DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Fabel yarn
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 682.00 kr /50g
Product image DROPS Symphony yarn
DROPS Symphony
65% Ull, 35% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS AW2425
Velja stærð:
DROPS 149-15

#stormsweater

DROPS Design: Mynstur nr ww-084
Garnflokkur A+D
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SYMPHONY frá Garnstudio
300-300-350-400-450-450 gr litur nr 07, grár
DROPS FABEL frá Garnstudio
150-150-200-200-250-250 gr litur nr 905, svartur/natur

Eða notið:
DROPS MELODY frá: Garnstudio
150-150-200-200-250-250 gr litur nr 05, svartur
DROPS FABEL frá Garnstudio
150-150-200-200-250-250 gr litur nr 905, svartur/natur

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 15 l og 20 umf með sléttprjóni annað hvort með 1 þræði af Symphony eða með 1 þræði af Fabel verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (40 eða 60 cm) NR 5,5 – fyrir garðaprjón á öxl

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 682.00 kr /50g
Product image DROPS Symphony yarn
DROPS Symphony
65% Ull, 35% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

RENDUR:
Prjónið rendur með byrjun frá réttu þannig:
*1 umf slétt með Fabel, 1 umf slétt Symphony eða Melody einnig frá réttu, snúið við, 1 umf br með Fabel, 1 umf br með Symphony eða Melody einnig frá röngu, snúið við *,endurtakið frá *-*. Sjá leiðbeiningar að neðan!

LEIÐBEININGAR:
Í hverri umf er skipt um þráð fyrir rendur með því að færa allar l yfir í hina hliðina á prjóninum og prjónað er þaðan. Með þessu þarf ekki að klippa frá eftir hverja rönd.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna með RENDUR – sjá útskýringu að ofan.

FRAMSTYKKI:
Fitjið LAUST upp 80-84-90-98-106-116 l (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjóna nr 6 með 2 þráðum af Fabel. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú sléttprjón með 1 þræði og rendur, ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið áfram þar til stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm, fellið af 1 l fyrir merkingu á handvegi í byrjun á 2 næstu umf = 78-82-88-96-104-114 l. Þegar stykkið mælist 38-40-42-44-46-48 cm, setjið miðju 12 l á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af í byrjun á hverri umf frá hálsmáli: 2 l 2-2-2-2-2-2 sinnum, 1 l 2-2-2-3-3-3 sinnum = 27-29-32-35-39-44 l eftir á öxl. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5 þegar stykkið mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm (passið uppá að síðasta umf sé með Fabel) og prjónið 2 umf garðaprjón með Symphony eða Melody. Fellið af, stykkið mælist ca 45-47-49-51-53-55 cm.

BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna með RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Fitjið LAUST upp 80-84-90-98-106-116 l (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjóna nr 6 með 2 þráðum af Fabel. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú sléttprjón með 1 þræði og rendur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið áfram þar til stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm, fellið af 1 l fyrir merkingu á handveg í byrjun á 2 næstu umf = 78-82-88-96-104-114 l. Þegar stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm, fellið af miðju 22-22-22-24-24-24 l af fyrir hálsmáli og hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 1 l í byrjun umf frá hálsmáli = 27-29-32-35-39-44 l eftir á öxl. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5 þegar stykkið mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm (passið uppá að síðasta umf er með Fabel) og prjónið 2 umf garðaprjón með Symphony. Fellið af þegar stykkið mælist ca 45-47-49-51-53-55 cm.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna með RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Fitjið upp 35-36-37-38-39-40 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 6 með 2 þráðum af Fabel. Prjónið 4 umf garðaprjón. Prjónið nú sléttprjón með 1 þræði og rendur JAFNFRAMT er prjónuð 1 kantlykkja í garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 8-8-8-8-8-8 cm, aukið út um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 9-7-5,5-4,5-4-3 cm millibili, 4-5-6-7-8-9 ggr til viðbótar (alls 5-6-7-8-9-10 sinnum) = 45-48-51-54-57-60 l. Þegar stykkið mælist ca 47-46-45-44-43-40 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) – passið uppá að síðasta umf sé með Fabel, skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5 og prjónið 2 umf með garðaprjóni með Symphony eða Melody. Fellið af, stykkið mælist ca 47-46-45-44-43-40 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í við fram- og bakstykki. Saumið undirermasauma og hliðarsauma í eitt. Saumið í ysta lykkjubogann INNAN VIÐ 1 kantlykkju í garðaprjóni.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp ca 58-65 l innan við l af þræði með Symphony eða Melody á hringprjóna nr 5,5. Prjónið sléttprjón í hring á hringprjóna. Fellið af þegar kanturinn mælist 4 cm.

