DROPS Children 49 · Fullt af nýrri hönnun fyrir börn!
Product image DROPS Karisma yarn
DROPS Karisma
100% Ull
frá 660.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2640.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425
DROPS 150-5

#winterrosesocks

DROPS Design: Mynstur nr u-709
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: 35/37 - 38/40 - 41/43
Lengd fótar: 22 - 24 - 27 cm

GARN:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
100-100-100 gr litur nr 48, vínrauður
100-100-100 gr litur nr 44, ljós grár

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 l og 30 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 660.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2640.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GALDRAHRINGUR:
Til að koma í veg fyrir að það myndist gat í miðju, byrjaðu því með þessari aðferð:
Haltu í þráðar endann með vinstri hönd og gerðu lykkju í kringum vinstri vísifingur (frá vinstri til hægri). Haltu í lykkjuna með vinstri þumli og vísifingri. Stinga þarf prjóninum í gegnum lykkjuna, sækja þráðinn frá dokkunni (þ.e.a.s. leggðu þráðinn 1 sinni yfir prjóninn frá þér), dragðu þráðinn til baka í gegnum lykkjuna, sláðu 1 sinni uppá prjóninn (þráðurinn liggur nú fyrir aftan og að þér) og dragðu uppsláttinn í gegnum lykkjuna á prjóninum, * stinga þarf prjóninum í gegnum lykkjuna, sláðu 1 sinni uppá prjóninn (þráðurinn liggur nú aftan við og að þér), dragðu uppsláttinn í gegnum lykkjuna, sláðu 1 nýjum uppslætti á prjóninn (aftan við og að þér) og dragðu uppsláttinn í gegnum ystu lykkjuna á hægri prjóni (þ.e.a.s. í síðustu lykkjuna sem var gerð) *, endurtakið frá *-* þar til 8-12-16 lykkjur eru í umferð. Prjónið síðan eins og útskýrt er í uppskrift – JAFNFRAMT er dregið í endann á þræðinum þannig að lykkjan dregst saman og gatið hverfur.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Allt mynstri er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1, þ.e.a.s. að fyrsta lykkja er prjónuð með litnum vínrauður, næsta lykkja með litnum ljós grár o.s.frv.

LEIÐBEININGAR:
Ef prjónfestan fylgir ekki fjölda lykkja á hæðina á 10 cm, kemur það til með að hafa áhrif á lengdina á sokknum með samanburð í útreikningum með útaukningu. Ef óskað er eftir fleiri umferðum á hæðina á hverja 10 cm er sokkurinn prjónaður aðeins lengri áður en útaukning byrjar. Ef óskað er eftir færri umferðum á hæðina á hverja 10 cm er sokkurinn prjónaður aðeins styttri áður en útaukning byrjar.

STUTTAR UMFERÐIR YFIR HÆL:
Prjónað er fram og til baka í mynstri eftir mynstur A.3,
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjóni þar til 1 lykkja er eftir, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, herðið á þræði og prjónið þar til 1 lykkja er eftir, snúið við.
UMFERÐ 3 (= rétta): Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, herðið á þræði og prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, snúið við.
UMFERÐ 4 (= ranga): Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, herðið á þræði og prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, snúið við.
Haldið áfram með stuttar umferðir á hæl á sama hátt þar til 13-15-17 lykkjur eru eftir fyrir miðju á prjóni. Setjið 1 prjónamerki. Haldið áfram fram og til baka, en nú er prjónuð 1 lykkja fleiri fyrir hverja umferð yfir hæl. Til að koma í veg fyrir göt í skiptingum er þræðinum lyft á undan lykkjunni sem prjónuð er áfram upp og lykkjan er sett snúin á prjóninn (þræðinum sem lyft er upp, á að vera í sama lit og sú lykkja sem er prjónuð saman við). Prjónið þráðinn saman með næstu lykkju (frá réttu er þráðurinn og lykkjan prjónað slétt saman, frá röngu er þráðurinn og lykkjan prjónað brugðið saman). Prjónið svona þar til prjónað hefur verið yfir allar lykkjur á hæl.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, frá tá og upp.

