Michaela skrifaði:
Vaše papuče se mi moc líbí, zkoušela jsem je uháčkovat, ale podle návodu se mi to nedaří, bez obrázku jej nechápu. Uháčkuju skoro celou papuči, ale s patou si neporadím. Musela jsem udělat rovný šev, který sice moc dobře nevypadá, ale chodit se v tom dá. Mohli byste prosím natočit video s návodem, jak háčkovat patu nebo alespoň k návodům doplnit i fotografie paty nebo nakreslit střih? Děkuji
30.03.2021 - 21:02DROPS Design svaraði:
Hi again Michaela - please take a look at this video: How to crochet a basic slipper from toe and up
20.04.2021 - 10:06
Claudia Pusch skrifaði:
Hallo, ich konnte der Wort Anleitung (Kinder32/34) folgen bis zum Beginn der ABNAHMEN in der 1. Runde: Ich habe es so verstanden, daß ich 8 fM häkel, dann 4 Abnahmen mit je 2 fM und dann nochmal 10 fM. Dann wenden, aber dann habe ich nicht 12 Maschen?! Würde mich sehr über Hilfe freuen. Danke
19.01.2018 - 15:21DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Pusch, bei der 2. Reihe verdoppeln Sie jede M = 16 M. Bei der 3. Reihe nehmen Sie 8 M zu = 24 M. Bei der 4. und 6. Reihe häkeln Sie keine Zunahme. Bei der 5. Reihe nehmen Sie 8 M = 32 M und bei der 7. Reihe nehmen Sie 4 M zu = 36 M. Viel Spaß beim häkeln!
19.01.2018 - 16:05Enas skrifaði:
I love it
30.11.2014 - 11:24
Flapping Around#flappingaroundslippers |
|
![]() |
![]() |
Heklaðar páskaunga - tátiljur úr DROPS Nepal fyrir fullorðna og börn. Stærð 23-43. Þema: Páskar.
DROPS Extra 0-1024 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GALDRAHRINGUR: Til þess að koma í veg fyrir göt í miðju er heklað með þessari aðferð (í stað þess að gera ll-hring): Haldið í endann og gerið lykkju utan um vinstri vísifingur. Haldið í lykkjuna með vinstri þumli og löngutöng, þráðurinn liggur yfir vinstri vísifingur. Stingið heklunálinni í gegnum lykkjuna, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum lykkjuna, heklið 1 ll, heklið síðan í kringum lykkjuna. Þegar óskaður fjöldi fl er kominn, dragið í þráðinn þannig að þú dregur saman lykkjuna. Festið endann á bakhlið. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 fl með því að hekla 2 fl í sömu fl. ÚRTAKA: Fækkið um 1 fl með því að hekla 2 fl saman þannig: * Stingið heklunálinni í næstu fl, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. PICOT KANTUR: Heklið * 1 fl í fyrstu fl, heklið 3 ll, 1 st í 3. ll frá heklunálinni, hoppið fram ca 1 cm *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 kl í fyrstu fl. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun hverrar umf með fl, skiptið út fyrstu fl með 1 ll. Umferðin endar á 1 kl í ll frá byrjun umf. Í byrjun á hverri umf með fl, er fyrstu fl skipt út með 1 ll. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fyrst frá tá, síðan fram og til baka að hæl. TÁTILJA FYRIR BÖRN: Byrjið með heklunál nr 3,5 með litnum rauður og gerið GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan (= yst á tá). UMFERÐ 1: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 7-7-7-8 fl um galdrahringinn, endið á 1 kl í 1. fl. UMFERÐ 2: Aukið út um 1 fl í hverja fl – LESIÐ ÚTAUKNING = 14-14-14-16 fl. UMFERÐ 3: Heklið 1 fl í hverja fl – JAFNFRAMT er aukið út um 4-6-8-8 l jafnt yfir í umf = 18-20-22-24 fl. UMFERÐ 4: Heklið 1 fl í hverja fl. UMFERÐ 5: Heklið 1 fl í hverja fl – JAFNFRAMT er aukið út um 8 l jafnt yfir í umf = 26-28-30-32 fl. UMFERÐ 6: Heklið 1 fl í hverja fl. UMFERÐ 7: Heklið 1 fl í hverja fl – JAFNFRAMT er aukið út um 4 l jafnt yfir í umf = 30-32-34-36 fl. Heklið nú 1 fl í hverja fl þar til stykkið mælist 4-4½-5-5½ cm. Skiptið yfir í litinn skærgulur og haldið áfram með 1 fl í hverja l þar til stykkið mælist 7½-8½-9-10 cm. Eftir síðustu fl í síðustu umf, heklið ekki kl í fyrstu fl, heldur haldið áfram með 1 fl í hverja af næstu 10-10-11-12 fl (= 1. umf frá réttu), snúið við og heklið 1 fl í hverja af næstu 20-20-22-24 fl frá röngu (= 10-12-12-12 fl eftir við miðju framan á tátilju, nú er byrjun umf frá því