DROPS Muskat uni colour 100% Bómull |
572.00 kr /50g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Muskat uni colour 100% Bómull 572.00 kr /50g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
= sl | |
= br | |
= sláið uppá prjóninn á milli 2 l | |
= 2 l slétt saman | |
= takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir | |
= 2 l br saman |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Florentina |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Muskat með laskalínu og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 152-18 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): *1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.3. ÚTAUKNING: Aukið er út um 1 l með því að taka upp þráðinn á milli 2 l frá fyrri umf – prjónið þessa lykkju snúna sl, þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan til þess að koma í veg fyrir göt. LASKALÍNA Á FRAM- OG BAKSTYKKI: Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Byrjið á 4 l á undan prjónamerki, 2 l br, 2 l slétt saman (= 1 l færri). Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Byrjið á 1. l á eftir prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, 2 l br (= 1 l færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 212-212-244-268-280-304 l á hringprjóna nr 3,5 með Muskat. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Skiptið síðan yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið frá miðju að aftan þannig: Sléttprjón yfir næstu 46-46-54-60-63-69 l (= bakstykki), A.1 (= 7 l) yfir næstu 14 l, sléttprjón yfir næstu 92-92-108-120-126-138 l (= framstykki), A.1 yfir næstu 14 l, sléttprjón yfir næstu 46-46-54-60-63-69 l (= bakstykki). Haldið síðan áfram í sléttprjóni, mynstur eftir mynsturteikningu A.1 í hvorri hlið þar til stykkið mælist 23-25-22-20-23-21 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í næstu umf er fellt af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Prjónið fram að 2 mynstureiningunum í vinstri hlið og fellið síðan af 14 l yfir A.1, prjónið sléttprjón yfir allar l á framstykki og fellið af 14 l yfir A.1 í hægri hlið, prjónið út um og geymið stykkið (= alls 28 l færri) = 92-92-108-120-126-138 l á bakstykki og á framstykki = alls 184-184-216-240-252-276 l eftir á prjóni. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Fitjið upp 133-133-147-161-154-168 l á hringprjóna nr 3,5 með Muskat. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Setjið eitt prjónamerki í byrjun umf = miðja undir ermi. Skiptið nú yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið mynstur þannig: A.1 (= 7 l) yfir allar l í umf = alls 19-19-21-23-22-24 mynstureiningar í umf. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 5 cm frá uppfitjunarkanti. ATH! Endið á umf í sléttprjóni sem er eftir umf sem er umf 3 í A.1 (þ.e.a.s. eftir umf 4,8,12 o.s.frv), JAFNFRAMT í þessari umf er fellt af í heilli mynstureiningu í A.1 hvoru megin við prjónamerki (= alls 14 l felldar af undir ermi) = 119-119-133-147-140-154 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 422-422-482-534-532-584 l, setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram í næstu umf þannig: 46-46-54-60-63-69 l sléttprjón (= bakstykki), setjið eitt prjónamerki hér, A.2 (= 21 l), A.1 alls 11-11-13-15-14-16 sinnum, A.3 (= 21 l), setjið eitt prjónamerki hér, sléttprjón yfir næstu 92-92-108-120-126-138 l (= framstykki), setjið eitt prjónamerki hér, A.2 (= 21 l), A.1 alls 11-11-13-15-14-16 sinnum, A.3 (= 21 l), setjið eitt prjónamerki hér, 46-46-54-60-63-69 l sléttprjón (= bakstykki), JAFNFRAMT byrjar LASKALÍNA Á FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan = 4 l færri. Endurtakið sömu úrtöku í annarri hverri umf 30-30-37-44-44-51 sinnum til viðbótar alls 