DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Honeymoon

Prjónað poncho úr DROPS BabyAlpaca Silk eða DROPS Lace með gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 146-4
DROPS Design: Mynstur nr la-012
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M/L – XL/XXL/XXXL
Yfirmál: 80 til 96 cm – 106 til 130 cm
Ummál efst: ca 58-96 cm
Lengd frá uppfitjunarkanti að neðri brún við miðju að framan: ca 57-52 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls).

Efni:
DROPS BABY ALPACA SILK frá Garnstudio
450 - 450 gr litur nr 0100, natur
Eða notið:
DROPS LACE frá Garnstudio
200 - 200 gr litur nr 0100, natur

DROPS HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 23 l og 30 umf verði 10 x 10 cm. Lesið PRJÓNFESTA að neðan.

2 metrar af silkiborða með litnum natur 10 mm breidd.

PRJÓNFESTA:
Stykkið á að bleyta og strekkjast í rétta stærð í lokin. Prjónfestan er því ekki svo mikilvæg, en til þess að fá einhverja hugmynd um hvort prjónað er of laust eða of fast eiga 23 l og 30 umf á prjóna nr 3,5 að mælast ca 10 x 10 cm (án þess að strekkja á prufunni).

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Sjá ör fyrir þína stærð í mynstri A.2.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður, fyrst fram og til baka á hringprjóna, síðan í hring á hringprjóna. Þetta er gert til þess að það myndist op við miðju að framan.

PONCHO:
Fitjið upp 156-220 l á hringprjóna nr 3,5 (40 cm) með BabyAlpaca Silk eða Lace.
Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú þannig: Prjónið A.1 (= 17 l), * A.2 (= 5-21 l), A.3 (= 34 l) *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, A.2 (= 5-21 l), A.4 (= 17 l). Haldið áfram með þetta mynstur fram og til baka þar til prjónaðar hafa verið 2 mynstureiningar á A.1/A.4 á hæðina, endið þegar 17 l eru eftir á prjóni. Þetta er nú byrjun á umf. Prjónið nú hring yfir allar l, haldið áfram með A.3 yfir A.1 /A.4. Haldið áfram með þetta mynstur, skiptið nú yfir í lengri hringprjóna eftir þörf. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 348 l á prjóni í báðum stærðum. Prjónið nú áfram þannig: * Prjónið A.3, A.5A, A.5B 2 sinnum, A.5C *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum. Fyrir hvert skipti sem A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað 1 A.5B fleiri á milli hverja A.5A og A.5C.

Haldið áfram með þetta mynstur þar til prjónaðar hafa verið 9-8 mynstureiningar af A.3 og 8-8 mynstureiningar af A.5 á hæðina = 732 l á prjóni í báðum stærðum. Prjónið 1 umf slétt yfir allar l, yfir allt A.5 fækkar um 9 l jafnt yfir (= 140 l eftir í hverju A.5, 696 l alls).
Prjónið nú þannig: * Prjónið A.6 2 sinnum, haldið áfram með 2 fyrstu l í A.5A, prjónið A.6 8 sinnum, prjónið 2 síðustu l í A.5C, * endurtakið frá *-* alls 4 sinnum.

Haldið svona áfram þar til A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina – útauknu l í A.5 eru prjónaðar slétt = 1072 l. Fellið laust af.

STREKKING:
Ef poncoið er prjónað úr Lace verður að strekkja það í rétta lögun og stærð. Ef það er prjónað úr BabyAlpaca Silk er hægt að strekkja það eða bleyta það örlítið. Leggið poncoið í volgt vatn þar til það er orðið blautt í gegn. Pressið varlega vatnið úr poncoinu – það má ekki vinda það. Stykkinu er nú rúllað inn í handklæði og pressað til þess að fá burt enn meira vatn – ponchoið kemur til með að vera aðeins rakt. Leggið stykkið á mottu eða dýnu – dragið það varlega út í rétta stærð í fallegan hring og notið nálar til þess að festa það. Látið stykkið þorna. Endurtakið þetta í hvert sinn sem stykkið er þvegið.

Þræðið silkiborða upp og niður í umf í garðaprjóni við hálsmál á poncho og hnýtið slaufu að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 11.02.2013
Mynsturútskýring efst í mynstri: = sl frá réttu, br frá röngu = br frá réttu, sl frá röngu

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjurnar
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 146-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (138)

country flag Karima wrote:

Als beginnende breister wil ik deze poncho graag maken, maar dan zonder split. Hoe pas ik het patroon daarop aan?

03.05.2022 - 18:47

DROPS Design answered:

Dag Karima,

Om geen split te maken brei je in plaats van heen en weer, direct vanaf het begin in de rondte en maak je het voorpand net zoals het achterpand. Dus in plaats van A.1 aan elke kant van het voorpand, brei je daar A.3, net als op het achterpand.

04.05.2022 - 09:12

country flag Людмила wrote:

Перевод

04.09.2021 - 12:05

country flag Lebigot wrote:

Bonjour, j'ai l'impression qu'il manque des jetés aux rangs 15, 17 et 19 sinon il n'y a plus le bon nombre de mailles? Je suppose qu'il faut faire des jetés avant et après les 3 mailles envers? J'ai oublié de préciser qu'il s'agit des rangs du diagramme A6!Merci!

