Cécile D'Arcy skrifaði:
Belles pantouffes télé,
03.02.2013 - 19:37
Lapipe Monique skrifaði:
Très beau modèle
30.01.2013 - 13:53
Jacqueline skrifaði:
How do you start these slippers?
28.01.2013 - 13:49DROPS Design svaraði:
Dear Jacqueline, the slippers are worked top down, from garter st edge around the foot towards the sole. Happy knitting!
28.01.2013 - 14:59
Mee Koon Leong skrifaði:
I love every pattern, the most unique designs I've ever seen. I'm definitely make this pattern.
27.01.2013 - 21:47Velia skrifaði:
Estan muy bonitas con ganas de hacerlas
24.01.2013 - 01:01
Descombes skrifaði:
Superbe modèle original et elegant! Vivement les explications je pense faire plusieurs paires!....
22.01.2013 - 23:17
Descombes skrifaði:
Superbe modèle original et elegant
22.01.2013 - 23:15
Hallgunnur skrifaði:
Smukke
22.01.2013 - 11:01Maria Mercedes skrifaði:
Me gustaria que me indicaran cual es el video de este patron Gracias M Maria Mercedes
22.01.2013 - 02:36
Linda Douglas skrifaði:
It would be very helpful to move the stitch diagram up into the body of the pattern, closer to the reference to Diagram A.1.
21.01.2013 - 15:05
Jane#janeslippers |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Prjónaðar tátiljur úr DROPS Big Fabel. Stærð 35-43.
DROPS 147-19 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið er út um 1 l hvoru megin við 13 miðjulykkjur með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir göt. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður að tá. TÁTILJA: Fitjið upp 49-53-57 l á prjóna nr 4,5 með Big Fabel. Prjóni 8 umf GARÐAPRJÓN yfir allar l – lesið útskýringu að ofan. Prjónið nú – frá réttu þannig: Prjónið 1 l garðaprjón, 17-19-21 l sléttprjón, A.1 (= 13 l), 17-19-21 l sléttprjón, 1 l garðaprjón. Haldið svona áfram með mynstur – JAFNFRAMT Í 1. umf er aukið út um 1 l hvoru megin við 13 miðjulykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í hverri umf (þ.e.a.s. aukið er út bæði frá réttu og frá röngu) alls 15-17-20 sinnum = 79-87-97 l. Prjónið 1 umf eftir síðustu útaukningu. Nú mælist stykkið ca 9-10-11 cm. Haldið áfram með garðaprjón yfir allar l. JAFNFRAMT eftir 6 umf garðaprjón, fækkið um 1 l í byrjun á næstu 6 umf (þ.e.a.s. 3 l færri í hvorri hlið) = 73-81-91 l. Þegar prjónaðar hafa verið alls 12 umf í garðaprjóni er fellt laust af. FRÁGANGUR: Saumið saum undir fæti og upp meðfram miðju að aftan – saumið kant í kant yst í lykkjubogann, svo að saumurinn verði ekki of þykkur undir fæti. Prjónið aðra tátilju á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #janeslippers eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 14 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 147-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.