Karen skrifaði:
Have started this sweater, decided I am going to make it a long sleeved cardigan. Is there a pattern to follow for the long sleeves? Also, is it possible for me to make the neck higher as a neck cardigan?? I am making it a size XXXL. Thank you for taking the time to answer these questions.
10.01.2019 - 16:06DROPS Design svaraði:
Hi Karen, If you search under the yarn type and jacket/jumper you will find patterns for long sleeves which you could use instead - just be careful with the measurements and adjust stitch number if necessary. To make the collar higher at the back you need to work short rows - again search for the same yarn and a pattern with short rows and use these on your cardigan. Happy knitting!
11.01.2019 - 08:08
Bodil Clausen skrifaði:
Der står i opskriften- under ærmet: år arb måler 12-12-13-13-14-14 cm tages der 10-10-10-12-12-12 m ind midt under ærmet (dvs 5-5-5-6-6-6 m på hver side af osv. Skal der ikke lukkes 10 masker af???
16.08.2016 - 20:54DROPS Design svaraði:
Hej. Jo det ska vara lukkes af, texten har nu rättats. Mvh DROPS Design
17.08.2016 - 10:03Eman Shahien skrifaði:
Elegant and delicate
04.04.2013 - 23:32
Margot skrifaði:
Man kan ju blanda 2 färger på 3 olika sätt. Färg 1 och 2: 11,12,22.
14.03.2013 - 11:22
Elin Svensvik skrifaði:
Er det bare to farver på denne?Ser ut som det er tre farver.
14.03.2013 - 09:30DROPS Design svaraði:
Der bruges kun to farver, men du strikker et stykke med natur, et stykke med natur og stövrosa og et stykke kun med stövrosa. Paa den maade faar du tre forskellige overgange
15.03.2013 - 16:48SUSANA skrifaði:
Frescura y comodidad.
11.02.2013 - 02:34
Lise Svartås skrifaði:
Hvor mye garn må en ha hvis en bare vil ha en farge
31.01.2013 - 08:45DROPS Design svaraði:
400 gr for str S, 450 gr for str M osv.
31.01.2013 - 10:40Laura skrifaði:
I think Pembrooke would be a pretty name for it!
18.01.2013 - 01:21
Heidi skrifaði:
Kaunis, värien liuttaminen pikanttia.
16.01.2013 - 14:59
Tinou49 skrifaði:
J'aime beaucoup
15.01.2013 - 12:08
Estelle#estellecardigan |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Alpaca með stuttum ermum, gatamynstri og laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 148-4 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að taka upp l frá fyrri umf, prjónið þessa l sl. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l við miðju að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 2, 11, 19, 28, 36, 45 og 53 cm STÆRÐ M: 2, 11, 20, 29, 38, 47 og 55 cm STÆRÐ L: 2, 11, 20, 29, 38, 47 og 57 cm STÆRÐ XL: 2, 11, 19, 27, 35, 43, 51 og 59 cm STÆRÐ XXL: 2, 10, 19, 27, 36, 44, 53 og 61 cm STÆRÐ XXXL: 2, 11, 20, 29, 38, 47, 55 og 63 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 223-243-268-293-323-353 l (meðtaldar eru 5 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4 með 2 þráðum í litnum natur Alpaca. Prjónið 1 umf brugðið frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 3 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 8 l eru eftir og endið með 3 l sl og 5 kantlykkjum að framan í GARÐAPRJÓN. Haldið svona áfram með stroff – munið eftir HNAPPAGAT í hægra framstykki – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 4 cm er prjónuð 1 umf slétt frá réttu. JAFNFRAMT er fækkað um 69-77-86-95-105-115 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 154-166-182-198-218-238 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjón í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 5 cm er næsta umf prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan eins og áður, 3-3-5-5-7-7 l í sléttprjóni, prjónið A.1 (= 13 l), prjónið sléttprjón þar til 21-21-23-23-25-25 l eru eftir á prjóni, prjónið A.1 (= 13 l), 3-3-5-5-7-7 l með sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 7 cm er sett 2 prjónamerki í stykkið, 41-44-48-52-57-62 l frá hvorri hlið (= 72-78-86-94-104-114 l á milli prjónamerkja á bakstykki). Í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 3-3-3½-3½-5-5 cm millibili, 3-3-3-3-2-2 sinnum til viðbótar (= alls 4-4-4-4-3-3 