áður undir il/sóla). Heklið nú fl fram og til baka með 20-20-22-24 fl í hverja umf. Þegar stykkið mælist ca 14½-16½-17½-19½ cm heklið næstu umf frá réttu þannig: UMFERÐ 1: Heklið 6-6-7-8 fl, fækkið um 2 fl yfir næstu 4 fl – LESIÐ ÚRTAKA = 8-8-9-10 fl, snúið við (10-10-11-12 fl eftir á annarri hlið í umf). UMFERÐ 2: Fækkið um 2 fl yfir fyrstu 4 fl, 1 fl í hverja fl út umf = 6-6-7-8 fl, snúið við. UMFERÐ 3: Heklið 2-2-3-4 fl, fækkið um 2 fl yfir síðustu 4 fl = 4-4-5-6 fl. UMFERÐ 4: Fækkið um 1-1-1-2 fl yfir fyrstu 2-2-2-4 fl, 1 fl í hverja fl út umf = 3-3-4-4 fl, klippið frá og festið enda. Heklið yfir þær 10-10-11-12 fl sem eftir eru í hinni hliðinni þannig: UMFERÐ 1: Fækkið um 2 fl yfir fyrstu 4 fl, 1 fl í hverja fl út umf = 8-8-9-10 fl, snúið við. UMFERÐ 2: Heklið 4-4-5-6 fl, fækkið um 2 fl yfir síðustu 4 fl = 6-6-7-8 fl, snúið við. UMFERÐ 3: Fækkið um 2 fl yfir fyrstu 4 fl, 1 fl í hverja fl út umf = 4-4-5-6 fl. UMFERÐ 4: Fækkið um 1-1-1-2 fl yfir síðustu 2-2-3-4 fl = 3-3-4-4 fl, klippið frá og festið enda. Saumið saman tátiljuna við miðju að aftan. Heklið aðra tátilju á sama hátt. HEKLAÐUR KANTUR: Byrjið frá réttu frá miðju að aftan á tátiljunni, heklið 1 umf í kringum allt opið með litnum skærgulur. Yfir umf á hlið er heklað þannig: * Heklið 1 fl, 1 ll, hoppið fram ca 1 cm *, endurtakið frá *-* fram að horni við kant að framan, í 1. horni að framan er heklað þannig: * Stingið heklunálinni í síðustu fl frá umf frá hlið, sækið þráðinn, stingið heklunálinni í 1. fl frá kanti að framan, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. Heklið 1 fl í hverja fl áfram meðfram kanti að framan, í 2. horni að framan er heklað alveg eins og í 1. horn nema gagnstætt. Meðfram annarri hliðinni er endurtekið frá *-* og endað á 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf. Skiptið yfir í litinn rauður og heklið PICOT KANTUR – sjá útskýringu að ofan, í kringum allt opið á tátiljunni. Klippið frá og festið endann. Endurtakið alveg eins í hinni tátiljunni. AUGA STÆRÐ 23/25 - 26/28 - 29/31: Notið heklunál nr 3,5 og litinn kóngablár. Gerið GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan. Heklið 6 fl í hringinn. Skiptið yfir í litinn natur og heklið 2 fl aftan í lykkjubogann í hverja fl umf hringinn, endið á 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf = 12 fl. Heklið 3 augu alveg eins og saumið þau niður ofan á fótinn. AUGA STÆRÐ 32/34: Notið heklunál nr 3,5 og litinn kóngablár. Gerið GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan. Heklið 6 fl í hringinn. Heklið 2 fl í hverja fl umf hringinn og endið á 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf = 12 fl. Skiptið yfir í litinn natur og heklið umf hringinn aftan í lykkjubogann þannig: Heklið 2 fl í fyrstu fl, * 1 fl í næstu, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 fl í síðustu fl og 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf = 18 fl. Heklið 3 augu alveg eins og saumið þau niður ofan á fótinn. SKRAUT: Saumið út með litlu spori nasir á gogginn með litinn gulur. Festið lítil augnhár efst á augun þannig: Klippið þráð í litnum kóngablár ca 5 cm. Leggið þráðinn saman tvöfalt, notið heklunál til þess að draga annan endann (þann með lykkjunni) í gegnum stykkið og til baka að réttu. Stingið hinum endanum (= 2 endar) í gegnum lykkjuna og herðið að. Gerið tvö augnhár alveg eins yfir hvort auga. -------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fyrst frá tá, síðan fram og til baka að hæl. TÁTILJA FYRIR FULLORÐNA: Byrjið með heklunál nr 3,5 með litnum rauður og gerið GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan (= yst á tá). UMFERÐ 1: Heklið 6-6-5 fl um galdrahringinn, LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 12-12-10 fl. UMFERÐ 3: (Og síðan í annarri hverri umf): Heklið 1 fl í hverja fl. UMFERÐ 4: * Heklið 1 fl í fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 6-6-5 sinnum = 18-18-15 fl. UMFERÐ 6: Heklið 