Andrea Ajl skrifaði:
Das ist so ziemlich das einzige Modell in dieser Kollektion, das mir wirklich gefällt.Schade!!!
09.06.2013 - 12:26
Dolly skrifaði:
Dit wordt een lievelingstrui.
09.06.2013 - 08:43
Vibeke Bøgelund skrifaði:
En rigtig smart sweater. Min teenagerdatter er vild med den og glæder sig allerede til opskriften kommer.
06.06.2013 - 09:46
Kirsten Nielsen skrifaði:
Meget flot sweater
05.06.2013 - 15:00
Jeanet skrifaði:
Goeie basic!!
03.06.2013 - 21:18
Isa skrifaði:
Ein schöner, moderner Pulli. Lässig und gemütlich. Würde ich gerne stricken.
03.06.2013 - 20:51
Eugenia skrifaði:
Carino e semplice!
03.06.2013 - 00:14Judy Wright skrifaði:
This jumper looks so snug and awesome at the same time. I love it :)
02.06.2013 - 06:39
Chantret Annie skrifaði:
Très joli pull d'une discrète élégance
01.06.2013 - 15:40
Petra skrifaði:
Den hätte ich sehr gerne.
01.06.2013 - 12:03
Storm#stormsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð með röndum úr DROPS Fabel og DROPS Symphony eða DROPS Fabel og DROPS Melody. Stærð S - XXXL
DROPS 149-15 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. RENDUR: Prjónið rendur með byrjun frá réttu þannig: *1 umf slétt með Fabel, 1 umf slétt Symphony eða Melody einnig frá réttu, snúið við, 1 umf br með Fabel, 1 umf br með Symphony eða Melody einnig frá röngu, snúið við *,endurtakið frá *-*. Sjá leiðbeiningar að neðan! LEIÐBEININGAR: Í hverri umf er skipt um þráð fyrir rendur með því að færa allar l yfir í hina hliðina á prjóninum og prjónað er þaðan. Með þessu þarf ekki að klippa frá eftir hverja rönd. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna með RENDUR – sjá útskýringu að ofan. FRAMSTYKKI: Fitjið LAUST upp 80-84-90-98-106-116 l (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjóna nr 6 með 2 þráðum af Fabel. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú sléttprjón með 1 þræði og rendur, ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið áfram þar til stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm, fellið af 1 l fyrir merkingu á handvegi í byrjun á 2 næstu umf = 78-82-88-96-104-114 l. Þegar stykkið mælist 38-40-42-44-46-48 cm, setjið miðju 12 l á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af í byrjun á hverri umf frá hálsmáli: 2 l 2-2-2-2-2-2 sinnum, 1 l 2-2-2-3-3-3 sinnum = 27-29-32-35-39-44 l eftir á öxl. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5 þegar stykkið mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm (passið uppá að síðasta umf sé með Fabel) og prjónið 2 umf garðaprjón með Symphony eða Melody. Fellið af, stykkið mælist ca 45-47-49-51-53-55 cm. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna með RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Fitjið LAUST upp 80-84-90-98-106-116 l (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjóna nr 6 með 2 þráðum af Fabel. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú sléttprjón með 1 þræði og rendur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið áfram þar til stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm, fellið af 1 l fyrir merkingu á handveg í byrjun á 2 næstu umf = 78-82-88-96-104-114 l. Þegar stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm, fellið af miðju 22-22-22-24-24-24 l af fyrir hálsmáli og hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 1 l í byrjun umf frá hálsmáli = 27-29-32-35-39-44 l eftir á öxl. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5 þegar stykkið mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm (passið uppá að síðasta umf er með Fabel) og prjónið 2 umf garðaprjón með Symphony. Fellið af þegar stykkið mælist ca 45-47-49-51-53-55 cm. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna með RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Fitjið upp 35-36-37-38-39-40 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 6 með 2 þráðum af Fabel. Prjónið 4 umf garðaprjón. Prjónið nú sléttprjón með 1 þræði og rendur JAFNFRAMT er prjónuð 1 kantlykkja í garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 8-8-8-8-8-8 cm, aukið út um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 9-7-5,5-4,5-4-3 cm millibili, 4-5-6-7-8-9 ggr til viðbótar (alls 5-6-7-8-9-10 sinnum) = 45-48-51-54-57-60 l. Þegar stykkið mælist ca 47-46-45-44-43-40 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) – passið uppá að síðasta umf sé með Fabel, skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5 og prjónið 2 umf með garðaprjóni með Symphony eða Melody. Fellið af, stykkið mælist ca 47-46-45-44-43-40 cm. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í við fram- og bakstykki. Saumið undirermasauma og hliðarsauma í eitt. Saumið í ysta lykkjubogann INNAN VIÐ 1 kantlykkju í garðaprjóni. HÁLSMÁL: Prjónið upp ca 58-65 l innan við l af þræði með Symphony eða Melody á hringprjóna nr 5,5. Prjónið sléttprjón í hring á hringprjóna. Fellið af þegar kanturinn mælist 4 cm. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #stormsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 12 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 149-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.