Marie Desaulniers skrifaði:
Pourriez vous m'aider? Je fais le modèle pour 1/2 ans. Tout a bien été jusqu'au moment où l'on commence les oreilles. J'ai placé mes marqueurs et ensuite je ne comprends pas trop... pourriez-vous m'expliquer plus clairement ce qui suit s'il vous plait? Merci, Marie
23.03.2015 - 02:21DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Desaulniers, quand vous avez placé les marqueurs, coupez le fil et commencez le 1er cache-oreille sur l'endroit, à l'un des marqueurs en crochetant 14-16 dB (à partir du marqueur), tournez et crochetez 1-3 rangs (cf taille), puis continuez en diminuant comme indiqué. Bon crochet!
23.03.2015 - 10:36
Chip#chiphat |
|
![]() |
![]() |
Hekluð páskaunga - húfa með með eyrnaleppum úr DROPS Alaska. Stærð 1-8 ára. Þema: Páskar.
DROPS Extra 0-1016 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta hst í umf er skipt út fyrir 2 ll, hver umf endar á 1 kl í 2. ll frá byrjun umf. HEKLIÐ 2 HST SAMAN: * Bregðið þræðinum um heklunálina, stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar l á heklunálinni. TVÖFALDAR LYKKJUR: Heklið eins og venjuleg lykkja, EN bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið eina l til viðbótar alveg eins í sömu l, dragið síðan þráðinn í gegnum báðar l. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður. Eyrnaleppar eru heklaðir fram og til baka í lokin. HÚFA: Heklið 4 ll með heklunál nr 5 með litnum sinnep, tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. Byrjun á umf = miðja að aftan. UMFERÐ 1: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 8 hst um hringinn. UMFEÐR 2: Heklið 2 hst í hvern hst umf hringinn = 16 hst. UMFERÐ 3: Heklið * 1 hst í fyrsta hst, 2 hst í næsta hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 hst. UMFERÐ 4: Heklið * 1 hst í hvorn af næstu 2 hst, 2 hst í næsta hst *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 32 hst. UMFERÐ 5: Heklið * 1 hst í hvern af næstu 3 hst, 2 hst í næsta *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 40 hst. UMFERÐ 6: Heklið * 1 hst í hvern af næstu 4 hst, 2 hst í næsta *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 48 hst. UMFERÐ 7: Heklið * 1 hst í hvern af næstu 5 hst, 2 hst í næsta *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 56 hst. Héðan er heklað mismunandi eftir stærðum. STÆRÐ 1/2 ÁRA: UMFERÐ 8: Heklið 1 hst í hvern hst, EN aukið jafnframt út jafnt yfir 6 hst = 62 hst. STÆRÐ 3/4 ÁRA: UMFERÐ 8: Heklið * 1 hst í hvern af næstu 6 hst, 2 hst í næsta *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 64 hst. STÆRÐ 5/6 ÁRA: UMFERÐ 8: Heklið * 1 hst í hvern af næstu 6 hst, 2 hst í næsta *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 64 hst. UMFERÐ 9: Heklið 1 hst í hvern hst, EN aukið jafnframt út 2 hst jafnt yfir = 66 hst. STÆRÐ 7/8 ÁRA: UMFERÐ 8: Heklið * 1 hst í hvern af næstu 6 hst, 2 hst í næsta *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 64 hst. UMFERÐ 9: Heklið 1 hst í hvern hst, EN aukið jafnframt út 4 hst jafnt yfir = 68 hst. Nú eru 62-64-66-68 hst í umf. Heklið nú 1 hst í hvern hst í hverja umf í öllum stærðum þar til stykkið mælist 17-18-19-20 cm. Setjið 2 prjónamerki í stykkið frá réttu. Fyrra prjónamerkið er sett í 7. hst frá byrjun umf, seinna prjónamerkið er sett í 42.