færri) = 138-150-166-182-206-226 l. Þegar stykkið mælist 18-19-19-19-20-20 cm prjónið áfram með 1 þræði í litnum natur + 1 þræði í litnum daufbleikur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 22-22-23-23-24-24 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 5-5-5-5-8-8 cm millibili, 3-3-3-3-2-2 sinnum til viðbótar (= alls 4-4-4-4-3-3 útaukningar) = 154-166-182-198-218-238 l. Þegar stykkið mælist 39-41-42-43-44-45 cm er næsta umf prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 36-39-43-46-51-56 l eins og áður (= hægra framstykki), fellið af næstu 10-10-10-12-12-12 l fyrir handveg, prjónið 62-68-76-82-92-102 l eins og áður (= bakstykki), fellið af næstu 10-10-10-12-12-12 l af fyrir handveg og prjónið síðustu 36-39-43-46-51-56 l eins og áður (= vinstra framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 70-70-75-80-85-90 l á sokkaprjóna nr 4 með 1 þræði í litnum natur + 1 þræði í litnum daufbleikur. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið nú stroff (= 3 l sl, 2 l br). Þegar stroffið mælist 4 cm er prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 16-12-13-16-17-18 l jafnt yfir = 54-58-62-64-68-72 l. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi). Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5 og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 12-12-13-13-14-14 cm eru felldar af 10-10-10-12-12-12 l við miðju undir ermi (þ.e.a.s. 5-5-5-6-6-6 l hvoru megin við prjónamerki) = 44-48-52-52-56-60 l. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón nr 5 og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 222-242-266-278-306-334 l. Byrjið frá röngu, setjið 1 prjónamerki í byrjun umf – HÉÐAN ER NÚ MÆLT. Prjónið fram og til baka eins og áður með 2 þráðum í litnum daufbleikur JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu er fækkað um 11-5-12-11-9-11 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir 21-21-23-23-25-25 l æi hvorri hlið) 211-237-254-267-297-323 l. LESIÐ ALLAN KAFLANN UM BERUSTYKKI ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Þegar stykkið mælist 1-1-2-2-3-3 cm frá prjónamerki er næsta umf prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 21-21-23-23-25-25 l eins og áður, prjónið A.2 þar til 21-21-23-23-25-25 l eru eftir (þ.e.a.s. 13-15-16-17-19-21 mynstureiningar með A.2) og prjónið síðustu 21-21-23-23-25-25 l eins og áður (þ.e.a.s. A.2 er prjónað í sléttprjóni jafnframt sem lykkjum er fækkað eins og útskýrt er í teikningu). Að auki er fækkað um 1 l innan við kant að framan til skiptis á hægra og vinstra framstykki – ATH: Lykkjum er fækkað í sömu umf eins og lykkjum er fækkað í A.2 þannig að lykkjum er fækkað 3 sinnum innan við hægri kant að framan og 3 sinnum innan við vinstri kant að framan. Eftir síðustu úrtöku eru 127-141-152-159-177-191 l á prjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 54 cm í öllum stærðum (frá uppfitjunarkanti), endar A.1 í hvorri hlið eftir heila mynstureiningu á hæðina og haldið áfram í sléttprjóni yfir allar l (kantlykkjur að framan eru áfram í garðaprjóni). Þegar stykkið mælist 14-14-15-16-17-18 cm frá prjónamerki (munið eftir síðasta hnappagati í kanti að framan), prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 35-47-54-57-71-83 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur að framan) = 92-94-98-102-106-108 l. HÁLSMÁL: Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 1 umf slétt frá röngu með 2 þráðum í litnum daufbleikur. Prjónið nú 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT sem aukið er út um 21-24-25-26-27-30 l jafnt yfir (aukið ekki út yfir kantlykkjur að framan) = 113-118-123-128-133-138 l. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 3 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 8 l eru eftir og endið með 3 l br og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff þar til hálsmálið mælist 3 cm. Fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #estellecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 148-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.