Robert skrifaði:
Jolie
11.07.2012 - 14:49
Anna skrifaði:
Kjempefin! Gleder meg til å hekle dette sett!
03.07.2012 - 19:55
Anne Marie skrifaði:
Fint sæt. Især huen ser flot ud.
21.06.2012 - 22:04
ANGELICA skrifaði:
Molto belli e semplici, adatti ad una principiante come me !
04.06.2012 - 22:08
Fellwock skrifaði:
Leicht verspielt und trotzdem elegant einfach toll
02.06.2012 - 13:26Biljana skrifaði:
Very very beauty and elegant
02.06.2012 - 07:41
Silje skrifaði:
Bra at det kommer flere hekle oppskrifter på tilbehør
31.05.2012 - 16:42
Hazel#hazelset |
|
![]() |
![]() |
Settið samanstendur af: Heklaðri húfu og hálsklút úr 2 þráðum DROPS Vivaldi eða DROPS Brushed Alpaca Silk.
DROPS 141-13 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- UMFERÐ MEÐ ST (HRINGUR): Allar umf með st (hringur) byrja með 3 ll (= 1. st), hoppið yfir 1. st frá fyrri umf og heklið st í hvern st umf hringinn, endið með 1 kl í 3 ll í byrjun umf. ST-HÓPUR: 1 st-hópur = 3 st og 1 ll. Í byrjun umf er heklaður 1 st-hópur þannig: Heklið 3 ll (= 1. st), 2 st og 1 ll. UMFERÐ MEÐ ST-HÓPUM: Allar umf með st-hópum eru heklaðar þannig: * Heklið 1 st-hóp um næsta ll-boga, 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið með 1 kl í 3 ll í byrjun umf. Kl að næsta ll-boga. UMFERÐ MEÐ ST (FRAM OG TIL BAKA): Allar umf með st (fram og til baka) byrja á 3 ll (= 1. st), 1 st í hvern st út út umf, snúið ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður. HÚFA: Heklið 4 ll með 2 þráðum af Vivaldi eða Brushed Alpaca Silk með heklunál nr 5 og tengið í hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: Heklið 3 ll (= 1. st), 11 st um hringinn (= 12 st). LESIÐ UMFERÐ MEÐ ST (HRINGUR)! UMFERÐ 2: Heklið 2 st í hvern st = 24 st. UMFERÐ 3: Heklið * 1 st í næsta st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 st. UMFERÐ 4: Heklið * 1 st í hvvorn af næstu 2 st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 48 st. UMFERÐ 5: Heklið 1 st í hvern st = 48 st. UMFERÐ 6: Heklið * 1 st í hvern af næstu 3 st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 60 st. UMFERÐ 7: Heklið * 1 st í hvern og einn af næstu 14 st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 64 st. Stærð L/XL: Heklið * 1 st í hvern af næstu 15 st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 68 st. Allar stærðir: = 64-68 st. Í næstu umf er heklað þannig: Í 1. st er heklaður 1 ST-HÓPUR – sjá útskýringu að ofan, * 1 ll, hoppið yfir 3 st, 1 st-hópur í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, hoppið yfir síðustu 3 st, endið með 1 ll og 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 16-17 st-hópar. Heklið nú UMFERÐ MEÐ ST-HÓPUM – sjá útskýringu að ofan – þar til stykkið mælist ca 23-24 cm. Heklið 1 umf með st þannig: Heklið 1 st í hvern st, 1 st í hvern ll-boga, endið með 1 kl í 1. st = 64-68 st, klippið frá og festið enda. BLÓM - STÓRT: Heklið laust 16 ll með 2 þráðum af Vivaldi eða Brushed Alpaca Silk með heklunál nr 5, snúið við og heklið til baka þannig: 2. – 4. ll: Heklið 3 fl í hverja af 3 ll = 9 fl. 5. – 7. ll: Heklið 3 hst í hverja af 3 ll = 9 hst. 8. – 10. ll: Heklið 3 st í hverja af 3 ll = 9 st. 11. – 15. ll: Heklið 3 tbst í hverja af 5 ll = 15 tbst. 16. ll: Heklið 5 tbst í síðustu ll, klippið frá og festið enda. Snúið lengjunni og myndið blóm, festið það saman með nokkrum sporum í miðju. Saumið blómið niður á húfuna. -------------------------------------------------------- HÁLSKLÚTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka. HÁLSKLÚTUR: Heklið laust 38 ll með 2 þráðum af Vivaldi eða Brushed Alpaca Silk með heklunál nr 5, snúið og heklið 1 st í 4. ll frá nálinni, heklið nú 1 st í hverja ll = 36 st (1. st = 3 ll), snúið. Heklið nú UMFERÐ MEÐ ST (FRAM OG TIL BAKA) – sjá útskýringu að ofan þar til stykkið mælist 12 cm. Heklið nú þannig: UMFERÐ 1: Heklið 3 st í 1. st, * 1 ll, hoppið yfir 3 st, 3 st í næsta st, 1 ll, hoppið yfir 2 st, 3 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf út (alls 5 sinnum), en þegar þetta er endurtekið í síðasta sinn er heklaður 1 st í síðasta st í umf (í stað fyrir 3 st) = 10 st-hópar + 1 st í lok umf, snúið. UMFERÐ 2: Heklið 3 ll (= 1. st), 2 st um 1. ll-boga, 1 ll, heklið 1 ST-HÓPUR – sjá útskýringu að ofan – um næsta ll-boga í umf, endið með 1 ll og 1 st í síðasta st í umf = 10 st-hópar + 1 st í lok umf, snúið. Endurtakið umf 2 þar til stykkið mælist ca 168 cm. Heklið næstu umf (= 1. st–umferðin) þannig: Heklið 3 ll (= 1. st), 1 st um 1. ll-boga, * 1 st í hvern og einn af næstu 3 st, 1 st um næsta ll-boga, hoppið yfir næsta st, 1 st í hvorn af næstu 2 st, 1 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum. Endið með 1 st í hvern af næstu 3 st, 1 st um næsta ll-boga, hoppið yfir næsta st, 1 st í hvorn af síðustu 2 st = 36 st. Heklið nú st-umferð í 12 cm til viðbótar, stykkið mælist ca 180 cm, klippið frá og festið enda. BLÓM - LÍTIÐ: Heklið laust 12 ll með 2 þráðum af Vivaldi eða Brushed Alpaca Silk með heklunál nr 5, snúið við og heklið til baka þannig: 2. – 4. ll: Heklið 2 fl í hverja af 3 ll = 6 fl. 5. – 7. ll: Heklið 2 hst í hverja af 3 ll = 6 hst. 8. – 10. ll: Heklið 3 st í hverja af 3 ll = 9 st. 11. – 12. ll: Heklið 5 tbst í hvora af 2 ll = 10 tbst. Snúið lengjunni og myndið blóm, festið það saman með nokkrum sporum í miðju. Heklið 1 blóm til viðbótar alveg eins. BLÓM – STÓRT: Heklið 1 blóm á sama hátt og setjið á húfuna. FRÁGANGUR: Saumið blómin niður neðst niðri í annarri hliðinni á hálsklútnum. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #hazelset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 6 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 141-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.