SOKKUR.
Byrjið með litnum vínrauður og GALDRAHRINGUR - lesið útskýringu að ofan = 8-12-16 lykkjur skipt á 2 sokkaprjóna (það eiga að vera 5-7-9 lykkjur á fyrsta prjóni (= ofan á fæti) og 3-5-7 lykkjur á öðrum prjóni (= undir fæti). Setjið 1 prjónamerki í 1. lykkju í byrjun umferðar og 1 prjónamerki í 5.- 7.- 9. lykkju á fyrsta prjóni (= 2 prjónamerki). Síðan er mynstur prjónað í hring eftir mynsturteikningu A.1. Lykkjur með prjónamerki eiga að vera með litnum vínrauður. JAFNFRAMT í 1. umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við báðar lykkjur með prjónamerki – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu í hverri umferð, 5 sinnum til viðbótar (= alls 6 sinnum), síðan í annarri hverri umferð alls 4 sinnum = 48-52-56 lykkjur (þ.e.a.s. 25-27-29 lykkjur ofan á fæti og 23-25-27 lykkjur undir fæti).
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.1 (= 2 lykkjur), prjónið mynstur eftir A.2 (sjá merki fyrir rétta stærð = 21-23-25 lykkjur), prjónið síðan mynstur eftir mynsturteikningu A.3 yfir 25-27-29 lykkjur sem eftir eru (þ.e.a.s. rendur frá tá halda áfram undir fæti og prjónamerki er enn staðsett í lykkju með litnum vínrauður hvoru megin ofan á fæti). Þegar stykkið mælist ca 14-16-19 cm frá tá (nú eru ca 8 cm að loka máli) – LESIÐ LEIÐBEININGAR, aukið út um 1 lykkju á undan fyrra prjónamerki og 1 lykkjur á eftir seinna prjónamerki (þ.e.a.s. neðan á sokknum) – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.3). Endurtakið útaukningu í annarri hverri umferð 7 sinnum til viðbótar (= alls 8 útaukningar í hvorri hlið) = 64-68-72 lykkjur á prjóni (þ.e.a.s. 25-27-29 lykkjur ofan á fæti og 39-41-43 lykkjur undir fæti).
Setjið 25-27-29 miðjulykkjur ofan á fæti + 8 útauknar lykkjur hvoru megin við þær á þráð = 23-25-27 lykkjur eftir á prjóni fyrir hæl.
Prjónið nú STUTTAR UMFERÐIR YFIR HÆL yfir 23-25-27 lykkjur - lesið útskýringu að ofan.
Eftir stuttar umferðir yfir hæl er haldið áfram með A.3 fram og til baka yfir 23-25-27 lykkjur á hæl – JAFNFRAMT í lok hverrar umferðar (bæði frá réttu og frá röngu), prjónið síðustu lykkju í umferð saman með síðustu lykkju af þræði (frá réttu eru prjónaðar 2 lykkjur snúnar slétt saman og frá röngu eru prjónaðar 2 lykkjur brugðið saman). Haldið svona áfram fram og tilbaka þar til síðustu 8 lykkjur hvoru megin við þráðinn hafa verið prjónaðar saman með síðustu lykkju á hæl. Setjið til baka 25-27-29 lykkjur sem eftir eru af þræði á prjóninn = 48-52-56 lykkjur á prjóni.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.1 (= 2 lykkjur), haldið áfram með A.2 yfir næstu 21-23-25 lykkjur eins og áður, prjónið A.3 (= 2 lykkjur), prjónið A.4A yfir næstu 22-24-26 lykkjur JAFNFRAMT í stærð 35/37 er aukið út um 2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur og í stærð 41/43 er fækkað um 2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur þannig að mynstrið gangi jafnt upp (aukið / fækkið ekki lykkjum í stærð 38/40), endið umferð á A.4B (= 1 lykkja) = 50-52-54 lykkjur á prjóni. Haldið áfram með mynstur hringinn.
Þegar sokkurinn mælist ca 18-19-16 cm frá prjónamerki á hæl (styttra mál í stærri stærðum vegna lendar á fæti) – endið mynstur eftir merktri lykkju með ör í mynstri (veljið ör fyrir rétta stærð – mynstur A.2 kemur þá til með að enda með hálfu eða heilu blómi), prjónið 1 umferð með litnum vínrauður yfir allar lykkjur. Prjónið 1 umferð með litnum ljós grár JAFNFRAMT er aukið út um 4-8-6 lykkjur jafnt yfir = 54-60-60 lykkjur.
Prjónið nú mynstur eftir mynsturteikningu A.5 (= 9-10-10 mynstureiningar í umferð). Þegar A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er skipt yfir í litinn vínrauður. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stroffið mælist 2 cm er fellt laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Sokkurinn mælist ca 24-25-22 cm á hæðina frá prjónamerki á hæl.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 02.01.2025
Uppskriftin hefur verið uppfærð. Leiðrétting á lengdarmáli fyrir útaukningu á hæl.

Mynstur

vínrauður = vínrauður
ljós grár = ljós grár
Diagram for DROPS 150-5
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterrosesocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 150-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (30)

country flag Margrét Inga Guðmundsdóttir skrifaði:

IS there something wrong with this pattern. I have tried many times and i can never get it right. After the increase for the toe i have never been able to get it correct under the foot. The first stich is red but the pattern (A3) says the first stich is supposed to be grey. I have tried allt sizes and cant get it to fit.

