Laelia skrifaði:
Au moment de faire au autre bonhomme, faut-il refaire les bras et les jambes aussi ?
17.12.2014 - 10:59DROPS Design svaraði:
Bonjour Laelia, on réalise effectivement 2 bonshommes identiques que l'on crochète ensuite ensemble (voir § "Assemblage" à la fin). Bon crochet!
17.12.2014 - 16:42Yvonne Felfalusi skrifaði:
Your pattern says that recommended yarn is Drops Safran no.22. How can it be that this yarns colour is not even close to that colour I see on the picture next to pattern? I do not mean it is another shade. It is another colour! !!Which kind of yarn and which coloure is that piece made of?
30.10.2014 - 08:15DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Felfalusi, there will always be a small difference with the picture of the color and picture where the model appears depending on the light when taking the picture. For any tip & advice about the colour, please contact your DROPS store. Happy crocheting!
30.10.2014 - 13:48
Monika skrifaði:
Really beautiful :-))
14.12.2013 - 23:40
Sylvie skrifaði:
Excellente idée !!!
14.12.2013 - 09:54Bettina skrifaði:
Lovely!
14.12.2013 - 05:22
Gingy#dropsgingy |
|
![]() |
![]() |
Heklaður piparkökukarl úr 2 þráðum DROPS Safran. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-999 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Allar umf byrja á 1 ll, heklið fl í hverja fl í umf. HEKLAÐ SAMAN: Heklið 1 fl en bíðið með að draga þráðinní gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næstu fl (eða næstu 2 fl alveg eins), en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni = 1 fl á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PIPARKÖKUKARL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka, efst á höfði og niður að fótum, handleggirnir eru síðan heklaðir frá fram- og bakstykki. PIPARKÖKUKARL: UMFERÐ 1: Heklið 5 ll með 2 þráðum Safran með heklunál nr 4, snúið við og heklið 2 fl í 2. ll frá heklunálinni, 1 fl í hvora af næstu 2 ll, 2 fl í síðustu ll = 6 fl, snúið við. UMFERÐ 2: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 2 fl í 1. fl, 1 fl í hverja fl þar til 1 fl er eftir, 2 fl í síðustu fl = 8 fl, snúið við. UMFERÐ 3: Heklið 1 fl í hverja fl = 8 fl, snúið við. UMFERÐ 4: Heklið 2 fl í 1. fl, 1 fl í hverja fl þar til 1 fl er eftir, 2 fl í síðustu fl = 10 fl, snúið við. UMFERÐ 5-7: Heklið 1 fl í hverja fl = 10 fl, snúið við. UMFERÐ 8: Heklið fyrstu 2 fl saman – LESIÐ HEKLAÐ SAMAN, 1 fl í hverja af næstu 6 fl, heklið síðustu 2 fl saman = 8 fl, snúið við. UMFERÐ 9: Heklið fyrstu 2 fl saman, 1 fl í hverja af næstu 4 fl, heklið síðustu 2 fl saman = 6 fl, snúið við. UMFERÐ 10: Heklið 3 ll, 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, 1 fl í næstu ll, 1 fl í hverja af næstu 6 fl = 8 fl, snúið við. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (öxl, hér byrjar handleggurinn síðar). UMFERÐ 11: Heklið 3 ll, 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, 1 fl í næstu ll, 1 fl í hverja af næstu 8 fl = 10 fl, snúið við. Setjið 1 prjónamerki í byrjun næstu umf (öxl, hér byrjar handleggurinn síðar). UMFERÐ 12-14: Heklið 1 fl í hverja fl = 10 fl, snúið við. UMFERÐ 15: Heklið 2 fl í 1. fl, 1 fl í hverja fl þar til 1 fl er eftir, 2 fl í síðustu fl = 12 fl, snúið við. UMFERÐ 16: Heklið 1 fl í hverja fl = 12 fl, snúið við. UMFERÐ 17: Heklið 2 fl í 1. fl, 1 fl í hverja fl þar til 1 fl er eftir, 2 fl í síðustu fl = 14 fl, snúið við. UMFERÐ 18-20: Heklið 1 fl í hverja fl = 14 fl, snúið við. Heklið nú 1 fót þannig: UMFERÐ 21: Heklið 1 fl í hverja og eina af fyrstu 5 fl í umf, heklið næstu 2 fl saman = 6 fl (7 fl eftir hinum megin í umf), snúið við. UMFERÐ 22-24: Heklið 1 fl í hverja fl = 6 fl, snúið við. UMFERÐ 25: Heklið fyrstu 2 fl saman, 1 fl í hvora af næstu 2 fl, heklið síðustu 2 fl saman = 4 fl, snúið við. UMFERÐ 26: Heklið allar fl 2 og 2 saman = 2 fl, klippið frá og festið enda. Endurtakið umf 21-26 hinum megin = 1 fótur til viðbótar. HANDLEGGUR: Stykkið er heklað fram og til baka. Með 2 þráðum Safran, heklið 5 fl (ca 1 fl í hverri umf) frá prjónamerki á öxl í annarri hliðinni, snúið við. Heklið nú 5 umf með 1 fl í hverja fl (alls 6 umf fl). Næsta umf er hekluð þannig: Heklið fyrstu 2 fl saman, 1 fl í næstu fl, heklið síðustu 2 fl saman = 3 fl, snúið við. Heklið 3 fl saman = 1 fl, klippið frá og festið enda. Endurtakið alveg eins í hinni hliðinni. Heklið annan piparkökukarl til viðbótar á sama hátt (= bakstykki). LYKKJA: Með litnum skærrauður Paris, heklið 1 kl í boga á milli miðju 2 fl efst á höfði á bakstykki, heklið nú ll í ca 12 cm, endið á 1 kl í sömu fl, klippið frá og festið enda. SLAUFA: Stykkið er heklað fram og til baka frá miðju og út á hlið. Með litnum skærrauður Paris, heklið 2 ll, * 3 fl í 1. ll sem hekluð var, snúið við og heklið 1 fl í hverja fl = 3 fl *, klippið frá og festið enda. Snúið við og endurtakið frá *-* 1 sinni – þ.e.a.s. að nú er heklað hinum megin á slaufunni, klippið frá og haldið eftir 20 cm fyrir frágang. Kl með þræði fyrir miðju á slaufu, snúið í kringum miðju 2 sinnum með þræðinum, herðið að og festið. FRÁGANGUR: Saumið slaufuna á milli höfuðs og fram- og bakstykki á framstykki. Með litnum natur Paris eru augun saumuð út og munnur á höfuð, saumið með smáu spori neðst á fæturna og neðst á handleggjum, gerið 2 hnúta á fram- og bakstykki fyrir tölur, sjá mynd. Leggið fram- og bakstykki ofan á hvort annað með röngu á móti röngu, heklið saman með 2 þráðum Safran þannig: Heklið 1 kl undir öðrum handleggnum í gegnum bæði stykkin, * 2 ll, hoppið yfir ca 1 cm, 1 kl yst í lykkjubogann í gegnum bæði stykkin *, endurtakið frá *-* í kringum allan piparkökukarlinn. Endið á 1 kl í 1. ll undir handlegg, klippið frá og festið enda. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropsgingy eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 5 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-999
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.