Marta skrifaði:
Olá ! Gosto muito do modelo, gostava de conseguir fazer.
21.03.2014 - 20:20
Laura skrifaði:
I'm really struggling with the DPN and this yarn...any pointers?
24.02.2014 - 17:15DROPS Design svaraði:
Dear Laura, if you have problems with DPN, maybe you could try with magic loop - see video below ? Happy knitting!
25.02.2014 - 09:22
Matthildur Sigursveinsdottir skrifaði:
Hvenar kemur mynstur no Model as 013
28.01.2014 - 12:44
Andrée-Anne Mercier skrifaði:
Love you off-center motifs! Bold and beautiful!
11.01.2014 - 21:54
Bertina skrifaði:
Mooie trui en een mooie kleur
08.01.2014 - 09:34
Birthe Hanne Boesgaard skrifaði:
Virkelig flot
31.12.2013 - 14:01
Laura skrifaði:
Bellissimo... molto giovane e attuale
24.12.2013 - 14:06
Anna skrifaði:
Sweet! My favorite in this collection.
19.12.2013 - 22:16
Angelika Grebenstein skrifaði:
Ein schönes Frühlingsmodell
18.12.2013 - 12:38
Elisabeth skrifaði:
En underbart vacker feminin tröja. Spetsigt skir. Ljuvlig!!
15.12.2013 - 11:54
Cheryl#cherylsweater |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk með berustykki og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 154-13 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): *1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚRTAKA (á við um fram- og bakstykki): Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 224-256-288-320 l á hringprjóna nr 5 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umf slétt, prjónið nú stroff 4 l sl, 4 l br. Þegar stykkið mælist 6 cm eru allar br l prjónaðar saman 2 og 2 = 168-192-216-240 l. Setjið 2 prjónamerki í stykkið, 1 í byrjun á umf og 1 eftir 84-96-108-120 l (= í hvorri hlið). Prjónið nú sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 7 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 3 ½-4-4½-5 cm millibili 3 sinnum til viðbótar (= alls 4 úrtökur) = 152-176-200-224 l. Þegar stykkið mælist 24-26-27-29 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 3 cm millibili, 3 sinnum til viðbótar (= 4 útaukningar) = 168-192-216-240 l. Þegar stykkið mælist 35-39-41-45 cm fellið af 14-16-18-20 l á hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 7-8-9-10 l hvoru megin við bæði prjónamerkin) = 70-80-90-100 l eftir á bakstykki/framstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 48-52-56-60 l á sokkaprjóna nr 5 með 1 þræði af Alpaca Silk. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 5 cm er sett 1 prjónamerki í byrjun á umf (= miðja undir ermi). Í næstu umf er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu með 5-3-2½-2 cm millibili, 3-5-7-9 sinnum til viðbótar (= alls 4-6-8-10 útaukningar) = 56-64-72-80 l. Þegar stykkið mælist 24-25-26-27 cm fellið af 14-16-18-20 l mitt undir ermi (þ.e.a.s. fellið af 7-8-9-10 l hvoru megin við prjónamerkin) = 42-48-54-60 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki = 224-256-288-320 l. Prjónið * A.1 (= 14 l), A.2 (= 18 l)*, endurtakið frá *-* (= 7-8-9-10 mynstureiningar af A.1 og A.2 á breiddina). Skiptið yfir í stutta hringprjóna eftir þörf. Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað eru 112-128-144-160 l á prjóni. Prjónið 1 umf slétt, JAFNFRAMT er fækkað um 38-50-52-60 l jafnt yfir = 74-78-92-100 l. Klippið frá. Prjónið nú upphækkun aftan við hnakka í sléttprjóni, setjið 1 prjónamerki í miðju l (= miðja að aftan) og byrjið þannig: Prjónið 7 l sl framhjá prjónamerki við miðju að aftan, snúið við, herðið á þræði og prjónið 14 l br til baka, snúið við, herðið á þræði og prjónið 21 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 28 l br til baka. Haldið svona áfram – prjónið yfir 7 l fleiri í hvert skipti sem snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls 56-56-70-70 l, snúið við og prjónið 1 umf slétt fram að miðju að aftan. Prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið af með sl. Berustykkið mælist ca 23 cm (fyrir miðju að framan) og öll peysan ca 58-62-64-68 cm. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cherylsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 154-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.