DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4620.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Extra 0-1023
DROPS Design: Mynstur nr me-018-bn
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: 2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 ára

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
100-100-150-150 gr litur nr 30, sinnepsgulur
100-100-100-100 gr litur nr 11, rauður
50-50-50-50 gr litur nr 01, natur
Og notið afgang af lit nr 20, dökk blár fyrir augu.

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (60 og 40 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 3 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4620.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l hvoru megin við 2 miðjulykkju að framan og að aftan með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til þess að koma í veg fyrir göt.

ÚRTAKA:
Prjónið þar til 2 lykkjjur eru eftir að prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman og síðan 2 lykkjur snúnar slétt saman (prjónamerki er staðsett á milli þessa lykkja).

--------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður í hring á hringprjóna og skipt er yfir á sokkaprjóna eftir þörf.

BUXUR:
Fitjið upp 120-124-128-132 lykkjur á hringprjóna nr 3 með litnum rauður og prjónið stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Prjónið þar til stroffið mælist 3 cm.
Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið síðan áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 12 lykkjur jafnt yfir = 108-112-116-120 lykkjur á prjóni. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferð = miðja að aftan. Prjónið 1 umferð til viðbótar en endið á umferð 5 á undan prjónamerki.
Geymið stykkið.
Prjónið nú 5-5-7-7 litla þríhyrninga sem eru prjónaðir inn aftan á buxum (= kambur).

ÞRÍHYRNINGAR:
Fitjið upp 2 lykkjur á sokkaprjóna nr 4 með litnum rauður, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt. Uppslátturinn er alltaf prjónaður snúinn slétt í næstu umferð til að koma í veg fyrir göt. Prjónið slétt til baka = 3 lykkjur. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, fram og til baka á sokkaprjóninn JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju með því að slá uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið í 3. hverri umferð þar til alls 9 lykkjur eru og 2 uppslættir á prjóni, í næstu umferð er prjónað brugðið, uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið.
Nú hafa verið prjónaðar 2 umferðir sléttprjón efst á þríhyrning. Setjið þríhyrninginn á þráð. Prjónið alls 5-5-7-7 þríhyrninga og setjið alla saman á sama þráð. Passið uppá að þeir snúi allir í sömu átt, þannig að allir hafa 2 umferðir sléttprjón í sömu hlið.
Nú er bakhliðin á buxunum prjónuð.
Haldið í þráðinn með þríhyrningunum að réttu á buxunum, passið að það séu 2 umferðir sléttprjón á þríhyrningum en snúa að þér. Prjónið fyrstu lykkju frá fyrsta þríhyrningi saman með fyrstu lykkju á buxum. Haldið áfram að prjóna saman lykkjur af þríhyrningi og buxum þar til prjónað hefur verið yfir 3-3-4-4 þríhyrninga. Prjónið síðan áfram á buxum þar til eftir eru 22-22-33-33 lykkjur á undan fyrsta þríhyrning.
Prjónið síðan síðustu 2-2-3-3 þríhyrninga á buxum.
Prjónið slétt yfir næstu 5 lykkjur = byrjun á umferð/miðja að aftan, flytjið prjónamerki frá fyrri stað að neðan hingað. Skiptið yfir í litinn gulur og setjið 1 prjónamerki til viðbótar í buxurnar, það er sett eftir 54-56-58-60 lykkjur (= miðja að framan). Síðan er prjónuð upphækkun að aftan í sléttprjóni þannig: Prjónið 8 lykkjur fram hjá prjónamerki við miðju að aftan, snúið við, herðið á þræði og prjónið 16 lykkjur, snúið við, herðið á þræði og prjónið 24 lykkjur, snúið við, herðið á þræði og haldið áfram að prjóna 8 lykkjur fleiri í hvert skipti þegar snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls 80-80-80-96-96 lykkjur. Snúið við, haldið áfram hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 13-13-14-15 cm. Geymið stykkið.
Prjónið nú stóran þríhyrning (= goggur) sem á að prjóna inn á miðju aftan á buxum alveg eins og litlu þríhyrningarnir efst.

