Blue Mountain#bluemountainjacket |
||||||||||
|
||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alaska með mynstri og sjalkraga. Stærð S - XXXL
DROPS Extra 0-817 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir 6 hnappagötum í hægri kanti að framan, öll affelling er gerð frá réttu. 1 HNAPPAGAT = prjónið 5. og 6. lykkju frá miðju að framan brugðið saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: Stærð S: 6, 14, 22, 30, 38 og 46 cm Stærð M: 6, 15, 23, 31, 39 og 47 cm Stærð L: 6, 15, 24, 32, 40 og 48 cm Stærð XL: 6, 15, 24, 33, 41 og 49 cm Stærð XXL: 6, 15, 24, 33, 42 og 50 cm Stærð XXXL: 6, 15, 24, 33, 42 og 51 cm MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1, mynsturteikning sýnir 2 einingar á breiddina. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um hálsmál að framan): Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkjur þannig: Lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju þannig: 2 lykkjur slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 210-226-242-270-286-314 lykkjur á hringprjón 4 með litnum grár / blár DROPS Alaska. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir og endið með 2 lykkjur slétt og 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 6 cm. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6 cm byrjar affelling fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – lesið útskýringu að ofan. Eftir stroff er skipt yfir á hringprjón 5 og næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 lykkjur garðaprjón, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið (= 14 kantlykkjur að framan), prjónið sléttprjón þar til 14 lykkjur eru eftir í umferð – JAFNFRAMT er fækkað um 49-53-57-61-65-69 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan), endið með 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur garðaprjón = 161-173-185-209-221-245 lykkjur. Setjið 1 merki 44-47-50-56-59-65 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 73-79-85-97-103-115 lykkjur á milli merkja á bakstykki). Látið merkin fylgja með í stykkinu. Prjónið síðan sléttprjón með 14 kantlykkjum að framan í hvorri hlið við miðju að framan eins og áður. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm prjónið A.1 þannig: Prjónið 14 kantlykkjur að framan eins og áður með litnum grár / blár, prjónið A.1 þar til 15 lykkjur eru eftir, prjónið 1. lykkju í A.1 (þannig að mynstrið byrjar og endar á sama hátt í hvorri hlið í kanti að framan) og endið með 14 kantlykkjur að framan eins og áður í litnum grár / blár. Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Fellið af fyrstu 13 lykkjur, setjið 1 merki (þetta merki sýnir hvar byrja á að prjóna upp kragann), prjónið út umferðina. Snúið og fellið af fyrstu 13 lykkjur, setjið 1 merki (þetta merki sýnir hvar enda á að prjóna upp kragann), prjónið út umferðina = 135-147-159-183-195-219 lykkjur. Nú skiptist stykkið við merkin í hliðum og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 73-79-85-97-103-115 lykkjur. Haldið áfram með A.1 (þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram með litnum grár / blár að loka máli) – JAFNFRAMT er nú fellt af fyrir handveg í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: 3 lykkjur 0-1-2-2-3-4 sinnum, 2 lykkjur 1-1-1-3-3-4 sinnum og 1 lykkja 3-2-1-2-1-1 sinnum = 63-65-67-69-71-73 lykkjur eftir á prjóni. Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm, fellið af miðju 17-19-19-21-23-23 lykkjur fyrir hálsmáli. Prjónið hvora öxl til loka fyrir sig. Síðan er felld af 1 lykkja í næstu umferð frá hálsmáli = 22-22-23-23-23-24 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 31-34-37-43-46-52 lykkjur. Haldið áfram með A.1 á sama hátt og á bakstykki með 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan – JAFNFRAMT er fellt af fyrir handvegi í hlið á sama hátt og á bakstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 48-49-50-51-52-53 cm, fækkið um 1 lykkju við hálsmál – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í 4. hverri umferð alls 2-2-3-3-4-4 sinnum og síðan í 8. hverri umferð alls 2-3-2-3-3-3 sinnum. Eftir alla úrtöku eru 22-22-23-23-23-24 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt. ERMAR: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna / hringprjóna. Fitjið upp 48-48-52-52-56-56 lykkjur á sokkaprjóna 4 með litnum grár / blár DROPS Alaska. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff = 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Þegar stykkið mælist 6 cm er skipt yfir á sokkaprjóna 5. Prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT er fækkað um 9-7-9-7-9-9 lykkjur jafnt yfir = 39-41-43-45-47-47 lykkjur. Setjið 1 merki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi). Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 7 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merki mitt undir ermi. Endurtakið útaukningu alls 9-10-11-12-13-15 sinnum með 4½-4-3½-3-3-2½ cm millibili = 57-61-65-69-73-77 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 20 cm er sett 1 merki í miðjulykkju í umferð (= mitt á ermi). Prjónið A.1. ATH: Sú lykkja sem er merkt með ör í mynsturteikningu á að passa við lykkju með merki í mitt á ermi. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram með litnum grár / blár að loka máli. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 47-47-46-46-45-45 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu) fellið af 4-6-6-6-6-6 lykkjur mitt undir ermi. Síðan er stykkið prjónað til loka fram og til baka. JAFNFRAMT er nú fellt af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið: 2 lykkjur 0-2-3-3-3-4 sinnum og 1 lykkja 3-3-4-4-5-6 sinnum. Síðan eru felldar af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 54-55-55-56-56-57 cm, síðan eru felldar af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru, stykkið mælist ca 55-56-56-57-57-58 cm. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma, saumið ermar í. SJALKRAGI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna 4 með litnum grár / blár DROPS Alaska. Prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju meðfram hálsmáli þannig: Byrjið mitt að framan við merki í hægra framstykki, prjónið upp að öxl, síðan meðfram hnakka og niður meðfram vinstra framstykki að merki = ca 90 til 110 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu JAFNFRAMT því sem lykkjufjöldinn er aukinn út til 118-122-126-130-138-146 lykkjur. Prjónið síðan stroff þannig (séð frá réttu): 2 lykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til kraginn mælist ca 5 cm. Nú er aukið út um 1 lykkju í hvera af miðju 12 brugðnu einingunum, séð frá réttu (= aftan í hnakka) = 130-134-138-142-150-158 lykkjur. Haldið síðan áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til kraginn mælist ca 7 cm. Nú er prjónað áfram þannig: Prjónið 1 umferð eins og áður og setjið fyrstu 10 lykkjur sem voru prjónaðar á þráð, snúið stykkinu, prjónið út umferðina og setjið fyrstu 10 lykkjur sem voru prjónaðar í byrjun umferðar á annan þráð. Snúið stykkinu, prjónið út umferðina og setjið inn fyrstu 10 lykkjur sem voru prjónaðar í byrjun umferðar á fyrri þráðinn, snúið stykkinu, prjónið út umferðina og setjið fyrstu 10 lykkjur sem voru prjónaðar í byrjun umferðar á seinni þráðinn. Haldið svona áfram þar til það eru alls 40 lykkjur á þræði í hvorri hlið. Síðan eru lykkjurnar settar af þráðunum til baka yfir á prjóninn og prjónuð er 1 umferð eins og áður yfir allar 130-134-138-142-150-158 lykkjur. ATH: Til að koma í veg fyrir göt í hverri skiptingu þegar stykkinu er snúið við er hlekkurinn á undan næstu lykkju prjónaður snúinn á vinstri prjóni og er prjónaður saman með fyrstu lykkju á prjóni. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Saumið kragann fallega niður neðst í hvorri hlið við kant að framan – saumið kant í kant svo saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið tölur í. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bluemountainjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-817
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.