Mynstur

Diagram measurements for DROPS 149-15
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #stormsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 149-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (56)

country flag Helena Ragnemalm skrifaði:

Vad finns det för alternativgarn i bomull till denna modellen. Har textilslöjd och mina elever tyckte om denna modellen men vill ha bomullsgarn. Fungerar drops hjärte you? Isåfall hur många nystan behövs för stl. S ?

07.09.2017 - 14:30

DROPS Design svaraði:

Hei Helena. Vi har dessverre ingen bomullskvalitet som er lik denne ull kvaliteten /som har samme strikkefasthet.

08.09.2017 - 14:27

country flag Monica skrifaði:

Buongiorno, mi potete spiegare meglio cosa si intende con il suggerimento qui sotto?.. Non capisco cosa si intende x spostare le maglie senza lavorarle? penso che serva per non tagliare il filo, ma solo tirarlo su dai ferri precedenti. Ma in questo caso, con quale punto lavorare...? "Per le strisce, cambiare il filo spostando tutte le m all’estremità opposta dei ferri e lavorare a partire da questo punto. In questo modo si evita di dover tagliare il filo dopo ogni striscia" Grazie mille

04.11.2016 - 13:46

DROPS Design svaraði:

Buongiorno Monica. Dovrebbe lavorare come segue: sul diritto del lavoro, lavora 1 ferro a dir con Fabel, non gira il lavoro, ma ricomincia dall’inizio di questo ferro e lavora 1 ferro a dir sul diritto del lavoro con Symphony o Melody; gira il lavoro e lavora un ferro a rov sul rovescio con Fabel; non gira il lavoro ma lavora un altro ferro a rov sul rovescio del lavoro con il filato Symphony o Melody. Ripete questi quattro ferri. In questo modo non deve tagliare sempre il filo. Buon lavoro!

04.11.2016 - 13:57

country flag Riitta Varlo skrifaði:

Olen ihastunut Storm-malliin ja yhden neuleen tehtyäni, tekisin vielä toisenkin Lace -langasta toisena lankana ( Lace on niin upea lanka ) Fabelin sijaan. Onnistuisikohan idean toteuttaminen, Lace on niin ohuen oloinen neulelanka, puikkojen vaihdolla pienempiin ( 5-5,5 ) ja neulepuseron koon yhtä suurempaan? Vai olisiko syytä neuloa Lace kaksinkertaisella langalla alkuperäisen ohjeen mukaisesti?

04.02.2016 - 14:37

DROPS Design svaraði:

Hei! Fabel- ja Lace-langat kuuluvat samaan lankaryhmään (A), joten voit hyvin korvata Fabel-lankaa Lace-langalla. Tarkista kuitenkin neuletiheys ennen kuin aloitat neulomisen!

08.02.2016 - 13:55

country flag Anita skrifaði:

Hei, da er jeg begynt å strikke denne genseren og er en smule forvirret. Det står at man skal legge løst opp 80 masker. Da jeg gjorde det resulterte det i at genseren ble størrelse xxl. Begynte på nytt og la opp 80 masker normalt/stramt, det resulterte i størrelse l. Hvordan i alle dager er dette mulig? Det er ikke mulig å strikke strammere, for da får man ikke maskene av pinnene og det står jo at man skal strikke løst.

