Vassiliki skrifaði:
Hello! :) I agree with the other knitter that mentioned that the instuctions do not match the picture. However the instructions match the diagram in my opinion. It seems like an elbow sleeve version. Can you please check? Thank you! :)
12.02.2014 - 18:38DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Vassiliki, chart has been edited with arrows to show it continues, the measures in chart match nber of sts. Happy knitting!
13.02.2014 - 08:52
Suzanne skrifaði:
The photo shows a long sleeve bolero, however the measurements in the instructions and diagram would be for a short or elbow length sleeve. Has there been a mistake in matching up the photo with the instructions?
03.02.2014 - 17:22DROPS Design svaraði:
Hi Suzanne. The bolero must have long sleeves, the instructions are correct, but the diagram is wrong. We will correct it asap.
04.02.2014 - 14:04Cloud skrifaði:
Vote for the pattern!
28.01.2014 - 17:21
Sylvia Reimers skrifaði:
Looks to be a light cover for those of us that do not like to show the arms, especially in old age. Waiting for the pattern.
13.01.2014 - 22:05
Gaelle skrifaði:
J'attends aussi les explications avec impatience ! Merci d'avance!
13.01.2014 - 14:37
Kicki skrifaði:
Luftig och klädsam kofta
10.01.2014 - 23:20
Esprit Du Linge skrifaði:
Tout à fait ce que je recherche,j'attends les explications avec impatience. Merci
10.01.2014 - 15:38
Sylvia skrifaði:
J'adore ce modèle. Tout léger pour emporter avec soi partout. J'attends avec impatience les explications.Facile, je pense.
10.01.2014 - 15:15
Margot skrifaði:
Luftig und leicht für einen schönen Sommerabend
06.01.2014 - 09:52
Marianne skrifaði:
Denne er lekker. Lett og luftig til sommeren
29.12.2013 - 12:40
Paloma#palomabolero |
|
![]() |
![]() |
Prjónaður bolero úr DROPS Kid-Silk í garðaprjóni. Stærð S - XXXL
DROPS 155-23 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að taka upp þráðinn á milli 2 l frá fyrri umf – prjónið þessa umf snúna slétt, þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan til þess að koma í veg fyrir göt. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum innan við síðustu l með því að prjóna 2 næst síðustu l slétt saman. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Mælt frá kanti á hálsi við miðju að framan og fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 1 og 4 cm. STÆRÐ M: 1 og 4 cm. STÆRÐ L: 1 og 4 cm. STÆRÐ XL: 1 og 5 cm. STÆRÐ XXL: 1 og 5 cm. STÆRÐ XXXL: 1 og 5 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BOLERO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Allt stykkið er prjónað sem eitt stykki. Byrjið neðst niðri á bakstykki, aukið út fyrir ermar, fellið af fyrir hálsmáli, jafnframt er fellt af á ermum og prjónað er niður yfir framstykki. Til að fá pláss fyrir allar l er prjónað fram og til baka á hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 60-66-74-82-92-102 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 5,5 með Kid-Silk. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu með 3-3-3½-3½-4-4 cm millibili 4 sinnum til viðbótar (alls 5 sinnum) = 70-76-84-92-102-112 l. Þegar stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm fitjið upp nýja l í lok hverrar umf í hvorri hlið: 1 l 1-1-2-2-3-4 sinnum, 2 l 2-3-2-2-1-1 sinnum, 4 l 2-1-1-1-1-0 sinnum, 6 l 1 sinni, 8 l 1 sinni og 17-18-17-14-12-12 l 1 sinni = alls 158-162-166-168-172-176 l á prjóni. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 37-39-41-43-45-47 cm. Fellið nú af miðju 18-18-20-20-22-24 l fyrir hálsmáli = 70-72-73-74-75-76 l eftir á hvorri öxl/ermi. Setjið l af vinstra framstykki á þráð. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 70-72-73-74-75-76 l. Prjónið 1 cm, setjið 1 prjónamerki hér = miðja ofan á öxl. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið síðan áfram fram og til baka þar til 11 cm hafa verið prjónaðir frá prjónamerki ofan á öxl. Fitjið síðan upp nýjar l í lok hverrar umf inn við hálsmál þannig: Prjónið 1 l 2 sinnum, 2 l 2 sinnum og 6-6-7-7-8-9 l 1 sinni = 82-84-86-87-89-91 l (meðtaldar 3 kantlykkjur að framan í garðaprjóni), JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 14-15-16-17-18-19 cm fellið af erma-lykkjur. Munið eftir HNAPPAGAT! Fellið laust af í byrjun á hverri umf neðst á ermi: 17-18-17-14-12-12 l 1 sinni, 8 l 1 sinni, 6 l 1 sinni, 4 l 2-1-1-1-1-0 sinnum, 2 l 2-3-2-2-1-1 sinnum, 1 l 1-1-2-2-3-4 sinnum = 38-41-45-49-54-59 l eftir á prjóni. Haldið áfram. Þegar stykkið mælist 22-24-24-26-26-28 cm fækkið um 1 l í hlið – SJÁ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 3-3-3½-3½-4-4 cm millibili 4 sinnum til viðbótar (alls 5 sinnum) – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 25-27-29-31-33-35 cm fækkið um 1 l í næstu umf við miðju að framan (fyrir bogalaga framstykki) – SJÁ ÚRTAKA, endurtakið úrtöku í 4. hverri umf 4-3-3-2-2-2 sinnum, síðan í annarri hvorri umf 6-7-6-8-7-5 sinnum og að lokum í hverri umf 11-13-15-15-17-21 sinnum = 12-13-16-19-23-26 l eftir á prjóni, fellið þær af í næstu umf. VINSTRA FRAMSTYKKI: Setjið til baka l af þræði á prjóninn og prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt. FRÁGANGUR: Brjótið stykkið saman tvöfalt við öxl = þar sem prjónamerki var sett í stykkið. Saumið hliðar- og ermasauma yst í lykkjubogann. Klippið frá og festið enda. HÁLSMÁL: Heklið kant í kringum hálsmál með heklunál nr 4,5 þannig: Festið endann með 1 fl á hægra framstykki við miðju að framan, 2 ll hoppið fram 1,5 cm, * 1 fl, 2 ll, hoppið fram 1,5 cm *, endurtakið frá *-* í kringum allan kantinn að framan og endið á 1 fl. Klippið frá og festið enda. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #palomabolero eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 155-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.