Marie Danneels skrifaði:
De rand onderaan krult helemaal op.Zal het door te stomen goed komen of heeft u een andere tip om deze rand te ontkrullen a.u.b. ? Ik brei met Karisma 100 % wol en nld. nr. 4
12.08.2012 - 10:43DROPS Design svaraði:
Goed om te horen dat het is goed gegaan met stomen.
31.08.2012 - 16:32
Marie Danneels skrifaði:
Ik begin er vandaag aan en gebruik als wol KARISMA 100 % wol. Ik laat weten hoe het afloopt -)))
12.08.2012 - 09:01
Drops Design skrifaði:
Bonjour Elodie, les manches ont été rajoutées, merci.
20.11.2009 - 15:21
Elodie skrifaði:
Je suis en train de faire ce modèle de pull pour ma nièce et je viens de m'apercevoir qu'il n'y avait pas les manches de marquer pour ce modèle. Pourriez vous m'envoyez les explications des manches. merci
20.11.2009 - 14:54
Fire Fairy#firefairysweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
DROPS peysa með röndum úr Cotton Chenille eða Cotton Merino. Stærð 6 mán – 8 ára.
DROPS Children 9-8 |
|||||||||||||
GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni ---------------------------------------------------------- PEYSA: Stykkið er prjónað fram og til baka. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 68-74-82 (88-94-100) l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið fyrir saum) á prjóna nr 2,5 með rauður/dökk grænn Cotton Chenille eða Cotton Merion. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram í sléttprjón og MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan – með kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm er felld af 1 l í hvorri hlið innan við kantlykkju 9-9-9 (9-10-11) sinnum í 2.-2.-2,5. (3.-3.-3.) hverjum cm = 50-56-64 (70-74-78) l. Þegar stykkið mælist 21-24-28 (32-34-38) cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umf: 2 l 2-2-2 (2-2-2) sinnum, 1 l 1-1-2 (2-2-2) sinnum = 40-46-52 (58-62-66) l. Þegar stykkið mælist 28-32-37 (40-43-48) cm fellið af miðju 6-8-8 (10-10-12) l fyrir hálsmáli. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í annarri hverri umf: 2 l 2 sinnum, 1 l 2 sinnum = 11-13-16 (18-20-21) l eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist ca 32-36-41 (45-48-53) cm. BAKSTYKKI: Fitjið upp og prjónið eins og framstykki. Fellið af fyrir handveg eins og á framstykki og prjónið áfram þar til stykkið mælist 28-32-37 (41-44-49) cm. Nú skiptist stykkið upp að miðju að aftan fyrir klauf/op að aftan. Prjónið til loka hvora hlið fyrir sig – ysta l að klaufinni er í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 31-35-40 (44-47-52) cm fellið af 8-9-9 (10-10-11) l við miðju að aftan. Fellið síðan af 1 l í næstu umf við hálsmál = 11-13-16 (18-20-21) l eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 32-36-41 (45-48-53) cm. ERMI: Fitjið upp 32-34-36 (38-40-42) l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 2,5 með rauður/dökk grænn Cotton Chenille eða Cotton Merino. Prjónið 4 umf garðaprjón. Haldið áfram í sléttprjóni og mynstur – kantlykkja í garðaprjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið á stykki 5-6-7 (6-7-8) sinnum í 3.-3.-3. (4.-4.-4.) hverjum cm = 42-46-50 (50-54-58) l. Þegar stykkið mælist 21-23-26 (29-34-36) cm er fellt af hvoru megin við öxl í annarri hverri umf: 3 l 0-1-1 (1-2-2) sinnum, 2 l 7-5-6 (6-5-4) sinnum, 3 l 0-1-1 (1-1-2) sinnum. Fellið af, stykkið mælist ca 25-27-31 (34-38-41) cm. KRAGI: Prjónið KRAGI-1 fyrir 3 minnstu stærðirnar og KRAGI-3 fyrir 3 stærri stærðirnar. KRAGI-1: Fitjið upp 2 l á prjóna nr 2,5 með rauður/dökk grænn Cotton Chenille eða Cotton Merino. Prjónið 2 l í báðar l (= 4 l á prjóni). UMFERÐ 1: 3 l sl, sláið uppá prjóninn, 1 l sl. UMFERÐ 2: 1 l sl, sláið uppá prjóninn, 4 l sl. UMFERÐ 3-4: sl. UMFERÐ 5: 5 l sl, sláið uppá prjóninn, 1 l sl. UMFERÐ 6: 1 l sl, sláið uppá prjóninn, 6 l sl. UMFERÐ 7: sl – en síðasta l er tekin óprjónuð. UMFERÐ 8: fellið af 6 l, 1 l sl (= 2 l eru á prjóni eftir þessa umf). UMFERÐ 9: Prjónið 2 l sl í báðar l (= 4 l á prjóni). UMFERÐ 10: sl. Endurtakið umf 1-10. Haldið áfram með þetta kragamynstur í ca 22 til 26 cm – mælt í opi við háls. Kraginn á að liggja laus í kringum hálsmálið, fellið af – stillið af á eftir umferð 8. KRAGI-2: Fitjið upp 2 l á prjóna nr 2,5 með rauður/dökk grænn Cotton Chenille eða Cotton Merino. Prjónið 2 l í báðar l (= 4 l á prjóni. UMFERÐ 1: 3 l sl, sláið uppá prjóninn, 1 l sl. UMFERÐ 2: 1 l sl, sláið uppá prjóninn, 4 l sl. UMFERÐ 3-4: sl. UMFERÐ 5: 5 l sl, sláið uppá prjóninn, 1 l sl. UMFERÐ 6: 1 l sl, sláið uppá prjóninn, 6 l sl. UMFERÐ 7-8: sl UMFERÐ 9: 7 l sl, sláið uppá prjóninn, 1 l sl. UMFERÐ 10: 1 l sl, sláið uppá prjóninn, 8 l sl. UMFERÐ 11: sl – en síðasta l er tekin óprjónuð. UMFERÐ 12: fellið af 8 l, 1 l sl (= 2 l eru á prjóni eftir þessa umf). UMFERÐ 13: Prjónið 2 l sl í báðar l (= 4 l á prjóni). UMFERÐ 14: sl. Endurtakið umf 1-14. Haldið áfram með þetta kragamynstur í ca 27 til 30 cm – mælt í opi við háls. Kraginn á að liggja laus í kringum hálsmálið, fellið af – stillið af á eftir umferð 12. FRÁGANGUR: Saumið saman axlasauma. Takið upp á hringprjóna nr 2,5 með rauður/dökk grænn Cotton Chenille eða Cotton Merino ca 45-60 l í kringum hálsmál – frá miðju að aftan – setjið l á þráð. Takið upp sama fjölda l í kringum kragann og setjið þessar l á þráð. Prjónið kragann við hálsmálið með því að prjóna 1 l frá kraga slétt saman við 1 l frá hálsmáli – byrjið við miðju að aftan. Í næstu umf eru allar l felldar af. Heklið með heklunál nr 3 og rauður/dökk grænn Cotton Chenille eða Cotton Merino, 1 umf fl í kringum klauf/op að aftan – efst uppi í hægri hlið á klauf er hekluð ein hnesla = 5 ll, festið hnesluna með einni fl. Saumið hliðar- og ermasauma innan við 1 kantlykkju. Saumið ermar í og tölu að aftan við klauf. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #firefairysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 9-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.