09.01.2016 - 10:09

DROPS Design svaraði:

Hej Anita, Jo men det stemmer, følg opskriften - hvis du overholder strikkefastheden så får du målene som på måleskitsen. Strik gerne en lille strikkeprøve først, så du ser at 15 m og 20 p i striber måler 10 x 10 cm. Husk at du kun skal slå op med 2 tråde for at kanten ikke skal stramme, resten strikker du med 1 tråd. God fornøjelse!

26.01.2016 - 13:49

country flag Anita skrifaði:

Hei, da er jeg begynt å strikke denne genseren og er en smule forvirret. Det står at man skal legge løst opp 80 masker. Da jeg gjorde det resulterte det i at genseren ble størrelse xxl. Begynte på nytt og la opp 80 masker normalt/stramt, det resulterte i størrelse l. Hvordan i alle dager er dette mulig? Det er ikke mulig å strikke strammere, for da får man ikke maskene av pinnene og det står jo at man skal strikke løst.

20.12.2015 - 10:07

country flag Elin skrifaði:

Väldigt konstiga mått? Jag tänkte inte på måtten innan jag började sticka tyvärr, men valde stl M även om jag bara är 160cm lång, dvs rätt liten... När tröjan är 47 cm lång, som både stickbeskrivning och bild visar så går tröjan till min navel! Det gör den inte på bilden... Hur är tanken? Nu ska jag gå över till ärmarna och undrar om de bara kommer bli trekvartslånga om jag följer mönstret?.... (Melodi är ett väldigt jobbigt garn att repa upp så jag känner mig lite ledsen...)

07.11.2015 - 12:05

DROPS Design svaraði:

Hej. Det är en lite kortare modell som man kan se på bilden, men om du har rätt stickfasthet och följer mönstret så ska ärmarna bli långa nog. Lycka till!

11.11.2015 - 11:13

country flag Laura skrifaði:

I really love this jumper but have been unable to locate the wool to knit this as symphony, Vienna and Verdi all appear to have been discontinued. This pattern was only released last Autumn so it's really disappointing to not be able to find the correct yarn. Are you going to be launching any suitable alternatives? Thank you.

31.05.2015 - 09:19

DROPS Design svaraði:

Dear Laura, please click here to get alternatives with other yarn groups and calculate amount of new yarn. Remember you can get help from your DROPS Store. Happy knitting!

01.06.2015 - 09:53

country flag Mercier Nicole skrifaði:

Je voudrais tricoter le modèle 149-15 - la qualité "symphonie" n'est plus disponible, ni aucune laine du même groupe de fils - avez-vous une autre solution à me proposer ? Merci à vous

06.04.2015 - 14:22

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Mercier, cliquez ici pour avoir un aperçu des équivalences possibles (et calculer la quantité nécessaire) entre les différents groupes. Votre magasin DROPS saura vous conseiller. Bon tricot!

07.04.2015 - 09:42

country flag Julia skrifaði:

Bonjour, Je ne comprends pas vomment se monte et s'assemble le col, pouvez-vous m'aider? Merci d'avance

03.12.2014 - 13:53

DROPS Design svaraði:

Bonjour Julia, pour le col, on relève les mailles tout autour de l'encolure et on reprend en même temps les 12 mailles que l'on a mise en attente au devant - ajustez pour avoir 58-65 m (répartissez des diminutions/augmentations si nécessaire) et tricotez en rond, en jersey (= tout à l'endroit) pendant 4 cm, rabattez alors toutes les mailles. Bon tricot!

03.12.2014 - 14:00

country flag Connie skrifaði:

Hallo, Ik sluit me aan bij een eerdere vraag van Lilian. 45 cm voor een trui maat S is toch wel heel kort. Dan komt het maar tot net onder je ribben, ruim boven de navel. Op de foto is de trui veel langer. Zakt deze wol zo uit, of kloppen de maten in het patroon niet?

23.10.2014 - 18:34

DROPS Design svaraði:

Onze designafdeling heeft de trui zo ontworpen. Als u zelf een langere trui wilt maken, kunt u dat natuurlijk naar eigen smaak en wens aanpassen.

23.10.2014 - 22:22