STÓR ÞRÍHYRNINGUR:
Fitjið upp 2 lykkjur á hringprjóna nr 4 (40 cm) með litnum rauður, prjónið 1 lykkjur slétt, sláið uppá prjóninn, 1 lykkja slétt. Prjónið slétt til baka = 3 lykkjur. Prjónið garðaprjón fram og til baka á hringprjóna JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju með því að slá uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið í hverri umferð 24-25-26-27 sinnum = 51-53-55-57 lykkjur á prjóni. Í síðustu umferð eru lykkjur prjónaðar brugðið og uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið. Nú eru 2 umferðir í sléttprjón efst á þríhyrning. Geymið þríhyrninginn og prjónið síðan í hring á buxunum þar til 25-26-27-28 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki við miðju að aftan. Haldið þríhyrningnum að réttu á buxum, passið að 2 umferðir í sléttprjóni á þríhyrningi snúi að þér. Prjónið fyrstu lykkju af þríhyrningi saman við næstu lykkju á buxum. Haldið áfram að prjóna saman lykkjur af þríhyrningi og buxum þar til prjónaðar hafa verið saman allar lykkjur af þríhyrningi, prjónið síðan buxurnar áfram við miðju að aftan.

Haldið áfram í sléttprjón eins og áður þar til stykkið mælist 18-18-20-21 cm við miðju að framan. Aukið út um 2 lykkjur framan og að aftan í næstu umferð – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í annarri hverri umferð, 5 sinnum til viðbótar (= alls 6 sinnum) = 132-136-140-144 lykkjur. Eftir síðustu útaukningu (stykkið mælist ca 23-23-24-25 cm við miðju að framan), fellið af 12 lykkjur við miðju að framan og við miðju að aftan (þ.e.a.s. 6 lykkjur hvoru megin við bæði prjónamerkin). Hvor skálm er nú prjónuð til loka fyrir sig, setjið lykkjur af annarri skálminni á þráð.

SKÁLM:
= 54-56-58-60 lykkjur. Skiptið lykkjunum niður á 4 sokkaprjóna nr 4 og haldið áfram í sléttprjón hringinn – setjið 1 prjónamerki innan í skálmina. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 4 cm, nú eru prjónaðar 2 umferðir með litnum natur JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA. Prjónið síðan með litnum sinnepsgulur og endurtakið úrtöku og 2 umferðir með litnum natur með 2,5-4,5-5,5-7 cm millibili, 5 sinnum til viðbótar (= alls 6 sinnum) = 42-44-46-48 lykkjur. Þegar skálmin mælist 19-28-34-40 cm, skiptið yfir í litinn rauður og prjónið 2 umferðir – JAFNFRAMT í síðustu umferð er aukið út um 6-8-6-8 lykkjur jafnt yfir = 48-52-52-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3 og prjónið síðan stroff = 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið með litnum rauður í 10 cm. Fellið síðan laust af með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Setjið til baka lykkjur frá hinni skálminni á prjóninn og prjónið á sama hátt og fyrri skálm.

FRÁGANGUR:
Saumið þær 12 lykkjur sem felldar voru af á milli skálma saman yst í lykkjubogann svo að saumurinn verði ekki of þykkur.

AUGA:
Fitjið upp 5 lykkjur með litnum dökk blár á sokkaprjóna nr 4 og prjónið 6 umferðir garðaprjón fram og til baka. Prjónið 1 umferð slétt, snúið stykkinu réttsælis og takið upp 1 lykkjur í hverja rönd í garðaprjóni í hlið á stykki með 1 nýjum sokkaprjóni (= 3 lykkjur), snúið stykkinu aftur og takið upp 5 lykkjur neðan á uppfitjunarkanti með nýjum sokkaprjóni = 13 lykkjur á prjóni. Prjónið slétt til baka og skiptið síðan yfir í litninn natur. Prjónið 5 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 5 lykkjur slétt. Prjónið slétt til baka, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt = 17 lykkjur á prjóni. Prjónið 6 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 6 lykkjur slétt. Prjóni slétt til baka, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt = 21 lykkjur á prjóni
Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Klippið frá og festið enda. Prjónið annað auga á sama hátt og saumið augun niður aftan á buxurnar beint ofan við stóra þríhyrninginn (= goggur).

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1023

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Hege wrote:

Hei. Det kan da ikke stemme at det kun skal være 150 gram gul til denne buksen i str 7-8 år? Jeg har nå brukt 200 gram og er enda ikke ferdig med buksen. Har riktig strikkefasthet.

19.11.2021 - 00:02

country flag Pia Berglund wrote:

Kan någon visa en bild? på de byxor ni gör

25.04.2019 - 23:40

country flag May-Brit Hjelén Isaksen wrote:

Hvordan skal jeg felle før jeg strikker benene, altså de 12 foran og bak, uten å bli sittende igjen med en maske midt i fellingen bak? *nybegynner*

18.01.2019 - 07:53

DROPS Design answered:

Hej May-Brit, du feller alle 12 masker foran, strikker benet og sætter maskerne på en tråd, feller alle 12 masker bagpå. Nu har du maskerne til det andet ben på pinden og fortsætter ifølge opskriften. God fornøjelse!