31-31-38-45-45-52 sinnum, JAFNFRAMT er haldið áfram með mynstur með úrtöku fyrir laskalínu á ermum. ATH! Þegar A.2 og A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram með sömu úrtöku í mynstri á ermum og sömu úrtöku fyrir laskalínu á fram- og bakstykki eins og áður. Þegar úrtöku er lokið eru 154-154-154-146-144-136 l eftir á prjóni. Prjónið nú næstu umf frá miðju að aftan þannig: Haldið áfram eins og áður í sléttprjóni yfir l á bakstykki og mynstur yfir ermi. Prjónið sléttprjón yfir 30-30-32-30-36-34 l á framstykki áður en l á framstykki eru settar á þráð. Prjónið nú upphækkun fram og til baka við hnakka þannig: Næstu 6 umf eru áfram með mynstri yfir ermar, sléttprjón á bakstykki og úrtöku eins og áður, JAFNFRAMT er prjónuð er upphækkun aftan í hnakka þannig: Lykkjufjöldinn sem er prjónaður fækkar þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á prjóni, snúið við, prjónið þar til 3 l eru eftir, snúið við, prjónið þar til 6 l eru eftir, snúið við, prjónið þar til 6 l eru eftir, snúið við, prjónið þar til 9 l eru eftir, snúið við, prjónið þar til 9 l eru eftir. Setjið nú l af þræði aftur á prjóninn, skiptið yfir í hringprjóna nr 3,5 og prjónið 6 umf hringinn í garðaprjóni yfir allar l, JAFNFRAMT í 1. umf á kanti í garðaprjóni er fækkað um 11-11-11-12-10-2 l jafnt yfir = 143-143-143-134-134-134 l eftir á prjóni. Fellið laust af. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 309 vörulista og 11518 mynstur - 7032 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (85)
Elise skrifaði:
Bonjour, pouvez vous me d'écrire les mailles à faire pour le diagramme A1? Je fais une maille endroit, deux mailles ensemble, un jeté, une maille endroit, un jeté, un surjet et une maille endroit et je me retrouve avec 8 mailles au lieu de 7. Merci ^^
12.04.2020 - 17:33DROPS Design svaraði:
Bonjour Élise, c'est bien ainsi que se tricote le 1er rang de A.1, je cite: une maille endroit (= 1 m), deux mailles ensemble (= 1 m), un jeté (= 1 m), une maille endroit (= 1 m), un jeté (= 1 m), un surjet (= 1 m) et une maille endroit (= 1 m) = vous devez avoir ainsi bien 7 m. Bon tricot!
14.04.2020 - 11:42Myriam29 skrifaði:
Bonjour, Pouvez-vous m'aider concernant les diminutions au niveau de l'empiècement. J'ai réalisé A2 et A3, jusqu'ici tout allait bien. Pour la suite, je ne comprends pas comment réaliser les diminutions dans le point fantaisie des manches, pouvez-vous m'expliquer comment les faire. Je vous en remercie.
15.12.2019 - 21:03DROPS Design svaraði:
Bonjour Myriam29, les diminutions des manches (raglan) se font comme indiqué dans A.2 et A.3, vous diminuez après 1 m end au début de la manche (= début de A.2) et vous diminuez avant la m endroit à la fin de A.3 (= fin de A.3). Entre temps, vous continuez le point ajouré comme avant, comme dans A.2 et A.3 = le nombre de jetés du point ajouré doit toujours être compensé par le même nombre de diminutions (sans celle du raglan). Bon tricot!
16.12.2019 - 08:59Gitte Stieper skrifaði:
Der er en fejl der ikke er blevet rettet i den danske opskrift. fra denne sætning i bærestykket og ned er masketallene anderledes på andre sprog: Når alle indtagninger er færdige er der 174-174-178-174-172-168 m tilbage på p.
06.10.2015 - 19:47Pavla skrifaði:
Hi I'm just finishing and have 154 sts if i work elevation over 6 rows with decreasing and than dec. 11 sts it is not 143 sts. and if I knit in pattern over sleeves do I dec only at begining of sleeve thank you Pavla
04.10.2015 - 16:04DROPS Design svaraði:
Dear Pavla, on sleeve you work A.2 (dec at beg of sleeve), repeat A.1 and A.3 (dec at the end of sleeve) - after the short rows, you work again over all sts and on first round dec 11 sts evenly (154-11=143sts) for the neck edge. Happy knitting!
