DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8008.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 150-1
DROPS Design: Mynstur nr u-708
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
450-500-550-600-650-700 gr litur nr 44, ljós grár
100-100-100-100-100-100 gr litur nr 48, vínrauður
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 01, natur
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 16, dökk grár

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3 – fyrir stroff.
DROPS TALA, NR 534: 9 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8008.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Prjónið mynstur A.1 til A.3. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

ÚRTAKA-1 (á við um fram- og bakstykki):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

ÚRTAKA-2 (á við um úrtöku á berustykki):
Öll úrtaka er gerð frá réttu.
Byrjið 3 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: Prjónið 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

ÚTAUKNING:
Öll útaukning er gerð frá réttu.
Aukið út um 1 l með því að taka upp l frá fyrri umf, prjónið l slétt.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 2, 9, 16, 23, 30, 37, 44, 51 og 58 cm.
STÆRÐ M: 2, 9, 16, 23, 30, 37, 44, 52 og 60 cm.
STÆRÐ L: 2, 10, 17, 25, 32, 40, 47, 55 og 62 cm.
STÆRÐ XL: 2, 10, 18, 26, 34, 42, 50, 57 og 64 cm.
STÆRÐ XXL: 2, 10, 18, 26, 34, 42, 50, 58 og 66 cm.
STÆRÐ XXXL: 2, 10, 18, 26, 34, 42, 50, 59 og 68 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 214-235-256-277-305-333 l (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3 með litnum vínrauður. Prjónið 1 umf br frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 l sl, 2 l br, 1 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* þar til 6 l eru eftir á prjóni og endið á 1 l sl og 5 kantlykkjum að framan í GARÐAPRJÓN. Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 3 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umf frá réttu er öllum 3 l br fækkað í 2 l br = 185-203-221-239-263-287 l á prjóni. Setjið 2 prjónamerki í stykkið, 49-53-58-62-68-74 l inn frá hvorri hlið (= 87-97-105-115-127-139 l á milli prjónamerkja á bakstykki). Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 1 umf br frá röngu með litnum vínrauður (kantur að framan í garðaprjóni). Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið mynstur eftir A.1 þar til 6 l eru eftir á prjóni, prjónið 1. l í A.1 (þannig að mynstrið verði alveg eins á báðum megin við miðju að framan) og endið á 5 kantlykkjum að framan. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er haldið áfram í sléttprjóni með litnum ljós grár (kantur að framan er áfram í garðaprjóni). Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA-1 (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 15 og 22 cm = 173-191-209-227-251-275 l. Þegar stykkið mælist 28 cm aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 2½-2½-3-3-3½-3½ cm millibili 2 sinnum til viðbótar (= alls 3 sinnum) = 185-203-221-239-263-287 l. Þegar stykkið mælist ca 35-36-37-38-39-40 cm – stillið af að næsta umf sé frá röngu, fellið af miðju 10-10-10-12-12-12 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 5-5-5-6-6-6 l hvoru megin við bæði prjónamerkin) = 77-87-95-103-115-127 l eftir á bakstykki og 44-48-53-56-62-68 l á hvoru framstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 56-56-56-63-63-63 l á sokkaprjóna nr 3 með litnum vínrauður.
Prjónið 1 umf slétt. Prjóni nú stroff þannig: * Prjónið 1 l sl, 2 l br, 1 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* umf hringinn. Þegar stroffið mælist ca 3 cm er fækkað öllum 3 l br til 2 l br = 48-48-48-54-54-54 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi). Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið 1 umf slétt með litnum vínrauður. Prjónið nú mynstur hringinn eftir A.1. Eftir A.1 er haldið áfram í sléttprjóni og ljós grár. Þegar stykkið mælist 8-9-6-9-12-10 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING.
Endurtakið útaukningu með 2½-2-2-2-1½-1½ cm millibili, 12-14-16-14-16-18 sinnum til viðbótar (= alls 13-15-17-15-17-19 sinnum) = 74-78-82-84-88-92 l. Þegar stykkið mælist 41-41-40-40-39-39 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), fellið af 10-10-10-12-12-12 l fyrir miðju undir ermi (þ.e.a.s. fellið af 5-5-5-6-6-6 l hvoru megin við prjónamerki) = 64-68-72-72-76-80 l eftir á prjóni.
Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón eins og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir ermar = 293-319-345-359-391-423 l.
Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Byrjið frá réttu og prjónið síðan sléttprjón með litnum ljós grár JAFNFRAMT í fyrstu umf er lykkjum fækkað hvoru megin við 4 prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA-2 (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu), 6-7-9-6-7-9 sinnum til viðbótar (= alls 7-8-10-7-8-10 sinnum) = 237-255-265-303-327-343 l. Eftir síðustu úrtöku er prjónuð 1 umf br frá röngu (kantur að framan í garðaprjóni) JAFNFRAMT er fækkað um 10-4-14-4-4-20 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan) = 227-251-251-299-323-323 l á prjóni. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið eftir mynstri A.2 (veldu mynstur fyrir þína stærð) þar til 6 l eru eftir á prjóni, prjónið 1. l í A.2 (þannig að mynstrið verði eins báðum megin við miðju að framan) og endið á 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með mynstur og úrtöku þar til A.2 hefur verið prjónað á hæðina = 146-161-161-179-193-193 l eftir á prjóni. Prjónið 1 umf slétt frá réttu með ljós grár JAFNFRAMT er fækkað um 30-39-39-45-47-47 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan) = 116-122-122-134-146-146. Prjónið 1 umf br frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjónið eins og áður, prjónið mynstur eftir A.3 þar til 6 l eru eftir á prjóni, endið á 1. l í A.3 og 5 kantlykkjum að framan eins og áður. Eftir A.3 er prjónuð 1 umf br frá röngu með litnum vínrauður.