25.01.2019 - 09:12

Ana-Maria Pasca wrote:

And my 3rd questions is that my piece is not straight, is a little bit sloping, not vertical (it is my first time when working circular); is it normal? would be better after first wash? Thank you again for patience and for the gorgeous cheeky chicken pattern!

05.04.2016 - 07:11

DROPS Design answered:

Dear Mrs Pasca, since you have worked some short rows on back piece -before adding large triangle- you piece will not be "straight" - you can always show/send a picture to your DROPS store, they will then give you further individual assistance, even per mail or telephone. Happy knitting!

05.04.2016 - 10:23

Ana-Maria Pasca wrote:

Hello again! Please tell me (I'm a beginner so thank you for your patience): 1. on inc just before going on legs, the YOs (YO--marker--YO) even worked twisted it turn into small hole, is it normal? 2. also there, is it correct to work one turn making YOs, next turn working them, 3rd turn YOs, 4th working and so on till 6th time--being for 6 inc 12 turns worked? (or should be YOs, work them and on the same time YOs)

05.04.2016 - 07:10

DROPS Design answered:

Dear Mrs Pasca, the inc before legs (on front and back pieces) are made on either side of the 2 middle sts on front and on back piece (see Increase tip at the very beg of the pattern), so that you will have YO, K2 (marker is between these 2 sts), YO. You repeat these inc every other round a total of 6 times, ie work *1 round with inc, 1 round without inc*, repeat from *-* a total of 6 times = 4 sts inc per round x 6 inc rounds = 24 sts inc. Happy knitting!

05.04.2016 - 10:21

Pasca Ana-Maria wrote:

Before working the large triangle it is said to put piece aside when measures 13-13-14-15 cm. Measure is at mid front as rest of pattern? (it is not said in the text!). Thank you, Ana

31.03.2016 - 15:01

DROPS Design answered:

Dear Mrs Pasca, correct, you should measure at mid front. Happy knitting!

31.03.2016 - 16:00

country flag Catherine wrote:

Bonjour, Pour le Cheeky Chicken, est ce qu'on doit fixer tout le grand triangle (les trois côtés)? Dans le patrons on n'en parle pas, mais je me demandais si on devait coudre les deux autres côtés ? Merci!

07.12.2015 - 15:31

DROPS Design answered:

Bonjour Catherine, le grand triangle n'est pas fixé ici sur les 2 autres côtés. Bon tricot!

07.12.2015 - 16:50

country flag Audrey wrote:

So sorry to bother you again. I am still not sure I understand your answer. Here is what I think...please correct me. I knit the two rounds of whit, decreasing two stitches each row...then knit the mustard without decreasing for 2.5cm. Then do two rounds of white again decreasing each round two stitches.? Thank you in advance for your patience.

21.04.2015 - 18:22

DROPS Design answered:

Dear Audrey, you decrease only 2 sts when working the round off white (either on 1st or 2nd round as you rather), then continue with mustard for 2.5 cm (first size) and repeat 2 rounds with off-white + dec 2 sts on 1st or 2nd round, and 2.5 cm stocking with mustard a total of 6 times (12 sts decreased). Happy knitting!

22.04.2015 - 11:49

country flag Audrey wrote:

I am having trouble understanding the decreases in the leg of the chicken pants. Do I only decrease when I use the off white...or when I use the mustard color too. When I work the first two rounds, do I decrease both rounds or just one. I am making these for my nephews daughter. He raises chickens...I am hoping you can help with more explicit instructions. Thanks

21.04.2015 - 13:42

DROPS Design answered:

Dear Audrey, that's correct, you repeat the 2 rounds with off-white and the dec every 2.5-4.5-5.5-7 cm 5 more times (= 6 times in total) = 42-44-46-48 sts remain when all dec are done. HHappy knitting!

21.04.2015 - 17:29

country flag AJ wrote:

I am making the chicken pants pattern. It says knit with mustard color for 5". No sure if I should measure from the front or back of pants. Because of the extra rows on the back they are different lengths. Thanks

24.03.2015 - 00:59

DROPS Design answered:

Dear AJ, measure should be done from mid front. Happy knitting!

24.03.2015 - 10:11