Komleksiz skrifaði:
Prachtig patroon!
28.12.2012 - 09:59Audrey Coward skrifaði:
Birds in flight
27.12.2012 - 07:12
Lotte Thomsen skrifaði:
Jeg skal til sommerfest og den skal med... musthave :)
20.12.2012 - 15:45
Flore skrifaði:
Raffiné
16.12.2012 - 19:42
Randi Rasmussen skrifaði:
"Vinger". Nydelig!
11.12.2012 - 15:08Monica skrifaði:
Suave brisa
11.12.2012 - 12:50
Sarah Helene skrifaði:
WAVES OF LIGHT
11.12.2012 - 02:10
Sarah Helene skrifaði:
Looks light & lovely for evenings out!
11.12.2012 - 01:54
Marianne skrifaði:
Delikat, delikat. Uhhh, hvor er den fin. Håber jeg skal til sommerfest, så jeg kan få den brugt. Strikke den skal jeg i hvert fald.
10.12.2012 - 20:03
Wings#wingsshawl |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónað sjal úr DROPS Lace með gatamynstri
DROPS 146-28 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING: Aukið er út um 1 l innan við 2 l í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki í hverri umf með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður br frá röngu og sl frá réttu svo að það myndist gat. Aukið er út um 1 l á undan 1. prjónamerki frá réttu með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan prjónamerki og aukið út um 1 l á eftir 2. prjónamerki frá réttu með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir prjónamerki, prjónið síðan uppslátturinn br frá röngu svo að það myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til þess að fá pláss fyrir allar lykkjur. SJAL: Fitjið upp 65 l á hringprjóna nr 3,5 með Lace. Setjið prjónamerki innan við 3 l í hvorri hlið á sjali (= 59 l á milli prjónamerkja) og látið prjónamerkin fylgja með í stykki. Prjónið sléttprjón með 2 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið (1. umf = rétta) – JAFNFRAMT er aukið út – sjá ÚTAUKNING að ofan, 1 l innan við 2 l með garðaprjóni í hvorri hlið á stykki í hverri umf og aukið út um 1 l á undan 1. prjónamerki og 1 l á eftir 2. prjónamerki í hverri umf frá réttu (= 6 fleiri l eftir aðra hvora umf). Haldið áfram að prjóna og auka út svona þar til 129 l eru eftir á undan 1. prjónamerki, 59 l í miðju og 129 l á eftir 2. prjónamerki = 317 l á prjóni. Eftir útaukningu mælist stykkið ca 28 cm í prjónastefnu meðfram einu prjónamerki. Í næstu umf frá réttu er prjónað þannig: Prjónið 2 l garðaprjón og mynstur A.1 (= 6 l) 52 sinnum þar til 3 l eru eftir, prjónið 1 l sléttprjón og endið með 2 l garðaprjón. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru = 421 l á prjóni. Haldið áfram að prjóna 2 l garðaprjón, mynstur A.2 þar til 3 l eru eftir, 1 l sléttprjón og 2 l garðaprjón, prjónið þar til mynstur A.2 hefur verið prjónað alls 3 sinnum á hæðina, stykkið mælist nú ca 42 cm mælt í prjónastefnu meðfram einu prjónamerki. Í næstu umf frá réttu er fellt laust af þannig – ATH: Mjög mikilvægt er að fella mjög LAUST af, annars er ekki hægt að forma oddlaga kant á sjalið: Fellið af fyrstu 3 l í garðaprjóni (dragið aðeins í l á meðan prjónað er og fellið af svo að hún verði laust), * sláið laust upp á hægra prjón, fellið uppsláttinn af, fellið af 2 l (dragið aðeins í l á meðan prjónað er og fellið af svo að hún verði laus) *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, fellið þær af. STREKKING: Leggið sjalið í volgt vatn þar til það er orðið blautt í gegn. Pressið varlega vatnið úr sjalinu – það má ekki vinda það. Sjalinu er nú rúllað inn í handklæði og pressað til þess að ná enn meira vatni úr sjalinu – sjalið á nú að vera aðeins rakt. Leggið sjalið á mottu eða dýnu – dragið það varlega út í rétta stærð og myndið þríhyrning og notið nálar til þess að festa það með. ATH: Festið fleiri nálar í síðustu l meðfram uppfitjunarkanti og síðan fram að síðustu l í hvorri hlið á sjal. Meðfram 2 aflíðandi hliðunum er sett 1 nál í sjalið á milli hverra mynstureininga, dragið aðeins út með hverri nál svo að kanturinn verði oddlaga. Endurtakið þetta í hvert skipti sem sjalið er þvegið. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wingsshawl eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 14 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 146-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.