i den mindste str.Jeg har noget garn som jeg gerne vil bruge som hedder Perfect og er 22m =10.cm på p. 3 *3 1/2.jeg skal være oldemor og er nød til at bruge noget af det garn jeg har. Håber i kan hjælpe mig ?\r\nOpskriften .hedder Little Darcy,
10.08.2021 - 23:30
Birgitte skrifaði:
Jeg har svært ved at forstå, på Venstre forstykke skal der slåes nye masker op til ærme i slutningen af vrangpinden, samtidigt skal der lukkes af til hals i begyndelsen af vrangpinden, hvorfor er det anderledes end højre forstykke?...
15.06.2021 - 11:05DROPS Design svaraði:
Hej Birgitte, det er lettere at tage ud i slutningen af pinden, derfor er du nødt til at tage ud fra vrangen på venstre forstykke (det der ligger til højre når det ligger foran dig) :)
16.06.2021 - 13:02
Lotte skrifaði:
Hallo! Beim Rückenteil soll man zuletzt gleichmäßig verteilt Maschen aufnehmen. Wie macht man das, ohne Löcher zu produzieren? Bisher habe ich die Maschen in der gleichen Weise aufgenommen, wie für die Ärmel - aber das ist vermutlich einfach ein Umschlag... Leider habe ich kein Tutorialvideo finden können. Viele Grüße Lotte
08.06.2021 - 15:23DROPS Design svaraði:
Liebe Lotte, Sie können mit 1 Umschlag zunehmen (bei der nächsten Reihe, den Umschlag verschränkt stricken, um ein Loch zu vermeiden) - siehe Video oder 2 Maschen aus einer Masche stricken - siehe Video - oder irgendeine andere Technik, die Sie bevorzugen. Viel Spaß beim stricken!
08.06.2021 - 16:28
Nadia Gianferrari skrifaði:
Bonjour, J\'ai une question quant aux coloris ... Le coloris n° 71 est indiqué comme étant du \"beige clair\" dans les explications, mais quand je veux commander le n° 71 est du \" rose argenté\" !! J\'aimerais vraiment garder l\'harmonie de la veste de la photo. Laquelle des deux dois-je commander ? Merci de votre réponse.
03.12.2020 - 17:23DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Gianferrari, il n'est pas rare que les couleurs soient renommées avec le temps, pour toute assistance au choix des couleurs, contactez votre magasin DROPS, c'est toujours la façon la plus simple de vous faire aider, même par mail ou téléphone. Bon tricot!
04.12.2020 - 08:10
Carola Norberg skrifaði:
Hej Vart är mitt på axeln? Där axeln går över till ärm? Mvh C
30.10.2020 - 08:32DROPS Design svaraði:
Hej Carola, du sætter mærket for at du skal kunne måle bagstykket, så det bliver lige så lang som forstykket. God fornøjelse!
03.11.2020 - 15:41
Little Darcy#littledarcycardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir börn í garðaprjóni og röndum úr DROPS Karisma. Stærð 0-4 ára
DROPS Baby 25-18 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. RENDUR: * 2 umf garðaprjón í litnum natur, 2 umf garðaprjón í litnum ljós beige, 2 umf garðaprjón í litnum natur *, endurtakið frá *-* (þ.e.a.s. þegar rendurnar eru endurteknar þá verða 4 umf garðaprjón með litnum natur á milli hverra umf í garðaprjóni með litnum ljós beige). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjað er á öðru framstykkinu. Lykkjur eru fitjaðar upp fyrir ermi og prjónað upp að öxl. Síðan er stykkið geymt og hitt framstykkið prjónað. Stykkin eru síðan sett á sama hringprjón og prjónað niður yfir bakstykkið. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 34-38-38-42 (42-46) l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3 með litnum natur. Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið síðan næstu umf frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir og endið á 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN. Haldið svona áfram með stroff. Þegar stykkið mælist 4 cm er prjónuð 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 9-11-9-11 (9-10) l jafnt yfir = 25-27-29-31 (33-36) l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 1 umf slétt frá röngu. Prjónið síðan GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan JAFNFRAMT eru prjónaðar RENDUR – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 14-17-18-20 (22-25) cm fitjið upp nýjar l fyrir ermi í lok hverrar umf frá réttu þannig: Fitjið upp 5 l alls 3-5-0-0 (4-5) sinnum, 4 l alls 0-0-7-8 (5-7) sinnum og síðan 7-4-5-7 (8-4) l 1 sinni = 47-56-62-70 (81-93) l. Eftir síðustu útaukningu er haldið áfram í garðaprjóni og rendur þar til stykkið mælist 20-24-26-28 (31-35) cm. Setjið nú fyrstu 4-5-6-6 (7-8) l frá byrjun umf frá réttu á þráð fyrir hálsmáli (l eru prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn, þá þarf ekki að klippa frá). Fellið af fyrir hálsmál í byrjun hverrar umf frá réttu þannig: Fellið af 2 l 2 sinnum og 1 l 2-2-2-2 (3-3) sinnum = 37-45-50-58 (67-78) l. