DROPS Andes
DROPS Andes
65% Ull, 35% Alpakka
frá 1408.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5632.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 141-1
DROPS Design: Mynstur nr an-004
Garnflokkur E
-----------------------------------------------------------

Stærð: XS/S - M/L - XL/XXL - XXXL

Efni:
DROPS ANDES frá Garnstudio
400-500-600-700 gr litur nr 4300, ljós fjólublár

DROPS HEKLUNÁL NR 9 – eða þá stærð sem þarf til þess að 10 st á breiddina og 5 umf á hæðina verði 10 x 10 cm. Þegar ll-bogar eru heklaðir þá þarf ca 2,5 boga á breiddina og 5 boga á hæðina að 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Andes
DROPS Andes
65% Ull, 35% Alpakka
frá 1408.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5632.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsta st í hverri umf með st er skipt út fyrir 3 ll.
Allar umf með st enda með 1 kl í 3. ll í byrjun umf.
Hver umf sem byrjar með 3 ll og 1 fl um fyrsta ll-boga endar á 1 kl í 1.fl frá byrjun umf.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HRINGPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring frá miðju að aftan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Heklið 4 ll með Andes með heklunál nr 9. Tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR!

ALLAR STÆRÐIR:
UMFERÐ 1:
* Heklið 1 st um ll-hringinn, 2 ll *, endurtakið frá *-* 5 sinnum til viðbótar (= 6 st alls með 2 ll á milli hverra).
UMFERÐ 2:
Heklið 3 st í fyrsta st, 2 ll, * 3 st í næsta st, 2 ll *, endurtakið frá *-* út umf (= 18 st alls með 2 ll á milli hverra 3. st)
UMFERÐ 3:
* Heklið 2 st í fyrsta st, 1 st í næsta st, 2 st í næsta st, 2 ll *, endurtakið frá *-* út umf (= 30 st alls með 2 ll á milli hverra 5. st).
UMFERÐ 4:
* Heklið 2 st í fyrsta st, 1 st í hvern af næstu 3 st, 2 st í næsta st, 2 ll *, endurtakið frá *-* út umf (= 42 st alls með 2 ll á milli hverra 7. st).
UMFERÐ 5:
* Heklið 2 st í fyrsta st, 1 st í hvern af næstu 5 st, 2 st í næsta st, 2 ll *, endurtakið frá *-* út umf (= 54 st alls með 2 ll á milli hverra 9. st).

STÆRÐ XS/S og M/L:
UMFERÐ 6:
Heklið 1 kl í fyrsta st, * 1 st í hvern af næstu 7 st, 4 ll, 1 fl um ll-boga frá fyrri umf, 4 ll, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* út umf.
UMFERÐ 7:
Heklið 1 kl í fyrsta st, * 1 st í hvern af næstu 5 st, 4 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* út umf.
UMFERÐ 8:
Heklið 1 kl í fyrsta st, * 1 st í hvern af næstu 3 st, 4 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* út umf.
UMFERÐ 9:
Heklið 1 kl í fyrsta st, * 1 st í næsta st, 4 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* út umf = 30 ll bogar.
Stykkið mælist nú ca 18 cm frá miðju og út.

STÆRÐ XL/XXL og XXXL:
UMFERÐ 6:
Heklið 2 st í fyrsta st, 1 st í hvern af næstu 7 st, 2 st í næsta st, 2 ll *, endurtakið frá *-* út umf (= 66 st alls með 2 ll á milli hverra 11. st).
UMFERÐ 7:
Heklið 1 kl í fyrsta st, * 1 st í hvern af næstu 9 st, 4 ll, 1 fl um ll-boga frá fyrri umf, 4 ll, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* út umf.
UMFERÐ 8:
Heklið 1 kl í fyrsta st, * 1 st í hvern af næstu 7 st, 4 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* út umf.
UMFERÐ 9:
Heklið 1 kl í fyrsta st, * 1 st í hvern af næstu 5 st, 4 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* út umf.
UMFERÐ 10:
Heklið 1 kl í fyrsta st, * 1 st í hvern af næstu 3 st, 4 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* út umf.
UMFERÐ 11:
Heklið 1 kl í fyrsta st, * 1 st í næsta st, 4 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* út umf = 36 ll-bogar.
Stykkið mælist nú ca 22 cm frá miðju og út.

