Mona skrifaði:
Kjempefine :)
19.06.2013 - 14:09
Sissel skrifaði:
Burde være,sammen som 1 sett disse 2, m votter og sokker.
16.06.2013 - 13:31
Ingrid skrifaði:
Helt nyderlige, gleder meg til å strikke disse.
14.06.2013 - 11:12
Poinsot skrifaði:
J' adore ces chaussettes. J'ai hâte de m'enfaire une paire.
11.06.2013 - 20:30
Antje skrifaði:
Toll, würd' mich gern mal 'dranwagen...
10.06.2013 - 14:16Sharon skrifaði:
These socks are just beautiful.
08.06.2013 - 19:09
Hilda Andresen-Raidarsdottir skrifaði:
Elsker de
07.06.2013 - 22:44
Iréne skrifaði:
Jättefina strumpor!
04.06.2013 - 20:52Griselda skrifaði:
!Muy alegres calcetines para proteger del frío!
03.06.2013 - 20:22
Katrin skrifaði:
Oh wie schön! Diese Anleitung möchte ich haben !
01.06.2013 - 10:33
Winter Rose Socks#winterrosesocks |
|||||||
|
|||||||
Prjónaðir sokkar, prjónaðir frá tá og upp með norrænu mynstri úr DROPS Karisma. Stærð 35-43.
DROPS 150-5 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GALDRAHRINGUR: Til að koma í veg fyrir að það myndist gat í miðju, byrjaðu því með þessari aðferð: Haltu í þráðar endann með vinstri hönd og gerðu lykkju í kringum vinstri vísifingur (frá vinstri til hægri). Haltu í lykkjuna með vinstri þumli og vísifingri. Stinga þarf prjóninum í gegnum lykkjuna, sækja þráðinn frá dokkunni (þ.e.a.s. leggðu þráðinn 1 sinni yfir prjóninn frá þér), dragðu þráðinn til baka í gegnum lykkjuna, sláðu 1 sinni uppá prjóninn (þráðurinn liggur nú fyrir aftan og að þér) og dragðu uppsláttinn í gegnum lykkjuna á prjóninum, * stinga þarf prjóninum í gegnum lykkjuna, sláðu 1 sinni uppá prjóninn (þráðurinn liggur nú aftan við og að þér), dragðu uppsláttinn í gegnum lykkjuna, sláðu 1 nýjum uppslætti á prjóninn (aftan við og að þér) og dragðu uppsláttinn í gegnum ystu lykkjuna á hægri prjóni (þ.e.a.s. í síðustu lykkjuna sem var gerð) *, endurtakið frá *-* þar til 8-12-16 lykkjur eru í umferð. Prjónið síðan eins og útskýrt er í uppskrift – JAFNFRAMT er dregið í endann á þræðinum þannig að lykkjan dregst saman og gatið hverfur. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Allt mynstri er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1, þ.e.a.s. að fyrsta lykkja er prjónuð með litnum vínrauður, næsta lykkja með litnum ljós grár o.s.frv. LEIÐBEININGAR: Ef prjónfestan fylgir ekki fjölda lykkja á hæðina á 10 cm, kemur það til með að hafa áhrif á lengdina á sokknum með samanburð í útreikningum með útaukningu. Ef óskað er eftir fleiri umferðum á hæðina á hverja 10 cm er sokkurinn prjónaður aðeins lengri áður en útaukning byrjar. Ef óskað er eftir færri umferðum á hæðina á hverja 10 cm er sokkurinn prjónaður aðeins styttri áður en útaukning byrjar. STUTTAR UMFERÐIR YFIR HÆL: Prjónað er fram og til baka í mynstri eftir mynstur A.3, UMFERÐ 1 (= rétta): Prjóni þar til 1 lykkja er eftir, snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, herðið á þræði og prjónið þar til 1 lykkja er eftir, snúið við. UMFERÐ 3 (= rétta): Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, herðið á þræði og prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, snúið við. UMFERÐ 4 (= ranga): Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, herðið á þræði og prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, snúið við. Haldið áfram með stuttar umferðir á hæl á sama hátt þar til 13-15-17 lykkjur eru eftir fyrir miðju á prjóni. Setjið 1 prjónamerki. Haldið áfram fram og til baka, en nú er prjónuð 1 lykkja fleiri fyrir hverja umferð yfir hæl. Til að koma í veg fyrir göt í skiptingum er þræðinum lyft á undan lykkjunni sem prjónuð er áfram upp og lykkjan er sett snúin á prjóninn (þræðinum sem lyft er upp, á að vera í sama lit og sú lykkja sem er prjónuð saman við). Prjónið þráðinn saman með næstu lykkju (frá réttu er þráðurinn og lykkjan prjónað slétt saman, frá röngu er þráðurinn og lykkjan prjónað brugðið saman). Prjónið svona þar til prjónað hefur verið yfir allar lykkjur á hæl. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, frá tá og upp. SOKKUR. Byrjið með litnum vínrauður og GALDRAHRINGUR - lesið útskýringu að ofan = 8-12-16 lykkjur skipt á 2 sokkaprjóna (það eiga að vera 5-7-9 lykkjur á fyrsta prjóni (= ofan á fæti) og 3-5-7 lykkjur á öðrum prjóni (= undir fæti). Setjið 1 prjónamerki í 1. lykkju í byrjun umferðar og 1 prjónamerki í 5.- 7.- 9. lykkju á fyrsta prjóni (= 2 prjónamerki). Síðan er mynstur prjónað í hring eftir mynsturteikningu A.1. Lykkjur með prjónamerki eiga að vera með litnum vínrauður. JAFNFRAMT í 1. umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við báðar lykkjur með prjónamerki – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu í hverri umferð, 5 sinnum til viðbótar (= alls 6 sinnum), síðan í annarri hverri umferð alls 4 sinnum = 48-52-56 lykkjur (þ.e.a.s. 25-27-29 lykkjur ofan á fæti og 23-25-27 lykkjur undir fæti). Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.1 (= 2 lykkjur), prjónið mynstur eftir A.2 (sjá merki fyrir rétta stærð = 21-23-25 lykkjur), prjónið síðan mynstur eftir mynsturteikningu A.3 yfir 25-27-29 lykkjur sem eftir eru (þ.e.a.s. rendur frá tá halda áfram undir fæti og prjónamerki er enn staðsett í lykkju með litnum vínrauður hvoru megin ofan á fæti). Þegar stykkið mælist ca 14-16-19 cm frá tá (nú eru ca 8 cm að loka máli) – LESIÐ LEIÐBEININGAR, aukið út um 1 lykkju á undan fyrra prjónamerki og 1 lykkjur á eftir seinna prjónamerki (þ.e.a.s. neðan á sokknum) – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.3). Endurtakið útaukningu í annarri hverri umferð 7 sinnum til viðbótar (= alls 8 útaukningar í hvorri hlið) = 64-68-72 lykkjur á prjóni (þ.e.a.s. 25-27-29 lykkjur ofan á fæti og 39-41-43 lykkjur undir fæti). Setjið 25-27-29 miðjulykkjur ofan á fæti + 8 útauknar lykkjur hvoru megin við þær á þráð = 23-25-27 lykkjur eftir á prjóni fyrir hæl. Prjónið nú STUTTAR UMFERÐIR YFIR HÆL yfir 23-25-27 lykkjur - lesið útskýringu að ofan. Eftir stuttar umferðir yfir hæl er haldið áfram með A.3 fram og til baka yfir 23-25-27 lykkjur á hæl – JAFNFRAMT í lok hverrar umferðar (bæði frá réttu og frá röngu), prjónið síðustu lykkju í umferð saman með síðustu lykkju af þræði (frá réttu eru prjónaðar 2 lykkjur snúnar slétt saman og frá röngu eru prjónaðar 2 lykkjur brugðið saman). Haldið svona áfram fram og tilbaka þar til síðustu 8 lykkjur hvoru megin við þráðinn hafa verið prjónaðar saman með síðustu lykkju á hæl. Setjið til baka 25-27-29 lykkjur sem eftir eru af þræði á prjóninn = 48-52-56 lykkjur á prjóni. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.1 (= 2 lykkjur), haldið áfram með A.2 yfir næstu 21-23-25 lykkjur eins og áður, prjónið A.3 (= 2 lykkjur), prjónið A.4A yfir næstu 22-24-26 lykkjur JAFNFRAMT í stærð 35/37 er aukið út um 2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur og í stærð 41/43 er fækkað um 2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur þannig að mynstrið gangi jafnt upp (aukið / fækkið ekki lykkjum í stærð 38/40), endið umferð á A.4B (= 1 lykkja) = 50-52-54 lykkjur á prjóni. Haldið áfram með mynstur hringinn. Þegar sokkurinn mælist ca 18-19-16 cm frá prjónamerki á hæl (styttra mál í stærri stærðum vegna lendar á fæti) – endið mynstur eftir merktri lykkju með ör í mynstri (veljið ör fyrir rétta stærð – mynstur A.2 kemur þá til með að enda með hálfu eða heilu blómi), prjónið 1 umferð með litnum vínrauður yfir allar lykkjur. Prjónið 1 umferð með litnum ljós grár JAFNFRAMT er aukið út um 4-8-6 lykkjur jafnt yfir = 54-60-60 lykkjur. Prjónið nú mynstur eftir mynsturteikningu A.5 (= 9-10-10 mynstureiningar í umferð). Þegar A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er skipt yfir í litinn vínrauður. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stroffið mælist 2 cm er fellt laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Sokkurinn mælist ca 24-25-22 cm á hæðina frá prjónamerki á hæl. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterrosesocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 14 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 150-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.