Marianne Ostamo skrifaði:
Oikein kiva ohje mutta suomentajalla on virhe osiossa ennen reunuksen neulomista. Kun tein norjankielisen ohjeen mukaan silmukkaluvut täsmäävät.There is a false in translation
22.01.2014 - 18:52
Mita skrifaði:
Dit is een wow sjaal, gewoon prachtig.
22.01.2014 - 09:19
Vickie skrifaði:
You have many wonderful free patterns, can you offer them in downloadable PDF formats instead of just the option to print? That would be tremendously helpful and save us the time of having to make our own.
12.01.2014 - 00:11DROPS Design svaraði:
Dear Vickie, you can use a free virtual printer to save them as pdf file. There are several software making this you can download for free on the internet. Happy knitting!
13.01.2014 - 09:07
Chou skrifaði:
Where to find help on instruction on the pattern? Need help in order to follow the pattern,
11.01.2014 - 06:12DROPS Design svaraði:
Dear Chou, click on "get the pattern" on the lattest collection page to see the pattern and print it. Happy knitting!
11.01.2014 - 10:13
Froufy skrifaði:
Trrrèèèsss beau !!!
09.01.2014 - 15:25
Marie France skrifaði:
Beau chale
07.01.2014 - 11:36
Monika Siller skrifaði:
What a beautiful Shawl - Chapeau :)
07.01.2014 - 09:35Luzdivina skrifaði:
Que hermoso shawl!
06.01.2014 - 19:47
Romana skrifaði:
Veramente bello questo modellino. Complimenti alla creatrice, grande fantasia. Ciao
05.01.2014 - 20:58
Rebecca skrifaði:
Jättefin!! Hade önskat mönster också på en fyrkantig variant för att ha som babyfilt.
05.01.2014 - 19:36
Butterfly Dance#butterflydanceshawl |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Prjónað sjal úr DROPS Alpaca með gatamynstri og garðaprjóni.
DROPS 153-2 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. EINING MEÐ ÚTAUKNINGU: Aukið er út í hverri umf frá réttu með því að slá 2 sinnum uppá prjóninn þannig: UMFERÐ 1: Aukið út með því að slá 2 sinnum uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á sjalinu og hvoru megin við miðjulykkju. UMFERÐ 2: Prjónið sl yfir allar l, prjónið fyrri uppsláttinn slétt þannig að það myndist gat, hinn uppslátturinn er látinn falla niður. UMFERÐ 3: Aukið út með því að slá 2 sinnum uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á sjalinu og hvoru megin við miðjulykkju. UMFERÐ 4: Prjónið sl yfir allar l, prjónið fyrri uppsláttinn slétt þannig að það myndist gat, hinn uppslátturinn er látinn falla niður. Í hvert sinn sem eining með útaukningu er prjónuð stækkar stykkið um 8 l. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna SJAL: Fitjið upp 3 l á hringprjóna nr 3,5 með Alpaca. Setjið prjónamerki í 2.l = miðjulykkja. Prjónið fyrstu umf þannig: Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 l sl, snúið við og prjónið sl til baka = 5 l á prjóni. Haldið nú áfram í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan JAFNFRAMT er prjónuð EINING MEÐ ÚTAUKNINGU (hún er prjónuð nú í öllu sjalinu) – sjá útskýringu að ofan þar til einingin með útaukningu hefur verið prjónuð 22 sinnum og það eru 44 göt upp úr hvoru megin við miðjulykkju = 181 l á prjóni. Lykkjufjöldinn er nú deilanlegur með 8 + 5. Prjónið nú mynstur A.1 (útaukning er prjónuð eins og áður og kant- og miðjulykkja er prjónuð í garðaprjóni). Í umf með mynstri með 2 l slétt saman og uppslætti er prjónað fram að 1 l á undan miðjulykkju, prjónið 1 l sl, miðjulykkju og útaukning eins og áður hvoru megin við hana, 1 l sl og haldið áfram með mynstur A.1. Þegar mynstureiningin hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 197 l á prjóni. Prjónið nú áfram eftir mynstri A.2, A.3 og A.4 þannig: Prjónið kantlykkju og uppslátt eins og áður, prjónið A.2 (ATH! Ekki prjóna neinar l í A.2 í fyrstu umf í mynstri), endurtakið A.3 þar til 1 l er eftir á undan miðju, prjónið A.4 yfir þessa l, sláið uppá prjóninn og miðjulykkju eins og áður. Endurtakið eins hinum megin á sjalinu. Haldið áfram að prjóna eftir A.2, A.3 og A.4 alveg eins. Þegar mynstureiningin hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 197 l á prjóni. Þegar A.2-A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 229 l á prjóni. Nú er mynstureining A.3 skipt út fyrir mynstureiningu A.5, að auki hefur nú aukist út og nú er pláss fyrir 2 auka mynstureiningar af A.5 hvoru megin á sjalinu. Prjónið nú eftir mynstri A.2, A.5 og A.4 og bætið inn fleiri mynstureiningum af A.5 jafnóðum og plássið eykst. Prjónið svona þar til A.5 hefur verið prjónað alls 6 sinnum á hæðina. Nú eru 325 l á prjóni og lykkjufjöldinn er enn deilanlegur með 8 + 5. Í næstu umf frá réttu er prjónað áfram án einingar með útaukningu þannig: Prjónið 2 l sl í fyrstu l, síðan * 4 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* 8 sinnum, 97 l sl, endurtakið frá *-* 8 sinnum. Prjónið 2 l sl í miðjulykkju, endurtakið frá *-* 8 sinnum, 97 l sl, endurtakið frá *-* 8 sinnum og endið á að prjóna 2 l í síðustu l = 360 l á prjóni, lykkjufjöldinn er nú deilanlegur með 8. Prjónið 1 umf sl frá röngu, uppslátturinn frá fyrri umf er prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Nú er kantur prjónaður á sjalið. KANTUR: Snúið ekki við, heldur fitjið upp 14 nýjar l fyrir kant á sjali frá röngu. Snúið við, prjónið 1 umf slétt yfir þessar 14 nýju l. Snúið við. Prjónið nú eftir mynstri A.6 yfir þessar l frá röngu (1. umf í mynstri = ranga). ATH! Í hverri umf frá réttu eru síðustu l prjónaðar saman með næstu lausu l í sjalinu – þannig verður kanturinn stífari á sjalinu. Í næstu umf er 1. l tekin óprjónuð eins og prjóna eigi hana br. Haldið nú áfram að prjóna A.6 meðfram öllum kantinum á sjalinu = 43 takkar meðfram kanti. Klippið frá og festið enda. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #butterflydanceshawl eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 153-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.