Ilona Hoch skrifaði:
Diesen Kragen finde ich wunderschön und ich würde ihn gerne stricken,doch ich verstehe nicht die Bezeichnung:Oberkante und Unterkante.Ich würde mich freuen wenn Sie mir dies erklären würden. Mit freundlichem Gruß Ilona Hoch
04.12.2012 - 19:55DROPS Design svaraði:
Liebe Ilona, dieser Kragen wird quer gestrickt und Ober-und Unterkante bezieht sich darauf, wie Sie den Kragen nachher tragen werden: Oberkante = zum Hals zu, Unterkante = zur Brust zu.
05.12.2012 - 07:30
Tortll skrifaði:
Ser kjempefin ut. Gleder meg til oppsriften kommer
07.07.2012 - 16:05
Barbara skrifaði:
Den är fin ska sticka om jag har spunnit färdig garn från min hun,Finsk lapphund, jag spinner sådan garn
06.07.2012 - 20:25
Kathy skrifaði:
Hat was altmodisches. sehr schick! mir gefällt es sehr!
30.06.2012 - 18:25
Tiziana skrifaði:
Veramente delizioso, sembra il carrè di un abito inizi '900.
28.06.2012 - 11:00
Fely skrifaði:
Soy fanática de los cuellos y de los gorros...
20.06.2012 - 19:00
Marie Danneels skrifaði:
Bedankt om het telpatroon "groot" weer te geven. Super vrouwelijk en lief modelen te breien met rechte naalden, super !!
16.06.2012 - 09:39
Hanne skrifaði:
Virkelig fin
13.06.2012 - 11:22
Elly De Jong skrifaði:
Oude tijden herleven, mooi breisel
12.06.2012 - 12:58
Basia skrifaði:
Lovely, romantic design!
11.06.2012 - 01:13
Ellie#ellieneckwarmer |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónað hálsskjól úr DROPS BabyAlpaca Silk í garðaprjóni með öldulaga kanti.
DROPS 141-2 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A-1 og A-2. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. STUTTAR UMFERÐIR: Fyrsta umf byrjar frá neðri brún. *Prjónið að 1. prjónamerki, snúið og prjónið til baka, prjónið að 3. prjónamerki, snúið og prjónið til baka, prjónið 2 umf yfir allar l *, endurtakið frá *-*, þ.e.a.s. að 1 mynstureiningu = 10 umf með garðaprjóni á annarri hliðinni (= neðst) og 4 umf í garðaprjóni í hinni hliðinni (= efst). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Það er ekki neinn munur á réttu og röngu, stykkið lítur alveg eins út báðum megin. Byrjið þess vegna hverja umf eins og hún sé prjónuð frá réttu. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 60 l á prjóna nr 3 með BabyAlpaca Silk. Prjónið 1 umf slétt yfir allar l. Snúið, setjið nú 3 prjónamerki í stykkið frá neðri brún (án þess að prjóna lykkjurnar) þannig: Setjið 1. prjónamerki eftir 12 l, 2. prjónamerki eftir 12 l til viðbótar og 3. prjónamerki eftir aðrar 12 l, það eru nú 24 l eftir síðasta prjónamerki LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Haldið áfram frá neðri brún þannig: Prjónið mynstur A-1 yfir fyrstu 12 l, síðan sl út umf. Snúið og prjónið ofan frá þannig: Mynstur A-1 yfir þær 12 fyrstu l, síðan sl út umf. MYNSTUR: Þegar mynstur A-1 hefur verið prjónað 1 sinni í hvorri hlið á stykkinu, haldið áfram með A-2 til loka, allar l á milli A-2 eru prjónaðar slétt í öllum umf (= rétta). Lykkjufjöldinn í umf kemur til með að vera mismunandi frá 62 til 68 l eftir staðsetningu í mynstri. Passið uppá að öll prjónamerkin séu á sama stað allan tímann. STUTTAR UMFERÐIR: Jafnframt eftir 2 fyrstu umf er haldið áfram með STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan! Prjónið svona þar til stykkið mælist ca 40 cm efst og 100 cm neðst – endið eftir heila mynstureiningu af A-2, fellið laust af. Saumið hálsskjólið saman kant í kant við miðju að aftan (uppfitjunarkant á móti affellingarkant) svo að saumurinn verði ekki of þykkur. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #ellieneckwarmer eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 6 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 141-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.