Luis skrifaði:
Que Es un patuco Es una oz dada o nombre
12.11.2014 - 03:15DROPS Design svaraði:
Hola Luis! Patucos se llama a los zapatitos de bebé.
12.11.2014 - 16:10
Luis skrifaði:
Que sinifica patuco
12.11.2014 - 03:11
Dianna skrifaði:
I am confused. The pattern 'taking flight'. . Do I crochet the sole in the round or go from side to side ? The instructions are not clear to my understanding. Please help ASAP
21.08.2014 - 05:50DROPS Design svaraði:
Dear Dianna, the sole is crochet back and forth (in rows) and then you work around the sole. Happy crocheting!
21.08.2014 - 11:59
Monnier Cathy skrifaði:
Bonjour, il me semble qu'il y ait un souci à partir du tour 4, je le fais dans la taille 0-3 mois... merci de bien vouloir m'aider svp.. Cordialement. Cathy.
20.05.2014 - 15:52DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Monnier, dans les 3 premières tailles, après le tour 3, on passe directement à la partie "Tour suivant, toutes les tailles", le tour 4 ne s'applique qu'aux tailles 2 et 3/4 ans et le tour 5 à la taille 3/4 ans. Bon crochet!
21.05.2014 - 09:56
Taking Flight#takingflightbooties |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Heklaðar tátiljur fyrir börn með slaufu og sólfjaðrakanti úr DROPS BabyAlpaca Silk. Stærð 0– 4 ára
DROPS Baby 25-15 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umf með fl er 1. fl skipt út fyrir 1 ll. Umf endar á 1 kl í ll frá byrjun umf (þegar heklað er í hring). Umf endar á 1 fl í 3. ll frá byrjun fyrri umf (þegar heklað er fram og til baka). Í byrjun á hverri umf með st er 1. st skipt út fyrir 3 ll. Umf endar á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf (þegar heklað er í hring). Umf endar á 1 st í ll frá byrjun fyrri umf (þegar heklað er fram og til baka). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út um 1 fl/st með því að hekla 2 fl/st í sömu l. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Heklið 1 fl/st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næstu fl/st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin, dragið þráðinn í gegnum allar l á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 fl/st. HEKLLEIÐBEININGAR: Í umf eftir að st framan á tátiljunni hafa verið heklaðir saman 2 og 2 verður að hekla fast framan á tátiljunni, þ.e.a.s. að herða verður aðeins meira á þræðinum á milli hverra st sem eru heklaðir. Þetta er gert til þess að koma í veg fyrir að miðjustykkið framan á tátiljunni verði of laust. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. UMFERÐ MEÐ ÁFERÐ: * Heklið 1 umf fl (heklað frá röngu), 1 umf sl (heklað frá réttu) *, endurtakið frá *-* (1 umf fl + 1 umf st = 1 umferð með áferð). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR og byrjið á sólanum – ATH: Heklið í hverja lykkju (ekki á milli lykkja). TÁTILJA: Heklið 12-14-16-19 (25-28) ll (meðtalin 1 ll til að snúa við með) með heklunál nr 3 með litnum púður. Fyrsta umf er hekluð þannig: Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, 1 fl í hverja af næstu 10-12-14-17 (23-26) ll = 11-13-15-18 (24-27) fl, snúið við. Heklið síðan 1 fl í hverja fl frá fyrri umf JAFNFRAMT er aukið út um 2 fl í byrjun og í lok fyrstu umf með því að hekla 3 fl í fyrstu og síðustu fl í umf = 15-17-19-22 (28-31) fl. Heklið fl fram og til baka þar til 1 umf er eftir áður en stykkið mælist 3-3-4-4 (4½-5) cm. Fækkið nú um 2 fl í hvorri hlið – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA = 11-13-15-18 (24-27) fl í umf – ATH: Í lok umf byrjar úrtaka þegar 4 fl eru eftir, síðan eru heklaðar 4 síðustu fl saman 2 og 2. Stykkið mælist ca 3-3-4-4 (4½-5) cm. Klippið frá og festið enda. Heklið nú st í kringum sólann þannig: UMFERÐ 1: Byrjið við miðju að aftan (= miðja á annarri skammhliðinni) – Heklið 1 fl í fyrstu l, 3 ll (= 3 st), heklið 1-1-2-2 (3-3) st fram að horni, 2 st í horni, 1 st í hverja af 11-13-15-18 (24-27) fl meðfram hlið, 2 st í hornið, 4-4-6-6 (8-8) st meðfram skammhlið (= tá), 2 st í hornið, 11-13-15-18 (24-27) st meðfram hlið, 2 st í hornið og 2-2-3-3 (4-4) st meðfram skammhlið við miðju að aftan, endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 