DROPS Lace
DROPS Lace
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS 146-15
DROPS Design: Mynstur nr la-015
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: ca 79 cm mælt frá hnakka og niður meðfram miðjulykkju.

Efni:
DROPS LACE frá Garnstudio
100 gr litur nr 0100, natur

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3,5 – ATH: Lesið um Prjónfestu hér að neðan!

PRJÓNFESTA:
Sjalið þarf að vera rakt og strekk í rétta stærð eftir að það er prjónað. Prjónfestan er ekki svo mikilvæg, en til þess að fá einhverja hugmynd um hvort prjónað er of laust/fast, prjónið því prufu með sléttprjóni á prjóna nr 3,5, það eiga að vera ca 23 l og 30 umf = 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lace
DROPS Lace
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í hverri umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A. 7. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til þess að fá pláss fyrir allar lykkjur.

SJAL:
Fitjið upp 7 l á hringprjóna nr 3,5 með Lace. Setjið 1 prjónamerki í 4. l og látið það fylgja með stykkinu (= miðjulykkja, merkir miðju að aftan á sjalinu). Prjónið nú (1. umf = rétta) þannig: Prjónið 3 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, mynstur A.1 og 3 l garðaprjón. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður brugðið, svo að það myndist gat = 9 l. Haldið áfram að prjóna eftir mynstri A.1 með 3 l garðaprjón í hvorri hlið, þegar mynstur A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 37 l á prjóni. Nú er prjónað áfram þannig: Prjónið 3 l garðaprjón, mynstur A.2/A.3/A.4 og 1 l slétt (= miðjulykkja), mynstur A.2/A.3/A.4 og 3 l garðaprjón. Þegar mynstur hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina (= 85 l) er það endurtekið frá byrjun, nú er pláss fyrir 3 mynstureiningar af A.3 á milli A.2 og A.4. Prjónið mynstur alls 4 sinnum á hæðina, í hvert skipti sem byrjað er frá byrjun er pláss fyrir 2 mynstureiningar fleiri af A.3 á milli A.2 og A.4. Þegar mynstur hefur verið prjónað 4 sinnum á hæðina eru = 229 l á prjóni. Stykkið mælist nú ca 37 cm, mælt í prjónastefnu frá uppfitjunarkanti að prjóni. Prjónið nú áfram þannig: Prjónið 3 l garðaprjón, A.5, A.6 yfir næstu 108 l, prjónið þar til 2 l eru eftir á undan miðjulykkja, prjónið A.7, 1 l slétt (miðjulykkja), A.5, A.6 yfir næstu 108 l þar til 5 l eru eftir, prjónið A.7 og 3 l garðaprjón. Haldið áfram að prjóna eftir A.5/A.6/A.7 þar til mynstrið hefur verið prjónað alls 4 sinnum á hæðina. Fyrir hvert skipti sem A.5/A.6/A.7 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er pláss fyrir 2 mynstureiningar af A.6 á milli A.5 og A.7 hvoru megin við miðju-l JAFNFRAMT í síðustu umf á síðustu mynstureiningunni (= ranga) er aukið út um 8 l jafnt yfir með því að prjóna 2 l í 1 l = 301 l. Stykkið mælist ca 48 cm, mælt í prjónastefnu. Prjónið nú áfram þannig: Prjónið 3 l garðaprjón, A.2, A.3 yfir næstu 144 l, nú eru eftir 2 l á undan miðju-l prjónið A.4, 1 l slétt (= miðjulykkja), A.2, A.3 yfir næstu 144 l, nú eru 5 l eftir og prjónið A.4 og 3 l garðaprjón. Haldið áfram að prjóna eftir mynstri A.2/A.3/A.4 þar til mynstrið hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina = 349 l. Í næstu umf frá réttu er fellt laust af svona – ATH: Mjög mikilvægt er að fella mjög LAUST af, annars er ekki hægt að strekkja sjalið til að það verði oddlaga: Fellið af 3 kantlykkjur (dragið aðeins í l á meðan prjónað er og fellið af svo að þær verði lausar), * sláið 1 sinni mjög laust uppá hægri prjón, fellið uppsláttinn af, fellið af 2 l (dragið aðeins í l á meðan prjónað er og fellt af svo að þær verði lausar) *, endurtakið frá *-* út umf.

