Laines Et Soi skrifaði:
Il faut 700 gr pour la plus petite taille et non 600gr
31.05.2014 - 15:16
J.M. Faber-Vos skrifaði:
Zijn het niet te weinig steken voor achter/voorpand mijn man heeft 110 cm bovenwijdte.
27.01.2014 - 15:52DROPS Design svaraði:
Hoi. De bovenwijdte/omtrek van deze trui (met de juiste stekenverhouding) is 108-116-124-132 cm afhankelijk van de maat. Dus voor jouw man zou maat L prima kunnen passen.
28.01.2014 - 16:01
Margot skrifaði:
Herzlichen Dank für die schnelle Antwort! Dann bin ich ja gespannt, ob der Schal dann auch so aussieht wie Eurer... Jedenfalls - Danke für die Vielfalt an Mustern - umsonst!!!
05.12.2013 - 09:30
Margot skrifaði:
Super Modell, schlicht und genau dadurch so schön! Ich dachte der Schal ware im Patentmuster gestrickt, da er so dick und fluffing ist. In dieser Anleitung, wie auch der von nur Mütze und Schal ist das nur 2 re + 2 li - ist das richtig?
04.12.2013 - 10:48DROPS Design svaraði:
Liebe Margot, ja der Schal ist wie beschrieben 2 li - 2 re gestrickt.
05.12.2013 - 08:25
Sarah skrifaði:
Hallo, danke für diese schöne Anleitung. Ich habe eine Frage bezüglich des Ärmels. Es steht da: total alle 10-11-11-12 Mal alle 4-3,5-3,5-3 cm usw. Was soll ich mir unter 5-3 vorstellen? Das verstehe ich nicht. Danke für die Hilfe! LG
29.10.2013 - 23:12DROPS Design svaraði:
Liebe Sarah, diese Ziffern gehören zu verschiedenen Grössen: Grösse S/M: 4 cm, Grösse L: 3,5 cm, Grösse XL: 3,5 cm und Grösse XXL: 3 cm.
30.10.2013 - 07:47
Rover#roversweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Andes, húfa og hálsklútur.
DROPS Extra 0-819 |
|
------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka sem síðan er saumað saman í lokin. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 50-54-58-62 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna 9 með DROPS Andes og prjónið sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið í 12. hverjum cm alls 3 sinnum = 56-60-64-68 lykkjur. Þegar stykkið mælist 41-42-43-44 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umferð: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 0-0-1-1 sinnum og 1 lykkja 2-3-2-3 sinnum = 46-48-50-52 lykkjur. Þegar stykkið mælist 57-59-61-63 cm fellið af miðju 8-10-10-10 lykkjur fyrir hálsmáli. Haldið áfram með hvort stykki fyrir sig. Fellið síðan af í byrjun hverrar umferðar frá hálsmáli: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 15-15-16-17 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 64-66-68-70 cm. BAKSTYKKI: Fitjið upp og prjónið eins og framstykki. Fellið af fyrir handveg á sama hátt og á framstykki og prjónið áfram þar til stykkið mælist 62-64-66-68 cm. Nú eru felldar af miðju 14-16-16-16 lykkjur fyrir hálsmáli. Haldið áfram með hvora hlið fyrir sig. Í næstu umferð er felld af að auki 1 lykkja við hálsmál = 15-15-16-17 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 64-66-68-70 cm. ERMI: Fitjið upp 25-25-26-26 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón 9 með DROPS Andes og prjónið áfram í sléttprjóni. Jafnframt þegar stykkið mælist 11-12-13-14 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið með 4-3,5-3,5-3 cm millibili alls 10-11-11-12 sinnum = 45-47-48-50 lykkjur. Þegar ermin mælist 49-49-50-50 cm fellið af fyrir ermakúpu í hvorri hlið í annarri hverri umferð: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 3-3-2-3 sinnum, síðan eru felldar af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 56-57-59-60 cm að lokum eru felldar af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru, stykkið mælist ca 57-58-60-61 cm. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp ca 48 til 52 lykkjur á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 9 með DROPS Andes (passið uppá að prjóna upp í lykkjurnar en ekki á milli – þetta er gert til að koma í veg fyrir göt). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar kantur í hálsmáli mælist 8-10 cm, fellið af. FRÁGANGUR: Saumið ermar í. Saumið erma og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna / sokkaprjóna. HÚFA: Fitjið upp 56 lykkjur á hringprjón 8 með DROPS Andes. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið í 5 umferðir. Haldið áfram í sléttprjóni hringinn þar til stykkið mælist ca 18 cm. Haldið síðan áfram í sléttprjóni JAFNFRAMT er lykkjum fækkað þannig: Næsta umferð: * 2 lykkjur slétt saman, 5 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* = 48 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð: * 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* = 40 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð: * 2 lykkjur slétt saman, 3 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* = 32 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð: * 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* = 24 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Í næstu 2 umferðum eru allar lykkjur prjónaðar 2 og 2 slétt saman = 6 lykkjur eftir. Klippið þráðinn og þræðið í 2 sinnum í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. ------------------------------------------------------- HÁLSKLÚTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. HÁLSKLÚTUR: Fitjið upp 22 lykkjur á prjón 8 með DROPS Andes. Prjónið stroff með 2 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið þannig: UMFERÐ 1: 2 lykkjur slétt, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* 4 sinnum, 4 lykkjur slétt. UMFERÐ 2: 2 lykkjur slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* 4 sinnum, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt. Endurtakið umferð 1 og 2. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist ca 150 cm. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #roversweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-819
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.