Elaine Morris skrifaði:
What bust sizes is this pattern please?
12.01.2015 - 16:00
Bente skrifaði:
Mangler der ikke nogen "slå om" på hver side af " løs af og 2 m sm"
10.07.2014 - 15:19DROPS Design svaraði:
Hej Bente. De står også i diagrammet, men i forklaringen er de delt op.
11.07.2014 - 19:32
Nanna skrifaði:
Er vrangsiden vist i diagrammet eller er der en retpind i mellem hver retpind med mønster?
10.02.2014 - 22:15DROPS Design svaraði:
Hei Nanna, diagrammet viser alle p i mönstret. Der ser man hverannen p er tomma ruter, så p fra vrangen strikkes vrang. Tom rute er rett på retten, eller vrang på vrangen.
11.02.2014 - 00:01
Nanna skrifaði:
Er vrangsiden vist i diagrammet eller er der en retpind i mellem hver retpind med mønster?
10.02.2014 - 22:15
E. Tollefsen skrifaði:
Hei! Bare se bort fra spørsmålet jeg stilte. Jeg har fått det til.
16.11.2013 - 16:31
E. Tollefsen skrifaði:
Drops 145-16. Holder på med forhøyning bak i nakken, men den kommer skjevt. Har prøvd to ganger, først 68 m (S) medregnet de 6 listmaskene og så 68 m totalt. Forhøyningen er ikke på midten. Jeg har 117 m. Hva er galt?
15.11.2013 - 22:22DROPS Design svaraði:
Efter m 58 er du midt bagpå. Strikker du først 68 m så strikker du 10 m mere på den anden side af midt bagpå. Når du vender strikker du 20 m og altså 10 m på den anden side af midt bagpå. Hvis du da strikker 10 m mere for hver gang du vender så vil forhøjningen blive nøjagtig midt bagpå.
20.11.2013 - 08:51
Noltenhans skrifaði:
Schönes muster
27.02.2013 - 14:33
Lene skrifaði:
Kommer det oppskrift på denne?
26.02.2013 - 18:51
Elke skrifaði:
Hallo. Eine sehr schöne Weste. Wann ist denn die Anleitung dazu verfügbar?
16.02.2013 - 15:41
Christine Lange skrifaði:
Wundervolle Meerespriese
14.02.2013 - 19:01
Penny#pennycardigan |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk með gatamynstri og berustykki. Stærð S - XXXL.
DROPS 145-16 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GRAÐAPRJÓN (prjónað í hring á sokkaprjóna): *1 umf slétt og 1 umf brugðið*, endurtakið frá *-*. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan frá réttu. 1 hnappagat = prjónið 3. og 4. l frá miðju að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 8, 16, 24, 32, 40, 47 og 54 cm. STÆRÐ M: 8, 16, 24, 32, 40, 48 og 56 cm. STÆRÐ L: 8, 17, 26, 34, 42, 50 og 58 cm. STÆRÐ XL: 8, 17, 26, 35, 44, 52 og 60 cm. STÆRÐ XXL: 8, 17, 26, 35, 44, 53 og 62 cm. STÆRÐ XXXL: 8, 16, 24, 32, 40, 48, 56 og 64 cm. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Sjá mynsturteikningu fyrir þína stærð í A.1 o g A.2. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 203-225-245-269-297-327 l (meðtaldar eru 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3 með BabyAlpaca Silk. Prjónið 8 umf garðaprjón yfir allar l. Prjónið nú áfram í sléttprjóni og garðaprjóni yfir kantlykkjur að framan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, 55-60-64-70-77-84 l frá miðju að framan (bakstykki = 93-105-117-129-143-159 l). Þegar stykkið mælist 7 cm er fækkað um 1 l (prjónið 2 l saman) hvoru megin við bæði prjónamerkin. Endurtakið úrtöku með 3 cm millibili 3 sinnum til viðbótar (alls 4 úrtökur) = 187-209-229-253-281-311 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8 cm er fellt af fyrsta HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan! Þegar stykkið mælist 22 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerki með því að prjóna 2 l sl í l á undan og á eftir prjónamerki. Endurtakið útaukningu með 3½-4-4-4½-4½-5 cm millibili 3 sinnum til viðbótar ( alls 4 útaukningar) = 203-225-245-269-297-327 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 21-23-22-17-17-19 cm prjónið – frá réttu þannig: Prjónið 6 l garðaprjón, A.1(= 49-49-49-61-61-61 l), prjónið sléttprjón þar til eftir eru 55-55-55-67-67-67 l, endið með A.2 (= 49-49-49-61-61-61 l) og 6 l garðaprjón. Í síðustu umf í A.1/A.2 fellið af 8 l í hvorri hlið (= 4 l hvoru megin við prjónamerki) = 187-209-229-253-281-311 l. Stykkið mælist nu ca 36-38-37-39-39-41 cm. