Cathy62 skrifaði:
Très élégant, de la couleur pour illuminer le gris et la grisaille de nos hivers.
08.06.2012 - 20:49
Päivi skrifaði:
Kiva laukku arjen piristykseksi!
06.06.2012 - 20:56Florencia skrifaði:
Very beautifull purse!!!! I love it
06.06.2012 - 02:04Monika skrifaði:
I love the texture.
03.06.2012 - 01:51
Myran skrifaði:
Winterrose!
01.06.2012 - 16:27
Rie Sauer skrifaði:
Super smart.
01.06.2012 - 11:04Eve skrifaði:
Beautiful to accessorize every winter outfit
31.05.2012 - 21:49Herminia Barros skrifaði:
Very nice this bag for next winter
31.05.2012 - 18:11
Kerstin Sautier skrifaði:
Erinnert mich an die grüne Tasche Florella die ich für den Sommer gestrickt habe ;-) Diese passt zum Herbst/Winter, hoffentlich bald online erhältlich. Ich würde allerdings ein paaar Rosen weniger darauf nähen.
31.05.2012 - 16:32Judith skrifaði:
Espectacular,me encanto,las flores afieltradas,espero su traduccion
31.05.2012 - 16:17
Mademoiselle Rose#mademoisellerosebag |
|
|
|
Prjónuð og þæfð taska úr DROPS Snow með hekluðum og þæfðum rósum
DROPS 140-34 |
|
------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. TASKA: Fitjið upp 114 l á hringprjóna með lit nr 8 dökk grár. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 46 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú 1 umf brugðið, 1 umf slétt og 1 umf brugðið, áður en fellt er af með sl. AXLARÓL: Axlarólar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 6 l á hringprjóna með lit nr 8 dökk grár. Prjónið þannig: * Prjónið 1 l sl, leggið þráðinn fyrir framan stykkið (þ.e.a.s. á móti þér), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana br, setjið þráðinn aftur á bak við stykkið *, endurtakið frá *-* út umf. Núið við og endurtakið frá *-* í öllum umf. Þegar prjónað er svona, fæst hringlaga prjónuð snúra. Fellið af þegar stykkið mælist ca 100 cm. Prjónið aðra axlaról á sama hátt. FRÁGAGNUR: Saumið saman botninn á töskunni. Saumið aðra axlarólina niður í hvora hlið á töskunni, ca 8 cm inn frá hliðum. HEKLUÐ RÓS: Heklaðar eru 2 rósir með hverjum lit, fyrir utan með litnum dökk grár. Heklið þannig með heklunál nr 6: Heklið 4 ll, tengið þær saman í 1 hring með því að hekla 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: * Heklið 1 fl í ll-hringinn, 3 ll *, endurtakifrá *-* alls 3 sinnum og endið með 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf = 3 ll-bogar. UMFERÐ 2: Heklið þannig í hvern ll-boga: 1 kl, 5 st og 1 kl = 3 blað. Snúið við, næsta umf er hekluð frá bakhlið rósarinnar. UMFERÐ 3: Heklið 1 ll, heklið 1 fl kringum fyrstu fl frá 1. umf, 4 ll, heklið 1 fl neðst niðri í miðju á fyrsta blaðinu frá 2. umf, * síðan 4 ll, heklið 1 fl kringum næstu fl frá 1. umf, síðan 4 ll, heklið 1 fl neðst niðri í miðju á næsta blaði frá 2. umf *, endurtakið frá *-* þar til heklaðar hafa verið alls 5 ll-bogar, endið með 4 ll og 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf = 6 ll-bogar. Snúið við, næsta umf er hekluð frá framhlið rósarinnar. UMFERÐ 4: Heklið í hvern ll-boga þannig: Heklið 1 kl, 6 st og 1 kl = 6 blað. Snúið við, næsta umf er hekluð frá bakhlið rósarinnar. UMFERÐ 5: Heklið 1 ll, heklið 1 fl kringum fyrstu fl frá umf 3, 6 ll, * heklið 1 fl kringum næstu fl frá umf 3, 6 ll*, endurtakið frá *-* þar til heklaðar hafa verið alls 5 ll-bogar, endið með 6 ll og 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf = 6 ll-bogar. Snúið við, síðasta umf er hekluð frá framhlið rósarinnar. UMFERÐ 6: Heklið í hvern ll-boga þannig: Heklið 1 kl, 6 st og 1 kl = 6 blað. Klippið frá og festið enda. Rósin mælist ca 10 cm að þvermáli. Ekki sauma rósirnar fastar á töskuna fyrir þæfingu. ÞÆFING: Setjið töskuna og rósirnar í þvottavél með þvottaefni án enzyma og bleikiefna saman með litlu frotte handklæði ca 50 x 70 cm. Þvoið við 40 gráður með venjulegri vindingu án forþvottar ATH: Ekki nota stutt þvottakerfi. Eftir þvott er stykkið formað til á meðan það er enn vott. EFTIR ÞÆFINGU: Ef stykkið hefur þæfst of lítið og er of stórt: Þvoðu stykkið einu sinni enn í þvottavél á meðan það er enn vott. Ef stykkið hefur þæfst of mikið og er of lítið: Togið stykkið út í rétta stærð á meðan það er enn vott, ef stykkið er of þurrt, bleytið það fyrst. Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og venjuleg ullarflík. Saumið rósirnar niður í aðra hliðina, það eiga að vera 4 á breiddina og 3 á hæðina, notið þunnan gráan ullarþráð til að sauma með. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mademoisellerosebag eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 3 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 140-34
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.