Bianca Van Room skrifaði:
Hoe maak je het middenstuk? Ik heb het 1e stuk gehaakt en is nu 70 cm. Nu wil ik aan het 2e stuk beginnnen maar er staat begin vanuit het midden..... en nu kan ik nergens vinden hoe je het middenstuk maakt.
02.09.2017 - 16:11DROPS Design svaraði:
Hoi Bianca, De sjaal bestaat uit 2 delen en er is geen middenstuk. Voor deel 2 haak je vanaf de opzet van deel 1 en dan dus naar de andere kant toe.
04.09.2017 - 16:42
Velia skrifaði:
Just want to thank you for your generosity of the free patterns offer.Could not find the video button you mention next to the photo. Do you have a suggestion as to US yarns vs yours, here in the US? Many thanks
04.03.2015 - 00:08DROPS Design svaraði:
Dear Velia, you will find relevant videos to the techniques used in that pattern under tab "videos" at the right side of the picture. You can find our yarn in your country by our DROPS Superstore in the USA. Happy crocheting!
04.03.2015 - 09:32Ulla skrifaði:
Materials: to the right of the photo!
06.09.2014 - 14:13
Vivian Ramsey skrifaði:
I can't see the yarn amounts in this pattern, nor others. Where is that information shown?
06.09.2014 - 13:53DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Ramsey, you will find total weight of requested yarn on the right side of the picture, ie 300 g DROPS Baby Alpaca Silk / 50 g a ball Baby Alpaca Silk= 6 balls. Happy crocheting!
08.09.2014 - 08:54
Inken skrifaði:
Traumhaft!
30.12.2013 - 09:09Nacira skrifaði:
Trés délicat, à faire.
11.12.2013 - 11:21
La Mer#lamershawl |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Heklað sjal úr DROPS BabyAlpaca Silk með sólfjöðrum.
DROPS 153-28 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3. LYKKJA: Lykkja á eftir umf með tbst: * Heklið 1 fl, 3 ll, 1 fl * á milli 2 st. Lykkja á eftir umf með ll-boga: * Heklið 1 fl, 3 ll, 1 fl * um ll-bogann. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Til að mynstrið á sjali snúi í sömu átt þegar það er notað er fyrst heklað frá miðju og út í aðra hliðina. Síðan er hin hliðin hekluð í uppfitjunarkant frá miðju og út að hinni hliðinni. SJAL: Heklið 115 ll (meðtaldar 4 ll til að snúa við með) með heklunál nr 4 með Baby Alpaca Silk. Heklið eftir mynstri A.1-A.3, þ.e.a.s. heklið þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í 7. ll frá heklunálinni, * 5 ll, hoppið yfir 6 ll, 1 fl í næstu ll, 5 ll, hoppið yfir 3 ll, 1 fl í næstu ll *, endurtakið frá *-* 8 sinnum til viðbótar, 5 ll, hoppið yfir 6 ll, 1 fl í næstu ll, 2 ll, hoppið yfir 1 ll, 1 tbst í síðustu ll = 21 ll-bogar, snúið við. UMFERÐ 2: Heklið 1 ll, 1 fl í tbst, hoppið yfir 1 ll-boga, 7 tbst um næsta ll-boga, * 1 fl um næsta ll-boga, 7 tbst um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* 8 sinnum til viðbótar, 1 fl um síðasta ll-bogann = 10 st-hópar, snúið við. UMFERÐ 3: Heklið 7 ll, hoppið yfir 1 ll-boga + 2 tbst * 1 LYKKJA – sjá skýringu að ofan, 5 ll, hoppið yfir 3 tbst, 1 lykkja, 5 ll, hoppið yfir 1 ll-boga + 2 tbst *, endurtakið frá *-* 8 sinnum til viðbótar, hoppið yfir 1 ll-boga + 2 tbst, 1 lykkja, 5 ll, hoppið yfir 3 tbst, 1 lykkja, 2 ll, 1 tbst í síðustu fl = 21 ll-bogar, snúið við. UMFERÐ 4: Heklið 1 ll, 1 fl í fyrsta tbst, 5 ll, hoppið yfir 1 ll-boga, 1 lykkja um næsta ll-boga, 5 ll, * 1 lykkja um næsta ll-boga, 5 ll, 1 lykkja um næsta ll-boga, 5 ll *, endurtakið frá *-* 8 sinnum til viðbótar, 1 fl um síðasta ll-bogann = 20 ll-bogar, snúið við. UMFERÐ 5: Heklið 6 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, * 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* 8 sinnum til viðbótar, 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 2 ll, 1 tbst í síðustu fl = 21 ll-bogar, snúið við. UMFERÐ 6: Heklið 4 ll, 3 tbst um fyrsta ll-bogann, 1 fl um næsta ll-boga, * 7 tbst um næsta ll-boga, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* 8 sinnum til viðbótar, 4 tbst um síðasta ll-bogann = 11 tbst- hópar, snúið við. UMFERÐ 7: Heklið 4 ll, hoppið yfir 2 tbst, 1 lykkja, * 5 ll, hoppið yfir 2 tbst + 1 fl + 2 tbst, 1 lykkja, 5 ll, hoppið yfir 3 tbst, 1 lykkja *, endurtakið frá *-* 8 sinnum til viðbótar, 5 ll, hoppið yfir 2 tbst + 1 fl + 2 tbst, 1 lykkja, 2 ll, 1 fl um næstu ll = 21 ll-bogar, snúið við. UMFERÐ 8: Heklið 4 ll, 1 lykkja um fyrsta ll-boga, 5 ll, 1 lykkja um næsta ll-boga, 5 ll, * 1 lykkja um næsta ll-boga, 5 ll, 1 lykkja um næsta ll-boga, 5 ll *, endurtakið frá *-* 8 sinnum til viðbótar, 1 lykkja um síðasta ll-bogann = 20 ll-bogar, snúið við. UMFERÐ 9: Heklið 4 ll, 1 fl um fyrsta ll-bogann, * 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* 8 sinnum til viðbótar, 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 2 ll, 1 tbst í næstu ll, snúið við. Endurtakið umf 2-9 þar til stykkið mælist ca 70 cm – stillið af eftir umf 3 eða 7. Klippið frá og festið enda. Heklið seinni hlutann á sjalinu eins og fyrri hluta en heklið fyrstu umf í uppfitjunarkantinn (= 111 ll) í fyrri helming, byrjið á 1 kl + 4 ll í 1.ll. STREKKING: Leggið sjalið í volgt vatn þar til það er orðið gegnblautt. Pressið varlega vatnið úr – ekki vinda. Rúllið síðan sjalinu inn í handklæði og pressið til þess að ná vatninu úr – stykkið á nú að vera aðeins rakt. Leggið stykkið á dýnu eða mottu – dragið það aðeins út í rétta stærð. Látið sjalið þorna. Endurtakið þetta í hvert skipti sem sjalið er þvegið. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lamershawl eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 4 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 153-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.