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 24-28-30-33 (36-40) cm. Setjið 1 prjónamerki (= miðja ofan á öxl) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT. Haldið áfram í garðaprjón og rendur eins og áður þar til prjónað hefur verið 1 cm frá prjónamerki, en í síðustu umf frá röngu eru fitjaðar upp 2 nýjar l í lok umf við hálsmál. Setjið allar 39-47-52-60 (69-80) l á þráð. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið eins og hægra framstykki nema spegilmynd, þ.e.a.s. að stroffið byrjar á 2 l br eftir 1 kantlykkju í hlið og endar á 2 l sl á undan 1 kantlykkju við miðju að framan. Þegar fitjaðar eru upp nýjar l fyrir ermi í lok hverrar umf frá röngu, fellið af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umf frá röngu og þegar fitjaðar eru upp 2 nýjar l við hálsmál er það gert í lok síðustu umf frá réttu, síðan er prjónuð 1 umf slétt frá röngu þannig að bæði framstykkin enda eftir 1 umf slétt frá röngu. BAKSTYKKI: Prjónið þær 39-47-52-60 (69-80) l frá vinstra framstykki (1. umf = slétt frá réttu og rendur halda áfram eins og áður), fitjið upp 14-16-18-18 (22-24) nýjar l á prjóni (= hálsmál aftan við hnakka) og prjónið inn 39-47-52-60 (69-80) l af hægra framstykki á sama hringprjón = 92-110-122-138 (160-184) l. Haldið áfram í garðaprjón og rendur. Þegar stykkið mælist 8-8-8-9 (9-9) cm frá prjónamerki á öxl (passið uppá að fjöldi umf og rendur séu samhverfar með framstykki með viðmið við prjónamerki á öxl), fellið af í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 7-4-5-7 (8-4) l 1 sinni, 4 l alls 0-0-7-8 (5-7) sinnum og 5 l alls 3-5-0-0 (4-5) sinnum = 48-52-56-60 (64-70) l eftir á bakstykki. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 20-24-26-29 (32-36) cm frá prjónamerki á öxl – stillið af eftir framstykki og passið uppá að rendurnar endi eins og þær byrja á framstykki. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og litinn natur og prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er aukið út um 20-20-20-20 (20-22) l jafnt yfir = 68-72-76-80 (84-92) l. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir og endið á 2 l br og 1 kantlykkju í garðaprjóni (frá réttu verða 2 l sl í hvorri hlið innan við kantlykkju). Haldið svona áfram með stroff. Þegar stroffið mælist 4 cm (stykkið mælist ca 24-28-30-33 (36-40) cm frá prjónamerki á öxl, prjónið 1 umf slétt (frá réttu) yfir allar l áður en fellt er laust af. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp frá réttu, ca 42 til 74 l meðfram hægra framstykki innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á hringprjóna nr 3 með litnum natur. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir til 53-61-65-73 (81-89) l. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 4 l eru eftir, endið á 2 l br og 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. Þegar kanturinn að framan mælist 1 cm er fellt af í næstu umf frá réttu fyrir 4-4-4-5 (5-5) hnappagötum jafnt yfir. 1 hnappagat = prjónið 2 l br saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn (fallegast er að fella af í br einingu séð frá réttu). Efsta hnappagatið á að vera ca 4 cm frá kanti við hálsmál og neðsta hnappagatið ca 2 cm frá neðri kanti. Prjónið síðan áfram þar til kanturinn að framan mælist 2½-2½-2½-3 (3-3) cm og fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið á sama hátt og hægri kantur að framan, ekki er fellt af fyrir hnappagötum. HÁLSMÁL: Prjónið upp frá réttu, ca 56 til 78 l (meðtaldar l af þræði)í kringum hálsmál (einnig yfir kant að framan) á hringprjóna nr 3 með litnum natur. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir til 68-72-76-80 (88-92) l. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið þar til 3 l eru eftir, endið á 2 l br og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. Þegar kantur í hálsmáli mælist 1 cm fellið af fyrir 1 hnappagati yfir hin hnappagötin í hægri kanti að framan. Prjónið síðan áfram þar til kantur í hálsmál mælist 2½-2½-2½-3 (3-3) cm og fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br. FRÁGANGUR: Saumið hliðarsauma og sauma undir ermum í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í. KANTUR Á ERMI: Prjónið upp frá réttu, ca 34 til 38 l neðst niðri í kringum ermi á sokkaprjóna nr 3 með litnum natur. Prjónið 1 umf br. Prjónið 1 umf sl JAFNFRAMT er aukið jafnt út til 40-40-40-44 (48-48) l. Prjónið síðan stroff (= 2 l sl, 2 l br). Þegar kantur á ermi mælist 4 cm er fellt laust af með sl yfir sl og br yfir br. Endurtakið á sama hátt neðan á hinni erminni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #littledarcycardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 25-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.