STREKKING:
Leggið sjalið í volgt vatn þar til það er orðið blautt í gegn. Pressið varlega vatnið úr sjalinu – það má ekki vinda það. Sjalinu er nú rúllað inn í handklæði og pressað til þess að ná enn meira vatni úr sjalinu – sjalið á nú að vera aðeins rakt. Leggið sjalið á mottu eða dýnu – dragið það varlega út í rétta stærð í fínan þríhyrning og notið nálar til þess að festa það með. ATH: Fyrsta nálin fer í ystu líá hvorri hlið á sjalinu, meðfram báðum aflíðandi hliðunum er sett 1 nál í miðjuna á hverri mynstureiningu og 1 nál í miðjulykkju (= neðst niðri í horninu á sjalinu), dragið aðeins í þegar nálin er sett svo að kanturinn verði oddlaga. Látið sjalið þorna svona. Endurtakið þetta í hvert sinn sem sjalið er þvegið.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 26.11.2014
Stærð: ca 79 cm mælt frá hnakka og niður meðfram miðjulykkju.
SJAL: Haldið áfram að prjóna eftir mynstri A.2/A.3/A.4 þar til mynstrið hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina = 349 l.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = slétt lykkja frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjurnar
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Lisa

Pat, Australia

Lisa

Sandy, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 146-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (50)

country flag Justyna wrote:

,Witam nie rozumiem jak * wykonać 1 luźny narzut na prawym drucie, zamknąć narzut, zamknąć 2 proszę o dokładną instrukcję o

05.05.2023 - 12:24

DROPS Design answered:

Witaj Justyno, zamykamy szal z narzutami, aby brzeg nie był zbyt ścisły. Ta technika jest ładnie pokazana na filmie TUTAJ. Zwróć tylko uwagę, że na filmie częstotliwość narzutów jest inna niż we wzorze. Pozdrawiamy!

05.05.2023 - 12:50

country flag Deborah Ann Moorman wrote:

Very pretty.

16.05.2019 - 22:06

country flag Hélène wrote:

Merci beaucoup pour ce patron! Je viens de terminer de le bloquer et le châle est dans toute sa splendeur. Hélène

16.04.2018 - 20:28

country flag Hélène wrote:

J’ai une autre interrogation pour vous à savoir : répartir 8 augmentations est-ce 8 augmentations total sur le dernier rang ou 8 augmentations à répartir jusqu’à la maille centrale et 8 autres dans la deuxième section du châle? Merci à l’avance! Hélène

14.03.2018 - 19:04

DROPS Design answered:

Bonjour Hélène, on augmente 8 m au total au dernier rang, soit 4 m avant la m centrale et 4 m après la m centrale. Bon tricot!

15.03.2018 - 08:21

country flag Hélène wrote:

Oups! Je crois que vous m’avez oublié! Hélène

13.03.2018 - 12:55

country flag Hélène wrote:

J’ai tricoté les 229 mailles. Pour la partie de A5-A6-A7, j’augmente de 4 mailles à chaque rang impair et rendue au 8ième rang (envers) je tricote 8 augmentations et ce à chaque fois que je tricote ces 8 rangs. Donc, dans le 1er. rapport les 8 augmentations se feraient à peu près aux 30 mailles. Est-ce que je suis dans l’erreur? Merci de me répondre, Hélène

12.03.2018 - 13:26

DROPS Design answered:

Bonjour Hélène, vous augmentez 4 m dans chaque A.5/A.7 soit effectivement 8 m à chaque fois que les diagrammes sont faits 1 fois en hauteur mais 16 mailles au total sur le rang (on les tricote 2 fois, une fois avant et une fois après la m centrale). La 2ème fois que vous répétez ces diagrammes, tricotez-les comme la 1ère fois, mais entre chaque A.5 et A.7 vous répèterez A.6 2 fois de plus en largeur (= 8 m en plus entre A.5 et A.7 = 2 x A.6 en plus entre A.5 et A.7). Bon tricot!