14.03.2021 - 13:18

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lebigot, aux rangs 13, 15, 17 et 19, il faut faire les 2 jetés de chaque côté de la maille centrale, autrement dit, vous avez au milieu du rang 13 de A.6: (1 diminution, 1 jeté, 1 m env, 1 jeté, 1 diminution) - répétez ces jetés ainsi aux rangs 15, 17 et 19, avant et après la maille centrale. Bon tricot!

15.03.2021 - 08:46

country flag Lebigot wrote:

Bonjour, je suis vraiment désolée de vous déranger encore mais même si je coupe mon fil et que je retourne mon tricote sur l'endroit, les 17 dernières mailles sont sur la droite et non sur la gauche donc ça ne va encore pas...Peut être qu'il ne faut pas faire le dernier rang envers et rester sur l'endroit pour commencer à tricoter en rond? Je ne sais plus trop quoi faire et ça m'ennuie de laisser tomber ce modèle qui a l'air très beau. Merci.

01.02.2021 - 19:24

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lebigot, terminez les diagrammes A.1 et A.4 par un rang sur l'envers, tournez l'ouvrage et glissez les 17 premières mailles vu sur l'endroit (= A.1), sur l'aiguille gauche (juste avant les 17 dernières mailles du rang = A.4), vous avez maintenant A.1 et A.4 côte à côte, et vous pouvez tricoter A.3 au-dessus de ces 34 mailles. Les tours commencent maintenant par A.3 et les autres mailles se tricotent comme avant. Bon tricot!

02.02.2021 - 09:52

country flag Lebigot wrote:

Bonjour, Vous dites que je dois tricoter mon dernier rang sur l'endroit or mon dernier rang (Rang32) est sur l'envers par sur l'endroit or si je veux tricoter le début de A3 sur ces 17 dernières mailles, elles seront toutes contrariées...donc ça n'ira pas. Est-ce que le dernier rang doit être alors le rang 31 sur l'endroit mais du coup les 17 dernières mailles sont celles de A4 et non celles de A1? Je suis désolée de vous déranger encore!

30.01.2021 - 19:27

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lebigot, on aura effectivement une petite différence, pour l'éviter, coupez le fil après les diagrammes A.1/A.4 (en fin de rang sur l'envers), et commencez A.3 sur l'endroit sur les 17 dernières mailles du rang + les 17 premières. Bon tricot!

01.02.2021 - 09:02

country flag Lebigot wrote:

Bonjour, J'ai tricoté en aller et retour et je suis arrivée aux 17 mailles et donc le moment où il faut tricoter en rond. Je ne sais pas si je dois retourner mon tricot et repartir dans l'autre sens où alors continuer à tricoter ces 17 mailles et si oui comment je les tricote? Merci!

29.01.2021 - 11:35

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lebigot, tricotez votre rang sur l'endroit jusqu'à ce qu'il reste les 17 dernières mailles, placez un marqueur, tricotez maintenant les 17 mailes suivantes + les 17 mailles de la fin des rangs précédent à suivre, comme indiqué dans A.3 (= 34 mailles). Et continuez en rond comme avant. Bon tricot!

29.01.2021 - 14:35

country flag Lebigot wrote:

Bonjour, je suis au tout début de ce modèle, après les 4 rangs endroits j'ai tricoté A1 puis *A2-A3* et enfin A2 puis A4 sur l'endroit. Pour le rang envers je ne sais pas si je dois faire A1 puis *A2-A3* et enfin A2 puis A4 ou alors l'inverse A4 puis A2 puis *A2-A3* et enfin A1. Merci!

18.01.2021 - 23:15

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lebigot, sur l'envers, lisez dans l'autre sens pour que les diagrammes s'alignent correctement, autrement dit, tricotez (en lisant les diagrammes cette fois de gauche à droite): A.4, puis A.2, puis (A.3, A.2), et terminez par A.1. Retrouvez ici plus d'infos sur les diagrammes. Bon tricot!

19.01.2021 - 07:24

country flag Anna wrote:

Hej, 6 rapporter av A3 och 8 av A5 blir det i storlek XXL

29.11.2020 - 02:27

country flag Anna wrote:

DROPS Design 28.10.2020 kl. 13:19: Hej Anna, du starter tidligere med A.3, for du starter først A.5 når du er færdig med A.2. God fornøjelse! I storlek XXL är A2 32 varv och 2 rapporter av A1/A4 är 32 varv = man börjar både A3 och A5 på varv 1 när man börjar sticka A5. Vilket innebär att jag inte kan göra 8 rapporter av både A3 och A5... 8 rapporter av A3 är 128 varv, 8 rapporter av A5 är 96 varv.... detta går inte ihop för mig.

28.10.2020 - 16:23

DROPS Design answered:

Hej Anna, det kan jeg godt se... vi kan rette antal rapporter... hvor mange rapporter har du strikket i A.3 og A.5 når du har 732 masker på pinden?

29.10.2020 - 09:51

country flag Anna wrote:

Hej, När jag stickat A1/A4 två gånger på höjden i den stora storleken så har jag också stickat klart A2 på höjden. När jag då börjar A3 och A5 så börjar jag båda på varv 1 vilket innebär att jag har 4 varv kvar av A3 när jag stickat A5 en gång på höjden. Hur får ni då ihop att man ska sticka båda 8 gånger? Måste väl bli fler gånger av A5 om jag ska kunna sticka 8 omgångar av A3 på höjden?

25.10.2020 - 10:22

DROPS Design answered:

Hej Anna, du starter tidligere med A.3, for du starter først A.5 når du er færdig med A.2. God fornøjelse!

28.10.2020 - 13:19