STÆRÐ XS/S:
UMFERÐ 10:
Heklið 3 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, * 6 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar (= 4 ll-bogar), 25 ll, hoppið yfir 3 ll-boga (= handvegur), 1 fl um næsta ll-boga, endurtakið frá *-* 14 sinnum, 25 ll, hoppið yfir 3 ll-boga (= handvegur), 1 fl um næsta ll-boga, endurtakið frá *-* 4 sinnum, en endið með 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf.
UMFERÐ 11:
Heklið 3 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, * 6 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út alla umf hringinn, en yfir þær 25 ll sem heklaðar voru ofan við hvorn handveg er heklað þannig: Heklið 6 ll, 1 fl í 4. ll, 6 ll, hoppið yfir 5 ll, 1 fl í næstu ll, 6 ll, hoppið yfir 5 ll, 1 fl í næstu ll, 6 ll, hoppið yfir 5 ll, 1 fl í næstu ll, 6 ll, 1 fl um næsta ll-boga (= alls 30 ll-bogar í umf).
UMFERÐ 12:
Heklið 3 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, * 6 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf – ATH: Í 5. hvern ll-boga er heklaður 1 auka bogi (= 6 ll + 1 fl) = 36 ll-bogar alls.
UMFERÐ 13:
Heklið 3 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, * 6 ll, 1 fl um næsta ll-boga*, endurtakið frá *-* út umf.
UMFERÐ 14:
Heklið eins og umf 12, en heklið 1 auka ll-boga í 6. hvern ll-boga = 42 ll-bogar alls.
UMFERÐ 15 allar odda umf:
Heklið eins og umf 13
UMFERÐ 16 og allar jafnar umf:
Heklið eins og umf 12, nema með 1 ll-boga fleiri á milli útaukninga í hvert skipti.
Heklið þar til 60 ll-bogar eru í umf.

STÆRÐ M/L:
UMFERÐ 10:
Heklið 3 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, * 6 ll, 1 fl um næsta ll-boga*, endurtakið frá *-* út umf hringinn. ATH: Í 5. hvern ll-boga er heklaður 1 auka bogi (= 6 ll + 1 fl) = 36 ll-bogar alls.
UMFERÐ 11:
Heklið 3 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga,* 6 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf.
UMFERÐ 12:
Heklið 3 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, * 6 ll, 1 fl um næsta ll-boga*, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar (= 5 ll-bogar), heklið 31 ll, hoppið yfir 4 ll-boga (= handvegur), 1 fl um næsta ll-boga, endurtakið frá *-* 16 sinnum, 31 ll, hoppið yfir 4 ll-boga (= handvegur), 1 fl um næsta ll-boga, endurtakið frá *-* 5 sinnum, endið með 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf.
UMFERÐ 13:
Heklið 3 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, * 6 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út alla umf hringinn, en yfir þær 31 l sem heklaðar voru ofan við hvorn handveg er heklað þannig: Heklið 6 ll, 1 fl í 4. ll, * 6 ll, hoppið yfir 5 ll, 1 fl í næstu ll *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar, 6 ll, 1 fl um næsta ll-boga (= alls 36 ll-bogar í umf).
UMFERÐ 14:
Heklið 3 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, * 6 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf – ATH: Í 6. hvern ll-boga er heklaður 1 auka bogi (= 6 ll + 1 fl) = 42 ll-bogar alls.
UMFERÐ 15:
Heklið 3 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, * 6 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf.
UMFERÐ 16:
Heklið eins og umf 14, en heklið 1 auka ll-boga í 7. hvern ll-boga = 48 ll-bogar alls.
UMFERÐ 17 og allar odda umf:
Heklið eins og umf 15.
UMFERÐ 18 og allar jafnar umf:
Heklið eins og umf 14, en með 1 ll-boga fleiri á milli útaukninga í hvert sinn.
Heklið þar til 72 ll-bogar eru í umf.

