Andrea skrifaði:
Liebes Drops-Team, komme das erste Mal mit einer Anleitung nicht zurecht. Ich habe schon versucht, mein Schalmuster mit dem Bild zu vergleichen. Wenn ich die Maschen in der Hinreihe rechts und in der Rückreihe links stricke, ist mein Muster auf der Vorderseite glatt rechts (sowohl am linken als auch am rechten Rand) Ist das richtig ? Auf dem Bild sehen beiden Kanten eher nach links oder kraus aus. Was mache ich falsch ? Liebe Grüße Andrea Heumann
15.10.2012 - 12:28DROPS Design svaraði:
Liebe Andrea, Sie machen gar nichts falsch – wir hatten einen Fehler in der Anleitung. Herzlichen Dank für den Hinweis! Die M werden in der Rück-R ebenfalls rechts gestrickt, sonst wird es glatt rechts, genau wie sie sagen.
16.10.2012 - 09:11
Mineke skrifaði:
Heel mooi, deze wil ik graag gaan maken. Maar ik zou ook graag de handschoenen erbij maken. Zou dat patroon ook gepubliceerd kunnen worden?
17.07.2012 - 20:22DROPS Design svaraði:
Kijk onder patroon 140-37 ;o)
23.07.2012 - 16:20
Annica skrifaði:
Jättefint måste sticka dettta
15.07.2012 - 22:20Annette skrifaði:
Für die romantische Stimmung!
12.07.2012 - 17:38
Rokkey skrifaði:
Please why the glove not included in the pattern thank u
06.07.2012 - 18:34
Christien skrifaði:
Heel mooie sjaal!
03.07.2012 - 22:02
Annelin Aas skrifaði:
Hei! Nydelig sett, men kommer det oppskrift på vantene etterhvert? De er liksom prikken over i'en. Annelin
03.07.2012 - 09:05DROPS Design svaraði:
Vantene finner du enten under oppskriften til baskerluen og skjerfet som en link eller du kan gå direkte til oppskrift 140-37
27.09.2012 - 11:41
Teresa skrifaði:
Divino. Es muy fino y actual
01.07.2012 - 19:30
Jacquelien skrifaði:
Mooi dat in de puntjes. Prachtig bij ieder jas.
29.06.2012 - 23:25
Pat skrifaði:
I love this pattern but there is no link to this one or bs-029
29.06.2012 - 14:59
Emily#emilyset |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð basker / alpahúfa og hálsklútur í garðaprjóni og blúndukanti úr DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS 140-38 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN MEÐ PICOTKANTI (prjónað fram og til baka): UMFERÐ 1: Prjónið slétt. UMFERÐ 2: Prjónið slétt. UMFERÐ 3: Prjónið sl þar til 4 l eru eftir, þær eru prjónaðar þannig: 2 l sl saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, í hvora af síðustu 2 l eru prjónaðar 2 l = 2 nýjar l á prjóni. UMFERÐ 4: Takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, 1 l sl, steypið síðustu l á hægri prjóni yfir fyrstu l, nú er 2 l færri – prjónið nú sl út umf. Endurtakið umf 1 til 4. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Lykkjufjöldinn í mynstri A.1 er mismunandi allt frá 8-10 l eftir því hvar maður er staðsettur í mynstri. Í umf 3 og 4 í mynstri eru prjónaðar styttri umf þannig: Prjónið 3 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið út umf. Sama er gert í umf 9 og 10 í mynstri. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BASKER / ALPAHÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Byrjið á uppábroti neðst á húfunni. Prjónið upp nýjar l meðfram annarri langhliðinni á kanti og húfan er prjónuð til loka áður en hún er saumuð saman við miðju að aftan. BASKER / ALPAHÚFA: Fitjið upp 30-30 l á prjóna nr 2,5 með Baby Alpaca Silk. Prjónið GARÐAPRJÓN MEÐ PICOTKANTI – lesið útskýringu að ofan. Þegar prjónaðar hafa verið 244-264 umf í garðaprjóni (stykkið mælist ca 47-51 cm), er fellt af. Prjónið upp 1 l yst í aðrar hvora umf í garðaprjóni meðfram hlið sem ekki hefur oddlaga kant = 122-134 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið). Setjið 5 prjónamerki í stykkið þannig: Fyrsta er sett eftir 1 l, þau 4 næstu eru sett með 24-26 l millibili, eftir síðasta prjónamerki eru 25-27 l. Prjónið nú GARÐAPRJÓN fram og til baka - lesið útskýringu að ofan, JAFNFRAMT er aukið út um 1 l vinstra megin við öll prjónamerki þannig: Aukið út í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu), alls 4 sinnum og síðan í 4. hverri umf alls 7 sinnum = 177-187 l – ATH: Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn sl svo ekki myndist gat. Þegar stykkið mælist 9-10 cm frá því sem l voru prjónaðar upp, fækkið um 1 l vinstra megin við öll prjónamerki þannig: Fækkið lykkjum í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu), alls 31-33 sinnum = 22-22 l eftir á prjóni – ATH: Fækkið um 1 l með því að prjóna 2 l sl saman. Í næstu umf eru allar l prjónaðar sl saman 2 og 2. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og herðið að. Saumið saman húfuna við miðju að aftan innan við 1 kantlykkju. Brjótið uppá kant neðst niðri á húfunni. ------------------------------------------------------- HÁLSKLÚTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. HÁLSKLÚTUR: Fitjið laust upp 48 l á prjóna nr 3 með Baby Alpaca Silk. Prjónið GARÐAPRJÓN – lesið úrskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 9 cm eru fitjaðar upp 8 nýjar l í lok 2 næstu umf = 64 l. Setjið 1 prjónamerki innan við þær 8 nýju l í hvorri hlið (= 48 l milli prjónamerkja). Prjónið nú garðaprjón með mynstri eftir A.1 yfir síðustu l í hvorri hlið þannig: Prjónið umf 1 í A.1 (= 8 l – sjá útskýringu að ofan), prjónið sl út umf og snúið við. Næsta umf byrjar með umf 1 í A.1 yfir fyrstu 8 l, prjónið sl fram að næsta prjónamerki og prjónið umf 2 í A.1. Haldið áfram með mynstur þannig – ATH: Sjá MYNSTUR að ofan. Þegar stykkið mælist ca 110 cm (mælt þegar stykkið liggur flatt) – endið eftir heila mynstureiningu á hæðina – prjónið 1 umf brugðið yfir allar l áður en fellt er laust af. FRÁGANGUR: Leggið hálsklútinn tvöfaldan á lengdina og saumið neðstu eininguna á hálsklútnum (sú 9 cm langa einingin í garðaprjóni án oddlaga kanta í hvorri hlið), saman meðfram hliðinni – saumið kant í kant yst í lykkjubogann svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Þegar hálsklúturinn er notaður er gagnstæði endinn á hálsklútnum stungið niður í gegnum opið sem myndaðist og endinn á hálsklútnum er dreginn í gegnum opið. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #emilyset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 140-38
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.