38-42-50-56 (72-78) st. NÆSTA UMFERÐ Í STÆRÐ 2 ÁRA + 3/4 ÁRA (þessi umf er ekki hekluð í öðrum stærðum): Heklið 1 umf með 1 st í hvern st = (72-78) st. NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ Í ÖLLUM STÆRÐUM ÞANNIG: Heklið 1 st í hvern st, en fækkið um 1 st í hvoru horninu á þeim 2 hornum fram að tá – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA = 36-40-48-54 (70-76) st. HEKLIÐ SÍÐAN FRÁ MIÐJU AÐ AFTAN ÞANNIG (heklið 1 l í hverja l frá fyrri umf): UMFERÐ 1: 12-14-17-20 (27-30) fl, 1 hst, heklið 2 st saman – LESIÐ ÚRTAKA, 6-6-8-8 (10-10) st, heklið 2 st saman, 1 hst og 12-14-17-20 (27-30) fl = 34-38-46-52 (68-74) l. UMFERÐ 2: 11-13-16-19 (26-29) fl, 1 hst, heklið 2 st saman, 6-6-8-8 (10-10) st, heklið 2 st saman, 1 hst og 11-13-16-19 (26-29) fl = 32-36-44-50 (66-72) l. UMFERÐ 3: 10-12-15-18 (25-28) fl, 1 hst, heklið 2 st saman, 6-6-8-8 (10-10) st, heklið 2 st saman, 1 hst og 10-12-15-18 (25-28) fl = 30-34-42-48 (64-70) l. UMFERÐ 4 Í STÆRÐ 2 ÁRA + 3/4 ÁRA (þessi umf er ekki hekluð í öðrum stærðum): (24-27) fl, 1 hst, heklið 2 st saman, (10-10) st, heklið 2 st saman, 1 hst og (24-27) fl = (62-68) l. UMFERÐ 5 Í STÆRÐ 3/4 ÁRA (þessi umf er ekki hekluð í öðrum stærðum): (26) fl, 1 hst, heklið 2 st saman, (10) st, heklið 2 st saman, 1 hst og (26) fl = (66) l. NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ Í ÖLLUM STÆRÐUM ÞANNIG: 9-11-14-17 (23-25) fl, 1 hst, heklið 10-10-12-12 (14-14) næstu st saman 2 og 2, 1 hst og 9-11-14-17 (23-25) fl = 25-29-36-42 (55-59) l. NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ Í ÖLLUM STÆRÐUM ÞANNIG: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR og heklið 7-9-12-15 (21-23) fl, 1 hst, heklið 2 st saman, 5-5-6-6 (7-7) st, heklið 2 st saman, 1 hst og 7-9-12-15 (21-23) fl = 23-27-34-40 (53-57) l. NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ Í STÆRÐ 2 ÁRA + 3/4 ÁRA ÞANNIG (þessi umf er ekki hekluð í öðrum stærðum): (20-21) fl, 1 hst, heklið 2 st saman, (7-7) st, heklið 2 st saman, 1 hst og (20-21) fl = (51-55) l. ALLAR STÆRÐIR: = 23-27-34-40 (51-55) l. Heklið 1-1-1-2 (2-3) umf með 1 st í hvern st JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 24-24-30-30 (36-36) st í 1. umf – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og LEIÐBEININGAR ÚRTAKA – ATH: Ef óskað er eftir stærra opi á tátilju er hægt að jafna lykkjufjöldann út að óskaðri stærð, en vegna sólfjaðramynsturs verður lykkjufjöldinn að vera deilanlegur með 6. SÓLFJAÐRAMYNSTUR: Skiptið yfir í natur og heklið 1 umf með fl í 1 fl í hverja l. Heklið síðan sólfjaðramynstur efst á ökkla eftir mynstri A.1, þ.e.a.s. heklið þannig: UMFERÐ 1: * 3 ll, hoppið yfir 2 l, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 3 ll og 1 kl í 1. ll frá byrjun umf = 8-8-10-10 (12-12) ll-bogar. UMFERÐ 2: Heklið kl að miðju á fyrsta ll-boganum, 3 ll (jafngilda 1 st), * 3 st + 2 ll + 3 st um næsta ll-boga, 1 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 3 st + 2 ll + 3 st um síðasta ll-bogann og 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 4-4-5-5 (6-6) sólfjaðrir. UMFERÐ 3: Heklið 3 ll (jafngilda 1 st), * 4 st + 2 ll + 4 st um ll-bogann mitt í st-hópinn, 1 st í næsta st frá fyrri umf (þ.e.a.s. í st á milli sólfjaðra)* , endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf, klippið frá og festið enda. Heklið aðra tátilju á sama hátt. SLAUFA: Heklið 11 ll með heklunál nr 3 með litnum natur. Fyrsta umf er hekluð þannig: Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni, 1 st í hverja af 7 næstu ll = 9 st í umf. Snúið við og heklið UMFERÐ MEÐ ÁFERÐ – sjá útskýringu að ofan, fram og til baka þar til stykkið mælist ca 10 cm – endið eftir 1 umf með fl. Klippið frá og festið enda. Saumið saman skammhliðar í hring og vefjið þræði í kringum miðjuna á slaufunni þannig að hún dragist fallega saman fyrir miðju. Gerið aðra slaufu á sama hátt og saumið slaufurnar niður að utanverðu á hvora tátilju. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #takingflightbooties eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 25-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.