STÆRÐ XL/XXL og XXXL:
UMFERÐ 12:
Heklið 3 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, * 6 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf. ATH: Í 6. hvern ll-boga er heklaður 1 auka bogi (= 6 ll + 1 fl) = 42 ll-bogar alls.
UMFERÐ 13:
Heklið 3 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, * 6 ll, 1 fl um næsta ll-boga*, endurtakið frá *-* út umf.

STÆRÐ XL/XXL:
UMFERÐ 14:
Heklið 3 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, * 6 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* 5 sinnum til viðbótar (= 6 ll-bogar), heklið 37 ll, hoppið yfir 5 ll-boga (= handvegur), 1 fl um næsta ll-boga, endurtakið frá *-* 18 sinnum, 37 ll, hoppið yfir 5 ll-boga (= handvegur), 1 fl um næsta ll-boga, endurtakið frá *-* 6 sinnum, en endið með 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf.
UMFERÐ 15:
Heklið 3 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, * 6 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út alla umf hringinn, en yfir þær 37 ll sem heklaðar voru ofan við hvorn handveg er heklað þannig: Heklið 6 ll, 1 fl í 4. ll, * 6 ll, hoppið yfir 5 ll, 1 fl í næstu ll *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar, 6 ll, 1 fl um næsta ll-boga. (= alls 42 ll-bogar í umf).
UMFERÐ 16:
Heklið 3 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, * 6 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf – ATH. Í 7. hvern ll-boga er heklaður 1 auka bogi (= 6 ll + 1 fl) = 48 ll-bogar alls.
UMFERÐ 17:
Heklið 3 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, * 6 ll, 1 fl um næsta ll-boga*, endurtakið frá *-* út umf.
UMFERÐ 18:
Heklið eins og umf 16, nema heklið 1 auka ll-boga í 8. hvern ll-boga = 54 ll-bogar alls.
UMFERÐ 19 og allar odda umf:
Heklið eins og umf 17.
UMFERÐ 20 og allar jafnar umf:
Heklið eins og umf 16, nema með 1 ll-boga fleiri á milli útaukninga fyrir hvert skipti.
Heklið þar til 84 ll-bogar eru í umf.

STÆRÐ XXXL:
UMFERÐ 14:
Heklið 3 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, * 6 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf. ATH. Í 7. hvern ll-boga er heklaður 1 auka bogi (= 6 ll + 1 fl) = 48 ll-bogar alls.
UMFERÐ 15:
Heklið 3 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, * 6 ll, 1 fl um næsta ll-boga*, endurtakið frá *-* út umf.
UMFERÐ 16:
Heklið 3 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, * 6 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* 6 sinnum til viðbótar (= 7 ll-bogar), heklið 43 ll, hoppið yfir 6 ll-boga (= handvegur), 1 fl um næsta ll-boga, endurtakið frá *-* 20 sinnum, 43 ll, hoppið yfir 6 ll-boga (= handvegur), 1 fl um næsta ll-boga, endurtakið frá *-* 7 sinnum, en endið með 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf.
UMFERÐ 17:
Heklið 3 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, * 6 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út alla umf hringinn, en yfir þær 43 ll sem heklaðar voru ofan við hvorn handveg er heklað þannig: Heklið 6 ll, 1 fl í 4. ll, * 6 ll, hoppið yfir 5 ll, 1 fl í næstu ll *, endurtakið frá *-* 5 sinnum til viðbótar, 6 ll, 1 fl í næsta ll-boga (= alls 48 ll-bogar í umf).
UMFERÐ 18:
Heklið 3 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, * 6 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf – ATH: Í 8. hvern ll-boga er heklaður 1 auka bogi (= 6 ll + 1 fl ) = 54 ll-bogar alls.
UMFERÐ 19:
Heklið 3 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, * 6 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf.
UMFERÐ 20:
Heklið eins og umf 18, en heklið 1 auka ll-boga í 9. hvern ll-boga = 60 ll-bogar alls.
UMFERÐ 21 og allar odda umf:
Heklið eins og umf 19.
UMFERÐ 22 og allar jafnar umf:
Heklið eins og umf 20, en með 1 ll-boga fleiri á milli útaukninga fyrir hvert skipti.
Heklið þar til 96 ll-bogar eru í umf.