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 55-56-60-62-64-69 l á sokkaprjóna nr 3 með BabyAlpaca Silk. Prjónið 8 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi). Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 8-8-6-6-8-8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki með því að prjóna 2 l í l á undan og á eftir prjónamerki. Endurtakið útaukningu með 2½-2½-2-2-1½-1½ cm millibili 13-13-18-17-21-20 sinnum til viðbótar (alls 14-14-19-18-22-21 útaukningar) = 83-84-98-98-108-111 l. Þegar stykkið mælist 46-46-44-44-43-43 cm eru felldar af 8 l við miðju undir ermi (þ.e.a.s. 4 l hvoru megin við prjónamerki) = 75-76-90-90-100-103 l eftir á prjóni. Geymið stykkið, prjónið aðra ermi til viðbótar. BERUSTYKKI: Prjónið 1 umf brugðið frá röngu á fram- og bakstykki, JAFNFRAMT eru l frá ermum prjónaðar inn á prjóninn = 337-361-409-433-481-517 l. Prjónið nú þannig: Prjónið 6 l garðaprjón, A.3 A (= 7 l), endurtakið A.3 B yfir næstu 312-336-384-408-456-492 l (26-28-32-34-38-41 sinnum), endurtakið A.3 C (= 6 l) og 6 l garðaprjón. Haldið svona áfram. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 283-303-343-363-403-433 l á prjóni. Prjónið nú þannig: Prjónið 6 l garðaprjón, A.4 A (= 6 l), endurtakið A.4 yfir næstu 260-280-320-340-380-410 l (= 26-28-32-34-38-41 sinnum), endið með A.4 C (= 5 l) og 6 l garðaprjón. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 229-245-277-293-325-349 l á prjóni. Prjónið nú þannig: Prjónið 6 l garðaprjón, A.5 A (= 5 l), endurtakið A.5 B yfir næstu 208-224-256-272-304-328 l (= 26-28-32-34-38-41 sinnum), endið með A.5 C (= 4 l) og 6 l garðaprjón. Þegar A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 175-187-211-223-247-265 l á prjóni. Haldið áfram þannig: Prjónið 6 l garðaprjón, A.6 A (= 4 l), endurtakið A.6 B yfir næstu 156-168-192-204-228-246 l (= 26-28-32-34-38-41 sinnum), endið með A.6 C (= 3 l) og 6 l garðaprjón. Prjónið A.6 1-1-2-2-3-3 sinnum á hæðina. Haldið áfram þannig: Prjónið 6 l garðaprjón (= 4 l), endurtakið A.7 yfir næstu 156-168-192-204-228-246 l (26-28-32-34-38-41 sinnum), endið með A.7 C (= 3 l) og 6 l garðaprjón. Þegar A.7 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 121-129-145-153-169-181 l á prjóni. Prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 4-8-20-24-36-44 l jafnt yfir = 117-121-125-129-133-137 l. Nú er prjónuð upphækkun aftan við hnakka. Allar umf eru prjónaðar slétt. Prjóni frá röngu þannig: Prjónið 68-70-72-74-76-78 l, snúið við og prjónið 20 l til baka. Snúið við og prjónið 30 l. Snúið við og prjónið 40 l. Snúið við og prjónið 50 l. Snúið við og prjónið 60 l. Snúið við og prjónið 70 l. Snúið við og prjónið 80 l. Snúið við og prjónið yfir allar l á prjóni. Prjónið 6 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið op undir höndum. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #pennycardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 145-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.