Csil skrifaði:
Très très très joli ! :)
31.05.2013 - 14:01
Louise P skrifaði:
Beautiful hat.
30.05.2013 - 22:57
KRYSTYNA skrifaði:
Klasyka
30.05.2013 - 20:30
Lilian Simonsen skrifaði:
So elegant - depending on color it can be used to all kinds of coats.
30.05.2013 - 18:29
Mahel skrifaði:
Nice!!
30.05.2013 - 18:16
Morgenrot skrifaði:
Nice hat and interesting structure! Wrong colour...can be much spectacular!!
30.05.2013 - 16:58Hettybell skrifaði:
Please add this to magazine i can sell lots of these ...thanku
30.05.2013 - 16:56
Inge skrifaði:
Gut behütet
30.05.2013 - 16:38
Jutta skrifaði:
Very nice hat
30.05.2013 - 16:08
Birgit Hansson skrifaði:
Stilig i stickat!
30.05.2013 - 15:35
Dublin#dublinset |
|
![]() |
![]() |
Heklaðir vettlingar og hattur með keðjulykkjum úr DROPS Snow
DROPS 151-32 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLAÐ Í HRING: Eftir síðustu l í umf, haldið áfram að næstu umf með 1 l í næstu l (= fyrsta l í næstu umf). ATH: Merkið byrjun á umf með prjónamerki á milli síðustu l í umf og fyrstu l í næstu umf, látið prjónamerkið fylgja með stykkinu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HATTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður. HATTUR: Heklið 4 ll með heklunál nr 7 með litnum ljós beige og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið framan í lykkjubogann ef ekki stendur annað í umf. UMFERÐ 1: LESIÐ HEKLAÐ Í HRING! Heklið 9-9 fl um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 1 kl í hverja fl umf hringinn. UMFERÐ 3: Heklið 1 kl og 1 ll í hverja kl umf hringinn = 18-18 l. UMFERÐ 4: Heklið 1 kl í hverja kl og 1 kl í hverja ll umf hringinn = 18-18 kl. UMFERÐ 5: * Heklið 1 kl í fyrstu kl, í næstu kl er hekluð 1 kl og 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 27-27 l. UMFERÐ 6: Heklið 1 kl í hverja kl og 1 kl í hverja ll umf hringinn = 27-27 kl. UMFERÐ 7: * Heklið 1 kl í hvora af fyrstu 2 kl, í næstu kl er hekluð 1 kl og 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36-36 l. UMFERÐ 8: Heklið 1 kl í hverja kl og 1 kl í hverja ll umf hringinn = 36-36 kl. UMFERÐ 9: * Heklið 1 kl í hverja af fyrstu 3 kl, í næstu kl er heklað 1 kl og 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 45-45 l. UMFERÐ 10: Heklið 1 kl í hverja kl og 1 kl í hverja ll umf hringinn = 45-45 kl. UMFERÐ 11: * Heklið 1 kl í hverja af fyrstu 4 kl, í næstu kl er hekluð 1 kl og 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 54-54 l. UMFERÐ 12: Heklið 1 kl í hverja kl og 1 kl í hverja ll umf hringinn = 54-54 kl. UMFERÐ 13: * Heklið 1 kl í hverja af fyrstu 5 kl, í næstu kl er heklað 1 kl og 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 63-63 l. UMFERÐ 14: Heklið 1 kl í hverja og kl og 1 kl í hverja ll umf hringinn = 63-63 kl. AUKA UMF, HEKLIÐ BARA Í STÆRÐ L/XL: * Heklið 1 kl í hverja af fyrstu 6 kl, í næstu kl er hekluð 1 kl og 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 72 l. UMFERÐ 15: Skiptið yfir í litinn beige og heklið 1 kl aftan í lykkjubogann í hverja kl og 1 kl í hverja ll umf hringinn = 63-72 kl. UMFERÐ 16- 17: Heklið 1 kl aftan í lykkjubogann í hverja kl umf hringinn. UMFERÐ 18: * Heklið 1 kl í hverja af fyrstu 6-7 kl, í næstu kl er hekluð 1 kl og 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 72-81 l. UMFERÐ 19: Heklið 1 kl í hverja kl og 1 kl í hverja ll umf hringinn = 72-81 kl. UMFERÐ 20: * Heklið 1 kl í hverja af fyrstu 7-8 kl, í næstu kl er hekluð 1 kl og 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 81-90 l. UMFERÐ 21: Heklið 1 kl í hverja kl og 