18.12.2024 - 22:37

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Guðmundsdóttir, make sure you get the correct number of stitches, then the pattern should fit nicely starting with A.1 (1 red, 1 grey), then 21-23-25 sts A.2 and then the next stitch should be a grey stitch from A.1/A.2 (the last stitch before the 2nd marker of the round) = 1st stitch A.3. Happy knitting!

20.12.2024 - 08:09

country flag Lena skrifaði:

Hallo, ich verstehe magic Circle leider nicht, gibt es vielleicht ein Video dazu? Viele Grüße

18.10.2024 - 22:01

DROPS Design svaraði:

Liebe Lena, hier finden Sie das Video für so einen Anschlag. Viel Spaß beim Stricken!

21.10.2024 - 07:46

country flag Anna skrifaði:

Nu kan jag svara på min egen fråga från 11 november! Jag stickade 12 cm innan jag började med ökningarna och fick då en socka som passar lite tight till en fot i storlek 37, så 12 cm verkar ge den minsta storleken. Och då borde måttet från tån när ökningarna ska börja alltså vara 12-15-17 cm i de olika storlekarna.

05.12.2023 - 15:48

country flag Anna skrifaði:

Det måste vara fel i beskrivningen. Stämmer verkligen längden när man ska böja med ökningar för hälen? Jag stickar mellanstorleken, där man ska börja med ökningar efter 19 cm. På fotografiet ser ökningarna ut att börja vid övre halvan av den 1:a blomman från tån, men när jag har stickat 19 cm är jag på ungefär samma ställe på blomma nummer 2. Och sockan ser ut att bli alldeles för lång, precis som många andra säger i sina kommentarer.

15.11.2023 - 09:31

DROPS Design svaraði:

Hej Anna, Vi skal høre med design om opskriften stemmer, i så fald skal vi skrive det tydeligere - hold øje her i opskriften :)

16.11.2023 - 14:43

country flag Susana Rodríguez-Vida skrifaði:

En la versión española de este patrón hay un error. En el párrafo que comienza "Trabajar la sig vta como sigue", FALTA indicar que, después de trabajar A.1 y A.2, hay que trabajar A.3 (para completar los 27 pts). Asimismo, donde dice "trabajar A4" debería decir "trabajar A.4A". Por cierto, gracias por este hermoso patrón.

11.11.2021 - 11:24

country flag Leena skrifaði:

I have knitted these, using the Karisma yarn, and will have to say it was time wasted. I could not get the gauge and the length of the foot to match properly, and had to unravel and try several times before the sock would NOT be a giant length! Also, the quality of the yarn was a VERY disappointing. After only a short time in use, I already had holes in the socks. I have had to darn them many times. This yarn is not made for wear! Fellow knitters, do not waste your time on this pattern or yarn.

03.01.2021 - 09:21

country flag Jolien skrifaði:

Vanaf welk moment worden de steken over 4 naalden verdeeld?

11.06.2018 - 09:56

DROPS Design svaraði:

Dag Jolien, Dat staat niet specifiek aangegeven, maar dat kan je doen hoe het jou het prettigst uitkomt. Dit kun je gelijk aan het begin doen, want dat breit het makkelijkst. Je verdeeld de steken over 3 naalden en je breit met de 4e naald.

12.06.2018 - 09:43

country flag Ella skrifaði:

Hei, kysyisin kantapään lyhennetyistä kerroksista, seuraavasta kohdasta: "Jatka tasoneuletta, mutta neulo nyt kantapään jokaisella krs:lla 1 s lisää." Tarkoittaako tämä, että neuletta jatketaan keskimmäisillä 17 s:lla, ja otetaan reunoissa neulomatta jätettyjä silmukoita takaisin neuleeseen?

17.04.2018 - 12:18

DROPS Design svaraði:

Kyllä, työhön otetaan jokaisella kerroksella 1 odottamassa oleva silmukka takaisin työhön.

17.04.2018 - 13:35

country flag Ella skrifaði:

Hei, kysyisin kantapään lyhennetyistä kerroksista, seuraavasta kohdasta:\r\n\"Jatka tasoneuletta, mutta neulo nyt kantapään jokaisella krs:lla 1 s lisää.\" Tarkoittaako tämä, että neuletta jatketaan keskimmäisillä 17 s:lla, ja otetaan reunoissa neulomatta jätettyjä silmukoita takaisin neuleeseen?\r\n

16.04.2018 - 11:17

country flag Hanne Kirstein skrifaði:

Sokken bliver aaalt for lang i foden, hvis man følger opskriften. Har nu opgivet.

24.12.2015 - 09:55