HÁLSMÁL:
Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og haldið áfram með litnum vínrauður þannig (1. umf = rétta): Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 6 l eru eftir á prjóni og endið á 1 l sl og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff – munið eftir síðasta hnappagatinu í hægri kanti að framan/hálsmál. JAFNFRAMT eftir 2 umf með stroff er prjónuð upphækkun við hnakka með stuttum umferðum þannig: Prjónið stroff (og kant að framan) eins og áður þar til 35-35-38-38-41-41 l er eftir, snúið við og prjóni stroff til baka þar til 35-35-38-38-41-41 l eru eftir í annarri hliðinni. Snúið við og prjónið stroff þar til 41-41-44-44-47-47 l eru eftir, snúið við og prjónið stroff til baka þar til 41-41-44-44-47-47 l eru eftir í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið stroff þar til 44-44-47-47-50-50 l eru eftir, snúið við og prjónið stroff til baka þar til 44-44-47-47-50-50 l eru eftir í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið stroff út umf. Haldið nú áfram með stroff fram og til baka yfir allar l eins og áður þar til stroffið mælist ca 3 cm þar sem það er minnst við miðju að framan. Í næstu umf frá réttu er öllum 2 l br fækkað í 1 l br (byrjið á 2 fyrstu l br á eftir kant að framan) = 98-103-103-113-113-123-123 l eftir á prjóni. Fellið nú laust af með sl yfir sl og br yfir br. Berustykkið mælist nú ca 25-26-27-28-29-30 cm með kanti í hálsmáli og öll peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 07.11.2013
Ný skýringarmynd A.2 S+M+L (breyting neðst í mynstri)

Mynstur

symbols = ljós grár
symbols = vínrauður
symbols = natur
symbols = dökk grár
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 150-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (91)

country flag ROLLAND Antoinette wrote:

Bonjour, Je ne comprends pas la répartition des diminutions de l'emplacement : 10-4 14-4 4-20. D'après le compte il faut diminuer 94 mailles en tout. Mis comment ?