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 6-6-5 sinnum = 24-24-20 fl. UMFERÐ 8: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 6-6-5 sinnum = 30-30-25 fl. UMFERÐ 10: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 4 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 6-6-5 sinnum = 36-36-30 fl. Útaukningar eru nú komnar í stærð 35/37. UMFERÐ 12: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 5 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 6-6-5 sinnum = 42-35 fl. Útaukningu er nú lokið í stærð 38/40. UMFERÐ 14: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 6 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum = 40 fl. UMFERÐ 16: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 7 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum = 45 fl. Útaukningu er nú lokið í stærð 41/43. ALLAR STÆRÐIR: = 36-42-45 fl í umf. Heklið nú áfram þar til heklaðar hafa verið alls 16 umf í öllum stærðum. Skiptið yfir í litinn gulur og heklið hringinn með 1 fl í hverja fl án þess að enda umf þar til stykkið mælist ca 14-16-18 cm. Heklið 12-15-16 l framhjá litaskiptum. Snúið við og heklið síðan fram og til baka yfir fyrstu 24-30-32 fl (þ.e.a.s. ekki er heklað yfir síðustu 12-12-13 fl í umf og litaskiptin verða við miðju undir fæti. Þegar tátiljan mælist 20-22-25 cm (þ.e.a.s. ca 6-6-7 cm frá skiptingu) setjið 1 prjónamerki fyrir miðju í stykkið (= 12-15-16 fl hvoru megin við prjónamerki). Í næstu umf er fækkað um 1 fl hvoru megin við prjónamerki, þ.e.a.s. byrjið 2 l á undan prjónamerki og heklið 4 næstu fl saman 2 og 2 – LESIÐ ÚRTAKA (= 2 fl færri). Heklið 1 umf án úrtöku. Endurtakið úrtöku í næstu umf (= 2 fl færri) = 20-26-28 l eftir í umf. Klippið af og festið enda. Saumið tátiljuna saman við miðju að aftan (tátiljan mælist ca 22-24-27 cm frá tá að hæl). Klippið frá og festið enda. Heklið aðra tátilju á sama hátt. HEKLAÐUR KANTUR: Byrjið frá réttu frá miðju að aftan á tátiljunni, heklið 1 umf í kringum allt opið með gulur. Yfir umf í hlið er heklað þannig: * Heklið 1 fl, 1 ll, hoppið fram ca 1cm *, endurtakið frá *-* fram að horni við kant að framan, í 1. horni að framan er heklað þannig: * Stingið heklunálinni í síðustu fl frá umf frá hlið, sækið þráðinn, stingið heklunálinni í 1. fl frá kanti að framan, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. Heklið 1 fl í hverja fl áfram meðfram kanti að framan, í 2. horni að framan er heklað alveg eins og í 1. horn nema gagnstætt. Meðfram annarri hliðinni er endurtekið frá *-* og endað á 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf. Skiptið yfir í rauður og heklið PICOT KANTUR – sjá útskýringu að ofan, í kringum allt opið á tátiljunni. Klippið frá og festið endann. Endurtakið alveg eins á hinni tátiljunni. AUGA STÆRÐ 35/37 - 38/40 - 41/43: Notið heklunál nr 3,5 og litinn kóngablár. Gerið GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan. Heklið 6 fl í hringinn. Heklið 2 fl í hverja fl umf hringinn og endið á 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf = 12 fl. Skiptið yfir í litinn natur og heklið umf hringinn aftan í lykkjubogann þannig: Heklið 2 fl í fyrstu fl, * 1 fl í næstu, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 fl í síðustu fl og 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf = 18 fl. Heklið 3 augu alveg eins 2 augu á hvora tátilju beint yfir rauða svæðið (= goggur). SKRAUT: Saumið út með litlu spori nasir á gogginn með litnum gulur. Festið lítil augnhár efst á augun þannig: Klippið þráð í litnum kóngablár ca 5 cm. Leggið þráðinn saman tvöfalt, notið heklunál til þess að draga annan endann (þann með lykkjunni) í gegnum stykkið og til baka að réttu. Stingið hinum endanum (= 2 endar) í gegnum lykkjuna og herðið að. Gerið tvö augnhár alveg eins yfir hvort auga. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #flappingaroundslippers eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1024
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.