1 kl í hverja ll umf hringinn = 81-90 kl. UMFERÐ 22: Skiptið yfir í litinn móbrúnn og heklið 1 kl aftan í lykkjubogann á hverri kl og 1 kl í hverja ll umf hringinn. UMFERÐ 23- 24: Heklið 1 kl aftan í lykkjubogann á hverri kl umf hringinn. UMFERÐ 25- 28: Heklið 1 kl framan í lykkjubogann á hverri kl umf hringinn. UMFERÐ 29- 31: Heklið 1 kl aftan í lykkjubogann á hverri kl umf hringinn. UMFERÐ 32: Heklið * 1 kl aftan í lykkjubogann á hverja af fyrstu 8-9 kl, aftan í lykkjubogann á næstu kl er hekluð 1 kl og 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 90-99 l. UMFERÐ 33: Heklið 1 kl aftan í lykkjubogann í hverja kl og 1 kl í hverja ll umf hringinn = 90-99 kl. UMFERÐ 34: Heklið * 1 kl aftan í lykkjubogann í hverja af fyrstu 9-10 kl, aftan í lykkjubogann á næstu kl er hekluð 1 kl og 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 99-108 l. UMFERÐ 35- 40: Heklið 1 kl aftan í lykkjubogann á hverri kl og 1 kl í hverja ll umf hringinn = 99-108 kl. Klippið frá og festið enda. ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring frá stroffi og að fingrum. VETTLINGUR: LESIÐ HEKLAÐ Í HRING! Heklað er framan í lykkjubogann ef ekki stendur annað í umf. Heklið 28-32 lausar ll með heklunál nr 7 með litnum móbrúnn (ll-umf á að mælast ca 26-30 cm eða heklið að óskaðri lengd, sjálfur vettlingurinn verður ca 5/6 cm minni en ll-umferðin) og tengið í hring með 1 kl í 1. ll. Heklið 1 umf með kl í bogana sem eru á bakhlið ll-umf. Heklið nú 1 kl aftan í lykkjubogann í hverja kl umf hringinn þar til stykkið mælist 4-4 cm = 28-32 kl. Skiptið yfir í litinn beige og heklið 2 umf með kl aftan í lykkjubogann í hverja kl. Heklið nú 1 kl framan í lykkjubogann á hverri kl umf hringinn þar til stykkið mælist 8-8 cm. Heklið 2 umf með kl aftan í lykkjubogann í hverja kl. Skiptið yfir í litinn ljós beige og heklið 2 umf til viðbótar alveg eins. Heklið nú 1 kl í fremri lykkjubogann á hverri kl. Þegar stykkið mælist 15-15 cm er gert op fyrir þumal með því að hekla 5-7 lausar ll í byrjun umf, hoppið yfir næstu 5-7 kl og haldið áfram með kl hringinn eins og áður (opið fyrir þumal kemur til með að vera ca 4-6 cm, þetta mál er hægt að breyta með því að hekla fleiri eða færri ll, hoppið þá yfir jafnmargar kl sem heklaðar eru ll). Í næstu umf er hekluð 1 kl í hverja og eina af 5-7 ll sem heklaðar voru fyrir þumal = 28-32 kl. Haldið áfram hringinn alveg eins þar til stykkið mælist 26-27 cm, eða að óskaðri lengd (nú eru eftir ca 2-2 cm til loka). Fellið nú af með því að hoppa yfir aðra hverja kl umf hringinn = 14-16 kl. Heklið 1 umf án þess að fella af, heklið nú 1 umf JAFNFRAMT er lykkjum fækkað með því að hoppa yfir aðra hverja kl umf hringinn = 7-8 kl. Heklið 1 umf til viðbótar með úrtöku alveg eins. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru. Herðið að og festið vel. ÞUMALL: Heklið 10-14 kl í kringum opið á þumli með litnum ljós beige (1 kl í hverja og eina af þeim 5-7 sem hoppað var yfir og 1 kl í hverja af þeim 5-7 l sem heklaðar voru). Heklið kl hringinn eins og áður. Þegar þumallinn mælist ca 5-6 cm (eða að óskaðri lengd) heklið 1 umf með kl JAFNFRAMT er lykkjum fækkað með því að hoppa yfir aðra hverja kl = 5-7 kl eftir. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru. Herðið að og festið vel. Heklið annan vettling á sama hátt. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dublinset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 5 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 151-32
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.