16.11.2023 - 11:25

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rolland, on diminue d'abord pour un raglan de quelques rangs, puis on tricote A.1. Quand A.1 est terminé, on diminue encore 1 fois, mais à intervalles réguliers - cf cette leçon, puis on va tricoter A.2 la majorité des diminutions de l'empiècement se font dans le diagramme A.2 (que l'on commence sur 24 mailles et dont il reste 15 ou 14 mailles selon la taille. Après A.2 on va de nouveau tricoter 1 rang en diminuant à intervalles réguliers, puis on tricote A.3 et on termine par le col. Bon tricot!

17.11.2023 - 07:54

country flag Malin wrote:

Okej, tack för snabbt svar :)

08.02.2021 - 20:12

country flag Malin wrote:

Hej! Undrar om det stämmer att det i stl L ska börja ökas på ärmen redan efter 6cm? I alla de andra stl börjar det ökas senare. Med vänlig hälsning, Malin

07.02.2021 - 22:00

DROPS Design answered:

Hei Malin. Ja, det stemmer. Det er fordi man skal ha det riktige antall masker når økning og lengden på ermen er ferdig strikket. mvh DROPS design

08.02.2021 - 14:24

country flag Nicole Anconina wrote:

Merci pour cette réponse rapide: je vais pouvoir continuer aussitôt!

08.05.2020 - 13:16

country flag Nicole Anconina wrote:

Bonjour, j'en suis au 1er rang de l'empiècement, je dois commencer le jacquard mais aussi continuer les diminutions du raglan. Il y a donc interruption des motifs. Comment faire? D'autre part, les diminutions notées sur le diagramme doivent-elles répétées sur tout le rang (ex: rang 19, toutes les 24 mailles) Merci d'avance

07.05.2020 - 20:50

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Anconina, vous ne tricoterez le diagramme A.2 pour le jacquard que lorsque toutes les diminutions du raglan seront faites (+ encore 1 rang sur l'envers où on va répartir des diminutions à intervalles réguliers). Autrement dit, tricotez d'abord les diminutions du raglan + le rang de diminutions (= vous avez entre 227 et 323 m selon la taille), puis vous tricotez le jacquard. Les diminutions sont comprises dans le diagramme: on passe de 24 m à 14 ou 15 m en fonction de la taille (= entre 146 et 193 m), et au rang après A.2, on va de nouveau diminuer à intervalles réguliers pour qu'il ne reste que 116 à 146 m. Bon tricot!

08.05.2020 - 08:56

country flag Randi wrote:

Denne har ikke rundfelling som det står i øverste linje, men raglanfelling. Dette utgjør stor forskjell pga mønsteret. Det blir direkte misvisende og lite pent resultat. Her bør det skjerpes. Er ikke helt ferdig, men den likner ikke bildet verken i lengde eller felling, sålangt. Er ganske skuffet.

05.03.2020 - 21:41

country flag Helen Fountain wrote:

Would like to receive the pattern please.

24.07.2019 - 00:17

country flag Helen wrote:

Would like the pattern please. Thank you.

24.07.2019 - 00:15

country flag Anne Brouwer wrote:

Hoe kun je blijven minderen in de pas dat het patroon goed komt. Voor de raglan dus

02.01.2019 - 15:05

DROPS Design answered:

Dag Anne,

Het patroon begint pas nadat je de raglanminderingen gemaakt hebt.

06.01.2019 - 13:52

country flag Ineke wrote:

Ik wil dit vest breien met Cotton Merino omdat ik allergisch ben voor wol. Met welke kleur kan ik het beste de rode kleur vervangen?

24.09.2018 - 10:35

DROPS Design answered:

Dag Ineke, Wijnrood 07 komt volgens mij het meest in de buurt. Het beste is om even de kleuren te bekijken in een winkel bij je in de buurt, want het hangt natuurlijk ook een beetje van je smaak af :)

26.09.2018 - 14:06