12.03.2018 - 16:27

country flag Mariya Peneva-Chavdarova wrote:

Bitte um Hilfe! Wenn ich die 85 Maschen auf der Rundstricknadel habe, also einmal Diagram A1 und einmal A2+A3+A4 gestrickt habe, soll ich WO die noch 2Rapporte von A3 hinzustricken - in der Reihengfolge A2-A3-A3-A3- mittlere Masche - A3-A3-A3-A4? Stricke ich dann kein A4 vor der mittleren Masche? irgendwie habe ich einen DenkFehler und mir geht dann das Muster nicht auf? Danke für Ihre Hilfe im voraus?

28.02.2018 - 11:58

DROPS Design answered:

Liebe Frau Peneva-Chavdarova, wenn Sie 1 x die Diagramme A.2/A.3/A.4 in der Höhe gestrickt haben, dann haben Sie jetzt genügend Maschen um 3 x A.3 in der Breite (zwischen A.2 und A.4) zu stricken, dh so werden Sie bei der 2. Rapport in der Höhe stricken: 3 M re, A.2, 3XA.3, A.4, 1 mittlere Masche, A.2, 3xA.3, A.4, 4 M re. Bei 3. Rapport in der Höhe wiederholen Sie 5 x A.3 zwischen A.2 und A.4, und bei dem 4. Rapport in der Höhen wiederholen Sie 6 x A.3 zwischen A.2 und A.4. Viel Spaß beim stricken!

28.02.2018 - 17:28

country flag Hélène wrote:

Merci d’avoir répondu à ma question si rapidement. Les 8 augmentations se font-elles à chaque fois qu’on complète un rapport de 8 rangs ou les fait-on juste un fois? De plus, avez-vous une vidéo montrant comment faire une augmentation en tricotant 2fois la même maille? Au plaisir de vous lire.

23.02.2018 - 14:39

DROPS Design answered:

Bonjour Hélène, les 8 augmentations se font au dernier rang (= sur l'envers) quand vous tricotez le dernier des 4 motifs en hauteur. Cette vidéo montre comment tricoter 2 fois la même maille à l'endroit, comme ce rang se tricote en mailles envers, procédez de la même façon mais en tricotant la maille à l'envers une fois dans le brin avant puis dans le brin arrière. Bon tricot!

23.02.2018 - 16:47

country flag Hélène wrote:

J’ai tricoté les 229 mailles et je commence la section de A5. Cependant vous indiquez de tricoter sur les 108 mailles moi j’arrive à 111 mailles de chaque côté à savoir 229 mailles-6 mailles bordure-1 maille centrale=222 donc ce serait 111 mailles et non 108 tel qu’indiqué. Suis-je dans l’erreur? Merci.

22.02.2018 - 17:50

DROPS Design answered:

Bonjour Hélène, c'est bien exact ainsi: vous tricotez les 111 m en suivant A.5 (= 1 m), vous répétez A.6 sur les 108 m suivantes (= 27 fois) et vous terminez par A.7 (= 2m) sot: 1+108+2 = 111 m. Les 3 m point mousse et la m jersey se tricotent comme avant. Bon tricot!

23.02.2018 - 08:56

country flag Hélène wrote:

Bonjour, Est-ce qu’on doit les rangs impairs de gauche à droite même si on nous indique de tricoter A2A3et A4 3 fois ? Merci

04.02.2018 - 22:55

DROPS Design answered:

Bonjour Hélène, les rangs sur l'endroit se lisent de droite à gauche et les rangs sur l'envers de gauche à droite (lisez chaque diagramme séparément de gauche à droite sur l'envers). Bon tricot!

05.02.2018 - 10:01