DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS AW2425

Spring Rising

Prjónuð peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk og DROPS Kid Silk með gatamynstri og sléttprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 152-11
DROPS Design: Mynstur nr bs-069
Garnflokkur A + A eða C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BABY ALPACA SILK frá Garnstudio
250-300-300-350-400-400 gr litur nr 7219, ljós grænn
Og einnig:
DROPS KID SILK frá Garnstudio
100-125-125-150-150-200 gr litur nr 18, eplagrænn

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri gerð verði 10 x 10 cm eða A.1 + 7 l sléttprjón verði 7 cm á breidd.
DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4,5 – fyrir stroff.
DROPS PERLUTALA NR 522: 2 stk í öllum stærðum.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

LEIÐBEININGAR (á við um kant að framan):
Til að kanturinn að framan dragist ekki saman eru prjónaðar stuttar umferðir yfir kant í 10. hverri umf þannig: * Byrjið frá réttu á hægra framstykki (= miðja að framan) og prjónið 1 umf slétt yfir síðustu 16 l (= kantur að framan – hinar lykkjurnar á prjóni eru ekki prjónaðar), snúið við, herðið á þræði og prjónið sl út umf, snúið við og prjónið 1 umf eins og áður (í garðaprjón og mynstri) yfir allar l, snúið við, prjónið 1 umf slétt yfir síðustu 16 l (= kantur að framan á vinstra framstykki – hinar l á prjóni eru ekki prjónaðar), snúið við, herðið á þræði og prjónið sl út umf*, endurtakið frá *-* í 10. hverri umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. UMFERÐ 1 = rétta.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við síðustu l. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt.

ÚRTAKA (á við um hálsmál):
Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við allar l í garðaprjóni (þ.e.a.s. kantur að framan + þær l sem eru útauknar fyrir kraga). Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á EFTIR l í garðaprjóni þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið lykkjum á UNDAN l í garðaprjóni þannig: Prjónið 2 l slétt saman.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 35 og 43 cm
STÆRÐ M: 36 og 44 cm
STÆRÐ L: 37 og 45 cm
STÆRÐ XL: 38 og 46 cm
STÆRÐ XXL: 39 og 47 cm
STÆRÐ XXXL: 40 og 48 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 234-249-264-294-324-354 l (meðtaldar 16 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 4,5 með 1 þræði af hvorri gerð (= 2 þræðir). Prjónið 1 umf br frá röngu, prjónið síðan næstu umf frá réttu þannig: 16 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* þar til 18 l eru eftir og endið á 2 l sl og 16 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. Þegar stykkið mælist 4 cm er næsta umf prjónuð frá réttu þannig: 16 kantlykkjur að framan eins og áður, * 2 l sl, 3 l br, 2 l sl, 2 l br saman, 1 l br, 2 l sl, 2 l br saman, 1 l br *, endurtakið frá *-* þar til 23 l eru eftir, prjónið 2 l sl, 3 l br, 2 l sl og 16 kantlykkjur að framan eins og áður = 208-221-234-260-286-312 l. Prjónið 1 umf til baka með sl yfir sl og br yfir br og kantlykkjur í garðaprjóni. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið mynstur frá réttu þannig: 16 kantlykkjur, * 7 l sléttprjón, mynstur A.1 (= 6 l) *, endurtakið frá *-* þar til 23 l eru eftir og endið á 7 l slétt og 16 kantlykkjum (= 14-15-16-18-20-22 mynstureiningar í sléttprjóni og 13-14-15-17-19-21 l af A.1. Haldið svona áfram með mynstur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og LESIÐ LEIÐBEININGAR!
Þegar stykkið mælist 7-8-9-10-11-12 cm er fækkað um 1. mynstureiningu í sléttprjóni, fellið síðan af í annarri hverri mynstureiningu í sléttprjóni frá 7 l sl til 6 l sl með því að prjóna 2 fyrstu l í annarri hverri mynstureiningu í sléttprjóni snúnar slétt saman (frá réttu) = 201-213-226-251-276-301 l í umf 1 í A.1 (þ.e.a.s. 7-8-8-9-10-11 l færri). ATH! Lykkjufjöldinn er háður hvar maður er í mynstri A.1.

Þegar stykkið mælist 15-16-17-18-19-20 cm er 7 l sl fækkað til 6 l sl með því að prjóna 2 síðustu l í mynstureiningu í sléttprjóni sem eftir er slétt saman (frá réttu) = 194-206-218-242-266-290 l í umf 1 í A.1 (þ.e.a.s. 7-7-8-9-10-11 l færri). ATH! Lykkjufjöldinn er háður því hvar maður er í mynstri A.1. Endurtakið úrtöku í annarri hverri mynstureiningu þegar stykkið mælist 23-24-25-26-27-28 og 31-32-33-34-35-36 cm = 180-191-202-224-246-268 l í umf 1 í A.1. Haldið áfram með mynstur (nú eru 5 l sléttprjón á milli hverra mynstureininga með A.1). Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm prjónið nú A.2 í stað A.1 (hinar l eru prjónaðar áfram eins og áður). Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm er fellt af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.

Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 167-177-187-207-227-247 l á prjóni. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 16 kantlykkjur að framan, 2 l sléttprjón, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.3 þar til 19 l eru eftir og endið á 3 l sléttprjón og 16 kantlykkjum að framan. Haldið svona áfram með mynstur þar til A.3 hefur verið prjónað alls 3 sinnum á hæðina. Setjið 1 prjónamerki í 46-49-50-56-60-65 l inn frá hvorri hlið (= 75-79-87-95-107-117 l á milli prjónamerkja á bakstykki) og prjónið sléttprjón (kantar eru áfram prjónaðir í garðaprjóni eins og áður). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm er aukið út frá hlið við miðju að framan fyrir kraga – LESIÐ ÚTAUKNING: Endurtakið útaukningu með 2½ cm millibili, 7-7-9-9-11-11 sinnum til viðbótar= 8-8-10-10-12-12 l fleiri fyrir kraga og 24-24-26-26-28-28 l garðaprjón alls. JAFNFRAMT 2 cm eftir að útaukning fyrir kraga byrjaði er fækkað um 1 l fyrir hálsmáli á framstykki – SJÁ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í 6. hverri umf, 0-1-0-2-0-1 sinnum til viðbótar.

Þegar stykkið mælist 53-55-57-59-61-63 cm er hvor hluti prjónaður fyrir sig. Skiptið stykkinu upp við prjónamerki.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 7 l fyrir ermi í lok umf. Nýju l eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. Prjónið áfram í sléttprjóni með 7 kantlykkjum í garðaprjóni JAFNFRAMT er útaukning fyrir kraga og úrtaka fyrir hálsmáli haldið áfram eins og áður. Þegar stykkið mælist 72-75-78-81-84-87 cm fellið af síðustu 36-38-40-44-50-54 l á öxl í næstu umf frá röngu = 24-24-26-26-28-28 kraga-l eftir á prjóni. Prjónið út umf. Prjónið nú garðaprjón yfir þessar l með byrjun frá réttu þannig: * 2 umf garðaprjón yfir allar l, 2 umf garðaprjón yfir einungis síðustu 16-16-18-18-20-20 l *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist ca 7-7-8-8-8-9 cm lengst inn þar sem hann er minnstur og 14-14-16-16-16-18 cm lengst út þar sem hann er breiðastur. Fellið af.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 7 l í lok næstu tveggja umf = 89-93-101-109-121-131 l. Prjónið áfram í sléttprjóni með 7 kantlykkjum í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 70-73-76-79-82-85 cm fellið af miðju 15-15-19-19-19-21 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er nú prjónuð til lok fyrir sig. Fellið nú af 1 l í næstu umf frá hálsi = 36-38-40-44-50-54 l eftir á öxl. Prjónið nú áfram þar til stykkið mælist 72-75-78-81-84-87 cm og fellið af. Endurtakið á sama hátt á hinni öxlinni.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. Lykkjur á öxl eru felldar af frá réttu og stuttar umferðir í kraga byrja frá röngu.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið saman kraga við miðju að aftan og saumið hann við hálsmál. Saumið saman undir höndum. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = prjónið 3 l sl, steypið fyrstu l sem prjónuð var yfir hinar 2 þannig að þessi l lyggi utan um 2 síðustu l á hægri prjóni (= 1 l færri).
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 152-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (36)

country flag Allinson Sherratt skrifaði:

I would like to knit this in yarn C alpaca silk. To calculate the quantity, do I add the length of the 2 original yarnbs together & divide by yarn C? Or do I use the length of the longervyarn A & divide by yarn C? Thanks

03.06.2014 - 23:55

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Sherratt, please click here to know how to calculate the amount of yarn in an alternative yarn, and remember your store can help you if required. Happy knitting!

04.06.2014 - 09:06

country flag Allinson Sherratt skrifaði:

I would like to knit this in yarn C alpaca silk. To calculate the quantity do I add the length of the 2 original yarns together & divide by yarn C? Or do I use the length of the longer yarn A & divide by yarn C? Thanks

29.05.2014 - 15:56

country flag Susanne skrifaði:

Hallo, die Jacke ist wirklich sehr schön. Ich stricke sie gerade in L. Ist es richtig, dass ich dann insgesamt nur 2 Maschen (eine auf der linken und eine auf der rechten Seite) für den Halsausschnitt abnehme? Wie kommen dann die 12 cm für den Ausschnitt zustande? Vielen Dank schon mal.

26.02.2014 - 11:45

DROPS Design svaraði:

Liebe Susanne, Sie ketten am Rückenteil ja zuerst 19 M ab und stricken jede Schulter einzeln weiter. Sie nehmen dann jeweils noch 1 M ab, insgesamt hat der Halsausschnitt also eine Öffnung von 21 M, das passt dann zu 12 cm. Bei den Vorderteilen nehmen Sie in Ihrer Größe tatsächlich nur je 1 M ab, die Öffnung ergibt sich dann durch das Umschlagen des Schalkragens, wie auf dem Foto zu sehen. Gutes Gelingen!

26.02.2014 - 13:41

country flag Alicja skrifaði:

Proszę o opis w języku polskim tego modelu.

14.02.2014 - 15:27

country flag Nita Sands skrifaði:

Another fantastic piece! all your things are really really great. and your models are drop dead gorgeous! still having a hard time finding yarn though. patterns are perfect.

29.01.2014 - 07:03

country flag Elisabeth skrifaði:

Cette veste est très accueillante et légère : idéale pour flaner sur la plage. Merci de nous donner bientôt les explications.

19.01.2014 - 14:27

country flag Ornella skrifaði:

Molto femminile ed elegante

12.01.2014 - 15:05

country flag Rosa skrifaði:

Lækker - har allerede garn og kan næsten ikke vente...

12.01.2014 - 12:40

country flag LORETTA skrifaði:

Molto fine ed elegante

12.01.2014 - 08:42

country flag Ilaria skrifaði:

Mi piace!! Elegante e raffinato. Non vedo l'ora di realizzarlo

06.01.2014 - 21:19