-44.-46.-47. hst frá byrjun umf. EYRNALEPPUR: Byrjið á að hekla frá réttu við annað prjónamerkið. Notið heklunál nr 5 og litinn sinnep. * Heklið 1 hst í hvern af næstu 14-14-16-16 hst *, endurtakið frá *-* 1-2-3-3 umf. Heklið nú þannig: Heklið 2 ll, heklið annan og þriðja hst saman – LESIÐ HEKLIÐ 2 HST SAMAN, heklið nú 1 hst í hvern hst fram að síðustu 3 hst og heklið 2 hst saman og endið á 1 hst í síðustu l = 2 l færri og 12-12-12-14 hst eftir. Haldið nú áfram að hekla og fækka lykkjum innan við fyrstu og síðustu l í hvorri hlið í hverri umf þar til einungis 2 ll og 3 hst eru eftir, síðan er annar og þriðji hst heklaðir saman = 2 l eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum lykkjuna. Heklið annan eyrnalepp á sama hátt með byrjun frá hinu prjónamerkinu. KANTUR: Heklið kant í kringum húfuna með litnum skærrauður. Notið heklunál nr 5 og byrjið við miðju að aftan (byrjun á umf á húfu). Heklið 1 ll, síðan 1 fl í hvern hst fram að eyrnaleppi, heklið * 1 fl, 1 ll og hoppið fram ca 1 cm *, endurtakið frá *-* og passið uppá að kanturinn verði ekki of stífur fram að toppi á eyrnaleppi. Í toppinn er heklað 1 fl, 8 ll, 1 kl, 10 ll, 1 kl, 8 ll og 1 fl í sömu l. Endurtakið síðan frá *-* fram að kanti að framan. Heklið 1 fl í hvern hst fram að hinum eyrnaleppnum og heklið hinn eyrnaleppinn eins og sá fyrri. Endið á að hekla 1 fl í hvern hst á kanti að aftan að byrjun á umf og endið á 1 kl í fyrstu ll frá byrjun umf. Klippið frá og festið enda. AUGA: Heklið 3 ll með litnum sæblár og heklunál nr 5 og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: Heklið 8 fl um hringinn og endið á 1 kl í fyrstu ll frá byrjun umf. UMFERÐ 2: Skiptið yfir í litinn natur og heklið aftan í lykkjubogann umf hringinn með 2 fl í hverja fl og endið á 1 kl í fyrstu ll = 16 fl. Klippið frá og festið enda. Heklið annað auga á sama hátt og saumið augun niður framan á húfuna. GOGGUR: Heklið 6 ll með litnum skærrauður og heklunál nr 5, heklið 1 stí 4. ll frá heklunálinni, 1 st í hvora af síðustu 2 ll = 3 st. Snúið við. UMFERÐ 1: Heklið 3 ll og 1 st í fyrsta st, 1 st í næsta st og 2 st í síðasta st = 5 st. Snúið við. UMFERÐ 2: Heklið 3 ll og 1 st í fyrsta st, 1 st í hvern af næstu 3 st og 2 st í síðasta st = 7 st. Snúið við. UMFERÐ 3: Heklið 3 ll og 1 st í fyrsta st, 1 st í hvern af næstu 5 st og 2 st í síðasta st = 9 st. Snúið við. Klippið frá og festið enda. Saumið gogginn niður framan á húfuna fyrir neðan augun. KAMBUR: Heklið 32 ll með litnum skærrauður og heklunál nr 5. Snúið við og heklið til baka ll-umferðir þannig: Heklið 1 hst í 3. ll frá heklunálinni og heklið 1 hst í til viðbótar í sömu l, heklið nú 2 sinnum í hverja l með TVÖFALDAR LYKKJUR – sjá útskýringu að ofan. Heklið nú þannig: Heklið 1 st, 1 tbst, 1 st, 1 hst, 1 fl, * 1 hst, 1 st, 1 tbst, 1 st, 1 hst, 1 fl *, endurtakið frá *-* alla ll-umferðina. Klippið frá og festið enda. Leggið kambinn yfir toppinn á húfunni frá miðju að framan og að miðju að aftan og saumið hann niður með smáu spori. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #chiphat eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1016
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.