ALLAR STÆRÐIR:
Síðasta umf er hekluð þannig:
Heklið 3 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, * 1 oddur (= 3 ll, 1 st i fyrstu ll), 1 fl um sama ll-boga, 1 oddur, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf. Klippið frá og festið enda.
Stykkið mælist ca 42-50-58-66 cm frá miðju og út.

ERMI:
Ermarnar eru heklaðar frá handveg og niður.
Heklið í kringum annan handveginn þannig: Heklið 1 fl í fl neðst í handvegi (þ.e.a.s. á þeirri hlið sem hefur lengstu fjarlægð á milli ops á handveg), 6 ll, hoppið yfir hálfa ll-bogann og heklið 1 fl um næsta heila ll-boga, * 6 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* 1-2-3-4 sinnum til viðbótar, 6 ll, 1 fl í fl í hinn hluta opsins við handveg, 6 ll, hoppið yfir hálfa ll-bogann og heklið 1 fl um næsta heila ll-boga, endurtakið frá *-* 2-3-4-5 sinnum, endið með 6 ll og 1 kl í fyrstu fl í umf = 8-10-12-14 ll-bogar. Heklið 4 umf til viðbótar með 6 ll í hvern boga og 1 fl um hvern ll-boga – hver umf byrjar með 3 ll og 1 fl efst í fyrsta ll-boga. Heklið nú 6 umf með 5 ll í hvern boga. Heklið nú 4 ll í hvern boga (nú byrjar hver umf með einungis 2 ll) þar til ermin mælist 53-51-49-47 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla, mælið þegar stykkið er haldið uppi svo að það strekkist í rétta stærð).
Síðasta umf er hekluð þannig: Heklið 2 ll, 1 kl efst í fyrsta ll-boga, * 3 ll, 1st í fyrstu ll (= 1 oddur), 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf.
Heklið aðra ermi á sama hátt í hinni hliðinni.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 20.11.2013
HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta st í hverri umf með st er skipt út fyrir 3 ll. Allar umf með st enda með 1 kl í 3. ll í byrjun umf. Hver umf sem byrjar með 3 ll og 1 fl í fyrsta ll-boga endar á 1 kl í 1.fl frá byrjun umf.
Yfirfarið á vefsvæði: 28.04.2015
STÆRÐ XL/XXL: UMFERÐ 18: Heklið eins og umf 16, nema heklið 1 auka ll-boga í 8. hvern ll-boga = 54 ll-bogar alls.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 141-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (186)

country flag Ayaka73 wrote:

Pour la taille M, au tour 18 et tous les autres tours pairs, il est écrit" comme pour le tour 14 mais avec un arceau en plus entre les augmentations à chaque fois". Ça veut dire qu'il faut faire 12 arceaux supplémentaires en un seul tour? Merci pour votre réponse.

11.12.2022 - 20:55

DROPS Design answered:

Bonjour Ayaka73, vous augmentez tous les tours pairs comme au tour 14, autrement dit vous augmentez 6 arceaux tous les tours pairs, et, à chaque fois, vous crochèterez 1 arceau en plus entre 2 augmentations. Donc, au 18ème tour, augmentez dans chaque 7ème arceau, au 20ème tour dans chaque 8ème arceau etc... bon crochet!

12.12.2022 - 10:04

country flag Raziye wrote:

May i have the diagram of this jacket please?

14.10.2021 - 07:00

DROPS Design answered:

Dear Raziye, there is no diagram only written pattern to this jacket - but the video showing how to crochet the circle (from round 6 to 10) can also help you - Happy crocheting!

14.10.2021 - 09:27

country flag Jana wrote:

Prosím vás koľko oblúčikom ma rukáv vo veľkosti S? Nejako mi to nevychádza ☹️. Ďakujem

06.01.2020 - 17:53

DROPS Design answered:

Dobrý den, Jano, pro vel. S začínáme s 8 obloučky kolem průramku. Hodně zdaru! Hana

06.01.2020 - 21:18

country flag Jana wrote:

Pre veľkosť XS/S má teda tento svetrík koľko dokopy kruhových rádov (bez posledného ozdobného) (Posledný bude mať 60oblucikov) Ďakujem

04.01.2020 - 17:07

DROPS Design answered:

Milá Jano, řiďte se uvedeným počtem obloučků, ten je stěžejní. Nápomocná by mohla být také tato video-ukázka . Příjemné háčkování! Hana

