Belinda skrifaði:
Den werde ich auf jeden Fall stricken
28.07.2012 - 20:40
Lisbeth skrifaði:
Dejlig model
28.06.2012 - 18:41
Inger skrifaði:
Artig modell.
27.06.2012 - 10:23
Monique Frohne skrifaði:
Gefällt mir sehr gut. Möchte ich gern stricken.
08.06.2012 - 16:56Cora skrifaði:
Très joli jacquart
05.06.2012 - 07:26
Anita Tholen skrifaði:
Altijd mooi, zo´n ronde pas. Krachtig motief. Mooi in Zwart-Wit
04.06.2012 - 08:49
Anna skrifaði:
Would be so pretty if not for the terrible fit. Why are the armpits where the waist should be?
03.06.2012 - 20:00
Elisabeth skrifaði:
Flot
01.06.2012 - 22:47Lilja Pétursdóttir skrifaði:
ICELAND
01.06.2012 - 14:32
Laurence skrifaði:
Très beau modèle!
31.05.2012 - 20:00
Nordic Urban#nordicurbansweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Big Fabel eða 2 þráðum DROPS Fabel með mynstruðu berustykki. Stærð S - XXXL.
DROPS 140-11 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni og öll úrtaka í mynstri er prjónuð með litnum svartur. ÚRTAKA (á við um hliðar á fram-og bakstykki): Byrjið á 2 l á undan prjónamerki og fækkið lykkjum þannig: Prjónið 2 l sl saman, Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 198-216-234-258-282-306 l á hringprjóna nr 4,5 með 1 þræði Big-Fabel eða 2 þráðum Fabel með litnum svartur. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið nú stroff (= 3 l sl, 3 l br). Þegar stroffið mælist 8 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 5. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 38-42-46-50-58-62 l jafnt yfir = 160-174-188-208-224-244 l. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið = 80-87-94-104-112-122 l á milli prjónamerkja á fram- og bakstykki. Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 10 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin (= 4 l færri) – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 3½-3½-3½-3-3-3 cm millibili, 5-5-5-6-6-6 sinnum til viðbótar = 136-150-164-180-196-216 l. Þegar stykkið mælist 34 cm er aukið út um 1 hvoru megin við bæði prjónamerkin (4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 4-4-5-5-6-6 cm millibili, 2 sinnum til viðbótar = 148-162-176-192-208-228 l. Þegar stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm, fellið af 8-8-10-10-12-12 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. 4-4-5-5-6-6 l hvoru megin við bæði prjónamerkin) = 66-73-78-86-92-102 l eftir á fram- og bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Fitjið upp 42-42-48-48-54-54 l á sokkaprjóna nr 4,5 með 1 þræði Big-Fabel eða 2 þráðum Fabel með litnum svartur. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið nú stroff (= 3 l sl, 3 l br). Þegar stroffið mælist 6 cm er skipt yfir á sokkaprjóna nr 5. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 6-6-10-10-12-12 l jafnt yfir = 36-36-38-38-42-42 l. Prjónið sléttprjón. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi). Þegar stykkið mælist 8-8-7-8-8-9 cm er aukið út um 2 l mitt undir ermi. Endurtakið útaukningu með 4-3-3-2½-2½-2 cm millibili, 8-10-11-12-12-14 sinnum til viðbótar = 54-58-62-64-68-72 l. Þegar stykkið mælist 42-42-42-41-41-41 cm fellið af 8-8-10-10-12-12 l mitt undir ermi (þ.e.a.s. 4-4-5-5-6-6 l hvoru megin við prjónamerki) = 46-50-52-54-56-60 l. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 224-246-260-280-296-324 l. Prjónið 1-1-1-2-4-6 umf slétt með svartur JAFNFRAMT er fækkað um 8-6-8-4-8-12 l jafnt yfir í 1. umf = 216-240-252-276-288-312 l. Nú er mynstur prjónað eftir A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað (endið við ör í þinni stærð), eru 108-120-105-115-120-130 l eftir á prjóni. Í stærð S og M er nú prjónuð 1 umf slétt með litnum svartur JAFNFRAMT er fækkað um 18-20 l jafnt yfir (ekki er prjónað/lykkjum fækkað í öðrum stærðum) = 90-100-105-115-120-130 l. Setjið 1 prjónamerki við miðju að framan. Nú er prjónuð upphækkun að aftan við hnakka (með litnum svartur og sléttprjóni) þannig: Byrjið við miðju að aftan og prjónið þar til 15 l eru eftir á undan prjónamerki við miðju að framan, snúið við, herðið á þræði og prjónið þar til 15 l eru eftir á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið, herðið á þræði og prjónið þar til eftir eru 27-30-32-32-33-35 l á undan prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið þar til eftir eru 27-30-32-32-33-35 l á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið, herðið á þræði og prjónið þar til eftir eru 39-45-49-49-51-55 l á undan prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið þar til eftir eru 39-45-49-49-51-55 l á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið, herðið á þræði og prjónið til baka við miðju að aftan. Prjónið 1 umf slétt, hringinn yfir allar l JAFNFRAMT er fækkað um 6-16-15-25-24-34 l jafnt yfir = 84-84-90-90-96-96 l. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4,5 og prjónið stroff hringinn (= 3 l sl, 3 l br). Þegar kantur í hálsmáli mælist 20-20-20-22-22-22 cm er fellt laust af með sl yfir sl og br yfir br. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #nordicurbansweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 140-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.