05.10.2015 - 09:54Karen Christensen skrifaði:
Der skal stå A2 og ikke At i min anden kommentar
24.09.2015 - 12:11Karen Christensen skrifaði:
Hej Jeg er lidt forvirret og håber I kan hjælpe . Jeg kan ikke finde ud af hvad det er for nogle indtagninger jeg skal lave i ærmerne, efter At og A 3 er færdig en gang i højden , skal jeg bare starte forfra med At og A3? Skal omgang 25 så hedde 1 ret , løft en af en ret løft masken over, 2 vrang sammen, 1 vrang 1 ret og derefter så A1. Men hvis man bare gentager A2 og A3 over alle 104 omgange kommer man til at ha for lidt masker til sidst M. V. H Karen
24.09.2015 - 12:09DROPS Design svaraði:
Hej Karen, Jo men du strikker indtagningerne i hver side ifølge diagrammerne. Spørg også gerne din lokale DROPS forhandler! God fornøjelse!
01.10.2015 - 15:25Chedoz skrifaði:
Merci a vous je vais essayer! Donc je pense après les 6 rangs raccourci va falloir des augmentations car avant les rangs raccourcis j'ai 154 mailles et après les rangs raccourcis il faut repartir 11 diminutions. 154 - 11 = 143. Bon je vais essayer et merci vraiment!
07.05.2015 - 21:50Chedoz skrifaði:
Pour la ré-hausse, il faut juste tricote le dis en jersey jusqu'à qu'il reste 3 mailles puis tourner le travail et idem! Ou alors il y a quelque chose de spécial a faire? De plus, je pense que s'il faut continuer les diminutions sur les 6 rangs suivants il ne reste pas 143 mailles tout a la fin! Il est super ce modèle mais la fin est compliqué du moins je ne comprends pas vu que la rehausse j'ai jamais fait 😕
07.05.2015 - 11:02DROPS Design svaraði:
Continuez les diminutions du raglan sur les 6 rangs raccourcis, puis tricotez 1 rang endroit sur toutes les mailles en ajustant des diminutions pour ajuster à 143 m. Bon tricot!
07.05.2015 - 15:42Chedoz skrifaði:
Merci pour votre réponse! Pour la ré-hausse j'ai cherche sur votre site mais pas trouver la manière de faire! Il y a juste a tricoter en jersey jusqu'à qu'il reste 3 mailles du dos et tourner le travail Merci a vous
07.05.2015 - 10:49DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Chedoz, la ré-hausse consiste à tricoter des rangs raccourcis (= plus de rangs côté dos que devant). Continuez à partir du devant (après les mailles de l'encolure devant en attente) et tricotez jusqu'à ce qu'il reste 3 m à la fin du rang (de l'autre côté du devant), tournez et tricotez le rang retour jusqu'à ce qu'il reste 3 m de l'autre côté du devant (= 3 m non tricotées de chaque côté de l'encolure) et continuez ainsi en laissant 3 m en plus à chaque fois. Bon tricot!
07.05.2015 - 15:41Chedoz skrifaði:
Bonsoir, Besoin de vos lumières Dans la partie empiècement après les diminutions je ne comprends pas cette partie: "Tricoter ensuite ainsi le tour suivant a partir du milieu du dos: continuer comme avant les mailles du dos en jersey (LA AVEC DIMINUTION OU SANS???) et la manche gauche en point fantaisie (LA PAREIL AVEC LES DIMINUTIONS OU SANS??)" ou a lors c'est le rang retour???
06.05.2015 - 22:56DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Chedoz, Continuez les diminutions comme avant, dans le jersey et dans le point fantaisie des manches sur ce tour et sur les rangs suivants pour la ré-hausse de l'encolure dos. Bon tricot!
07.05.2015 - 09:32