04.01.2020 - 18:08

country flag Nancy wrote:

Merci infiniment pour cette belle création et toutes les autres créations disponibles ❤️Gratuitement c’est valorisant! J’ai débuter en janvier 2018 et depuis je suis experte et passionnée 😉 J adore vraiment votre site 💞 Nancy du Québec 🤪

07.09.2019 - 00:39

country flag Debbie wrote:

I'm having a problem with R12. The instructions say: But in every 6th ch-space work 1 extra ch-space (= ch 6 + 1 sc) = 42 ch-spaces in total. Given that I've been right on count with each round so far, this makes no sense to me at all and I'm not ending up with 42 ch spaces. Please help!

25.06.2019 - 21:54

DROPS Design answered:

Dear Debbie, on round 11 (size XL/XXL + XXXL) there are 36 ch-spaces, then on round 12 you will crochet *(6 ch, 1 sc in next ch-space) x 5 then work (6ch, 1 sc in next ch-space, 6 ch, 1 sc in next ch-space)* and repeat from *-* a total of 6 times you will have 5 + 2 ch-spaces in each repeat from *-* = 7 ch-spaces x 6 = 42 ch-spaces. Happy crocheting!

26.06.2019 - 06:32

country flag Mary wrote:

Hello, I just completed the Dalie Delight jacket. I used the yarn specified in the pattern instructions. What's the best way to block this piece; wet, spray or steam? Also, How can I lay it flat since the collar overlaps the sleeves? Thank you for your help.

29.10.2018 - 15:48

DROPS Design answered:

Dear Mary, you can block it wet or spray - lay it flat as shown in the measurement chart. Enjoy!

29.10.2018 - 16:16

country flag Mary wrote:

Hello, I love this pattern, but I'm having a couple of problems. The collar won't lay down flat. How can I get it to stay in place like the one in the picture? Also, I followed the steps for the sleeves, but since the chain length decreases it makes the sleeve pattern look twisted. Any ideas on how I can fix this? Thank you!

20.10.2018 - 23:42

DROPS Design answered:

Dear Mary, you can block the finished jacket flat to make the collar lay down flat. I'm not sure about the sleeves, a good idea would be to show your Yarn store (even with a picture per mail) so that they can help you. Happy crocheting!

22.10.2018 - 08:33

country flag Donna wrote:

I am confused starting sleeves for xs/s. I sm left handed so going in opposite direction but after the first 3 ch 6 and sc I don't understand what or where the sc goes on the "opposite" side of armhole. Very frustrated. Please help.

21.12.2017 - 22:00

DROPS Design answered:

Dear Donna, for sleeve you will crochet ch-spaces around the whole armhole, ie beginning mid under sleeve work the ch-spaces around the armhole, ie in the ch-spaces left unworked for armhole + in the chain worked when you skipped ch-spaces for armhole - make sure you are working from the right side of piece. Happy crocheting!

22.12.2017 - 08:03

country flag FloSteph wrote:

Bonjour J'adore ce modèle, mais je bloque à partir des emmanchures (tour 14-Xl-XXl). Au tour suivant (15), le patron dit de continuer tout le tour, mais du coup, pas d'ouverture pour les bras, puisque les indications suivantes ne disent pas de sauter des arceaux pour laisser l'ouverture. Pouvez-vous m'expliquer comment faire? Merci d'avance.

11.06.2016 - 22:26

DROPS Design answered:

Bonjour FloSteph, au tour 14 (XL/XXL), on forme les emmanchures en sautant 5 arceaux à 2 reprises que l'on remplace par 37 ml (cf partie soulignée ci-dessous): 3 ml, 1 ms dans le 1er arceau, *6 ml, 1 ms dans l'arceau suivant*, répéter de *-* encore 5 fois (= 6 arceaux), 37 ml, sauter 5 arceaux (= emmanchure), 1 ms dans l'arceau suivant, répéter de *-* 18 fois, 37 ml, sauter 5 arceaux (= emmanchure), 1 ms dans l'arceau suivant, répéter de *-* 6 fois mais terminer par 1 mc dans la 1ère ms du début du tour. Bon crochet!

13.06.2016 - 08:59